Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.07.2006, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 22.07.2006, Qupperneq 10
10 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR Áskorun til ríkisstjórnar Íslands ! Reykjavíkursund 2006 gegn mansali Við undirrituð skorum á ríkisstjórn Íslands að beita sér gegn mansali með því að fullgilda Palermo samning Sameinuðu þjóðanna og Samning Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali. Ríkisstjórnin og Alþingi setji með slíkri fullgildingu mikilvægt fordæmi fyrir aðrar þjóðir um aukna mannréttindavernd og upprætingu mansals. Íslandsdeild Amnesty International Samtök um kvennaathvarf UNIFEM á ÍslandiUNICEF á Íslandi Benedikt S. Lafl eur LIST Ólafur Kvaran, forstöðumað- ur Listasafns Íslands, segir lista- verkin Sumardagur í sveit og tvö verk er tilheyra seríu sem nefnist Sjávarútvegur, eftir Gunnlaug Scheving, geta notið sín innan veggja Ríkisútvarpsins. Í Frétta- blaðinu í vikunni var greint frá því að Hilmar Einarsson, forvörður í Morkinskinnu, hefði metið verk Gunnlaugs á rúmlega 40 milljónir króna. Samtals eru listaverk í eigu RÚV metin á 52 milljónir króna. Í samtali við Fréttablaðið sagði Hilmar skynsamlegast að koma verkunum fyrir á safni, og þá helst á Listasafni Íslands, en þau hanga uppi á veggjum í höfuðstöðvum RÚV við Efstaleiti, meðal annars fyrir utan förðunarherbergi í hús- inu. Ólafur segir mikilvægt að umgengni um verkin sé í samræmi við verðmæti og gildi verkanna. „Með hliðsjón af listrænu gildi verkanna eiga þau tvímælalaust heima í Listasafni Íslands. Aftur á móti skil ég vel það sjónarmið útvarpsstjóra að verkin séu hluti af mikilvægri menningarlegri ásýnd RÚV. En það er eðlilegt fyrir stofnanir að leita til Listasafn Íslands eftir ráðgjöf um forvörslu og meðferð listaverka, ef fyrir því er áhugi.“ Páll Magnússon útvarpsstjóri greindi frá því í Fréttablaðinu í gær að hann teldi óþarft að koma verkunum fyrir á safni þar sem þau gæfu RÚV menningarlega ásjónu sem mikilvægt væri að halda í. - mh Listaverk Ríkisútvarpsins, sem metin eru á rúmar 52 milljónir króna: Listaverkin geta notið sín innan RÚV ÁLIT Kirkjugörðum Reykjavíkur- prófastsdæma er óheimilt að inn- heimta líkhúsgjald fyrir geymslu á líkum í líkhúsi kirkjugarðanna í Fossvogi. Það er álit Umboðs- manns Alþingis. Umboðsmaðurinn beinir því til prófastsdæmisins að það taki gjaldtöluna til endurskoðunar. Hann vill að dóms- og kirkjumála- ráðherra skoði sérstaklega hvort ákvæði laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu séu nægi- lega skýr um hvaða þjónustu almenningi eigi að veita endur- gjaldslaust. Umboðsmaður fékk málið til athugunar eftir að eiginkona mannsins sem kvartaði var krafin um tíu þúsund króna greiðslu fyrir geymslu á líki föður hennar í lík- húsi kirkjugarðanna í Fossvogi. Maðurinn taldi gjaldið ekki eiga sér lagastoð og hafði leitað til Neytendasamtakanna og ráðu- neytisins áður. Kirkjugarðar Reykjavíkur- prófastsdæma gáfu umboðsmanni þá skýringu á gjaldinu að um ára- bil hefðu kirkjugarðastjórnir bent dóms- og kirkjumálaráðuneytinu á að kirkjugarðsgjöld stæðu ekki undir þeim rekstri sem kirkju- görðum sé ætlað að veita. Rekstur líkhúss væri íþyngjandi og félli utan við lögbundið hlutverk þeirra. Gjaldið væri rekstrinum nauðsyn- legt. - gag Álit umboðsmaður Alþingis: Líkhúsgjald ólöglegt HVÍLT Í FRIÐI Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma er óheimilt að innheimta líkhúsgjald. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA HRÍSEY Fjölskylduhátíð fullveldis- ins í Hrísey verður nú um helgina og vinna um hundrað íbúar eyjar- innar nú að undirbúningi en búist er við um fjögur þúsund manns. Hátíðin var fyrst haldin árið 1997 til að halda upp á að tillaga um sameiningu Hríseyjar og Dal- víkur var felld. Um helgina verð- ur, eins og ávallt, lýst yfir sjálf- stæði Hríseyjar frá Íslandi og gilda þar hríseysk lög og fá gestir sérstakan passa og gerast hrís- eyskir ríkisborgarar á meðan á dvöl þeirra stendur. - sdg Fjölskylduhátíð fullveldisins: Búist við 4.000 manns í Hrísey Í GINI LJÓNSINS Mikið var um dýrðir við opnun Cervantes-stofnunarinnar í Peking á dögunum, enda mætti krónprins Spán- verja og ektakvinna hans í teitið. NORDICPHOTOS/AFP FÉLAGSMÁL Listnám, vellíðan án vímuefna, hugræn atferlismeð- ferð og sjálfsstyrking eru fjórar meginstoðir nýs meðferðarstarfs fyrir ungt fólk með áhættusama hegðun og geð- og hegðunarrask- anir. Starfinu, sem kallast lífslist, var hleypt af stokkunum í gær með undirskrift samkomulags milli Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra, Sivjar Frið- leifsdóttur heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra og Páls Biering, for- manns sérstaks stýrihóps. Markmið samkomulagsins er að setja upp nýtt úrræði í með- ferðarstarfi sem ætlað er að þjóna ungu fólki sem þarf á stuðningi og meðferð að halda. Líkur á áhættusamri hegðun eru minnkaðar með listsköpun og þjálfun í samskiptum og lífsleikni. Byggt er á erlendri fyrirmynd sem reynst hefur vel og hafa rann- sóknir sýnt að meðferðarúrræði sem ekki fela í sér stofnanavistun gagnast unglingum með hegðunar- vandamál betur en vist og með- ferð á stofnun. Ný leið ehf. annast framkvæmd verkefnisins en það er fyrirtæki fimm sérfræðinga á sviði for- varna og meðferðar. Sautján millj- ónum króna er varið til verkefnis- ins, tólf milljónir koma úr félagsmálaráðuneytinu, fjórar úr heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt- inu og ein milljón úr Minningar- sjóði Margrétar Björgólfsdóttur. Gert er ráð fyrir að allt að 35 ungmennum standi þessi úrræði til boða á hverri önn. Ný leið sér um verkefnið á höfuðborgarsvæð- inu en á landsbyggðinni verður starfað í samráði við ungmenna- hús og í náinni samvinnu við Rauða krossinn. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið í fimm ár og er afráð- ið að það standi í tilraunaskyni til ársins 2008. bjorn@frettabladid.is Listsköpun í stað áhættu Nýju meðferðarstarfi, sem ætlað er að minnka líkurnar á áhættusamri hegðun, hefur verið ýtt úr vör. Lögð er áhersla á listnám, vellíðan án vímuefna, hugræna atferlismeðferð og sjálfsstyrkingu. Í HÖFN Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra og Páll Biering, formaður stýrihópsins, undirrita sam- komulagið. Að baki þeim standa fulltrúar Nýrrar leiðar, Guðrún B. Ágústsdóttir og Jón Guðbergsson. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÍFSLISTIN FELUR Í SÉR FJÓRA MEGINÞÆTTI: 1. Listnám þar sem sköpunarkraftur ungl- inga er virkjaður til að byggja þá upp. 2. Vellíðan án vímuefna þar sem ungmenn- um er kennt að láta sér líða vel án vímu- efna. 3. Hópmeðferð þar sem hugrænni atferl- ismeðferð er beitt við að kenna ungling- um nýjar leiðir til að bregðast við erfiðum aðstæðum og auka félagslega færni þeirra. 4. Sjálfsstyrking þar sem unglingunum er hjálpað að draga fram mátt sinn og megin. ÓLAFUR KVARAN Forstöðumað- ur Listasafns Íslands. FISKELDI Landssamband veiði- félaga hefur sent umhverfisráð- herra bréf þar sem þess er krafist að fyrirhuguð framkvæmd AGVA ehf., vegna þorskeldis í Hvalfirði, fari í umhverfismat. Í bréfinu kemur fram hörð gagnrýni á störf Skipulagsstofn- unar. Stofnunin er gagnrýnd fyrir að leita ekki til sérfróðra manna í vali sínu á umsagnaraðilum um möguleg áhrif þorskeldis í nágrenni ósa veiðiáa í Hvalfirði. Í Hvalfjörð renna þrjár lax- veiðiár. - æþe Landssamband veiðifélaga: Umhverfismats krafist
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.