Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 47
Bíldshöfða 7
Smiðir
BM Vallá ehf. óskar eftir að ráða smiði eða
mjög laghenta menn til starfa í húseiningadeild
fyrirtækisins sem staðsett er í Suðurhrauni
í Garðabæ.
Bæði er verið að leita að starfsmönnum til
framtíðarstarfa og í sumarafleysingar.
Mikil vinna framundan og góðir tekjumöguleikar.
Unnið eftir bónuskerfi.
Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Antonsson
í síma 860 5020. Vinsamlegast sendið upplýsingar
og fyrirspurnir á kjartan@bmvalla.is
Leikskólakennarar
Leikskólinn Álfaborg auglýsir lausar stöður
deildarstjóra og leikskólakennara frá og
með miðjum ágústmánuði næstkomandi.
Við leggjum áherslu á nám í gegnum leik og leitum
að áhugasömum og jákvæðum kennurum sem geta
unnið sjálfstætt. Álfaborg er tveggja deilda leikskóli
með u.þ.b. 35 börn.
Leikskólinn er í Reykholti Bláskógabyggð. Þar er
þéttbýliskjarni með tæplega 200 íbúum. Þar er m.a.
grunnskóli, íþróttahús, sundlaug, banki og verslun.
Upplýsingar gefur Svanhildur Eiríksdóttir
leikskólastjóri í síma 4868936.
Netfang alfaborg@ismennt.is
Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands auglýsir
eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
I. Verkefnisstjóri Heimsóknarþjónustu.
50% starfshlutfall
Verkefnisstjóri hefur umsjón með verkefninu.
Hann tekur m.a. viðtöl við sjálfboðaliða og gestgjafa
og kemur á tengslum þeirra á milli.
Menntun og hæfniskröfur:
• Almenn menntun
• Umburðarlyndi og hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
• Stundvísi og skipulagshæfni
Laun eru greidd skv. kjarasamningum VR.
II. Starfsmaður við næturvörslu í Konukoti,
athvarfi fyrir heimilislausar konur.
75-100% starfshlutfall
Starfsmaður ber ábyrgð á móttöku og þjónustu við
notendur heimilisins auk almennrar umsjónar.
Menntun og hæfniskröfur:
• Almenn menntun
• Reynsla af störfum með fólki sem á við geðræn og/eða
félagsleg vandamál að stríða mjög mikilvæg
• Umburðarlyndi og hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
• Stundvísi og skipulagshæfni
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2006.
Upplýsingar veitir Katla Þorsteinsdóttir
framkvæmdastjóri í síma 545-0402
(netfang katla@redcross.is)
Umsóknir sendist til:
Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands
b.t. Kötlu Þorsteinsdóttur
Laugavegi 120, 4. hæð, 104 Reykjavík
eða netfang katla@redcross.is
Sérfræðingur í Fjárreiðudeild
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
†
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
E
H
F
./
S
IA
.I
S
-
O
R
K
3
2
9
6
0
0
6
/2
0
0
6
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið
þjónustufyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni
orku á sem hagkvæmastan hátt og í sátt við
umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en
helmingur íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum
sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim
fyrir ódýrri orku sem framleidd er úr endur-
nýjanlegum íslenskum orkulindum. Þannig
stuðlar fyrirtækið að aukinni notkun hreinnar
innlendrar orku og leggur um leið sitt af
mörkum til nýsköpunar og framfara í landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður
fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við
að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og
vinnuumhverfi og möguleika starfsfólks við að
samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og
kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka
hlut kvenna í stjórnunar og ábyrgðarstöðum
innan fyrirtækisins.
Fyrirtækið er sveigjanlegt, það lagar sig að
breyttum aðstæðum
Það sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Það sækir fram af eldmóði
Það er traust og starfar í sátt við umhverfið
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í
Fjárreiðudeild Fjármálasviðs.
Fjárreiðudeild er stoðdeild sem hefur snertifleti við alla rekstrarþætti fyrirtækisins. Í deildinni er haldið
utan um lausafjárstýringu fyrirtækisins og upplýsingar um stöðu og horfur í fjármálum. Deildin sér um
reikningagerð og innheimtu og allar greiðslur fyrir fyrirtækið. Einnig tekur deildin þátt í fjárhagsuppgjöri
fyrirtækisins ásamt áætlanagerð.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
· Vinna við fjárstýringu og áætlanagerð
· Vinna við uppgjörsmál
· Vinna við þróun verkferla
· Þátttaka í gæðastarfi OR
· Ýmis sérverkefni
Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Ragnheiður G. Dagsdóttir ragnheidur@img.is
og Guðríður Dröfn Hálfdanardóttir gudridur@img.is hjá Mannafli-Liðsauka.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júní nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að leggja inn umsókn á heimasíðu
Mannafls-Liðsauka: www.mannafl.is og sendið jafnframt ferilskrá.
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum svarað
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærilegt nám
· Starfsreynsla
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
STARFSFÓLK ÓSKAST
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á
íslenskum verktakamarkaði. Hjá
fyrirtækinu starfa um 650 manns,
víðsvegar um landið sem og
erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki
sem var stofnað árið 1970 og
hefur annast ýmis verkefni, svo
sem virkjanir, stóriðjuver, hafnar-
gerð, vega- og brúagerð auk flug-
valla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitar-
félög, fyrirtæki og einstaklinga.
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
Ístak óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin
störf vegna aukinna verkefna:
Kranastjóra á byggingarkrana
Jarðýtustjóra
Gröfustjóra
Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk.
ATVINNA
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 7