Fréttablaðið - 22.07.2006, Side 54
1. Ef karlmaður hringir ekki í stúlku þá
er það klárt merki um það hann hafi ekki
nægan áhuga á henni?
Bókin segir: Enginn karlmaður er of upptekinn
til að hringja í konu sem hann hefur brenn-
andi áhuga á. Ef hann hringir ekki er hann ekki
að hugsa um þig.
2. Ef karlmaður er með konu en vill ekki sofa
hjá henni þá er hann ekki nógu hrifinn af
henni?
Bókin segir: Engir karlmenn sem höfundar
bókarinnar töluðu við sögðust nokkurn tíma hafa
haft eiginlegan áhuga á konu sem þeir vildu ekki
sofa hjá. Kona, ef þér finnst fínt að kúra bara á
næturna, fáðu þér þá hvolp en ekki kærasta!
3. Konur eiga ekki að bjóða karlmönnum út
heldur láta karlmennina eltast við sig?
Bókin segir: Ef karlmaður hefur áhuga þá býður
hann þér út, ekki láta gabba þig í það að bjóða honum
út. Ef þú getur fundið hann þá getur hann fundið þig og
hann mun gera það - ef hann hefur áhuga.
4. Ef strákur segir við stelpu „ég
elska þig“ í glasi er það þá að
marka?
Bókin segir: Ef hann vill bara hitta
þig, tala við þig og sofa hjá þér
þegar hann er undir áhrifum er
það ekki ást heldur eitthvað allt
annað. Neysla eiturlyfja og áfengis
er ekki rétta leiðin til að komast
í samband við tilfinningar sínar.
Ástarjátningar teljast ekki með
nema hann segi þær edrú.
5. Karlmenn sem segjast ekki
trúa á hjónaband og vilja ekki
giftast hafa ekki fundið réttu
konuna til að giftast?
Bókin segir: Ástin læknar skuld-
bindingarfælni. Afsakanir á borð við
hann er svo hvekktur, hann er ekki tilbúinn og við eigum
ekki næga peninga fyrir brúðkaup eru bara bull.Hann vill
ekki giftast og hann vill ekki giftast þér eru mjög ólíkar
setningar. Vertu viss um hvorum flokknum hann tilheyrir.
22. júlí 2006 LAUGARDAGUR34
Er hann nógu
skotinn í þér?
Nýlega kom metsölubókin „Hé s not that into you“ út
í íslenskri þýðingu. Bókin á að hjálpa konum að skilja
framkomu, hugsanir og gjörðir karlmanna betur enda
á þar að vera að finna blákaldan sannleikann um það
hvernig karlmenn hugsa. Snæfríður Ingadóttir las bók-
ina og fór á stjá, lagði nokkrar spurningar fyrir íslenska
karlmenn varðandi framkomu þeirra við konur og bar
saman við svör bókarinnar.
TÓMAS GUNNAR VIÐARSSON Aldur: 29 ára og
VALDIMAR AGNAR VALDIMARSSON Aldur: 31 árs
Starf: FJÁRMÁLARÁÐAGJAFAR
■ Konur eiga ekki að bjóða karlmönn-
um út heldar láta karlmennina eltast
við sig?
„Konur mega alveg reyna við karl-
menn og eltast við þá. Karlmenn sem
segjast ekki vilja það eru bara karl-
menn sem aldrei er reynt við.“
■ Ef strákur segir við stelpu „ég elska
þig“ í glasi er það þá að marka?
„Hann getur verið feiminn og opnað
sig bara þegar hann er fullur. Menn
segjast ekki elska einhverja stelpu
bara til að fara með henni heim, menn
gera ekki svoleiðis.“
■ Ef karlmaður hringir ekki í stúlku þá
er það klárt merki um það hann hafi
ekki nægan áhuga á henni?
„Ekki endilega. Hann gæti hafa týnt
númerinu. Hann hringir líklega á end-
anum en ekki endilega strax.“
■ Ef karlmaður er með konu en vill
ekki sofa hjá henni þá er hann ekki
nógu hrifinn af henni?
„„Það getur vel verið, ást og kynlíf er
ekkert sami hluturinn. Gæti verið
beggja blands, kannski er eitthvað að
plaga hann „down town“.
■ Ef karlmaður
hringir ekki í
stúlku, er það þá
klárt merki um að
hann hafi ekki
nægan áhuga á
henni?
„Nei, hann getur
t.d. bara verið
feiminn. Hann
gæti vel haft
áhuga þó hann
hafi ekki sam-
band.“
■ Konur eiga ekki
að bjóða karl-
mönnum út held-
ar láta karlmenn-
ina eltast við sig?
„Er ekki jafnrétti
í þessu sem öðru?
Strákar geta verið
svo miklar gungur
og sumir vilja láta
stelpurnar ráða þessu enda verða þær líka
aðeins að hafa fyrir þessu líka.“
■ Ef strákur segir við stelpu „ég elska þig“ í
glasi, er það þá að marka?
„Ef hann getur ekki sagt það edrú þá er það
ekki að marka.“
■ Karlmenn sem segjast ekki trúa á hjóna-
band og vilja ekki giftast hafa ekki fundið
réttu konuna til að giftast?
„Sumir trúa ekki á giftingu og þora jafnvel
ekki að gifta sig af ótta við skilnað og skömm
í fjölskylduna ef allt fer í bál og brand. Ann-
ars geta verið svo margar ástæður fyrir því
að menn vilji ekki gifta sig aðrar en að þeir
elski ekki konuna sem þeir eru með.“
■ Ef maður er með konu en vill ekki sofa hjá
henni þá er hann ekki nógu hrifinn af henni?
„Ég veit það ekki. Er hann ekki bara ástfang-
inn af henni á einhvern platónskan hátt? Mér
finnst þetta samt mjög undarlegt.“
■ Konur eiga ekki að bjóða karlmönnum út
heldur láta þá ganga á eftir sér.
„Ég er að vissu leyti sammála því að við karl-
menn viljum fá að eltast við bráðina en það er
alls ekki algilt. Þetta getur verið flóknara en
maður heldur og margir þættir sem spila inn í
og þetta fer líka eftir karakter stelpunnar.“
■ Ef strákur segir við stelpu „ég elska þig“ í
glasi er það þá að marka?
„Kannski það sé að marka ef hann er eitthvað
tilfinningalega heftur.“
■ Ef karlmaður hringir ekki í stúlku þá er það klárt merki um
að hann hafi ekki nægan áhuga á henni?
„Af hverju eiga
strákarnir endilega
að hringja í stelpurn-
ar, af hverju hringja
þær ekki í strákana?
Er ekki fólk alltaf að
tala um jafnrétti?“
■ Stelpur eiga ekki
að bjóða strákum út.
Þær eiga að láta þá
um að eltast við sig?
„Það er nú langt
síðan stelpa bauð
mér út að fyrra
bragði en mér finnst
allt í lagi að þær geri
slíkt.“
■ Ef strákur segir við
stelpu „ég elska þig“
í glasi er það þá að
marka?
„Hann hefur kannski
ekki kjarkinn til að
reyna við stelpuna
nema í glasi. Menn
þora meiru í glasi og
þeir ljúga síður í
glasi en edrú.“
■ Karlmenn sem
segjast ekki trúa á
hjónaband og vilja
ekki giftast hafa ekki
fundið réttu konuna
til að giftast?
„Þessir menn hafa kannski bara slæma reynslu af hjónabandi
og samböndum. Skuldbindingarfælni er til en ef menn geta
ekki unnið í málinu þá ættu þeir að sleppa því að vera í sam-
bandi.“
BERGUR HINRIKSSON
Aldur: 33 ára Starf: ljósa-
maður
PÁLMI GUNNLAUGUR HJALTASON
Aldur: 21 árs Starf: Kokkanemi á Apótekinu
JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSON
Aldur: 53 ára Starf: tónlistar-
maður
■ Konur eiga ekki að bjóða karlmönnum út heldur
láta karlmennina eltast við sig?
„Að sjálfsögðu mega þær bjóða okkur út, annað væri
fásinna í nútímalegu jafnræðisríki eins og Íslandi.
Stúlkur mega gjarnan eiga frumkvæðið í samskipt-
um og þess vegna pikka upp reikninginn til tilbreyt-
ingar.“
■ Karlmenn sem segjast ekki trúa á hjónaband og
vilja ekki giftast hafa ekki fundið réttu konuna til að
giftast?
„Viðkomandi gæti verið blár og marinn eftir að hafa
orðið fótaskortur á svelli ástarinnar. En tíminn lækn-
ar flest allt og er það ekki ákveðið þroskamerki að
menn hristi af sér slenið og kasti burt fyrri syndum
og sárindum og hefji nýtt líf á hvaða tímapunkti sem
þeir telja sig til slíks búna?“
■ Ef karlmaður er með konu en vill ekki sofa hjá
henni þá er hann ekki nógu hrifinn af henni?
„Það er örugglega ein-
staklingsbundið og háð
aðstæðum hvers og eins,
trúarbrögðum og uppeldi
og jafnvel ímynduðum
og raunverulegum skuld-
bindingum á öðrum stöð-
um.“
■ Ef strákur segir við
stelpu „ég elska þig“ í
glasi er það þá að
marka?
„Margir mætir menn,
þar á meðal Salómon
konungur, hafa sagt að öl
sé fólks innri maður og
með hóflegri drykkju sé
hægt að opna fyrir gáttir
tilfinninga og innri
þanka. Ég get vel ímyndað mér að menn geti meint
það sem þeir segja korter í þrjú á föstudagskvöldi þó
þeir séu búinir að fá sér tvo asna en svo eru dæmi
þess að menn geti verið algjörlega óforskammaðir og
blygðunarlausir að reyna að lokka kvenmann úr nær-
buxunum með þessum fleygu og sígíldu orðum.“
BRYNJAR MÁR BJARKAN Aldur: 28 ára Starf: aðstoð-
armaður byggingarstjóra hjá Já verktökum
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?