Fréttablaðið - 22.07.2006, Side 12

Fréttablaðið - 22.07.2006, Side 12
12 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR búnaður í bílinn Úti að aka? Car kit CK-7W * Bluetooth búnaður í bílinn * Svarhnappur, hátalari og hljóðnemi * Lækkar sjálfkrafa í hljómtækjum * Sjálfvirk tenging við síma handfrjáls Þú færð handfrjálsan búnað í bílinn í Hátækni og hjá söluaðilum NOKIA. KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.459 +0,31% Fjöldi viðskipta: 126 Velta: 1.065 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,90 -0,48% ... Alfesca 4,14 -1,43% ... Atlantic Petroleum 585,00 +0,00% ... Atorka 6,20 +0,49% ... Avion 32,90 -0,30% ... Bakkavör 48,60 +0,00% ... Dagsbrún 5,51 -0,72% ... FL Group 16,60 +1,22% ... ... Glitnir 17,20 +1,78% ... KB banki 738,00 +0,14% ... Landsbankinn 21,00 -0,47% ... Marel 72,60 +0,00% ... Mosaic Fashions 16,90 -0,59% ... Straumur-Burðarás 16,40 +1,24% ... Össur 112,00 -0,44% MESTA HÆKKUN Glitnir 1,78% Strau.-Burð. 1,24% FL Group 1,22% MESTA LÆKKUN Alfesca 1,43% Dagsbrún 0,72% Mosaic 0,59% Umsjón: nánar á visir.is MARKAÐSPUNKTAR ... Hlutabréf í tölvurisanum Dell féllu um tíu prósent á markaði í gær eftir að fyrir- tækið tilkynnti um slaka afkomu, annan ársfjórðunginn í röð. Mun hagnaðurinn vera 21 til 23 sent á hlut, vel undir spám, en greiningaraðilar gerðu ráð fyrir allt að 32 sentum á hlut. Breski bankinn HSBC Holdings hyggst kaupa Grupo Banistmo, stærsta banka Panama, fyrir 1,77 milljarða dollara, um 131 milljarð króna. Þannig öðlast bank- inn aðgang að fimm nýjum löndum: Panama, Kosta Ríka, Hondúras, Kólumb- íu, El Salvador og Níkaragúa. Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, hefur varað japanska seðlabank- ann við því að hækka stýrivexti meira, áður en almennra verðhækkana verður frekar vart. Bankinn hækkaði vexti í fyrsta sinn í sex ár í síðustu viku. Laun hækkuðu um 0,4 prósent í júní samkvæmt tölum frá Hag- stofunni. Ekki hefur orðið viðlíka hækkun milli mánaða síðan snemma árs 2002. Tólf mánaða hækkun nemur 8,8 prósentum. Laun opinberra starfsmanna og bankamanna hækkuðu mest, um 9,8 prósent, en laun á almennum vinnumarkaði um átta prósent. Í Morgunkorni Glitnis segir að launahækkanir séu langt umfram vöxt framleiðni vinnuafls og því ekki að undra þótt verðbólga láti á sér kræla. Þá reiknar greiningar- deild Glitnis með auknum hraða launahækkana á næstu misserum enda áhrif samkomulags aðila vinnumarkaðarins ekki enn sýni- leg í opinberum tölum. - jsk Laun hækka enn VIÐ VINNU Laun í landinu hafa hækkað um 8,8 prósent síðustu tólf mánuði. Handfrjáls búnaður fyrir farsíma ber 25 prósenta vörugjald á sama tíma og vörugjöld leggjast ekki á farsíma og allan aukabúnað fyrir farsíma. Þannig bera hvorki hleðslutæki né batterí, farsímar né farsímatöskur, skraut á far- síma né loftnet vörugjöld. Notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur hefur verið óheimil frá árinu 2001. „Við teljum að þarna sé mikið ósamræmi að leggja vörugjöld á þennan öryggisbúnað, því þetta er öryggisbúnaður fyrst og fremst,“ segir Pétur Már Jóns- son, yfirmaður forvarna hjá VÍS. Stereótæki og hljómtæki bera sömu vörugjöld og handfrjáls búnaður en hér áður fyrr var lagður sérskattur á þessi tæki sem var kallaður lúxusskattur. Bæði DVD-spilarar og MP3-spil- arar bera sömu vörugjöld og handfrjáls búnaður. Önnur örygg- istæki sem tengjast bifreiðum, eins og loftpúðar, bera enn fremur vörugjöld og falla inn í sama toll- skrárflokk og aðrir aukahlutir bifreiða. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa verið uppi hug- myndir innan fjármálaráðuneyt- isins að fella niður vörugjöld af handfrjálsum búnaði, sem örygg- istæki, en þær hafa ekki orðið að veruleika. Ekki náðist í starfs- menn hjá ráðuneyti í gær. Þar að auki ber handfrjáls búnaður 7,5 prósenta toll sem far- símar, batterí og hleðslutæki eru undanþegin. - eþa Lúxusskattur á öryggistæki Vörugjald upp á 25 prósent leggst á handfrjálsan búnað, öryggistæki við akstur, en ekki á farsíma, farsímatöskur og annan aukabúnað fyrir síma. Merill Lynch telur skuldabréf í Glitni og Landsbankanum stöðuga fjárfestingarkosti, en ekki sérlega spennandi. Greiningardeildin mælir síður með skuldabréfum í KB banka og telur mesta hættu á að bankinn lendi í erfiðleikum með endurfjármögnun skuldabréfa. Skýrsla Merrill Lynch ber titilinn „Of snemmt að spá,“ og er þar vísað til ummæla fyrrum forsæt- isráðherra Kína, Zhou Enlai, þegar hann var spurður um áhrif frönsku byltingarinnar á strauma og stefn- ur í stjórnmálum. Þetta er önnur skýrsla Merrill Lynch um íslensku bankana á árinu, en sú fyrri var af mörgum talin hafa átt stóran þátt í gengisfalli krónunnar snemma árs. Tónn nýju skýrslunnar er öllu léttari þótt enn treysti höfundar sér ekki til að lýsa trausti á íslenska bankakerfið. Merrill Lynch segir að væntan- leg uppgjör Glitnis og KB banka gefi ranga mynd af raunverulegri stöðu. Stór hluti hagnaðarins sé til kominn vegna hækkunar verð- tryggðra eigna og gjaldeyrishagn- aðar, auk þess sem veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum sýni uppgjörin í jákvæðara ljósi en ella. Merrill Lynch telur að þrátt fyrir að dregið hafi úr krosseign- arhaldi og eignatengslum í íslensku viðskiptalífi sé enn langt í land. Tengsl KB banka og Exista eru sérstaklega nefnd til sögunnar auk lána Glitnis til æðstu stjórn- enda bankans. Þá lýsir höfundur skýrslunnar yfir áhyggjum sínum af framvindu mála í Straumi- Burðarási, þar sem ýmislegt hafi gengið á undanfarin misseri. Merrill Lynch telur KB banka enn veikastan fyrir endurfjár- mögnun á markaði og áætlar að bankinn þurfi rúma sex hundruð milljarða íslenskra króna fyrir árslok 2007 til að standa við skuld- bindingar. „Það er ýmislegt sem veldur okkur áhyggjum. Þar mætti nefna krosseignarhald auk lána bank- anna til hluthafa og stjórnenda. Hins vegar virðist sem ýmislegt horfi til betri vegar. Athyglisvert er að frumkvæðið kemur ekki frá löggjafanum heldur markaðnum sjálfum,“ segir í skýrslunni. Skýrsluhöfundar Merrill Lynch eru öllu svartsýnni en greiningar- deild bandaríska fjármálafyrir- tækisins Morgan Stanley. Morgan Stanley gaf á dögunum út fréttarit þar sem meðal annars var mælt með kaupum á skuldabréfum í Glitni og bent á að þrátt fyrir að íslenskt efnahagslíf væri óstöðugt kæmu sextíu prósent tekna bank- ans frá útlöndum. jsk@frettabladid.is Of snemmt að spá Undirstöður íslensku bankanna eru ekki jafn traustar og væntanleg uppgjör fyrir annan ársfjórðung gefa til kynna, segir í nýrri skýrslu alþjóðlega fjárfest- ingarbankans Merrill Lynch um íslensku bankana. Merrill Lynch virðist enn ekki sannfært um ágæti bankanna og gagnrýnir íslenskt lagaumhverfi. HÖFUÐSTÖÐVAR KB BANKA Í BORGARTÚNI Merrill Lynch lýsir áhyggjum af eignatengsl- um auk lána til hluthafa og stjórnenda í nýrri skýrslu um íslensku bankana. Tónn nýju skýrslunnar er þó örlítið bjartari en þeirrar sem kom út fyrr á árinu. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands, ICEX- 15, hefur lækkað um tæplega tuttugu og tvö prósent frá hæsta gildi. Vísital- an stendur nú í 5.465 stigum en fór í 6.995 stig þegar best lét snemma árs. Heildarlækkun frá áramótum nemur 1,66 prósentum. Lækkun hefur orðið á bréfum tíu af fimmtán félögum úrvalsvísitölunnar. Mest lækkun hefur orðið í bréfum Avion Group, rúmlega tuttugu og sjö prósent. Bréf í Icelandic Group hafa lækkað um rúm sautján prósent og í Landsbank- anum um tæp fimmtán prósent. Fimm félög hafa hækkað frá áramót- um. Tæplega tuttugu og sjö prósenta hækkun hefur orðið á bréfum í Actavis, Marel hefur hækkað um tólf prósent og Straumur-Burðarás um tæp sjö prósent. NASDAQ-vísitalan bandaríska sker sig nokkuð úr á meðal helstu alþjóðlegra vísitalna, en hún hefur lækkað um tæp ellefu prósent frá áramótum. FTSE-vísitalan í Lundúnum, CAC-40 í Frakklandi og hin þýska DAX hafa allar hækkað um þrjú prósent. Norska OBX vísitalan hefur hækkað um tæp þrettán prósent. Danska C20-vísi- talan hefur lækkað um rúmlega sjö prósent frá áramótum og hin sænska OMXS um ríflega eitt prósent. - jsk Hefur lækkað um 22 prósent FÉLÖG ÚRVALSVÍSITÖLUNNAR HAFA RÝRNAÐ UM TUTTUGU PRÓSENT Á NOKKR- UM MÁNUÐUM. GENGI ALÞJÓÐLEGRA VÍSITALNA ER MISJAFNT. VÖRUGJÖLD OG TOLLAR Á ÝMSAN FARSÍMABÚNAÐ Vörugjöld Tollar Handfr. búna. fyrir síma 25% 7,5% Farsímar 0% 0% Hleðsl.t. fyrir síma í bíl 0% 0% Hleðsl.t. fyrir síma í vegg 0% 0% Batterí fyrir síma 0% 0% USB-tengi 0% 0% Haldari fyrir síma í bíl 0% 10% Leðurtösk. fyrir síma í bíl 0% 10% Íslendingar á HM? Forráðamenn British Airways hafa ákveðið að taka hagsmuni hluthafa fram yfir hagsmuni þjóðarinnar og ætla ekki lengur að flytja enska fótboltalands- liðið frítt heimshornanna á milli eins og tíðkast hefur um árabil. Árangur enska landsliðsins var ekki upp á marga fiska á síðasta HM og má því ætla að BA sjái sér ekki hag í því að framlengja samstarfið. Velta menn nú vöngum yfir því hvort lággjaldaflugfélagið easyJet bjóði fram þjónustu sína og geri jafnvel það vel við hina forríku fótboltamenn að þeir fái að sitja á fyrsta farrými. Nú er spurning hvort íslenskir viðskiptajöfrar, sem hafa haft mikinn áhuga á því að tengja nafn sitt við fótbolta, verði fyrri til. Íslendingar eiga nefnilega heilt leiguflugfélag á Bretlandi - Excel Airways sem er í eigu Avion Group. Íslendingar munu líklega aldrei spila á HM og því gæti þetta verið gullið tækifæri til að sitja að þessu háborði fótboltans. Stúkur viðskiptanna Menn hafa velt því fyrir sér hvað verði um stúk- urnar sem íslenskir fjárfestar eiga á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea, eftir að Eiður fer til Barcelona. Stúkurnar hafa verið notaðar fyrir viðskiptavini Íslendinga og þeir hafa nú ekki allir bara mætt vegna Eiðs Smára. Þannig má búast við því að einhverjir sjái sér enn hag í því að bjóða kúnnum sínum á völlinn. íslendingar eru með mikil umsvif í London. Minna fer fyrir þeim í Barcelona. Hins vegar eiga Íslendingar lyfjaverksmiðju á svæðinu og ekki fráleitt að þeir sem að henni standa vilji bjóða sínum viðskiptavin- um að líta á Íslendinginn knáa spila fótbolta með stórliðinu. Peningaskápurinn ...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.