Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 17. febrúar 1978
lidliiii
3
Yfírlýsing frá
blaðaútgefendum
Hérfer á eftir greinargerö frá
blaöaútgefendum vegna fram-
kominnar fréttatilkynningar frá
Blaöamannafélagi tslands, þar
sem augljóst er aö meginregla
blaöamanna um hlutlaust
fréttamat hefur ekki veriö í
heiöri höfð viö samningu henn-
ar.
Meginkrafa blaöamanna er
sú, að algjörir byrjendur i
blaðamennsku verði á sömu
kjörum og margreyndir og/eða
velmenntaðir fréttamenn Rikis-
útvarpsins. Mætti likja þessu
við að iðnnemi á fyrsta ári ætti
að fá sömu laun og iðnmeistari.
tJtgefendur hafa boðið, að
blaðamenn er hafa sambæri-
lega starfsreynslu og/eða
menntun og fréttamenn Rikis-
útvarpsins njóti sömu kjara.
Þessu hefur Blaðamannafélag
íslands hins vegar hafnað, m.a.
i þvi formi að neita algjörlega
að taka nokkurt tillit til mennt-
unar er skipa skal i launaflokka.
Annað veigamikið atriði i þess-
um samanburðier það^aðblaða-
menn njóta sérstakra friðinda
umfram fréttamenn, sem nema
i dag milli 14 og 20 þúsund kr. á
mánuði. Þessi friðindi vill
Blaðamannafélagið ekki meta.
Er ekki náðist samkomulag
milli aðila i' sérstakri nefnd út-
gefenda ogblaðamanna var að-
ilum heimilt að segja upp gild-
andi kjarasamningi. Blaða-
mannafélag Islands notfærði
sér þennan rétt og sagði upp
samningi aðila frá og með 24.
janúar s.l.
Eins og venja er til er slikt á-
stand skapast þá lagði Blaða
mannafélagið fram ýmsar kröf-
ur. Auk ýmissa friöindakrafna
og annarra sérkrafna voru
lagðar fram kaupkröfur er
námu allt að 105% hækkun
launa frá þvi sem nú er. í þessu
sambandi er rétt að taka fram
aö launaþróun blaðamanna á
timabilinu 1. desember 1976 til
1. desember 1977 nemur um
47-48% hækkun launa meðan
launataxtar prentara dagbiaða
hafa hækkað milh 52-56% á
sama timabili og meðaltals-
hækkun launataxta ASI félaga i
heild nemur um 60%. Vöntunin
nemur þvi milli 5,7-8,4%. Sið-
asta tilboð vinnuveitenda sam-
svarar 6.5% hækkun launa en
gagnboð blaðamanna eru nú
upp á um 91.%, Heildarhækkun
launa á eftir þsssu að dæma að
vera um 182% fyrir blaðamenn
meðan hækkun launataxta ASI
nemur um 60%.
Til að itreka enn frekar kröfur
sinar hefur Blaðamannafélag
íslands kvatt félags sina til ó-
löglegs yfirvinnubanns og hófst
það þann 14. febr. s.l. Að lokum
er rétt að taka fram að
samningsvilji blaðamanna hef-
ur um nokkurt skeið verið i al-
gjörulágmarki og þvi vart von á'
lausn meöan óbreytt ástand rik-
ir.
Hérfylgja meö kröfur blaöa-
manna þannig aö lesendur geti
sjálfir dæmt um hversu rétt-
mætar og „hógværar” kröfur
Blaöamannafélagsins eru.
Blaðaútgefendur
Tillögur Blaðamannafélags
Islands til Félags blaðaútgef-
enda, útgáfufélags Þjóðviljans
og Dagblaðsins hf. um breyt-
ingar á kjarasamningi aðil-
anna, sem fallinn er úr gildi.
1. Við 1. grein samningsins
verði gerð sú breyting, sem til-
greind er á fylgiskjali 1 við til-
lögur þessar. Greiða skal verð-
lagsuppbót að fullu á laun sam-
kvæmt samningi frá 1. júli 1977.
2. Við þriðju grein þriðja lið
komi talan 50% i stað tölunnar
36%. I fjórða lið sömu greinar
komi talan 100% i stað 85% sem
er greiðsla fyrir aukavinnu og i
stað tveggja klukkustunda út-
kalls komi minnst fjórar stund-
ir. Siðan skal eftirfarandi bæt-
ast viö fjórða liðinn: öll yfir-
vinna, sem unnin er á stórhátið-
um (nýársdag, föstudaginn
langa, páskadag, hvitasunnu-
dag, 1. mai, 17. júni, jóladag,
eftir klukkan 12 á hádegi að-
fangadag jóla og gamlársdags)
greiðist með tvöföldu yfir-
vinnuálagi.
Standi blaðamaður svokall-
aða gæzluvakt utan sins vinnu-
tima, þ.e. ikallfæri við sima t.d.
um helgar,, fær hann fullt
vaktaálag fyrir þann tima og ef
til útkalls kemur fær hann yfir-
vinnuálag i samræmi við ofan-
greind skilyrði.
Hafi starfsmaður ekki fengið
samfellda hvild i a.m.k. 8 klukk-
ustundir vegna yfirvinnu eða
ýmiskonar útkalla, ber honum
átta klukkustunda hvild frá þvi
útkalli eða yfirvinnu lýkur og
þar til hann mætir til reglu-
bundinnar vinnu á ný án skerð-
ingar á þeim reglubundnu laun-
um sem starfsmaður hefði feng-
ið greidd. Fáist ekki tilskilin
hvild greiðistyfirvinnukaup auk
hinna reglubundnu launa (dag-
vinnu, vaktaálags ogyfirvinnu)
sem hann hefði fengiö greidd.
Þeir sem vinna vaktir skulu i
vikuhverrifá tvo samfeilda fri-
daga þannig að næturfri komi
fyrir og eftir fridagana.
3. Fjórða grein hljóðaði svo:
Útgefendur greiði fullt fasta-
gjald heimasina félaga i BI. Auk
þess greiði þeir 220 umfram-
skref á ársfjórðungi. Þá greiði
útgefendur einnig afnotagjald
útvarps og sjónvarps eftir eitt
áristarfi. „Litsjónvarpsafnota-
gjöld” skulu greidd þar sem um
slikt tæki er að ræða. Þessu til
viðbótar greiði útgefendur
krónur 2400 á mánuði upp i
sima-, útvarps-og sjónvarpsaf-
not til allra félaga i BI.
Greidd sé ársf jórðungslega á-
skrift sex heimsendra dagblaða
fyrir félaga i Bí.
4. Akvæði samningsins um
sumarleyfi blaöamanna, sem er
að finna i sjöundu grein skulu
breytastá þann hátt, að sumar-
leyfi sé minnst 27 dagar (orlofs-
dagar). Eftir fimm ára starf
verði orlofsdagarnir 30, eftir 10
ára starf 33 og eftir 15 ára starf
36.
Sé sumarorlof tekiö á timabil-
inu 1. október til 31. mai kemur
á það 50% álag. Samsvarandi
hundraðshluti fyrir orlof á yfir-
vinnu verði reiknaður út.
Laugardagur reiknist ekki
sem orlofsdagar i orlofi. Enn-
fremur veröi eftirfarandi breyt-
ing gerð á sjöundu grein : Blaða-
menn, sem unnið hafa óslitiö i
fimm ár eða lengur á islenzkum
fjölmiðlum, skulu að loknu
fimm ára starfi fá þriggja mán-
aða fri auk orlofs á fullum laun-
um hjá þeim vinnuveitanda sem
hann starfar hjá þegar frlið er
tekið.
5. I áttundu grein verði eftir-
farandi breyting gerð: Þá skulu
félagar i Bt, sem hafa verið eitt
ár i samfelldu starfi hjá sama
blaði fram að fæðingu barns
þeirra, fá þriggja mánaða fri á
fullum launum, enda haldi þeir
áfram störfum að féii loknu hjá
sama vinnuveitanda I a.m.k.
eitt ár.
Fyrri hl. 8. greinar breytist
einnig á þennan hátt: Veikist
blaðamaður, sem oröinn er full-
gildur félagi i BI,langvarandi á
hann rétt á fullum launum á
dagvinnukaupi i fimm mánuði
og hálfum launum I næstu fimm
mánuði þar á eftir haldist veik-
indin. Blaðamaður sem unnið
hefurifimmáreðalengur árétt
á sex mánaða launum og hálf-
um launum aðra sex mánuði,
haldist veikindin. Blaöamaður,
sem unnið hefur i 10 ár eða leng-
ur á rétt á átta mánaða launum
og hálfum launum i aðra átta
mánuði, haldist veikindin.
6. Við tiundu grein bætist: At-
vinnurekendur greiði upphæð
sem nemur 2% af öllum launum
félaga iBI i Eftirmenntunarsjóð
Blaðamannafélags Islands.
7. Við tólftu grein bætist:
Blaðamannafélag Islands fái
afrit af greiðslukvittunum
tryggingarfélaganna vegna
ferða- og slysatrygginga félags-
manna.
8. Ný grein komi sem 14.
grein, og númeraröð greina þar
á eftir hækki samsvarandi.
Greinin hljóði svo : Atvinnurek-
endur taka að sér að greiða árs-
gjöld félaga i BI samkvæmt lög-
um félagsins.
9. Núverandi 14. grein breytist
þannig: Stjórn B1 er heimilt að
fyrirskipa meðlimum þess að
leggja niður vinnu hjá atvinnu-
rekenda, sem dregið hefur að
greiða i lifeyrissjóð, menn-
ingarsjóð, orlofsheimilasjóð,
eftirmenntunarsjóð og ársgjöld
félaga I tvo mánuði eða lengur.
Þetta skal þó aðeins gert að
beiðni stjórnar sjóðanna og
stöðvunin tilkynnt með mánað-
ar fyrirvara.
10. Núverandi 15. grein hljóði
svo: Samningur þessi gildir frá
1. júli 1977 til 1. marz 1979.
11. Núverandi 17. grein hljóði
svo: Handritalesarar og próf-
arkalesarar á blööum skulu fá
sömu laun og blaðamenn sam-
kvæmt fyrstu grein samnings-
ins.
12. Núverandi 18. grein hljóði
svo: Allir fastráönir starfsmenn
sem stunda blaðamennsku. ljós-
myndun, handrita-og prófarka-
lestur og útlitsteiknun, skulu
gerast félagar i BI. Fyrir fast-
ráðna félaga 1 BI skal uppsagn-
arfrestur útgefandans vera
jafnlangur i mánuðum og
starfsaldur i árum, þó ekki
lengri en 12 mánuðir, nema
hvað uppsagnarfresturinn skal
aldrei vera styttri en þrir mán-
uðir. Uppsagnarfrestur félaga i
B1 skal vera þrir mánuðir.
13. Inn I samning skuli koma
ákvæði um að útgefendur sjái
félögum i Bí fyrir mat, ef þeir
standa vaktirá matmálstimum.
14. 21. grein hljóði svo: Trún-
aðarmaður BI á hverjum vinnu-
stað skal m.a. hafa þau réttindi
að eigi er heimilt aö ráða nýjan
blaðamann án hans vitundar né
segja upp blaðamanni. Trúnað-
armaður félagsins skal vera
fulltrúi i stjórn þess fyrirtækis
sem hann starfar hjá, með til-
lögurétt og málfrelsi.
15. Inn i samninginn komi á-
kvæði um greiðslu fyrir afnot
fyrirtækis af tækjum starfs-
manna, svo sem bilum, ljós-
myndavélum og segulböndum.
16. Inn i samninginn komi á-
kvæði um greiðslu 50% álags
þegar menn þurfa að gegna
tveimur störfum samtimis t.d.
þegar blaðamaður þarf auk
skrifa sinna að annast ljós-
myndatökur og öfugt (þ.e. þeg-
ar ljósmyndarar þurfa að
skrifa).
17. Blaðamannafélag tslands
áskilur sér allan rétt til frekari
tillögugerðar i þessum
samningum.
Blaðamannafélag tslands gerir tillögu um að laun blaöa-
manna verði svohljóðanu. frá 1. júli 1977;
Mánaðarlaun Arslaun
A fyrsta 2. fl. 3. fl. 2. fl. 3. fl.
starfsári 225.275 234.737 2.703.300 2.816.844
Eftir lár 230.584 240.269 2.767.008 2.883.228
eftir2ár 271.619 283.027 3.259.428 3.396.324
eftir4ár 278.415 290.108 3.340.980 3.481.296
eftir6ár 285.179 297.157 3.422.148 3.565.884
eftirSár 292.038 304.304 3.504.456 3.651.648
eftir 10 ár 297.120 309.599 3.565.440 3.715.188
eftir 12 ár 307.929 320.862 3.695.149 3.850.344
eftir 15 ár 317.168 330.480 3.806.016 3.965.760
Hinn 1. desember 1977 hækki allir mánaðalaunataxtar um
4,3%, hinn 1. júni 1978 um 4,1% og hinn 1. september 1978 um
3,2%, hinn 1. desember 1978 um 5% og hinn 1. febrúar 1979 um
5%.
Ritstjórnarfulltrúar og fréttastjórar taka laun samkv. 4. flokki
sem séu a.m.k. 20% hærri en 3. fl. Ritstjórar taki laun sem séu
a.m.k. 40% hærri en 3. fl.
Fjárráðin árið 1977:
Fjórföldun innflutn-
ings sjónvarpstækja
— Nær helmingi fleiri bifreiöar, 70 þúsund manns
með sex milljarða úr bönkum i utanferðum
JS — A árinu 1977 gætti mjög
hinna batnandi lifskjara i land-
inu. A árinu voru flutt inn rúm-
lega 8.800 sjónvörptil landsins, og
var það u.þ.b. fjórföldun sjón-
varpsinnflutnings ársins á undan.
Hvorki meira né minna en 97% af
innfluttum sjónvörpum á árinu
1977 voru litasjónvörp.
Innflutningur bifreiða jókst
hátt i það um helming á árinu 1977
miðað viö árið áður. Mest var
flutt inn af einkabifreiðum enda
er talið að flutninga- og vörubif-
reiðir hafi dregizt nokkuð aftur úr
i innflutningnum, en þar er um
atvinnutæki að ræöa. Alls voru
7.563 bifreiðir keyptar til lands-
ins á árinu 1977.
Það sem þó sýnir hag lands-
manna hvaö bezt, eða þá ráðdeild
sem einkenndi ráöstöfun tekn-
anna, er að á árinu 1977 fóru
hvorki fleiri né færri en 70.000
landsmenn utan, og flestir þeirra
i orlofs- eða skemmtiferðir. Haföi
utanferðum Islendinga fjölgaö
um u.þ.b. ellefú þúsundir frá ár-
inu áður.
Þeir Islendingar sem ferðuðust
til útlanda á siöasta ári keyptu i
bönkunum gjaldeyri fyrir tæp-
lega sex milljaröa króna, sem er
næstum þvi helmingi meira en
hafði verið á árinu áöur. Þegar
'litið er á uppruna þessara tæpu
sex milljarða má hafa það i huga
að launatekjur nema u.þ.b. fjórðu
afþeim tekjumsem einstaklingar
og fjölskyldur höfðu i landinu á
árinu 1977.
SJ — Það munu margir þekkja
vandamálin úr sinu eigin hjóna-
bandi, sagði Brynja Benedikts-
dóttir leikhússtjðri á Akureyri um
leikritið Alfa Beta, sem Leikfélag
Akureyrar frumsýnir á föstu-
dagskvöld. Leikurinn er eftir
Bretann E.A. Whitehead, en á
mæta vel við hér á tslandi engu
siður en á Englandi. Kristrún Ey-
mundsdóttir þýddi leikritið, leik-
mynd er eftir Þráin Karlsson og
Brynja Benediktsdóttir er leik-
stjóri.
Leikritiðgerist i Liverpool á niu
árum i lifi hjóna, sem þau Sigur- •
veig Jónsdóttir og Erlingur Gisla-
son leika.
Verkiö er i þremur þáttum eg er
þeim skipt með sýningu skyggni-
mynda úr ýmsum fjölskyldual-
búmum, en Asgrimur Agústsson
ljósmyndari sá um þann þátt sýn-
ingarinnar.
Alfa Beta verður sýnt á Akur-
eyri nú um helgina og um næstu
helgi. Um mánaðamótin hefjast
sýningar á þvi á Litlg sviði Þjóð-
leikhússins, þar sem það veröur
flutt sem gestaleikur.
Samkoma vegna
málfrelsissj óðs
A sunnudaginn veröur efnt til
samkomu I Háskólabiói til ágóöa
fyrir málfrelsissjóð og hefst hún
klukkan tvö.
A samkomu þessari verða
fluttar ræöur, leikþættir og tón-
verk, sem almenningshylli njóta. •
Markmið málfrelsissjóös er að
„standa vörð um rétt einstakl-
inga I þjóðfélaginu til þess að
ræða opinberlega um mál þau,
sem varða almannaheill og list-
ræna tjáningu, án þess að þurfa
aö óttast fjárútlát vegna mála-
ferla”.
Stjórn sjóösins skipa Jóhann S.
Hannesson, Jónas Jónsson frá
Yztafelli, Thor Vilhjálmsson, Páll
Skúlason prófessor og Silja Aðal-
steinsdóttir.