Tíminn - 31.12.1977, Qupperneq 37
Laugardagur 31. desember 1977
37
SIMRAD RÁÐSTEFNA
KEJ — A vegum Simrad og um-
boðs þessá íslandi var á fimmtu-
dag haldin ráðstefna um fisk-
veiðimál á Hótel Esju um leið og
kynnt voru Simrad asdic-tæki,
dýptarmælar, höfuðlinuút-
búnaður og siglingartæki. A
Bændafundir
ráðstefnuna mættu nær áttatiu
skipsstjórnar- og útgerðarmenn
og meðal þeirra sem héldu ræður
á ráðstefnunni voru Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur, Agúst
Einarsson LIÍJ, Svavar Ár-
mannsson hjá Fiskveiðisjóði,
Austurlandi
Barði Árnason hjá Landsbanka
Islands og Kári Jóhannesson
F.A.O. Opnunarræðuna hélt Erik
Mustad framkvæmdastjóri hjá
Simrad. Þá fóru fram almennar
umræður og fyrirspurnum var
svarað.
Skorað á stjórnvöld að
afnema söluskatt af
kjöti og kjötvörum
FI — Búnaðarsamband Austur-
lands boðaði til tveggja bænda-
funda fyrir miðjan desember en
þvi miður hefur nokkuð dregizt
að segja frá niðurstöðum hér I
blaðinu. Fyrri fundurinn var að
Staðarborg I Breiðdal þann 12.
des., en hinn sföari að Vala-
skjálf Egilsstööum 13. des.
Frummælandiá báðum þessum
fundum var Arni Jónasson,
erindreki Stéttarsambands
bænda.
Fundir.nir mótmæltu úrskurði
yfirnefndar um verðlagsgrund-
völl landbúnaðarins og bentu
sérstaklega á fjármagnsliðinn í
þvi sambandi, en þar eru m.a.
laun húsfreyju lægra metin en
laun bóndans fyrir sömu vinnu,
sem gengur i berhögg við gild-
andi lög.
Skorað er á stjórnvöld að af-
nema söluskatt af kjöti og kjöt-
vörum án þess að niðurgreiðslur
verði skertar. Með þvi myndi
sala innanlands aukast veru-
lega og jafnframt verkar sú
ráðstöfun til lækkunar visitölu,
segir i ályktuninni.
Rættvarum þann vanda, sem
við er að fást i afurðasölumál-
um landbúnaðarins og töldu
fundarmenn á Egilsstöðum
timabundna gjaldtöku af inn-
fluttu kjarnfóðri skásta af þeim
leiðum, sem aukafundur
Stéttarsambands bænda benti á
til úrbóta á vandanum.
Gleðilegt nýór
þökkum viðskiptin
á liðnum órum
Sölufélag Dalvíkur h.f.
Rœkjuvinnsla
Vittu fundirnir þá hlutdrægni,
sem viðhöfð var i rikisfjöl-
miðlunum við siðustu verð-
breytingar og telur hana ský-
laust hlutleysisbrot.
Að Staðarbergi i Breiðdal
fögnuðu menn þeirri ákvörðun
Stéttarsambandsins að verja
nokkurri fjárhæð til markaðs-
leitar fyrir landbúnaðarafurðir
erlendis i samvinnu við SIS og
rikisvaldið, en telur þá upphæð
of lága og að rikinu beri skylda
til að leggja fram eigi lægri upp-
hæð i sama skyni, þar sem það
sé stórt hagsmunamál fyrir alla
þjóðina, að góður markaður
finnist fyrir þessa ágætu og sér-
stæðu vöru.
Fundurinn telur að endurtek-
in vilyrði landbúnaðarráðherra
um aukningu á rekstrar- og
afurðarlánum til bænda, svo að
sláturleyfishafar geti greitt 90%
af v'erði sauðfjárafurða við mót-
töku, verði að vera meira en
orðin tóm. Ætti rikisstjórnin að
knýja Seðlabankann til þeirrar
fyrirgreiðslu.
Einnig var þvi beint að land-
búnaðarráðherra að hann beitti
sér fyrir afnámi innflutnings-
gjalda, tolla og söluskatts af
vélum og varahlutum til land-
búnaðarins.
• •HMtHMMMMMttMtMmMJ
Tímínn er ]
peningar |
] Auglýsicf :
í Timanum I
• •
.••••••••»••••••••••••••••••♦♦•••
SKIPSTJÓRAR - ÚTGERÐARMENN
FARIÐ VEL MEÐ NÓTINA
NOTIÐ
KRAFTBLAKKIR
TRIPLEX gefur jafnt og gott átak sem
dreyfist á stóran flöt nótarinnar, átak sem
skiptist á 3 rúllur. Hraðari og öruggari
dráttur nótar.
Hverri rúllu skipt þannig^ að hægt er að
ráða hraða korklinunnar og garnsins sér-
staklega.
TRIPLEX kraftblakkirnar eru notaðar af
öllum aflahæstu hringnótaskipum á N-At-
lantshafi.
Leitið nánari upplýsinga:
Garðastræti 6
Símar 1-54-01 & 1-63-41
Óskum Siglfirðingum öllum,viðskiptavin-
um svo og blaðburðarbörnum
gleðilegs nýárs
Þökkum liðið.
Söluturninn F.F.
Aðalgötu 23, Siglufirði.
Öllum viðskiptavinum óska ég
gleðilegs nýárs
með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.
Guðmundur Þorsteinsson
gullsmiður, Bankastræti 12.