Tíminn - 31.12.1977, Blaðsíða 8
8,
Laugardagur 31. desember 1977
Ingólfur Davíðsson:
og búið í
gamla daga 203
„Hilsift" á Eyrarbakka (bakblib) 14/8 1877
Kornsá I Vatnsdal um 1890
Lltum heim a6 Kornsá i
Vatnsdal, kunnu býliað fornu og
nýju, kallað Kárnsá I Vatns-
dælu. Er þar m.a. getið Þor-
grims Kárnsárgoöa, fööur Þor-
kels kröflu. A siðasta fjórðungi
19. aldar varð Kornsá
höfðingjasetur að ný ju, er Lárus
Björnsson Blöndal sýslumaöur
hélt þar bú frá 1877 til 1894,
kvæntur Kristinu Asgeirsdóttur
frá Lambastööum á Seltjamar-
nesi. Voru þau bæöi rausnsöm
og höföingsbragur á heimilinu.
Lárus reisti timburhús á
Kornsá, og þótti það að vonum
sveitarprýði (sjá mynd).
Um aldamótin keypti Kornsá
Björn Sigfússon prests Jónsson-
ar frá Reykjahlið. Hann var um
skeið alþingisfulltrúi Húnvetn-
inga. Kona hans, Ingunn Jóns-
dóttir frá Melum hefur ritað
„Gömul kynni” o.fl. bækur.
Lárus Blöndal alþingisbóka-
vörður hefur léö i þáttinn mynd
af gamla timburhúsinu á
Kornsá, og látið fylgja nöfn á
fólkinu. Myndina tók Arnór
Egilsson ljósmyndari, liklega
um 1890. Nöfn á fólkinu talið frá
vinstri til hægri: Jón Sigfússon
prests Jónssonar, Kristján
Lárusson Blöndal, Haraldur
Lárusson Blöndal, Kristin Blön-
dal, Lárus Blöndal sýslumaöur,
Sigrlöur Lárusdóttir Blöndal,
Þórður Magnússon Blöndal,
Guðrún Lárusdóttir Blöndal,
Páll Snorrason kaupmaður á
Siglufirði Jónssonar, Sigriður
Jónasdóttir yfirsetukona, Anna
Stefánsdóttir, systir séra Stefán
i Auðkúlu. 1 glugganum Agúst
Lárusson Blöndal. 1 dyrunum:
Jósep Lárusson Blöndal og
Jónas Guömundsson bóndi á
Eyjtílfsstöðum. Skúrbygging
var reist norðan við húsið, lfk-
lega um eða skömmu eftir fyrri
heimsstyrjöld. Húsið stendur
enn, enda gert úr völdum viöi
(rauðavið, sem seint fúnar).
Torfbær með burstum sttíð
þarna áður, og eitthvað eftir að
timburhúsiö var byggt.
Höldum suður yfir heiðar og
litum á gömul kunn timburhús á
Eyrarbakka. Nálægt kirkjunni
stendur enn „Húsið”, en það lét
Jens Lassen kaupmaður reisa
árið 1765, og hefur þaö lítið
breytzt frá upphafi. Þetta er
bjálkahús með standþiljum að
utan og með mjög háu risi.
Verzlunarstjórarnir bjuggu i
þvi og var löngum horft þangaö
með óttablandinni virðingu.
Nafn þessa litla timburhúss
„Húsiö” talar máli sinu um
ibúðir almennings á siðustu öld.
Gert hefur verið við húsið 1
seinni tið og litur það vel út.
Myndimar af þvi voru teknar
14. ágúst 1977 og sýna framhliö
og bakhlið, ásamt gömlum
brunni bakvið það.
Loks er mynd af gömlu
verzlunarhúsunum (Lefoii-
verzlun), tekin um 1890, en þau
eru nú horfin. Jámklæöning var
orðin ryöbrunnin, en hinir gildu
viðir enn tífúnir. Var efnið notað
i stórt fiskverkunar- og salt-
geymsluhús I Þorlákshöfn, en
möl og skeljasandi ýtt yfir rústir
gömlu „Vesturbúöarhúsanna”.
Var hin sögufræga „Lefolii-
verzlun” þar með horfin að fullu
og öllu.
„Þarfasti þjónninn” hefir
auðsjáanlega veriö helzta flutn-
ingatækið. Hús Lefoliiverzlunar
voru einhverjar mestu
verzlunarbyggingar á Islandi
um skeið. Um 1884 lét Lefolii
byggja bökunarhús og voru
Lefoliibrauöin fræg. Verzlun-
inni lauk 1919 og hafði þá verið
kennd við Lefolii i um 80 ár.
Kunnur verzlunarstjóri 1887-
1909 var Pétur Nielsen, mikill
áhugamaöuri náttúrufræði. Gaf
hann mikið safn fugla og eggja
til náttúrugripasafnsins. Þeim
sem vildu fræðast um húsin og
verzlunina skal bent á ritið
„Saga Eyrarbakka” eftir Vig-
fús Guömundsson, útgefin 1949.
„Hikiið” á Eyrarbaklu 14/8 1877
Lefolii-verzlun á Eyrarbakka um 1890