Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 53
UM NÁMIÐ: Lögregluskóli ríkisins er sjálfstæð stofnun sem starfar samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um Lögregluskóla ríkisins nr. 490/1997. Grunnnám miðar að því að veita haldgóða fræðslu í almennu lögreglustarfi. Námið skiptist í þrjár annir. Skólagjöld eru engin. Fyrsta önnin (GN I), sem er ekki launuð en lánshæf námsönn, stendur fram í maímánuð. Nemarnir teljast ekki til lögreglumanna en þeir sem standast kröfur á önninni fara í launaða starfsþjálfun (GN II) í lögregluliði á höfuðborgarsvæðinu í fjóra mánuði. Að lokinni starfsþjálfuninni tekur við launuð þriðja önn (GN III) í Lögregluskólanum sem lýkur með lokaprófum um miðjan desember. Lögreglunemar klæðast búningi almennra lögreglu- manna, sem þeir fá án endurgjalds. Á fyrstu nám- sönn er búningurinn án lögreglueinkenna. Lögreglunemar, í starfsþjálfun (GN II) og einnig á þriðju námsönn í skólanum (GN III), teljast til lögreglumanna og fá greidd laun skv. kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármálaráð- herra. ALMENN SKILYRÐI: Sérstök valnefnd velur nema í Lögregluskólann úr hópi umsækjenda. Henni ber að velja hæfustu um- sækjendurna til náms og eru ákvarðanir hennar endanlegar. Í samræmi við það sem fyrir er mælt í lögreglulög- um þarf umsækjandi að uppfylla eftirtalin skilyrði: a) vera íslenskur ríkisborgari, 20-35 ára. Valnefnd getur vikið frá aldurshámarkinu við sérstakar aðstæður, b) ekki hafa gerst brotlegur við refsilög. Valnefndin getur þó vikið frá þessu ef til álita kemur smá vægilegt brot sem umsækjandi kann að hafa framið eða ef langt er um liðið frá því að það var framið, c) vera andlega og líkamlega heilbrigður. Umsækjandi þarf að staðfesta það með vottorði læknis síns. Trúnaðarlæknir skólans leggur sjálf stætt mat á vottorðið og skilar valnefnd áliti sínu, d) hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms, e) hafa gott vald á íslensku, einu Norðurlandamáli auk ensku eða þýsku, f) hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs, g) vera syndur, h) standast inntökupróf í íslensku og þreki og önnur próf sem valnefnd ákveður, s.s persónu leikapróf eða sálfræðipróf. SÉRSTÖK SKILYRÐI: h) Auk ofangreindra almennra hæfisskilyrða, sem mælt er fyrir um í lögreglulögum hefur valnefndin sett fram ákveðin viðmið til að starfa eftir og birtast þau í sérstökum verklags- og vinnureglum sem nefndin styðst við til að tryggja að samræmis gæti við mat á hæfi umsækjenda en markmið nefndarinnar, samkvæmt lögreglulögum, er að velja til náms þá sem hún telur vera hæfasta. Nefndin leggur einnig fyrir tungumálapróf og próf í almennri þekkingu. AÐ HVERJUM ER LEITAÐ? Leitað er eftir hraustum, duglegum, jákvæðum, kurteisum, reglusömum og liprum körlum og konum sem eiga auðvelt með mannleg samskipti. Litið er sérstaklega til menntunar og reynslu sem getur nýst umsækjendum í námi og starfi. SKIL UMSÓKNA OG ÚRVINNSLA: Þeir sem uppfylla framangreind skilyrði og ætla að sækja um skólavist við Lögregluskólann, fyrir skólaárið 2007, skulu skila rétt útfylltum umsóknar- eyðublöðum ásamt staðfestum afritum af gögnum frá menntastofnun um að þeir hafi lokið tilskildu fram-haldsnámi. Umsóknargögnum, sem verður ekki skilað aftur, skal komið til valnefndar Lögregluskólans fyrir 9. júní 2006, merkt: Valnefnd Lögregluskóla ríkisins Krókhálsi 5b, 110 Reykjavík. Hægt er að sækja sérstakt eyðublað fyrir læknis- vottorð á Netið. Eftir að heimilislæknir hefur gefið vottorðið út skal senda það, ásamt umsókn, til valnefndar í lokuðu umslagi, merkt umsækjanda. Tekið skal fram að ekki er hægt að senda umsóknir vélrænt enda verða staðfest afrit skólaskírteina að fylgja. Reynt verður að svara öllum umsóknum fyrir 1. júlí nk. Í því bréfi kemur fram hvort umsækjandi upp- fylli skilyrði eða ekki og hvenær hæfir umsækjendur skuli mæta til prófs. Konur sem uppfylla skilyrðin, og áhuga hafa á lög- reglunámi, eru sérstaklega hvattar til að sækja um inngöngu í skólann. Þegar umsóknir liggja fyrir fer valnefndin yfir þær. Þeir umsækjendur sem taldir eru hæfir, samkvæmt umsókn og skila nauðsynlegum fylgiskjölum, verða boðaðir í inntökupróf sem fara fram í Lögregluskól- anum dagana 24. – 30. ágúst. Sjúkrapróf verður aðeins haldið einu sinni og fer fram 14. september. Skilyrði fyrir að mega þreyta það próf er að um- sækjandi hafi sannanlega verið veikur á próftímabil- inu og skili sérstöku læknisvottorði vegna þess. Öðrum gefst ekki kostur á að þreyta sjúkraprófið. Þeir umsækjendur sem standast inntökupróf verða, að þeim loknum, boðaðir í viðtal við valnefnd. Við- tölin fara fram í skólanum í síðarihluta september. Stefnt er að því að niðurstöður liggi fyrir í síðasta lagi í fyrrihluta október. Nánari upplýsingar um námið, inntökuprófin, um- sóknareyðublöð og handbók valnefndar, er hægt að nálgast á lögregluvefnum, www.logreglan.is, undir Lögregluskóli ríkisins / inntaka nýnema. Reykjavík 9. maí 2006 RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN Auglýsing um inntöku nýnema í Lögregluskóla ríkisins skólaárið 2007 Ákveðið hefur verið að taka inn a.m.k. 36 nýnema í almennt lögreglunám í Lögregluskóla ríkisins árið 2007. Námið hefst í byrjun janúar 2007 og lýkur með lokaprófum um miðjan desember. Boðað er til aðalfundar FEF á Vesturgötu 7, laugardaginn 24 Júní nk. Klukkan 14:00. Fundarhald samkv. lögum FEF. Atkvæðarétt hafa einungis þeir sem greitt hafa félagsgjöld og eru skuldlausir við félagasjóð. Stjórn félags einstæðra foreldra. ATVINNA LAUGARDAGUR 3. júní 2006 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.