Tíminn - 09.12.1977, Síða 4

Tíminn - 09.12.1977, Síða 4
4 Föstudagur 9. desember 1977 „Lærði íslenzku í Washington með hraði” segir dr. Lynn Martin í Menningarstofnun Bandaríkj anna, en hún kveður landið i dag F.I. — „Nei, ég er ekkert undra- barn. Ég hafði tekið einkanám- skeið i islenzku úti i Washington og var þess vegna nokkuð vel undirbúin, þegar ég kom til tsiands,” sagði Dr. Lynn Martin i samtali við Timann I gær, en dr. Lynn, sem nú er á förum, hefur verið ailt i öllu i menning- unni I Menningarstofnun Bandarikjanna frá þvi I júli á siðasta ári, séð um bókasafnið, fyrirlestra, kvikmyndir og undirbúið komu bandariskra listamanna á væntanlega Lista- hátið 1978. Hún hefur svo mikið að gera að sé hún spurð um fristundir hlær hún bara og fer út I aðra sálma. Hún talar islenzkuna mjög rétt og virðir beygingar út I yztu æsar, en tel- ur þó, að við ættum aö gera mál okkar aðgengilegra með þvi að leggja þær alveg niður. Aður en Lynn kom til Reykja- vikur, var hún háskólaprófessor við Háskólann i Wisconsin og kenndi þar fag, sem hún sjálf hefur doktorsnafnbót i, þýzkar bókmenntir. Auk þess hefur hún verið enskukennari i Kiel, dval- ið fjögur ár i Þýzkalandi við nám og kennslu og eftir að hún gekk I utanrikisþjónustuna, hef- ur hún auk Islands verið i afrikanska rikinu Liberiu. i dag er ferðinni heitið til New York og i janúar til Frankfurt. „Hvað ég les helzt? Dagblöðip gleypi ég og allt efni um island, nema landbúnaðarfréttir og fiskimarkaðsfréttir, — tölurnar þreyta mig. Forystugreinar les ég gjarnan og bækur eftir Lax- ness hef ég reynt að lesa mér aö gagni, en til þess þarf nokkra æfingu. Sérstakur ritháttur hans og stafsetning eru mér of- viða. Góðir menn hafa þó bætt úr þessu fyrir mig og kennt mér að þræða hinn gullna meðalveg I gegnum bækur Laxness og hygg ég gott til glóðarinnar.” Dr. Lynn vill ekki kalla sig rauðsokku, þótt böndin berist anzi mikið að henni i þvi efni. Hún er sjálfstæð kona með sjálf- stæðar koðanir, en ekki róttæk að eigin sögn. — Ég gerði eitt sinn skýrslu um það, hversu skammarlega fáir af fastráðn- um prófessorum við New York háskóla væru konur. Það er mitt framlag i kvennabaráttunni.” Þegar við spurðum dr. Lynn um vistina á Islandi almennt fór hún strax að tala um hið skelfi- lega skammdegi, hættulegt ferðalögum litilla skólabarna og hinar björtu nætur, en ómögu- legt var að fá hana til þess að segja nokkuð um íslendinga Dr. Lynn Martin: „Starfiö er ekki tóm hanastélssamkvæmi, eins og margir ætia Tfmamynd: Gunnar sjálfa, — hún vill greinilega eiga einhverja þeirra að, ef hún skyldi koma aftur. „Ég sakna þess bara að fá ekki að vera hér lengur”. — í starfi minu hitti ég margt fólk, sérstaklega lista- og leikhúsfólk, en ég hef mikið að gera og lifið er ekki alltaf dans á rósum,-----ekki eintóm hana- stélssamkvæmi eins og margir ætla. Þegar ég kem þreytt heim úr vinnunni, býður min tiltekt og uppþvottur alveg eins og hjá öllum öðrum konum. Við spurðum dr. Lynn að lok- um i hvernig heimi henni sýnd- ist við lifa. Svaraði hún þvi til, að það væri of einfalt að vera bjartsýnn nú, þegar öll stór riki tækju þátt i vigbúnaðarkapp- hlaupi, en maður skyldi aldrei missa vonina. Vinsamlegar við- ræður æðstu manna myndu fresta framkvæmdum. Volkswagen umboðið 25 ára Volkswagen umboðið I Heklu hf. I Reykjavik á aldar- fjórðungsafmæli um þessar mundir, en Hekla hf . tók við innflutningi á Volkswagen bif- reiðum þann 6. des. 1952. Þaö kom fram á blaðamannafundi. sem haldinn var af þessu til- efni, að alls hafa selzt 12.135 bifreiðar frá upphafi, þar af um 365 1 ár. Nýjustu gerðirnar eru VW Avant og VW Derby. A myndinni má sjá t.f.v. yf- irmann útflutningsdeildar VW á Norðurlöndum, Wolfgang Daiber, Arna Bjarnason frkstj. og lngimund Sigfús- son forstjóra Heklu hf. A fundinum var einnig sölu- fulltrúi Volkswagen á Norður- löndum Engebert Moe. e Frestur ur um sérkjarasamninga að fara fyrir kjaranefnd ef ekki er sótt eftir þeim fresti sem nú hefur fengizt. Að sögn Magnúsar óskars- sonar vinnumálafulltrúa Reykjavikur — þykir rétt i svo stórum samningum, að rikið fari á undan við gerð sér- kjarasamninga. Sveitarfélög- in sömdu mörg á undan rikinu æins og kunnugt er og þvi rennur frestur þeirra út fyrr. „Það felur ekki i sér að þessir aðilar hafi ekki sjálfstæðan samningsrétt”, sagði Magnús. Verkstæði höfnina, en þau - eru netagerð Thorberg Einarssonar og Neta- gerð Guðmundar Sveinssonar. Sá siðarnefndi hefur haft aðstöðu i Bakkaskála undanfarin fimm ár, en Gunnar kvað meginhluta verk- stæðisins vera i Mosfellssveit. . Hinn aðilinn hefur ekki haft að- stöðu á hafnarsvæðinu. Þess má geta að Hampiðjan mun hafa rætt við Netagerð Guðmundar Sveins- sonar um hugsanlegt samstarf. Það munu einkum vera útgerð- armenn loðnuskipa sem standa að baki Netagerð Thorbergs Ein- arssonar, en einnig er talið að umboðsmenn norskra veiðarfæra eigi þar hlut að máli. Ef það er rétt, gæti verið vafasamt að veita erlendum aðilum betri möguleika á að keppa við innlenda aðila. Samkoma stuðlað að þvi. b) Að berjast gegn dauðarefsingum og pyndingum eða slæmri meðferð á hverjum þeim, sem fangelsaður er, hafður i haldi eða hindraður á annan hátt i trássi við fyrirmæli Mannrétt- indayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. c) Að berjast með öll- um tiltækum ráðum gegn þvi, að þeim, sem hafðir eru i haldi vegna sannfæringar sinnar eða stjórn- málaskoðana, verði haldið án þess að dómsrannsókn fari fram innan rýmilegs tima, eða gegn hvers konar málsmeðferð varð- andi slika fanga, er ekki sam- ræmist viðurkenndum reglum, sem tryggja réttláta dóms- rannsókn. íslandsdeild Amnesty Inter- national var stofnuð árið 1974. Félagar hennar eru nú þrjú hundruð. GIRMI Brauðristar Verð kr. 9.-330.- Sendum i póstkröfu Verð kr. 5.660,- Sendum í póstkröfu RAFIÐJAN Kirkjustræti 8 Sirnur (91) 1-92-94 & 2-66-60 QIFWMi Hrærivélar Verð kr. 15.830.- Sendum i póst- kröfu. Kirkjustræti 8 Simar (91) 1-92-94 & 2-66-60 GIRMI^ jr^GIRMI8* jf Grill-ofnar . á ótrúlega góðu verði: kr. 26.915.- Sendum i póstkröfu." m Har- þurrkur RATIÐJAN" J HF. Kirkjustræti 8 Simar (91) 1-92-94 & 2-66-60

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.