Fréttablaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 6
6 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR www.lyfja.is - Lifið heil ÁHRIFARÍKT BÓLGUEYÐANDI GEL VIÐ VÖÐVA- OG LIÐVERKJUM. Voltaren Emulgel FÆST ÁN LYFSEÐILS ÍS LE N SK A AU G L† SI N G AS TO FA N /S IA .I S L YF 3 32 04 06 /2 00 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási Voltaren Emulgel® er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem. Varist snertingu við augu og slímhúðir, notist einungis útvortis og má aldrei taka inn. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað. Þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. www.or.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 3 35 67 07 /2 00 6 Heimsókn í Nesjavallavirkjun er tilvalin dægrastytting og upplyfting á góðum degi. Við tökum vel á móti þér. Merktar gönguleiðir Fræðslustígur Gestamóttaka Skipulagðar skoðunarferðir fyrir einstaklinga og hópa Gestamóttaka er opin: 1. júní til 31. ágúst: mánudaga – laugardaga frá kl. 9:00 til 17:00. Sunnudaga frá kl. 13:00 til 18:00. 1. september til 31. maí samkvæmt pöntunum. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 480-2408 eða í tölvupósti: gestamottaka.nesjavollum@or.is Velkomin í Nesjavallavirkjun FJARSKIPTI Björn Bjarnason dóms- málaráðherra undrast frávísun úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, á stjórnsýslukæru Ríkis- lögreglustjóra og Neyðarlínunnar hf., en eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær vísaði nefndin kærunni frá vegna aðildaskorts. „Það kemur mér á óvart, að ekki megi gera þær kröfur sem eru nauðsynlegar til að tryggja sem best öryggi borgaranna, þrátt fyrir að þeir nýti sér nýja síma- tækni. Neyðarlínan og Ríkislög- reglustjóri fara ekki fram á þetta vegna sinna hagsmuna heldur allra þeirra, sem nýta sér hina nýju tækni og treysta vafalaust á, að hún veiti þeim sama öryggi og þeir áður nutu,“ segir Björn. Nefndin vísaði stjórnsýslu- kærunni frá vegna aðildaskorts, en upphaf málsins má rekja til deilumáls milli Símans hf. og Atlas- síma ehf. sem varðaði ágreining um flutning á símanúmerum í hefðbundinni rásaskiptri talsímaþjónustu yfir í netsímaþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun skyldaði Símann hf. til þess verða við flutningi yfir í netsíma, ef þess yrði óskað. Ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan hf. kærðu bráðabirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofn- unar, á þeim forsendum að það „geti verið vand- kvæðum bundið að staðsetja net- síma“, og því geti það heft almenn störf lögreglunnar og neyðarlínu. Arnar Þór Jónsson, lögmaður hjá Logos sem sótti málið fyrir hönd Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar, segir Ríkislög- reglustjóra og Neyðarlínuna hafa komið sjónarmiðum sínum á framfæri, af þeim geti verið tekið mið þegar málum tengdum net- símum verði komið í traustari far- veg. „Það á eftir að taka endanlega ákvörðun um þessi mál, þar sem stofn- unin tók ákvörðun sem aðeins er til bráðabirgða. Nú hefur þessum mikil- vægu sjónarmiðum Ríkis- lögreglustjóra og Neyð- arlínunnar hf., sem varða öryggi almennings, verið komið á framfæri og von- andi verður tekið tillit þess þegar ákvörðunin liggur fyrir.“ Sérstaklega var þess getið í úrskurði úrskurðanefndarinnar að hægt væri að fallast á sjónar- mið Ríkislögreglustjóra og Neyð- arlínunnar hf., en vegna aðilda- skorts væri ekki hægt að fallast á það „að kærendur hafi verulega hagsmuni af því að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunnar í máli Símans hf. og Atlassíma ehf. sé ógilt.“ magnush@frettabladid.is Dómsmálaráðherra undrast úrskurðinn Björn Bjarnason segir Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínuna hf. vera að hugsa um öryggi almennings með stjórnsýslukæru. Vonandi tekið tillit til öryggissjón- armiða þegar endanlegar ákvarðanir verða teknar, segir Arnar Þór Jónsson. BJÖRN BJARNASON STARFSSTÖÐ NEYÐARLÍNUNNAR Í SKÓGARHLÍÐ Dómsmálaráðherra segir Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínuna hafa lagt fram stjórnsýslu- kæru til að tryggja öryggi þeirra sem nýta sér hina nýju tækni netísmanna. BAGDAD, AP Verjendur Saddams Hussein í Írak vara við því að heilsu hans muni hraka, haldi hann áfram í hungurverkfalli sínu í fangelsinu. Þeir segja bandaríska hernámsliðið bera alla ábyrgð bíði heilsa hans tjón af. Þeir hvetja einnig bæði Sam- einuðu þjóðirnar og fleiri stofnan- ir, jafnt alþjóðlegar sem arabísk- ar, til að sjá til þess að hann hljóti réttláta dómsmeðferð. Saddam hefur neitað að borða frá því 7. júlí síðastliðinn. Þrír aðrir sakborningar í réttarhöldun- um hafa verið í hungurverkfalli frá sama tíma. Bandaríkjamenn, sem hafa Saddam í haldi, segja að hann sé við góða heilsu og daglega sé fylgst með heilsufari hans í fang- elsinu. Verjendurnir taka undir kröfur Saddams um að rannsókn verði gerð á morðinu á Khamis al- Obeidi, einum lögfræðinga hans, en al-Obeidi var þriðji lögfræðing- urinn úr verjendahópi Saddams sem var myrtur frá því réttarhöld- in hófust þann 19. október síðast- liðinni. Jafnframt birtu verjendurnir bréf frá Saddam til bandarísku þjóðarinnar þar sem hann segir bandarísk stjórnvöld enn ljúga að þjóð sinni. Hann segir einnig að stríðið í Írak hafi skaðað „virðingu og álit“ Bandaríkjanna í heimin- um. - gb SADDAM HUSSEIN Bandaríkjamenn segja Saddam Hussein vera við góða heilsu: Saddam í hungurverkfalli SJÁVARÚTVEGUR Verðmæti útflutn- ingsframleiðslu sjávarafurða nam 112 milljörðum króna árið 2005 og dróst saman um 5,7 prósent frá fyrra ári, samkvæmt útreikning- um Hagstofu Íslands. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema uppsjávarfisks dróst saman frá fyrra ári en frystar afurðir skiluðu yfir helmingi útflutn- ingsverðmætis. Á milli áranna 2004 og 2005 dróst útflutningur sjávarafurða saman um 73 þúsund tonn. Árið 2005 voru flutt út 755 þúsund tonn, samanborið við 828 þúsund tonn árið áður. Í tonnum talið hefur ekki verið flutt út minna magn síðan árið 2000. Útflutningsverðmæti sjávar- afurða árið 2005 nam 110,1 millj- arði króna og dróst saman um tólf milljarða frá fyrra ári, um 9,5 pró- sent. Hlutdeild sjávarafurða af heildarverðmæti vöruútflutnings landsins var 56,7 prósent saman- borið við 60,2 prósent árið 2004. Hlutdeild sjávarútvegs af heildar- verðmæti var vel yfir sjötíu pró- sentum árin 1995 til 1998. Af einstökum afurðaflokkum skilaði frysting alls rúmlega helm- ingi útflutningsverðmætis, tæpum 58 milljörðum króna. Útflutnings- verðmæti ísaðra fiskafurða hefur aukist og nam tæpum tuttugu millj- örðum árið 2005. Verðmæti ísaðra afurða er nú í fyrsta sinn meira en saltaðra, en verðmæti þeirra var rúmir átján milljarðar króna. - shá Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða dróst saman árið 2005: Frystar afurðir skila mestu HEILBRIGÐISMÁL Hætt hefur verið við fyrirhugaða sameiningu meðgöngu- og sængurkvenna- deildar Landspítalans frá 21. júlí til 24. ágúst. Sameining deild- anna var reynd í byrjun júní en starfsemi þeirra var aftur skilin að tveimur dögum síðar sökum álags á starfsfólk. Margrét I. Hallgrímsson, svið- stjóri hjúkrunar á kvennadeild, segir að allir hafi lagst á eitt um að halda starfsemi deildanna tveggja með eðlilegum hætti. „Það lögðust allir á eitt um að taka aukavaktir og þannig verða deildirnar reknar á næstunni.“ - shá Landspítali-háskólasjúkrahús: Hætt við sam- einingu deilda 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI KJÖRKASSINN Verslar þú á vefnum? Já 50% Nei 50% SPURNING DAGSINS Í DAG: Skoðaðir þú seglskipið Sedov við Reykjavíkurhöfn? Segðu skoðun þína á visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.