Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 46
ATVINNA
6 3. júní 2006 LAUGARDAGUR
Nám byggist ekki ein-
ungis á því að reikna
stærðfræðidæmi og læra
stafsetningarreglur. Nám
byggist líka á að rækta
andlega heilsu og byggja
upp sjálfstraust og hóp-
efli meðal nemenda. Í því
samhengi gegna náms-
ráðgjafar mikilvægu
starfi.
Guðrún Þóra Vilhjálmsdótt-
ir starfar sem námsráðgjafi
í Árbæjarskóla og hefur
sinnt því starfi í tvö ár. Guð-
rún er menntaður kennari
en ákvað eftir að hafa verið
í kennslu í sautján ár að
taka viðbótarnám í náms-
ráðgjöf í Kennaraháskólan-
um.
En hvað var það sem
fékk hana til þess að breyta
til? „Þetta er svolítið öðru-
vísi nálgun og samband sem
maður nær við krakkana og
það freistaði mín. Mig lang-
aði líka til þess að breyta til
en alls ekki að fara út úr
skólakerfinu. Að vinna með
krökkum er það skemmti-
legasta.“
Guðrún Þóra þvertekur
fyrir að hafa verið komin
með leiða á kennslunni,
löngunin til þess að breyta
til hafi helst ráðið úrslitum.
Starf Guðrúnar Þóru sem
námsráðgjafi er margþætt.
Vinna þarf til dæmis með
námstækni, náms- og starfs-
val og ýmis persónuleg mál.
Guðrún Þóra er því í miklu
sambandi við krakkana í
skólanum enda segir hún að
það sé það skemmtilegasta
við starfið. „Krakkar eru
svo frábærir. Í raun er mjög
erfitt að útskýra af hverju,
en þeir sem hafa unnið með
börnum og unglingum skilja
hvað ég meina.“ Erfiðast
við starfið að mati Guðrún-
ar Þóru er þegar hún finnur
fyrir ákveðnu úrræðaleysi.
Hún segir í kjölfarið að oft
vanti fleiri úrræði til þess
að leysa ýmis vandamál
barna og unglinga og segir
hún að helst geti yfirvöld
bætt úr því.
Annars er Guðrún Þóra
meira en himinlifandi í sínu
starfi og sér hún ekki eftir
því að hafa söðlað um. „Ef
ég vil breyta aftur til fer ég
aftur í kennslu. Það eru svo
mikil forréttindi að vinna
með krökkum og ég fer von-
andi ekki að breyta því,“
segir brosmild Guðrún Þóra
að lokum.
steinthor@frettabladid.is
Sjálfstraust
og hópefli
Guðrún Þóra Vilhjálmsdóttir, námsráðgjafi í Árbæjarskóla, hafði unnið sem
kennari lengi en ákvað að breyta örlítið til. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Rúmlega helmingur
félagsmanna VR vinnur
undir stjórn yfirmanna
sem hrósa þeim þegar
vel gengur í starfinu.
Nýleg könnun VR á fyrir-
tækjum ársins 2006 leiddi í
ljós að 56 prósent starfsfólks
fá hrós frá næsta yfirmanni
þegar það stenst væntingar
um árangur í starfi. Tæplega
sextíu prósent svarenda
sögðu yfirmann sinn oft eða
alltaf hvetja þá til að beita
hugmyndafluginu til að
leysa mál, en þeir svarendur
voru í flestum tilfellum
stjórnendur sem höfðu að
baki háskólamenntun.
Fimmtungur félagsmanna
sagði hins vegar yfirmann
sinn sjaldan eða aldrei
hvetja til þess að nota hug-
myndaflugið. Yngra fólk fær
samkvæmt könnuninni
fremur hrós en það eldra, og
því skemur sem fólk hefur
unnið í fyrirtækinu eða
greininni, því frekar virðist
yfirmaðurinn hrósa.
Helmingur starfs-
manna fær hrós
Þessi yfirmaður er vonandi að
hrósa en ekki hrella.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
– UNICEF – leitar að jákvæðu og kraftmiklu
fólki í götukynningu.
Um er að ræða fjáröflunarstarf þar sem rætt er
við fólk, þeim kynnt starf UNICEF og boðið að
styrkja verkefnin. Áreiðanleiki og jákvæðni eru
áskilin.
Áhugasamir sendi ferilskrá á snjolaug@unicef.is
eða hringi í síma 552 6700.
Byggingafélag Gylfa og Gunnars
auglýsir eftir vélamanni á
skotbómulyftara.
Upplýsingar í síma 693-7327 Vilhjálmur.
Hjá okkur er virkt starfsmannafé-
lag og góður aðbúnaður.
Við leitum eftir fólki
á öllum aldri.