Tíminn - 27.01.1978, Qupperneq 3

Tíminn - 27.01.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 27. janúar 1978. ÍllMÍÍj Samið um sölu á frystri loðnu til Japans í dag GV — Undanfarið hafa verið fundir með japönskum fisk- kaupendum og fulltrúum sjávarafurðardeildar SIS um sölu á frystri loðnu og loðnu- hrognum til Japans. Að sögn Arna Benediktssonar for- manns Sambands frystihúsa veröur þess að vænta i dag að þessir aðilar semji. Útifundur á Hallærisplaninu: Niðurrifs tillögum mótmælt — gagnrýni á ný byggingaráf or m Teikning sem talar sinu máli, fundarins. teiknuð af Hildi Karlsdóttur I tilefni GV — Barátta getur lika verið skemmtileg eins og sést á dag- skrá útifundar, sem haldinn verð- ur á Hallærisplani na'stkomandi laugardag kl. 2 e.h. A dagskrá fundarins verður m.a. leikþáttur sem leikiistarnemar flytja, Hamrahlíðarkórinn syngur, Spil- verk þjóðanna, hornaflokkur leik- ur, einnig verður harmonikuleik- ur, stutt ávörp verða flutt og fjöldasöngur. Fundurinn er hald- Varnargarðurinn við Þjórsá reynist vel St. Jas. Vorsabæ — Eins og fólki er i fersku minni var mikil klaka- hrönn i Þjórsá og vatnsborð ár- innar óvenjuhátt um þetta leyti i fyrra vetur. Ain flæddi upp undir bæjarhúsin að Urriðafossi i Villingahoitshreppi, ftæddi yfir þjóðveginn við Villingaholt og ógnaði mannlifi á bæjunum niður með ánni. Einkum var mikil hætta á bæn- um Mjósyndi. Þar flæddi inn i þurrheyshlöðu og fleiri hús voru i hættu, enda var yfirborð árinnar hærra þegar verst lét en um- hverfið. Talið var að vatnsmiðlunin á hálendinu ætti sinn þátt i vatns- hæð árinnar samfara langvar- andi frostum. Viðræður fóru fram milli Landsvirkjunar og ráðamanna i Villingaholtshreppi um varnar- aðgerðir. I októbermánuði sl. var hafizt handa um aðgerðir til að verjast áföllum af vatnságangi frá Þjórsá. Landsvirkjun hafði for- göngu um framkvæmdir i sam- ráði við sveitarstjórn Villinga- holtshrepps. Þórisós hf. sá um framkvæmd verksins undir verk- stjórn Bjarna Sveinssonar. Gerður var um 300 metra langur varnargarður þar sem flóðahættan er mest. Er garður- inn um 2 metrar á hæð þar sem hann erhæstur, byggður úr að- fluttu jarðefni og þakinn allur með túnþökum. Þökurnar sem garðinn þekja eru alls 6100 fer- metrar. Sigurjón Kristjánsson bóndi i Forsæti, telur mikið öryggi að þessu mannvirki. „Þessi framkvæmd gjörbreytir aðstöðunni á árbakkanum miðað við það sem áður var,” sagði Sigurjón i viðtali við fréttaritara Timans. „Það voru áhugasamir og harðduglegir menn sem unnu þetta verk. Þeir virtust hafa mestan áhuga á að gera verkið sem bezt úr garði og á sem skemmstum tima eins og þeir væru i akkorði, en svo var þó ekki.” inn i framhaldi af þeim mótmæl- um borgarbúa og ibúasamtaka sem hafa spunnizt út af nýjum skipulagstillögum borgaryfir- valda, sem voru kynntar ekki alls fyrir löngu. Tillögurnar gera ráð fyrir að 10 hús frá öldinni sem leið, sem standa i röð austan Aðalstrætis .verði rifin, og að i þeirra stað verði reist firnamiklar byggingar þriggja til fimm hæða háar. Þess- ar byggingar hefðu i för með sér mikla röskun i þessum borgar- hluta, Aðalstræti yrði að bakgötu og Grjótaþorpið og jafnvel Morgunblaðshúsið félli i skugga fyrir þessum byggingum. I fréttatilkynningu undirbúnings- nefndar fundarins segir m.a.: „Við teljum að niðurrifsmenn borgarstjórnar sýni litilsvirðingu fyrir gömlum verðmætum, hand- verki horfinna kynslóða. Með til- lögunum er miskunnarlaust höggvið á ómetanleg tengsl við liðna tima eða stefnt að þvi. Við teljum að nýtt lif verði ekki glætt i gamla miðbænum án náinna tengsla við fortiðina. Við mæl- umst eindregið til þess að gamla byggðin fái að halda sér i aðal- atriðum, að ný byggð verði felld að hinni gömlu, að mynduð sé samræmd heild.” I CODRi i, ÞJALFUN! Sigurjón Kristjánsson I Forsæti viröir fyrir sér nýja varnargarðinn. Hann litur yfir byggðirnar sem nú eru öruggari gegn ágangi árinnar.ts- breiðan á Þjórsá er i baksýn. Samningavið- ræður í kjara- deilu blaðamanna sigla í strand — Félag blaðaútgefenda höfuðlaust Imeira en 20 ár hefur ein afstœrstu og\ þekktustu verksmiðjum heims á sviði véla, HFM í Danmörku, sérhœft sig í krönum og paUbúnaði hverskonar. g Þrátt fyrir harða samkeppni hafa beirh—j œtíð farið fremstir þegar um er að rœða gœði og tœkninýjungar. Reynsla þeirra og þekking er trygging sem má treysta. Hér sérðu hvers vegna Svörun: Til að geta unnið hratt og örugglega verður kraninn að láta vel að stjórn. Góð svörun er eitt af aðalsmerkjum HMF krananna. Burðarþol: HMF kranarnir hafa geysilegt burðarþol. Og lyftingamöguleikunum lítil takmörk sett. Stöðugleiki: Stuðningsfcetur krananna frá HMF eru hannaðir sérstaklega til að standa af sér miklar sveiflur og átök. Ending: Ending HMF krananna er viðbrugðið, þvi flestir eru þeir langlífir og þjóna fleiri en einum bíl um œvina. Eigin þyngd: HMF kranarnir hafa verið léttir að mun með tilkomu nýrra efna, samfara því hefur lyftigeta þeirra aukist. Úthald HMF krananna er því frábœrt - enda í góðri þjálfun. SALA-VIÐHALD ■ WONUSTA LANDVÉLAR HF. Smiðjuvegi 66. Sími: 76600. FI — Samningaviðræður Félags blaðaútgefenda og Blaðamanna- félags islands um launamál hafa nú siglt i strand og hefur formaö- ur Félags blaðaútgefenda Har- aldur Sveinsson frkstj. Morgun- blaðsins sagt formennskustarfi sinu lausu. Astæðan fyrir afsögn- inni er tilgreind i Morgunblaðinu sú, að ekki hafi tekist að ná æski- legri samstöðu blaðanna varð- andi hagsmunamál þeirra, en ekki náðist i Harald i gær til þess að kryfja málið til mergjar. Magnús Finnsson formaður Blaðamannafélagstslands sagði i samtali við Timann i gær, að óljóstværiennhvaða áhrif afsögn Haraldar hefði á gang samninga- viðræðnanna og yrði staðan ekki ljós, fyrr en samninganefndirnar hittust að nýju. — Það hefur orðið okkur mikið áfall, að Félag blaðaútgefenda hefur ekki staðið v:' það sam- komulag, sem þeir andirrituðu á sl. sumri, sagði Magnús, en i þvi samkomulagi var gert ráð fyrir samræmingu á launum blaða- manna og fréttamanna Rikisút- varpsins. Við teljum, að þessari samræmingu hafi verið hafnað og verðum við þar með að hefja nýja kr'ófugerð og gangast i að gera nýjan kjarasamning. Sá kjara- samningur getur ekki orðið lægri en upphaflega var gert ráð fyrir með tilliti til samræmingarinnar. Kjaradeilu þessari hefur verið visað til sáttasemjara.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.