Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 75
TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR Þegar
best lætur verður leikhúsupplifunin
svo innileg og sterk að augnablikið,
„núið“, verður næstum því áþreif-
anlegt.
er ekki viðunandi í dag. Það þarf
að tæknivæða Þjóðleikhúsið og
byggja við það til austurs, það
hafa menn vitað lengi, án þess þó
að gera nokkuð í málinu.
Rekstur Þjóðleikhússins er
undirfjármagnaður og hefur verið
það lengi. Miðað við fjármögnun
sambærilegra leikhúsa á Norður-
löndum og í Norður-Evrópu er
starfsfólk Þjóðleikhússins hrein-
lega að vinna kraftaverk á hverj-
um degi, en það dugar ekki til.
Skuldir hafa hlaðist upp með árun-
um og það verður að segjast eins
og er að hann var ansi þungur
bagginn sem mér sem stjórnanda
var gert að axla þegar ég tók við
embætti. Ég er enn með þann
bagga á bakinu og sé ekki hvernig
mér á að takast að jafna stöðuna.“
Hróðurinn berst víða
Tinna er fyrir löngu farin að huga
að næsta leikári og kennir þar
ýmissa grasa. Hún segist njóta
starfsins þó það sé hvorki einfalt
né auðvelt að vera í forsvari fyrir
Þjóðleikhúsið. „Hér vinnur frá-
bært fólk og ég fullyrði að við
eigum að geta verið stolt af Þjóð-
leikhúsinu okkar. Það er litið til
þess sem framúrskarandi víðar en
við gerum okkur grein fyrir, það
sýnir til dæmis umfjöllun eins
virtasta leiklistargagnrýnanda
Breta, Michaels Billington, en í
umfjöllun sinni um sýningar Þjóð-
leikhússins á Fagnaði og Pétri
Gaut sem hann birti nýlega í The
Guardian, sagði hann þær í hæsta
gæðaflokki og svo sannarlega eiga
erindi langt út fyrir landsteinana.
Áhugi Dana á sýningum Þjóð-
leikhússins sýnir það sama en
nýlega þáði leikhúsið boð um að
sýna tvær gestasýningar á „Eld-
hús eftir máli“ í Konunglega leik-
húsinu í Kaupmannahöfn. Sú leik-
för tókst með afbrigðum vel og
vakti sterk viðbrögð þeirra sem
sáu hana. Fyrir okkur var þetta
líka söguleg stund, en þetta er í
fyrsta sinn í sögunni sem Þjóðleik-
húsið heimsækir Konunglega leik-
húsið í gömlu höfuðborginni okkar
með gestasýningu. Í haust hefur
sýningu leikhússins á Pétri Gaut
verið boðið á hina virtu Ibsenhátíð
í Ósló, en sú sýning hefur vakið
athygli og fyrirspurnir borist víða
að.
Við Íslendingar erum rík að
eiga Þjóðleikhús sem með metnað-
arfullu starfi í ríflega hálfa öld
hefur sýnt og sannað að það er
sannkölluð þjóðargersemi. Við
getum þakkað stórhug frumkvöðl-
anna og þjóðarinnar allrar á sínum
tíma, en við getum einnig þakkað
þá velgengni sem Þjóðleikhúsið
hefur búið við frá upphafi, viðvar-
andi áhuga og velvilja fólksins í
landinu.“
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 43
Hér er hitinn að verða gjörsam-
lega óbærilegur. Ég fer helst
ekki út úr húsi á milli 11 og 15 á
daginn þegar hitinn er mestur.
Maí er samt rigningamánuður-
inn og allir eru að bíða eftir
fyrstu rigninginni, maður á að
baða sig í henni því það boðar
gæfu. Hún er ekki komin enn.
Annað gæðalegt við rigninguna
er að með henni þroskast mangó-
in, avókadóin og fleiri ávextir.
Það er eitt sem ég á eftir að
sakna þegar ég kem heim, allir
ávextirnir. Er búin að uppgötva
meira en tvær tylftir af ávöxtum
sem ég vissi ekki að væru til í
heiminum, sem ég hafði ekki
einu sinni séð í sjónvarpi eða á
myndum. Talandi um ávexti, þá
lærði ég að gera magnaðan anan-
asdrykk þegar ég var á ferðalagi
úti á landi um daginn. Þar gisti
ég hjá gamalli frænku vinar
míns og hún gaf mér uppskrift-
ina. Drykkurinn er kallaður gar-
apiña og það besta við hann er að
maður býr hann til úr hýðinu og
stilknum inní sem maður hendir
annars. Það tekur reyndar þrjá
daga að gera hann en allt annað
er auðvelt. Best er að frysta
hann í litlum skömmtum, eins og
frænkan er að gera á myndinni,
og þá er drykkurinn afskaplega
frískandi í hitanum. Svo þar
hafið þið það, hér er komið gott
ráð til að þola næstu hitabylgju
sem gengur yfir heima.
Garapiña frænkunnar
Það sem til þarf er ílát úr gleri,
stór glerkrukka er tilvalin. Í hana
setur maður stilkinn, hýðið og
nóg vatn til að þekja alla bitana.
Drykkurinn þarf að anda svo ekki
loka krukkunni, settu heldur klút
eða sigti yfir opið. Geymdu
drykkinn í þrjá daga og ef þú vilt
hafa hann sterkari þá lengur. Þá
er bara eftir að sigta og sykra
drykkinn eftir smekk og voilà!
KÚBUÆVINTÝRI TINNA ÞÓRUDÓTTIR ÞORVALDSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ HAVANA
Garapiña frænkunnar – gott ráð við hita
Við opnum nýja verslun
ESSO aðfanga í Knarrarvogi!
Rafhlöður Pappírs- og
hreinlætisvörur
Rafgeymar
Smurefni og
bílavörur
Bónvörur og
hreinsiefni
Verkfæri og skápar Grillvörur og
gasáfyllingar
Vinnu- og útivistar-
fatnaður og skór
Í dag bjóðum við þér að kíkja með fjölskylduna í nýja og glæsilega verslun ESSO aðfanga í
Knarrarvogi 4. Í versluninni finnurðu mikið úrval af vörum frá leiðandi framleiðendum í grillum,
útivistarvörum, verkfærum, bílavörum, hreinlætisvörum o.fl. o.fl.
Komdu í heimsókn – við hlökkum til að sjá þig!
Frábær opnunartilboð í tilefni dagsins.
Til sýnis verður Formúlu 1 bíll frá McLaren Mercedes sem
er sömu gerðar og Mika Häkkinen ók þegar hann varð
heimsmeistari árið 1999.
Blöðrur og Emmess ís fyrir börnin.
Opið kl. 10–16 í dag, laugardag.
Gnoðarvogur
MIKLABRAUT
SÆ
B
R
A
U
T
Eik
juv
og
ur
D
ug
g
uv
o
g
ur
Sú
ða
rv
og
ur
K
na
rr
ar
vo
g
ur
Endurvinnsla
La
ng
ho
lts
ve
gu
r