Mosfellsblaðið - 01.12.1998, Síða 14
Félagsmiðstöðin
Margt hefiir verið gert að undanfömu hjá okkur í félagsmiðstöðinni Ból
en það sem staðið hefur upp úr er Date Ballið sem haldið var í Hlégarði mið-
vikudaginn 25.11.98 við frábærar undirtektir. Hljómsveitin Skítamórall spil-
aði fni 21:00-24.00 en þá var rúta heim fyrir þá sem vildu.Ballið fór mjög vel
fram og mættu allir í sínu fínasta pússi og voru sjálfum sér og öðrurn til mik-
ils sóma.
Að sjálfscigðu er Bólið opið alla daga og ýmislegt að
gerast, en við getum ekki talið það ailt upp hér, en
það eru nokkur atriði sem okkur finnst nauðsyn-
legt að minnast á. Stelpuklúbburinn Gærugeng-
ið hélt stelpukvöld eitt kvöldið. Þær byrjuðu á
því að fara í ratleik og enduðti aftur í Bólinu
þar sem að tekið var á móti þeim með heitu
kakói og þar beið leynigestur en það var
hann Mikael Torfason rithöfundur, sem las
úr nýju bókinni sinni. Strákaklúbburinn
Hausverkur var nteð drag-show við frábærar
undirtektir og í stað síðra Stuzzi buxna komu
þröngir kjólar, þrýstnir barntar (home made)
og háir hælar. Hljómsveitin Dead Sea Apple
bauð 10. bekkingum á útgáfutónleika sína í Loft-
kastalanum, við fóaim þangað með rútu og skemmtu
þau sem fóru sér vel.
Á næstunni er nóg að gera, 7.bekkjar ball, Ból nótt en þá gistum við í félagsmið-
stöðinni og skemmtum okkur saman í vernduðu umhverfi.
Ekki vanlaði gUesileikaiiu hjá krökkunum á „áale-ballimi".
Mikael Torfason les ár bók sinni fyrir sielpiikliíbbinn.
Fram að jólum verðum við með jólakvöld þar sem við munum föndra, skreyta
félagsmiðstöðina okkar, halda jólaball með skólanum, hafa það gott og njóta þess
að vera til.
Með kveðju og ósk um gleðileg jól og hamingjuríkt nýtt ár.
Frá statfsfólki og unglingum ífélagsmiðstöðinni Ból.
feisðslt komandi ár!
Þökkum íhúum Mosfellsbœjar
ánœgjulegt samstarf
á árinu sem er að líða
Vöndum valið, veljum íslenskt
SIGURPLAST HF
Óvenjulegt
handverk
Dagný Erlingsdóttir hannar og framleiðir óvenjulegt handverk sem hefur hlot-
ið mikla eftirtekt. Dagný sem býr í Barrholti 23 hér í Mosfellsbænum hann-
ar og framleiðir vörunar heima hjá sér og er hún búin að vera í þessu í þrjú ár.
Dagný selur sitt handverk heima, en seldi áður gegnum blómabúðir en er nú
hætt því. Þá selur hún töluvert af framleiðslu sinni norður í land. Dagný hefur ver-
ið með sína framleiðslu til sölu á torginu í Kjarna og einnig hefur hún verið á
Garðatorgi. Dagný selur einnig aðrar handverks-og föndurvörur. Hægt er að
kaupa eftir pöntunum.
tloslrllslilaOii)