Tíminn - 07.01.1978, Síða 15

Tíminn - 07.01.1978, Síða 15
Laugardagur 7. janúar 1978 65 ára 15 Sigurður Gunnarsson fyrrverandi skólastjóri mrm lesendur segja Fékk litlu sem engu að ráða Vinur minn Siguröur Gunnars- son fyrrv. skólastjóri á Húsavik átti 65 ára afmæli 10. okt. sl. Ég vil nota þetta tækifæri til aö minnast hans þvi aö ekki er vist, aö ég eigi þess kostaö fimm árum liönum, þegar hann fyllir sjöunda áratuginn, ef Guö lofar honum að ganga þann spölinn sem ég vona og tel liklegt að verði, og raunar miklu lengra. Allir munu hafa veitt þvi eftir- tekt að áhrif frá mönnum sem við litum augum i fyrsta sinn eru ó- lik, og einnig þvi sem viö gerum okkuroftmjög rangar hugmyndir um þá. Þeir reynast allir aðrir viö kynningu en viðhöföum búizt við. Ég minnist þess glögglega er ég sá Sigurð fyrst. Þaö var norður á Akureyri sumarið 1939. Ég var þar aö starfi með manni sem Sig- urður þekkti og kom til að hitta. Við ræddum ekkert saman, en ég virtimanninn fyrir mér, og þegar ég hitti hann næst, eftir rúmt ár, og varð samstarfsmaður hans fannst mér ég þekkja hann. Síðan hefur hann alltaf verið hinn sami i minni vitund. Ég hef oft hugleitt, hvað valdi þessu og niðurstaðan er: Sigurður Gunnarsson er eng- inn leikari (enda hef ég ekki heyrt þess getið, að hann hafi nokkru sinni komið á „fjalimar”). Hann er gegnsannur,reynir aldrei aö sýnast annar en hann er, og hann er Sigurður Gunnarsson. Sigurður er einn þeirra manna sem er þekktur viða um landið og reyndar talsvert út fyrir það. Ég tel þó viðkunnanlegra i afmælis- grein að gera ofurlitið nánari grein fyrir honum. Hann er Þing- eyingur að ætt, fæddur og uppal- inn að Skógum i öxarfirði. Faðir hans og móðir voru bæði Norður- Þingeyingar, og ég held, að ekki verði farið yfir mörk Þingeyjar- sýslu, þótt lengra sé rakin ættin, en á það hætti ég ekki vegna ókunnugleika. Foreldrar Sigurðar, Gunnar Ámason og Kristveig Björnsdótt- ir, bjuggu allan sinn búskap i Skógum. Þau eignuðust alls 9 börn, og er Sigurður af þeim yngri. Ég sá aldrei þau hjón né þekkti Skógaheimilið en mér hef- ur verið tjáð að þar hafi verið bú- ið vel og af myndarskap og þrifn- aði. Húsbóndinn var ekki aðeins vel að sér um hvað eina er bú- skapinn snerti heldur einnig fjöl- hæfur smiður, einn af „þúsund þjala smiðum” islenzkra byggða. Og það má segja um son hans Sig- urð, að eplið hafi ekki fallið langt frá eikinni, þvi að hann er lag- tækur vel og vandvirkur i bezta lagi, þarf ekki ,annað en að lita i bókaskápinn hans til að sannfær- ast um, að hann er bókbindari i fyrsta flokki, þó að ekki hafi hann bréf upp á það. Þó að Sigurður Gunnarsson sé ekki i heiminn borinn fyrr en á öðrum áratug þessarar aldar, er hann sannur aldamótamaður i hefðbundinnimerkingu þess orðs. A unglingsárum mótaðist hann af hugsjónum ungmennafélaganna, bindindis- og skátahreyfingunni, og hann svo sannarlega verið trúr til þessa dags. Það var i samræmi við þessar hugsjónir að hann valdi ævistarfið — gerðist kenn- ari. Hann lauk kennaraprófi 1936 og varð fyrst kennari i Borgar- nesi, siðan á Seyðisfirði, og þaðan kom hann til Húsavíkur haustið 1940 og varð þá skólastjóri við barnaskólann þar. Þá hófust kynni okkar, þvi að ég varð þetta sama haust kennari við skólann og undir stjórn Sigurðar. Þarna vorum við samstarfs- menn i 3 vetur, og á ég margar góðar minningar frá þeim árum. Það mun ekki hafa verið vanda- laust að verða eftirmaður hins góðkunna og virta skólastjóra Benedikts Björnssonar. Og þarna fékk Sigurður með sér litt vana kennara að einum undanskildum. Ef til vill hefur það þó að sumu leyti verið honum styrkur að hafa með sér litið mótaða menn, þvi auðvitað gat ekki hjá þvi farið að hann gerði úmsar breytingar á skólastarfinu til samræmis við breyttan tima. Sigurður gekk að þessu með atorku og samvizku- semi og sparaði hvorki tima né fyrirhöfn. Aður en hann gerðist skólastjóri hafði hann nokkuð kynnzt svokallaðri starfrænni kennslu, en ávæningur slikrar kennsluaðferðar barst hingað til lands um þetta leyti, einkum frá Sviþjóð, m.a. með komu hins kunna sænska kennara. L.G. Sjö- holm sem kom hingað á fjórða áratugnum. Þegar eftir fyrsta kennsluvetur okkar á Húsavik út- vegaði Sigurður Aðalstein Sig- mundsson, kennara i Reykjavik, til þess að hafa námskeið með okkur Húsvikingunum og ná- grannakennurum i þessum kennsluaðferðum. Mér er þessir 10 námskeiðsdagar I fersku minni. Þá var nú ekki dregið af sér.unnið frá morgni til kvölds og auðvitað kauplaust bæði af kenn- ara og nemendum. Eftir þetta féll hinn starfræni þáttur aldrei niður. i skóla Sigurðar Gunnarssonar. En hann átti eftir að kynna sér þessar kennsluað- ferðir betur, er hann dvaldi við ýmsa skóla á Norðurlöndum i starfsorlofi sinu og og raunar oft- ar. Og hér á við að geta þess að þegar hann hætti skólastjóm og kennslu á Húsavik árið 1960, eftir 20 ára starf þar, bauðst honum kennarastarf við æfingadeild Kennaraskóla Islands. Telur hann sjálfur að það hafi einkum verið vegna áhuga hans á þessun/ kennsluháttum og reynslu. Þar notaði hann auðvitað að stöðu sina til þess að kynna verðand: kennurum sinar kennsluaðferðir enda til þess ætlazt. En ekki nóg með það. Hann kom oft á nám- skeið viðsvegar út um land tiJ þess að fræða um þessi efni. Sigurður er nú hættur kennslu sagði starfinu lausu haustið 1976. enkenndi þómikið s.l. veturifor föllum. Nú mun hann ekki gere það. Hins vegar er hann ekki setztur i helgan stein. Enn er hann fullvinnandi og slær ekki slöku við fremur en fyrri daginn. Hann hefur nú tekið að sér að vinna við útgáfu nýs kennaratals, framhalds af hinu fyrra, þar sem Ólafur Þ. Kristjánsson verðurrit- stjóri sem fyrr. Þetta mun verða mikið verk, og hygg ég Sigurð réttan mann i slikt nákvæmnis- og þolinmæðistarf. En þetta er ekki eina viðfangsefnið. Sigurður hefur alla tið verið mikill félags- hyggjumaður, og er enn virkur starfsmaðuri mörgum félögum. í þágu bindindisstarfsins hefur hann varið miklum tima og fyrir- höfn.m.a. farið margar ferðir um landið enda stórgæzlumaður unglingastarfs I.O.G.T. um skeið. Hann hefur einnig oft verið send- ur á fundi og ráðstefnur erlendis, þar sem bindindismál voru á dag- skrá. Hann stofnaði og starfrækti öfluga barnastúku á Húsavikur árunum, og eftir að hann settist að I Reykjavik stofnaði hann barnastúku innan Langholtssafn- aðar og veitti henni forstöðu i 10 ár. Það yrði langur listi ef greina ætti öll þau félög sem Sigurður hefur verið skráður i og veitt lið- sinni en það eru eingöngu félög sem stefna að menningu fólksins. Kirkjan hefur notið starfskrafta Sigurðar,hann hefur m.a. sungið i kirkjukórum bæði á Húsavik og viö Langholtskirkju. Ekki get ég lokið þessari grein án þess að minnast á Sigurö Gunnarsson sem rithöfund. Hann hefur að visu ekki frumsamið margar bækur, en hann er tvi- mælalaust afkastamesti barna- bókaþýðandi hér á landi. Lang- flestar bækurnar eru þýddar úr norsku, munu þær vera 46 að tölu og eftir 16 höfunda. Úr öðrum Norðurlandamálum hefur hann þýtt um 20 bækur og eina (þá fyrstu) úr ensku. Flestar þessar bækur eru um 100 blaðslður, en sumarmeira. Auk barnabókanna hefur Sigurður þýtt kennslu- og leiðbeiningabækur, sumar einn en aðrar i samvinnu við annan. 1 mörg ár hefur hann ásamt tveim öðrum séð um efni i litla bók sem Unglingaregla I.O.G.T. gefur úr árlega og heitir Vorblómið. Leið- sögn i átthagafræði samdi hann ásamt undirrituðum, og mestan þátt hygg ég hann hafi átt i r.ýlega útkominni Handbók i bindindis- fræðum. Ekki munu hér öll kurl komin til grafar, en þetta nægir til að gefa hugmynd um feikilega starfsorku mannsins. Við þetta má þó bæta þvi sem öllum er kunnugt að Sigurður hefur lesið sumt af bókum sinum i útvarp og raunar meira þvi að hann á frum- samið barnaefni i handriti sem hanneinnig hefurlesið nokkuð af. Mér er sánnast að segja litt skiljanlegt hvernig þessi vinur minn hefur getað afkastað þessu öllu jafnhliða fullu starfi sem hann aldrei hefur vanrækt. Sigurður Gunnarsson hefur átt þvi láni að fagna að vera heilsu góður en hann hefur ekki heldur gert sérleik að þvi að spilla heilsu sinni með neins konar óreglu. Þarna er nokkur skýring á vinnu- þreki hans og miklum afköstum. Ég hef aldrei heyrt hann kvarta undan vinnuálagi og minnist þess varla að hafa séð á honum þreytumerki. Hann fer jafnan snemma á fætur (er aldrei timbraður) og sezt við vinnu ef hann þarf ekki strax I skólann. Þangað fórhann oftast gangandi. Oft fer hann langar gönguferðir jafnvel á fjöll upp. Þannig bætir hann sér upp seturnar við skrif- borðið, sem stundum hljóta að vera nokkuð langar. Hann hefur aldrei eignázt bil og er það ef til vill gæfa hans. En Sigurður er ekki aðeins mik- ill starfsmaður hann er maður trúr, ráðvandur og traustur, og þessireiginleikar gera hann vina- fastan. Þá hlið hans þekki ég vel allt frá fyrstu kynnum. Eiginkona Sigurðar er Guðrún dóttir hins þekkta skólamanns, Karls Finnbogasonar skólastjóra á Seyðisfirði og konu hans Vil- helminu Ingimundardóttur. Guð- rúnerkona gervileg, vel að sér og listræn. Þess vil ég geta hér að hún átti sextugsafmæli á hvita- sunnudag s.l. Ég niun ekki hafa sent henni afmæliskveðju, enda þá fjarverandi. Ég nota þvi þetta tækifæri og sendi henni kærar kveðjur og þakkir fyrir löng og góð kynni. Þau Sigurður munu hafa kynnzt á Seyðisfirði en gift- ust ekki fyrr en sumarið 1941, er Sigurður var fluttur til Húsavik- ur. Þau eiga þrjá syni: Karl, Gunnar og Vilhjálm. Þeir eru all- ir greindir menn og fjölhæfir. Ég læt nú lokið þessari afmæl- isgrein — vona að ekki sé margt úr lagi fært. Hitt veit ég vel að ýmislegt fleira hefði mátt segja. En þetta eru ekki eftirmæli. Flest bendir til þess að Sigurður eigi enn ógengin mörg ár ævi sinnar hér, og er þá ekki að efa að eftir- mælinverða lengrienþetta spjall og skrifuð af öðrum en mér. Ég óska þér vinur góðs það sem eftirer ævinnar og þakka allt gott á langri samleið. Eirikur Stefánsson Greinargerð þessi er nokkurs konar úttekt á gangi fram- kvæmda á tilraunakaflanum á Kjalarnesi, sem er vist kallaður „Sverrisbraut manna á meðal. Inngangsorð sem birt voru 13. okt. s.l., enduðu á þvi að segja að „Blöndun á staðnum” þátt- urinn I verkinu hafi tekið sjö klukkutima og að ef til vill hefði ég átt að gefast upp þegar kostnaður var að fara fram úr áætlun. Staðreyndin er þó sú að ég ákvað að halda áfram, þrátt fyrir erfiðleika, og feginn er ég þvi þegar ég lit til baka. Það er gott að vera reynslunni rikari og fáum krónum var virkilega só- að. þrátt fyrir aðstæður. „Blöndun á staðnum” þáttur- inn I verkinu kostaði rúmar 1,2 milljónir. Þar innifalið er sem- ent fyrir eina milljón eitt hundr- að tuttugu og tvö þúsund krón- ur, laun eins verkstjóra 5.400 kr., tveir heflar 28.000 kr., einn vörubill 14.000 kr., tveir valtar- ar 21.000 kr., sjö verkamenn i sementvinnu 20.000 kr. (vinnu þessara sjö manna gerir einn maður i Bandarikjunum með réttu tæki), ein blöndunarvél 67.125 kr. (fjórir kl.timar blönd- un og þrir timar biðtimi). Þessi þáttur er upp á krónu þvi þar réði ég einn. Þvi miður er ekki mögulegt að hafa heildarupp- hæðina nákvæma þvi þar bland- ast inn i flutningur á tækjum o.fl. Eiginlega er ég sammála þeim sem hafa sagt að ég hefði ekki átt að taka að mér nema þennan þátt i verkinu, en mun útskýra seinna hvernig ég var neyddur til að taka að mér allt verkið. 1 Kaliforniu var ég vanur að vinna þannig, að verktakar, sveitarfélög og bæjarfélög höfðu samband við mig og óskuðu eft- irað ég kæmi með blöndunarvél mina á vissan stað á vissum tima til að blanda fyrir þá. Þeir sáu yfirleitt um alla aðra liði þ.á.m. verklýsingu og kostnaðaráætlun. Þetta vissu ráðamenn hér áður en ég byrj- aði framkvæmdir. Vist kom það fyrir að ég sá um allt verkið (eins og meðmælabréf frá ein- um stærsta verktaka I Kali- forniu sýnir). Þeir, sem ég var aðblanda fyrir, sáu um útvegun tækja, sem ég hafði ekki til um- ráða. Þegar viðræður milli min og Vegagerðarinnar hófust 1972, hélt ég að þannig ætti að standa að tilrauninni. t fyrrnefndri heildarupphæð er ekki innifal- inn kostnaður við sigtun á efn- inu, sem ég hafði ekki ætlað að taka að mér þegar verklýsingin og kostnaðaráætlunin voru skrifaðar, og mun ég koma að þvi seinna. Ráðamenn komust einhvern veginn á þá skoðun, að ég hefði fullyrt of mikið um bandariska tækni og hraða við vegagerð. 1 staðinn fyrir að spyrja mig hvort ég hefði virkiíega sagt þessa hluti, eins og blöðin túlk- uðu þá, var vist þegar byrjað áð reyna að stöðva mig. T.d. sagði mér maður vel kunnugur hjá Vegagerðinni (en maður heyrir nú svo margt) að tveir verk- fræðingar hefðu verið ráðnir og iagt nótt við dag til að kanna allt sem ég hafði skrifað og sagt við- vikjandi þessu máli. Þeir áttu vist að finna einhverja veika punkta hjá mér. Þegar það tókst ekki þá var breytt um aðferðir og flest af þvi, sem siðan hefur gerzt hefur þegar komið fram opinberlega. Hinn 28. okt. 1976 sagði núver- andi vegamálastjóri i blaðavið- tali, að það hefði verið þrýsting- ur frá almenningi og fjölmiðlum sem gerði það að verkum að ég fékk skriflegt loforð um gerð eins kilómetra. 1 bréfi frá Vega- gerðinni 13.4.’72 segir: „Vegagerð ríkisins beri kostnað af tilraun, lögn 1 km vegarkafla, sem þér gerið með burðarlagi og slitlagi”. Löggilt- ur þýðandi færði bréfið I ensku, þvi ég hafði ákveðið að athuga hvort fyrrverandi samstarfs- menn minir i Ameriku væru til- leiðanlegir að útvega peninga i stórframkvæmdir hér á landi (sem þeir vitaskuld voru). Einnig fór ég til Alþjóðabank- ans i Washington til að ræða málin þar. í þýðingunni kemur greinilega fram að þar er aðeins rætt um burðarlag og slitlag, meðþessum orðum, „consisting of base and surface course”. Þetta er sönnun þess að I byrjun átti að standa að þessu með skynsemi, en það eru vist ósýni- legu spottarnir i þessu þjóðfé- lagi sem breyta hlutunum og að minu áliti eru réttilega kallaðir „mafiur”. Ég hef minar hug- myndir um hvernig þessu var allt i einu breytt. I bréfinu er ekki minnzt á undirbyggingu (sub-base), ræsagerð, skurði né annað sem bættist við siðar, að ósk Vegagerðarinnar. Út af bréfi þessu fékk ég nokkra menn i félag við mig og var ákveðið að ég næði I blöndunar- vél. Þetta var i júni 1972. Eftir viðræður milli min og Vega- gerðarinnar, mikið þras og fundarsetur neyddist ég til að láta undan þeirri ósk (eða rétt- ara sagt skipun) Vegagerðar- innar að taka að mér kaflann frá grunni, þe.e. undirbyggingu, jarðvegsflutning, skurði, ræsi og annað. Ég tók þetta að mér aðeins vegna þess að mér hafði veriðlofað að fá að velja kafla á móti. Þess vegna veit ég að það er aðeins timaspursmál þangað til að ég sanna mitt mál. I milli- tiðinni er almenningsálitið á mér vist ekki upp á marga fiska, en það verður að hafa það. Nú, þegar ég hafði látið undan, var að minu áliti sam- þykkt að Vegagerðin skyldi út- vega þær vinnuvélar og tæki sem til þyrfti, nema blöndunar- vélina. Nú heimtaði Vegagerðin að ég kæmi með nýja verklýs- ingu og lét það skina i gegn, að hún ætti að vera skrifuð af verk- fræðingi. I viðræðum kom i ljós að mis- skilningur hafði orðið milli full- trúa „BI. á st.” og fulltrúa Vegagerðarinnar á fundi 3.4. 1973. í fundargerð 4.1. 1974 stendur, „Rætt um fund með fulltrúum V.R. og „Bl. á st.” frá' 3. april ’73. Fulltrúar „Bl. á st.” töldu að á fundinum hefðu full- trúar \'.R. gefið loforð um að út- vega tæki sem vantaði til bygg- inga kaflans. V.R. taldi sig ekki hafa gefið nein slik loforð, held- ur aðeins vilyrði fyrir að vera hjálplega við útvegum tækja”. Einn fulltrúa „Bl. á st.” sagði þá, sem einnig er bókað að „vél sú sem „Bl. á st.” hefði til um- ráða, dygði aðeins til lagningar burðarlags og slitlags, en ekki til undirbygginga, væri þvi æskilegt að I stað kafla VV 8 (sem er „Sverrisbraut”, mitt innskot) fengju þeir annan kafla”. Ofangreint sýnir greini- lega að fulltrúar „Bl. á st.” viðurkenna að misskilningur hafi orðið, en V.R. lét sig ekki og heimtaði að ég sæi um útvegun tækja, þótt ég á fyrrgreindum fundi hefði sagt þeim að ég treysti mér ekki til að hafa nein viðskipti við verktaka um tæki, þvi ég vissi að vegaverktökum væri ekki hlýtt til min, sem svo sannarlega kom i ljós seinna. I næsta þætti þessarar greinargerðar mun ég útskýra hvað V.R. var „hjálpleg við út- vegun tækja ” og hvernig var, að minu áliti, af ásettu ráði reynt að eyðileggja þessa tilraun. Sverrir Runólfsson

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.