Fréttablaðið - 22.07.2006, Side 66

Fréttablaðið - 22.07.2006, Side 66
46 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Dagur Sigurðsson, fyrrum fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, er þjálfari austurríska úrvalsdeildarliðsins Bregenz en hann hefur einnig leikið með liðinu undanfarin ár. Síðastliðið vor stýrði hann liðinu til þriðja meistaratitils félagsins í röð á jafn mörgum árum og nú stefnir hann að þeim fjórða. „Liðið er reyndar mikið breytt á síðasta ári og þrír lykilmenn farnir og sjö nýjir komnir,“ sagði Dagur. „Það er því mikil vinna framundan við að búa til nýtt lið.“ Dagur segir að leikmennirnir þrír hafi allir farið til sterkra liða en einn þeirra samdi við spænska liðið Ademar Leon. Hann segir að upp- gangur sé í austurrískum handbolta en landsliðið hefur ekki komist á stórmót í handbolta svo árum skiptir. „Þeir voru að vísu nálægt því í fyrra þegar þeir töpuðu samtals með einu marki fyrir Slóvökum en nú í ár töpuðu þeir frekar stórt fyrir Slóvenum enda vantaði nokkra sterka leikmenn sem eru meiddir.“ Kvennahandboltinn í Austurríki hefur alltaf verið sterkur og þá segir Dagur að sínir menn hafi vakið athygli á sér þegar liðið vann Magdeburg í Meistaradeild Evrópu í vetur. „Við bíðum einmitt spenntir eftir drættin- um nú en það verður dregið í lok mánaðarins. Ég held þó að við getum ekki mætt Fram, því miður.“ Dagur á eitt ár eftir af samningi sínum og segir að hugur hans stefni heim og hafi gert lengi. „Það væri ekki nema að eitt af 6-8 bestu liðum Þýskalands vildi fá mig að mér myndi snúast hugur. Þegar ég samdi síðast við Bregenz settu nokkur lið í þýsku bundesligunni sig í samband við mig en okkur líður vel hér í Bregenz og ákváðum að vera hér.“ Dagur mun spila áfram í vetur með Bregenz en segist frekar búast við því að leggja skóna á hilluna í sumar. En skyldi það ekkert kitla að ganga til liðs við Val, hans gamla félag, ef hann kemur heim næsta sumar. „Jú, vissulega. Ég er bara ekki viss hvort það dugi til,“ sagði Dagur og hló. DAGUR SIGURÐSSON: GERIR ATLÖGU AÐ FJÓRÐA TITLINUM Í RÖÐ Í AUSTURRÍKI Aðeins bestu liðin gætu dregið mig frá Íslandi FÓTBOLTI „Ég ætla ekki að koma með neinar stórar yfirlýsingar en er farinn að íhuga það alvarlega að segja þetta gott eftir sumarið,“ sagði markvörðurinn Kristján Finnbogason, sem ver mark KR í Landsbankadeildinni. Kristján er orðinn 35 ára gamall og er einn reyndasti markvörður landsins. Hann segir að KR-ingar þurfi þó ekkert að óttast þegar hann hættir því varamarkvörðurinn Atli Jónas- son sé tilbúinn að taka við stöðunni milli stangana. „Maður er orðinn fjörgamall og þá er kominn rétti arftakinn í Vesturbæinn. Ég er alveg handviss um það að Atli sé tilbúinn í þetta. Ég held að það verði veðjað á hann og hann verður örugglega tilbúinn að taka við hönskunum á næsta ári,“ sagði Kristján en Atli er á átj- ánda aldursári og spilar með 2. flokki félagsins. Næsta sumar verður hann á elsta ári í 2. flokki en þrátt fyrir það hefur Kristján trú á því að hann sé tilbúinn að takast á við þá pressu að verja mark KR. „Maður byrjaði að spila sjálfur af krafti strax eftir 2. flokkinn og var reyndar búinn að fá mína eld- skírn fyrir þann tíma, þannig að þetta er alveg rétti tíminn fyrir Atla,“ sagði Kristján en hann hefur verið einn allra besti markvörður úrvalsdeildarinnar síðustu ár en finnst sjálfum sem hann hafi dalað. „Mér finnst snerpan og krafturinn hjá mér hafa minnkað. Samningur minn er að renna út eftir þetta tímabil og þá mun ég endurskoða mín mál.“ Kristján getur þó horft sáttur til baka á sinn feril en hann hefur unnið tíu stóra titla hér á landi, Íslands- og bikarmeistaratitla. „Það eru allir þessir titlar og svo hefur maður fengið einhverja landsleiki. Maður er því bara vel sáttur ef maður horfir til baka,“ sagði Kristján, sem hefur leikið tuttugu A-landsleiki og marga leiki fyrir yngri landsliðin. Hann á enn möguleika á því að kveðja KR með titli ef hann hættir eftir þetta tíma- bil þar sem félagið er komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar og mætir þar ÍBV á mánudag. Ekki þurfti Kristján að hugsa sig lengi um þegar hann var spurð- ur út í hápunkt ferilsins. „Það var þegar við í KR unnum tvöfalt 1999, það var í fyrsta skipti sem KR varð Íslandsmeistari í heil þrjátíu ár,“ sagði Kristján, sem varði einnig mark ÍA á sínum tíma. „Það verður mjög erfitt að slíta sig alveg frá fótboltanum og það heillar mig nokkuð að vinna með ungum mark- vörðum í framtíðinni og þjálfa þá. Ég hef ekki hugsað út í beina knatt- spyrnuþjálfun en markmannsþjálf- un kemur vel til greina.“ Kristján fékk á sig 24 mörk í Landsbankadeildinni í fyrra en hefur fengið á sig 22 mörk í ár þó sjö umferðir séu enn eftir. Hann er einn af aðeins þremur leikmönnum KR sem hafa spilað alla leikina í deildinni á þessu tímabili og ljóst að það verður sjónarsviptir af honum þegar hann leggur skóna á hilluna. Eins og áður sagði telur hann hápunkt ferils síns hafa verið tímabilið 1999 þegar KR varð tvö- faldur meistari og hampaði Íslands- meistaratitlinum eftir langa bið. Kristján fór einmitt hamförum á því tímabili og fékk aðeins á sig þrettán mörk í leikjunum átján en KR tapaði einum deildarleik þetta sumar en vann fjórtán. Hann fékk smá bragð af atvinnumennskunni á sínum ferli og átti stutta viðkomu í Skotlandi og Belgíu. Atli Jónasson hefur verið vara- markvöður KR á leiktíðinni ásamt því að spila með 2. flokki. Hann hefur leikið marga leiki fyrir yngri landslið Íslands og er hann óhrædd- ur við að takast á við það verkefni að verða hugsanlega aðalmark- vörður KR á næsta ári. „Að sjálf- sögðu, ég er klár á því að ég verð tilbúinn,“ sagði Atli en hann segist hafa lært mikið af Kristjáni. „Það kom stuðningsmaður að mér um daginn eftir að ég hafði komið inn á gegn Millwall og sagði við mig að það væri greinilegt af hverjum ég hefði verið að læra því ég liti út alveg eins og Kristján á vellinum. Ég held að það sé mikið til í því,“ sagði Atli en honum líst vel á að Kristján sé að íhuga að taka að sér markmannsþjálfun í framtíð- inni. „Það er mjög jákvætt. Ég held að það sé ekki hægt að finna betri markmannsþjálfara en Stjána.“ elvar@frettabladid.is Rétti arftakinn kominn í Vesturbæ Miklar líkur eru á því að Kristján Finnbogason, markvörður KR, leggi knattspyrnuskóna á hilluna eftir tímabilið. Honum finnst snerpa sín og kraftur hafa minnkað en segir að arftaki sinn sé þegar fundinn. FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson hefur samþykkt tveggja og hálfs árs samning sem sænska 1. deild- arliðið Norrköping bauð honum. Liðið sá Garðar spila vel gegn Bröndby í Danmörku og hlutirnir gengu hratt fyrir sig en Garðar mun skrifa undir samninginn eftir helgina. Hann fer svo endanlega út eftir tæpar tvær vikur og miss- ir því að stórum hluta Íslands- mótsins með Val. „Þetta hefur gengið ótrúlega hratt fyrir sig og við vorum merki- lega nálægt hvor öðrum í tölum talið. Þetta er auðvitað Superettan og því kannski engin stórkostleg laun, en þetta er vel nóg fyrir mig og fjölskyldu mína,“ sagði Garðar. Hjá Norrköping er einn Íslend- ingur, Stefán Þórðarson. „Ég talaði við Stefán um daginn og hann sann- færði mig endanlega um að fara út. Hann bar þeim söguna mjög vel,“ sagði Garðar en einn aðalframherji sænska liðsins meiddist illa nýver- ið og því þurfti liðið á nýjum sókn- armanni að halda. Garðar hefur spilað mjög vel með Val í sumar og hefur skorað fimm mörk í Landsbankadeildinni auk þess sem hann skoraði eina mark Vals gegn Bröndby á úti- velli. „Þetta er erfitt fyrir þá og mig að ég sé að fara með svona skömmum fyrirvara á miðju tíma- bili. Það er mikið í gangi, til dæmis Evrópukeppnin og þetta var jafn erfitt af beggja hálfu en maður sleppur ekki svona tækifærum.” Norrköping er í fjórða sæti sænsku 1. deildarinnar en stefnir hraðbyri á að komast upp í efstu deild. „Ég hef heyrt frá mörgum að þetta sé sofandi risi og eigi heima í efstu deild. Það er allt kapp lagt á að komast upp,“ sagði Garð- ar en Norrköping er fornfrægur klúbbur sem hefur tólf sinnum orðið Svíþjóðarmeistari. - hþh Garðar Gunnlaugsson hefur samið við sænska 1. deildarliðið Norrköpping og mun fara strax til liðsins: Garðar gengur í raðir sofandi risans í Svíþjóð GARÐAR Atvinnumennska hans verður mikill missir fyrir Val. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Spilað um bronsið í dag Íslenska U21 árs landslið kvenna leikur í dag um bronsið á opna Norðurlanda- mótinu sem fer fram í Noregi. Segja má þó að sigurvegarinn úr leiknum við Svía verði Norðurlandameistari þar sem Þjóðverjar og Bandaríkin mætast í úrslitaleiknum. > Birgir Leifur á góðu skriði Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel á öðrum degi Áskorendamóts í Austurríki en hann lék annan hringinn á þremur höggum undir pari. Birgir lék á einu höggi undir pari á fyrsta deginum og er á meðal efstu manna en sá sem leiðir mótið, Rafael Bello frá Spáni, er á ellefu höggum undir pari. Birgir fékk tvo fugla í gær og einn örn, en síðasta fuglinn fékk hann á sinni síðustu holu. Auk þess fékk Birgir einn skolla en hann er nú í góðri stöðu til að tryggja stöðu sína enn betur á styrkleikalista Áskorenda- mótaraðarinnar. Hann er nú í 105. sæti og þarf að hífa sig verulega upp ef hann ætlar sér að fá þáttökurétt á Evrópu- mótaröðinni. HANDBOLTI Þrátt fyrir að enn séu nokkrir mánuðir í heimsmeistara- mótið í handbolta sem fer fram í Þýskalandi í janúar á næsta ári er eftirspurn eftir miðum mikil. Alls fara um 320.000 miðar á sölu en þegar hafa um 100.000 miðar selst. „Eftirspurnin er gríðarleg en hún á bara eftir að aukast. Eftir heimsmeistaramótið í knattspyrnu hér í landi tók áhuginn að færast yfir í handboltann og ég veit að handboltamótið verður ekki síðra en fótboltamótið, sem tókst frá- bærlega,“ sagði Horst Bredemeier, varaforseti þýska handknattleiks- sambandsins. Ísland verður með á mótinu og spilar sína leiki í Magdeburg en búast má við nokkrum fjölda Íslendinga á pöllunum. - hþh HM í handbolta í Þýskalandi: Mikil eftirspurn eftir miðum ALFREÐ GÍSLASON Verður með íslenska landsliðið á mótinu þar sem hann verður nánast á heimavelli. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI FÓTBOLTI Frank Rijkaard, knatt- spyrnustjóri Barcelona, segir að Eiður Smári Guðjohnsen hafi ekki verið keyptur til liðsins til þess að sitja á bekknum. Rijkaard greindi frá þessu í einkaviðtali við NFS í gær en viðtalið verður sýnt í heild sinni í fréttum NFS í kvöld. Auk þess verður sýnt viðtal við Eið sjálfan, sem nýtur lífsins svo sann- arlega hjá sínu nýja liði. Rijkaard sagði meðal annars í viðtalinu að Eiður myndi leika lykilhlutverk í titilvörn félagsins í Meistaradeildinni en landsliðs- fyrirliðinn mun keppa við marga bestu leikmenn heims um stöður í liðinu hjá Rijkaard. Fyrsti leikur Eiðs Smára með Barcelona verður um næstu helgi þegar liðið leikur æfingaleik í Árósum í Danmörku. - hþh Frank Rijkaard: Eiður verður lykilmaður EIÐUR OG RIJKAARD Skemmtu sér vel í fyrstu æfingavikunni eftir sumarfrí í vik- unni. NORDICPHOTOS/AFP STRÁKURINN OG LÆRIFAÐIRINN Atli og Kristján bera hvor öðrum vel söguna. Kristján segir Atla vera gríðarlega efnilegan en Atli segir Kristján hafa kennt sér mikið í gegnum tíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.