Tíminn - 27.01.1978, Qupperneq 13
Föstudagur 27. janúar 1978.
Œiing tekjuskatts,
ra gjalda 1978
13
Sjúkratryggingagjald er 2% af
gjaldstofni álagðra útsvara 1978,
þó að frádregnum:
a. bótum samkvæmt II. og IV.
kafla laga um almannatrygg-
ingar (i E-lið hér að framan
sést hvaða bætur þetta eru):
b. námsfrádrætti er skattstjóri
ákveður vegna þeirra er
stunda nám a.m.k. sex mánuði
á árinu:
c. lækkunum skattgjaldstekna
(ivilnun) er' skattstjóri ákveö-
ur samkvæmt 52. gr. skatta-
laganna,
d. i viöbót við þær fjárhæðir elli-
og örorkulifeyrisbóta sem frá
eru dregnar skv. a-lið þessa
töluliðar, skal draga frá hjá
þeim einstaklingum sem nutu
elli- og örorkulifeyris á árinu
1977, 300.000 kr., og hjá hjónum
500.000 kr.
Eigi skal gjald þetta lagt á þá
sem ekki yrði gert að greiða út-
svar væri þaö 10% af gjaldstofni
til sjúkratryggingagjalds aö frá-
dreginni lækkun útsvars vegna
fjölskyldu. Sjúkratrygginga-
gjaldiö skal á lagt i heilum hundr-
uðum króna, þannig að lægri f jár-
hæð en 100 krónum skal sleppt.
G. Skyldu-
sparnaður
skv. lögum
nr. 77/1977 .
Allir tekjuskattskyldir menn sem
ekki eru orðnir 67 ára fyrir 1.
janúar 1978, skulu á árinu 1978
leggja til hliðar fé til varöveislu i
rikissjóði sem hér segir:
a. Einstaklingar: 10% af skatt-
gjaldstekjum skattársins 1977
aö frá dregnum 2.400.000 kr.,
auk 186.000 kr. fyrir hvert barn
sem er á framfæri þeirra.
b. Samsköttuð hjón og karl og
kona sem búa saman I óvigðri
sambúð og heimild hafa til
samsköttunar: 10% af skatt-
gjaldstekjum skattársins 1977
aö frádregnum 3.100.000 kr.
auk 186.000 kr. fyrir hvert
barn sem er á framfæri þeirra
c. Hjón sem telja fram hvort I
sinu lagi: 10% af skattgjalds-
tekjum hvors um sig á skattár-
inu 1977 að frádregnum
1.860.000 kr. hjá hvoru, auk
93.000 kr. hjá hvoru fyrir hvert
barn sem er á framfæri
þeirra.
Nemi munur vergra tekna til
skatts og skattgjaldstekna hærri
fjárhæðen 532.000 kr. hjá einstak-
lingi og hvoru hjóna sem telja
fram hvort i sinu lagi, en 798.000
kr. hjá samsköttuðum hjón-
um,skal hækka skattgjaldstekjur
samkvæmtstafliðum a, b og c um
þá fjárhæð sem munurinn er
umfram þessar fjárhæðir, eftir
þvi sem viö á, og reiknast skyldu-
sparnaður þá af þessum
upphækkuðu skattgjaldstekjum,
sbr. stafliði a, b og c.
Hjá skattþegnum sem vinna við
eigin atvinnurekstur eöa sjálf-
stæöa starfsemi, skal, áður en
ákvæöum 2. mgr. er beitt, hækka
vergar tekjur til skatts um þá
upphæö sem tekjur af þessum
störfum eru lægri en ætla má aö
laun þessara aöila miöaö við
vinnuframlag þeirra hefðu oröiö
ef þeir hefðu unnið starfið i þágu
óskylds aðila.
Önnur gjöld
önnur gjöld en að framan eru
tilgreind, flest tengd atvinnu-
rekstri, verða ekki talin upp hér,
þó með eftirfarandi undantekn-
ingum: Slysatrygging við heim-
ilisstörf sem veröur áriö 1978
4.368 kr.fyrir hvern aðila. Kirkju-
garðsgjald sem er reiknuð
ákveðin prósenta af útsvari, mis-
há hjá hinum ýmsu kirkjugarös-
stjórnum. Kirkjugjald, skv.
núgildandi lögum lagt á einstaka
framteljendur i Þjóðkirkjunni á
aldrinum 16—67ára, og samsvar-
andi gjöld sem aörir þurfa að
greiða annaðhvort til safnaða
sinna eða til Háskóla Islands.
Gjaldið er mismunandi hátt i hin-
um ýmsu sveitarfélögum. A árinu
1977 var þaö i Reykjavik 2.000 kr.
fyrir einstakling en 4.000 kr. fyrir
hjón.
Barnabætur
Með hverju barni, sem
heimilisfast er hér á landi, þar
með talin stjúpbörn, kjörbörn og
fósturbörn, sem ekki er fullra 16
ára i byrjun þess almanaksárs
þegar skattur er lagöur á og er á
framfæri heimilisfastra manna
hér á landi sem skattskyldir eru
skv. 1. gr. skattalaganna, skal
rikissjóður greiða barnabætur til
framfæranda barnsins er nemi
63.900 kr. með fyrsta barni en
95.850 kr. með hverju barni um-
fram eitt. Þó skal fjárhæð barna-
bóta skert um þær barnaþætur
eða hliðstæðar bætur sem fram-
færandi hefur fengið erlendis á
skattárinu vegna barnsins.
Barnabætur greiðast til
framfæranda barns að þvi marki
sem eftirstöðvar nema þegar frá
hafa verið dregnar greiðslur
eftirtalinna opinberra gjalda
framfærandans I þessari for-
gangsröö:
1. Tekjuskatts sem á er lagður á
greiðsluárinu.
2. Annarra þinggjalda sem á eru
lögð á greiðsluárinu.
3. Ögoldinna þinggjalda frá fyrri
árum.
4. tltsvars sem á er lagt á
greiðsluárinu.
5. Aðstöðugjalds sem á er lagt á
greiðsluárinu.
Framanrituð ákvæöi um
barnabætur eru ákvæði 25. gr.
laga nr. 68/1971, sbr. C-liö 9. gr.
laga nr. 11/1975.
Auövelt á að vera fyrir
framteljanda eftir lestur þessara
ákvæöa að átta sig á hversu háar
barnabætur hann fær á árinu 1978
og hvernig greiðslu þeirra er
háttað.
Ef framteljanda hefur tekist að
reikna út gjöld og ónýttan
persónuafslátt á meðfylgjandi
eyöublaði og ef hann hefur auk
þess reiknað út barnabætur 1978
eiga a.m.k. launþegar að geta
áttað sig á hversu há opinber
gjöld skv. skatt- og útsvarsskrám
þeim ber að greiöa á árinu 1978 aö
óbreyttum lögum þar um.
Þeir sem hafa með höndum
sjálfstæðan atvinnurekstur
standa ver að vigi en geta a.m.k.
að einhverju marki stuðst við
áætlunartölur með samanburöi
viö fyrri ár.
Fyrirfram
greiddar
barnabætur
Fjármálaráöuneytiö hefur, sbr.
auglýsingu, dags. 27. des. 1977,
ákveðiö að þeim gjaldendum sem
vænta mega verulegra eftir-
stööva barnabóta til útborgunar
við álagningu skatta árið 1978,
gefist kostur á að sækja um aö fá
helming þeirra greiddan fyrir-
fram á fyrri hluta ársins 1978. A
umsóknareyðublaði um fyrir-
framgreiðslur barnabóta 1978 eru
eftirfarandi leiðbeiningar:
„Leiðbeiningar fyrir
umsækjanda.
Umsækjanda er bent á að fylgja
nákvæmlega eftirfarandi
leiðbeiningum og vanda útfyll-
ingu eyöublaös og framtals, að
öðrum kosti getur afgreiðsla um-
sóknar tafist eða henni veriö
hafnaö.
Fjármálaráðherra hefur ákveðiö,
að þeim gjaldendum, sem vænta
mega verulegra eftirstööva
barnabóta til útborgunar við
álagningu skatta árið 1978, gefist
kostur á að sækja um að fá helm-
ing þeirra greiddan fyrirfram á
fyrri hluta ársins 1978,
samkvæmt eftirfarandi reglum:
1. Fyrirframútborgun fer einung-
is fram til þeirra, er hafa fleiri
en eitt barn á framfæri sinu, og
einungis til þeirra, sem vænta
má, að eigi meira en 60.000 kr.
eftir af barnabótum sinum eftir
aö frá hafa veriö dregin þau op-
inber gjöld, sem væntanlega
verða lögð á á árinu 1978,
ásamt eftirstöövum þinggjalda
frá fyrri árum. Sé helmingur
væntanlegra eftirstööva barna-
bóta undir 30.000 krónum kem-
ur hann ekki til útborgunar fyr-
irfram.
2. Umsókn i tviriti skal senda
skattstofu i umdæmi umsækj-
anda.
3. Umsókn skal fylgja skattfram-
tali umsækjanda árið 1978. Um-
sókn og framtal skal leggja i
umslag og merkja það: Um-
sókn um fyrirframgreiðslu
barnabóta.
4. Ef um er aö ræöa sambýli
fólks, sem átt hefur börn sam-
an, skulu skattframtöl beggja
sambýlisaöila fylgja umsókn.
5. Umsóknarfrestur er hinn sami
og almennur skilafrestur fram-
tala, þ.e. 31. janúar 1978. Þeir,
sem hafa annan skilafrest
framtala en aö ofan greinir,
skulu hafa sent inn umsókn I
allra siðasta lagi 28. febrúar
1978.
6. Stefnt er að þvi, aö útborgun
barnabóta samkvæmt umsókn-
um, sem borist hafa innan 31.
janúar 1978, hefjist I mars 1978.
Útborgun samkvæmt umsókn-
um sem berast milli 1. og 28.
febrúar hefst ekki fyrr en i apr-
il/mai 1978.
7. Skattstofa tilkynnir umsækj-
anda ef umsókn er synjað en
samþykktar umsóknir munu
berast hlutaðeigandi inn-
heimtumanni rikissjóös sem
annast útborgunina.
Útborgun fyrirframgreiðslu er
háð takmörkun fjárhæðar skv. 1.
töluliö að ofan og þvi að umsækj-
andi (og sambýlisaðili ef við á)
eigi ekki vangreiddar eftirstöðv-
ar þinggjalda frá fyrri árum.”
Með þvi að reikna út væntanleg
gjöld á árinu 1978 á margum-
ræddu eyöublaöi, nota neðsta
hluta eyðublaðsins til samlagn-
ingar á væntanlegum gjöldum
ársins 1978 og bera gjöldin saman
við væntanlegar barnabætur get-
ur framteljandi séð hvort og hve
háar fyrirframgreiddar barna-
bætur hann getur vænst að fá.
Aðeins þeir sem hafa fleiri en
eitt barn á framfæri og mega
vænta þess aö barnabætur til
þeirra nemi hærri fjárhæð en
60.000 kr. eftir að heildarfjárhæð
opinberra gjaida ársins 1978 hef-
ur verið dregin frá barnabótum
þeirra geta fengiö barnabætur
greiddar fyrirfram.
Fyrir aðra er tilgangslaust að
sækja um fyrirframgreiddar
barnabætur.
Reykjavik 24. janúar 1978.
Sjá næstu siðu
Dæmi 1. Barnlaus hjón i
Reykjavik
A. Tekjuskattur eða ónýttur peraónuafsláttur:
1. Hreinar tekjur til skatts kr. 1.342.000
2. + Ivilnun skv. 52. gr. skattalaga "___________
3. Skattgjaldstekjur kr. 1.342.000
4. Reiknafiur skattur af skattgjtekj. skv. skattskala:
20\ af kr. 1.342.000 ♦ 30% af kr._____ + 40% af kr.___»kr. 268.400
5. Persónuafsláttur "_____308.850
Mismunur á 4 og 5:
m a. - ónýttur persónuafsláttur kr. 40.450
eða b. ■ Tekjuskattur kr.
+ 1% af tekjusk. til BygglngarsjóAs rikisins "___________
B. Eiqnarskattur:
1. Skattgjaldseign alls kr. 14.200.000
2. Frá dragast kr. 8.000.000 hjá einstaklingum
eða " 12.000.000 ” hjónum
3. Af því sem umfram er af skattgjaldseign reiknast
0,8% + 1% til Byggingarsjóös rikisins ■ 0,808% * kr^^^T^l^
C. Alaqt útsvar:
1. Tekjur til útsvars kr. 1.392.000 Otsvar 11 %
2. r Ivilnun frá útsv. skv. 27. gr. ( )
3. r Frádráttur vegna fjölskyldu
4. Ötsvar, lekkað i heilt hundrað
D. Hámark persónuafsláttar til qrelðslu útsvars:
1. Vergar tekjur til skatts kr. 1.492.000
2. + Hckkun vergra tekna skv. 3. mgr.
9. gr. laga nr. 20/1976 " ___________
3. r Frádráttur skv. fjðlskmerk.
(532.500 kr. eða 798.700 kr.) " 798,700
4. Umreiknaöar vergar tekjur kr. 693.300 x 20% “ kr. 138.660
5. Hámark persónuafsláttar til greiöslu útsvars kr^^^T/O^lOO
E. Takmðrkunarútsvar:
1. Tekjur til útsvars kr._____________Otsvar ______% kr.
2. Lckkun útsvars skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 20/1976:
persór.uaf sláttur
kr. 309.850
hjón/elnst.f.
^—aoiLjaa-mágbt
kr. 153.120
22.365
kr. 130.700
a. Bctur skv. II. og IV. kafla
almannatryggingalaga kr.___________
b. Námsfrádráttur nemanda sjálfs " ___________
c. ívilnun skattstjóra skv. 52. gr. "______________
L*kkun útsvars: ______%x*af
a+b+c, samtals kr. “ "
(x) að hámarki 10% eða útsvars% fyrir hakkun)
3. Lakkun útsvars vegna fjölskyldu "
4. Takmörkunarútsvar kr.
F. Sjúkratrygqinqaqjald skv. lðqum nr. 70/1977:
1. Tekjur til útsvars kr. kr. 1.392.000
2. Lckkun tekna til útsvars:
a. Bctur skv. II. og IV. kafla
almannatryggingalaga " 0
b. Námsfrádráttur nemanda sjálfs " 0
c. Ivilnun skattstjóra skv. 52. gr. " ■_______0
d. Elli- eða örorkulífeyrir:
einstakiingur: 300.000 kr.
hjón: 500.000 " ’_____________0
L*kkun skv. a+b+c og d _ kr. 0
Gjaldstofn sjúkratryggingagjalds kr. kr. 1.392.000
Sjúkratryggingagjald, 2% af gjaldstofni,
I*kkað niöur i heilt hundrað kr;_____27.800
Hafa ber í huga að sjúkratryggingagjald þannig reiknað
getur fallið niður, sbr. skýringar hér að framan.
G. Skyldusparnaður skv. Iðgum nr. 77/1977:
1. Skattgjaldstekjur kr.
2. Vergar tekjur til skatts kr.____________
3. + Hakkun vergra tekna skv. 3. mgr.
1. gr. laganna " _______
4. * Skattgjaldstekjur " ___________
5. + Eftir því sem við á 532.000 kr. eða
798.000 kr., sbr. 2. mgr. 1. gr. "_____________
6. ♦ Niðurstaöa 2 - 5 ef pósitiv "___
Skattgjaldstekjur eða upph*kkaðar skattgjaldstekjur kr.
r Frádráttur vegna fjðlskyldu, sbr. a-, b- og c-liöi 1. mgr. 1. gr'. laganna -
Skyldusparr.aðarstofn kr.
Skyldusparnaður, 10% af skyldusparnaðarstofni, l*kkaður i heilt þúsund kr.
Tekjuskattur kr. 0
Eignarskattur kr. 17.776
Ötsvar að frádregnum leyfilegum ónýttum persónuafsl. kr. 90.250
Sjúkratryggingagjald kr. 27.800
Skyldusparnaður kr. 0
Kirkjugj., kirkjugarðsgj. og slysatryggingagj. v/heimilisstarfa kr. 11.374
önnur gjðld (v/atvinnurekstrar) kr. 0
Samtals gjöld 1978 kr. 147.200
r Barnabatur til framteljanda kr. 0
Barnabctur umfram opinber gjöld ársins 1978 kr.
eða opinber gjöld ársins 1978 unfram barnabatur kr. 147.200
Skýringar á dæmi 1.
Barnlaus hjón i Reykjavik
1. Upphæðir i framtali eru sem
hér segir:
þús. kr.
a. III. Tekjur árið 1977
1.582
b. IV. Breytingar til
lækkunar framtöldum tekjum
skv.III 90
c. V.Frádráttur 150
d. Hrein eign til eignar-
skattsálagningar 14.200
2. Hjónin eiga ibúð sem þau
nota sjálf og reikna sér eigin
leigu 100.000 kr.
3. Ctsvar skal lagt á i heilum
hundruöum króna þannig að
lægri upphæðum en 100 kr. er
sleppt. Útsvar i dæminu verð-
ur þvi 130.700 kr.
4. Möguleg upphæð til greiðslu
útsvars er 170.190 kr. en tak-
markast við upphæð ónýtts
persónuaísláttar, 40.450 kr.
Útsvar að frádregnum leyfi-
legum ónýttum persónuaf-
slætti er þvi 130.700 kr. að frá-
dregnum 40.450 kr. eða 90.250
kr.
5. Sjúkratryggingagjald er 2%
af útsvarsskyldum tekjum
eða 27.800 kr.
6. Reiknað er með að annað
hjóna sé slysatryggt viö
heimilisstörf. Álagt gjald
verður 4.368 kr.
7. Kirkjugjald er reiknað sama
upphæð og árið 1977 eöa 4.000
kr. fyrir hjón.
8. Reiknað er með sömu pró-
sentu og á siðastliðnu ári við
álagningu kirkjugarðsgjalds i
Reykjavik eða 2,3% af út-
svari, 130.700 kr. Alagt gjald
verður 3.006 kr.
9. Samtals eru gjöld i liöum 5, 6
og 7, 11.374 kr.