Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 53
UM NÁMIÐ:
Lögregluskóli ríkisins er sjálfstæð stofnun sem
starfar samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996 og
reglugerð um Lögregluskóla ríkisins nr. 490/1997.
Grunnnám miðar að því að veita haldgóða fræðslu í
almennu lögreglustarfi.
Námið skiptist í þrjár annir. Skólagjöld eru engin.
Fyrsta önnin (GN I), sem er ekki launuð en lánshæf
námsönn, stendur fram í maímánuð. Nemarnir
teljast ekki til lögreglumanna en þeir sem standast
kröfur á önninni fara í launaða starfsþjálfun (GN II)
í lögregluliði á höfuðborgarsvæðinu í fjóra mánuði.
Að lokinni starfsþjálfuninni tekur við launuð þriðja
önn (GN III) í Lögregluskólanum sem lýkur með
lokaprófum um miðjan desember.
Lögreglunemar klæðast búningi almennra lögreglu-
manna, sem þeir fá án endurgjalds. Á fyrstu nám-
sönn er búningurinn án lögreglueinkenna.
Lögreglunemar, í starfsþjálfun (GN II) og einnig á
þriðju námsönn í skólanum (GN III), teljast til
lögreglumanna og fá greidd laun skv. kjarasamningi
Landssambands lögreglumanna og fjármálaráð-
herra.
ALMENN SKILYRÐI:
Sérstök valnefnd velur nema í Lögregluskólann úr
hópi umsækjenda. Henni ber að velja hæfustu um-
sækjendurna til náms og eru ákvarðanir hennar
endanlegar.
Í samræmi við það sem fyrir er mælt í lögreglulög-
um þarf umsækjandi að uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) vera íslenskur ríkisborgari, 20-35 ára.
Valnefnd getur vikið frá aldurshámarkinu við
sérstakar aðstæður,
b) ekki hafa gerst brotlegur við refsilög. Valnefndin
getur þó vikið frá þessu ef til álita kemur smá
vægilegt brot sem umsækjandi kann að hafa
framið eða ef langt er um liðið frá því að það var
framið,
c) vera andlega og líkamlega heilbrigður.
Umsækjandi þarf að staðfesta það með vottorði
læknis síns. Trúnaðarlæknir skólans leggur sjálf
stætt mat á vottorðið og skilar valnefnd áliti sínu,
d) hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára almennu
framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með
fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna
má til slíks náms,
e) hafa gott vald á íslensku, einu Norðurlandamáli
auk ensku eða þýsku,
f) hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs,
g) vera syndur,
h) standast inntökupróf í íslensku og þreki og
önnur próf sem valnefnd ákveður, s.s persónu
leikapróf eða sálfræðipróf.
SÉRSTÖK SKILYRÐI:
h) Auk ofangreindra almennra hæfisskilyrða, sem
mælt er fyrir um í lögreglulögum hefur
valnefndin sett fram ákveðin viðmið til að starfa
eftir og birtast þau í sérstökum verklags- og
vinnureglum sem nefndin styðst við til að
tryggja að samræmis gæti við mat á hæfi
umsækjenda en markmið nefndarinnar,
samkvæmt lögreglulögum, er að velja til náms
þá sem hún telur vera hæfasta. Nefndin leggur
einnig fyrir tungumálapróf og próf í almennri
þekkingu.
AÐ HVERJUM ER LEITAÐ?
Leitað er eftir hraustum, duglegum, jákvæðum,
kurteisum, reglusömum og liprum körlum og
konum sem eiga auðvelt með mannleg samskipti.
Litið er sérstaklega til menntunar og reynslu sem
getur nýst umsækjendum í námi og starfi.
SKIL UMSÓKNA OG ÚRVINNSLA:
Þeir sem uppfylla framangreind skilyrði og ætla að
sækja um skólavist við Lögregluskólann, fyrir
skólaárið 2007, skulu skila rétt útfylltum umsóknar-
eyðublöðum ásamt staðfestum afritum af gögnum
frá menntastofnun um að þeir hafi lokið tilskildu
fram-haldsnámi. Umsóknargögnum, sem verður
ekki skilað aftur, skal komið til valnefndar
Lögregluskólans fyrir 9. júní 2006, merkt:
Valnefnd Lögregluskóla ríkisins Krókhálsi 5b,
110 Reykjavík.
Hægt er að sækja sérstakt eyðublað fyrir læknis-
vottorð á Netið. Eftir að heimilislæknir hefur gefið
vottorðið út skal senda það, ásamt umsókn, til
valnefndar í lokuðu umslagi, merkt umsækjanda.
Tekið skal fram að ekki er hægt að senda umsóknir
vélrænt enda verða staðfest afrit skólaskírteina að
fylgja.
Reynt verður að svara öllum umsóknum fyrir 1. júlí
nk. Í því bréfi kemur fram hvort umsækjandi upp-
fylli skilyrði eða ekki og hvenær hæfir umsækjendur
skuli mæta til prófs.
Konur sem uppfylla skilyrðin, og áhuga hafa á lög-
reglunámi, eru sérstaklega hvattar til að sækja um
inngöngu í skólann.
Þegar umsóknir liggja fyrir fer valnefndin yfir þær.
Þeir umsækjendur sem taldir eru hæfir, samkvæmt
umsókn og skila nauðsynlegum fylgiskjölum, verða
boðaðir í inntökupróf sem fara fram í Lögregluskól-
anum dagana 24. – 30. ágúst. Sjúkrapróf verður
aðeins haldið einu sinni og fer fram 14. september.
Skilyrði fyrir að mega þreyta það próf er að um-
sækjandi hafi sannanlega verið veikur á próftímabil-
inu og skili sérstöku læknisvottorði vegna þess.
Öðrum gefst ekki kostur á að þreyta sjúkraprófið.
Þeir umsækjendur sem standast inntökupróf verða,
að þeim loknum, boðaðir í viðtal við valnefnd. Við-
tölin fara fram í skólanum í síðarihluta september.
Stefnt er að því að niðurstöður liggi fyrir í síðasta
lagi í fyrrihluta október.
Nánari upplýsingar um námið, inntökuprófin, um-
sóknareyðublöð og handbók valnefndar, er hægt að
nálgast á lögregluvefnum, www.logreglan.is, undir
Lögregluskóli ríkisins / inntaka nýnema.
Reykjavík 9. maí 2006
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN
Auglýsing um inntöku nýnema í Lögregluskóla ríkisins
skólaárið 2007
Ákveðið hefur verið að taka inn a.m.k. 36 nýnema í almennt lögreglunám í
Lögregluskóla ríkisins árið 2007. Námið hefst í byrjun janúar 2007 og lýkur
með lokaprófum um miðjan desember.
Boðað er til aðalfundar FEF
á Vesturgötu 7, laugardaginn 24 Júní nk. Klukkan 14:00.
Fundarhald samkv. lögum FEF.
Atkvæðarétt hafa einungis þeir sem greitt hafa félagsgjöld og
eru skuldlausir við félagasjóð.
Stjórn félags einstæðra foreldra.
ATVINNA
LAUGARDAGUR 3. júní 2006 13