Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 33
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. GÓÐAN DAG! Í dag er laugardagurinn 3. júní, 154. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 3.18 13.26 23.36 Akureyri 2.26 13.11 23.59 Toyota hefur látið innkalla um það bil eina milljón bíla vegna galla í stýrislið. Í Danmörku hafa rúmlega 15 þúsund Toyota eig- endur fengið tilkynningu um að láta skipta út gölluðum lið milli stýrisleggs og stýrisvélar. Í Noregi hafa 12.500 bílar verið innkall- aðir. Boxervél Subaru hlaut á dögun- um verðlaun sem besta vélin í flokki 2 til 2,5 lítra bílvéla á árinu. Það voru samtökin International Engine of the Year sem veittu verðlaunin á sýningunni Engine Expo í Stuttgart í Þýskalandi. Árbók Ferðafélags Íslands 2006 er komin út. Bókin nefnist Mývatnssveit – með kostum og kynjum, og í bókinni er fjallað um Mývatnssveit og umhverfi hennar. Bókina skrifaði Jón Gauti Jónsson landfræðingur. ALLT HITT BÍLAR FERÐIR FIMMTÁN BESTU BÍLA- TEGUNDIRNAR Tímaritið Money Magazine hefur valið fimmtán bestu bíla ársins í jafn mörgum flokkum. BÍLAR 4 Gísli Rúnar Víðisson er sýningarstjóri á Bíladögum á Akureyri sem haldnir eru um miðjan júní. Bíladagar á Akureyri verða haldnir 16. og 17. júní og þeir eru margir bílaáhuga- mennirnir sem bíða spennt- ir eftir þeim. Hátíðin hefur verið haldin síðustu 32 ár. Bílaklúbbur Akureyrar heldur utan um sýninguna og segir Gísli Rúnar Víðis- son, sem situr í stjórn klúbbsins, mikla tilhlökkun vera fyrir helginni. „Skrán- ingin er hafin og við von- umst til að sem flestir láti sjá sig,“ segir Gísli. „Það geta allir skráð sig sem eiga fallega bíla, gamla eða nýja. Við viljum hafa sem mesta fjölbreytni og fá sem flest ökutæki.“ Nóg verður um að vera á bíladögunum. Að kvöldi 16. júní verður boðað til götu- spyrnu og þann 17. júní er sjálf bílasýningin sem er hápunktur helgarinnar. „Þann 17. júní verður einnig „burn out“ keppni þar sem menn spóla bíldekkin upp til agna,“ segir Gísli spenntur. Sjálfur er Gísli forfallinn bílaáhugamaður en hann á í kringum sautján bíla og tæki. „Mercedes Bensinn er í ákveðnu uppáhaldi hjá mér,“ segir Gísli. „Þetta er 1990 árgerð SEC 500 og er mjög góður í akstri. Hann er bæði lækkaður og nýspraut- aður. Það verður gaman að eiga þennan bíl inni í skúr þegar maður er orðinn eldri.“ Skráning á bílasýning- una fer fram hjá Gísla í síma 862 6450 eða á bilak@isl.is en þar fer einn- ig fram skráning í „burn out“ keppnina. Skráning í græjukeppnina, sem fram fer þann 17. júní, fer fram á bonstodin@simnet.is. Nán- ari dagskrá má sjá á síðu 5. johannas@frettabladid.is Bíladagar á Akureyri Gísli Rúnar Víðisson, sýningarstjóri Bíladaga sem haldnir verða á Akureyri 17. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR METÞÁTTTAKA ER Í FERÐ FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS Á HVANNADALSHNÚK NÚ UM HELGINA. Um helgina ætlar stór hópur á vegum Ferðafélags Íslands að ganga á Hvannadalshnúk. Að því er fram kemur á heimasíðu F.Í. höfðu 143 skráð sig í ferðina svo að um metþátttöku er að ræða. Haraldur Örn Ólafsson er fararstjóri í ferðinni en auk hans eru fjórtán reyndir fararstjórar með í för. Fregnir af óförum göngugarpa á hnúknum síðastliðna helgi slá göngumennina ekki út af laginu en að sjálfsögðu verður fyllsta öryggis gætt. Allir fararstjórar eru þaulreyndir og aðstæður á jöklinum verða vandlega metnar áður en gengið er á brattann. Gengið á tindinn Það er vinsælt að ganga á Hvannadals- hnúk um þessar mundir.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FJALLADÝRÐ OG FRIÐSÆLD Möðrudalur á Fjöllum er eftirsóttur viðkomustaður enda þjónusta við ferðamenn þar alltaf að aukast. FERÐIR 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.