Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 35
7
Ísbúðin Brynja, sem er til húsa að
Aðalstræti 3, á sér lengri sögu en
margan gæti grunað, alveg aftur til
1942-3. Hjónin Fríður Leósdóttir og
Júlíus Fossberg Arason eru fimmtu
eigendur ísbúðarinnar, en segja má
að hún hafi staðið í blóma frá því
að þau tóku við rekstrinum fyrir 21
ári.
Fríður segir búðina hafa byrjað
sem eins konar „kaupmann á horn-
inu“. „Upp úr 1950 var ein ísvél tekin
í notkun á sumrin í búðinni,“ útskýr-
ir hún. „Þegar við tókum við rekstr-
inum var einni vél bætt við og ís
seldur allt árið um kring. Núna erum
við komin með sjö íshólf í búðina og
ísinn hefur aldrei verið vinsælli.“
Aðspurð um vinsældir Brynju-
íssins segir Fríður að hollusta sé
einfaldlega vanabindandi. „Ísinn er
heimalagaður, meðal annars unn-
inn upp úr Norðurmjólk, og eru ekki
nema 130 fitueiningar í hverjum
100 grömmum af hvítum ís,“ segir
hún stolt í bragði. „Bragðarefur
með ávöxtum er ein vinsælasta
ístegundin, sem er líklega af því að
sífellt fleiri vilja temja sér hollan
lífsstíl. Svo er ís í brauði sívinsæll,“
bætir hún við.
„Við njótum líka ákveðinnar sér-
stöðu vegna piparmola frá Mola á
Dalvík sem við setjum í bragðaref-
inn,“ segir Fríður. „Í samvinnu við
Mola ákváðum við að prófa blönd-
una á viðskiptavinum okkar og sló
hún í gegn. Það er til dæmis mjög
vinsælt að blanda piparmolum og
jarðarberjum saman í bragðarefn-
um. Annars er flóran mikil og fólk
hefur nokkuð frjálsar hendur með
ísinn sem það kaupir,“ segir hún að
lokum.
Piparmolar og
jarðarber
Brynjuís trekkir viðskiptavini alls staðar að.
Fríður hefur ásamt manni sínum Júlíusi rekið ísbúðina Brynju síðastliðin 21 ár. Búðin hefur
staðið í blóma frá því að þau hjónin tóku við rekstrinum. FRETTABLADID@HEIDA.IS
Kalli er mjög vinsæll krakkaís í kallaboxi. Þeir koma í nokkrum litum hver með sinn karakt-
er. Hægt er að fara með boxið aftur í búðina og fá áfyllingu fyrir aðeins 150 krónur.
Það svalasta í dag er ís með pipardýfu sem
er framleidd af Mola á Dalvík. Hér sést
bragðarefur með piparmolum, jarðarberj-
um og einni súkkulaðitegund.
Ís í formi er klassískur og nýtur sífelldra
vinsælda. Ísinn í Brynju er tiltölulega
hollur miðað við það sem þekkist, en 130
fitueiningar eru í hverjum 100 grömmum
af hvítum ís.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { norðurland } ■■■■