Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 16

Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 16
16 Föstudagur 17. febrúar 1978 í dag Föstudagur 17. febrúar 1978 Lögregla og siökkvilið ilið] Reykjavik: Lögreglan simi’’ 11166, slökkviliöiö og sjúkra- bifreiö, simi 11100. Kópavogur: Lögreglan simi 41200, slökk viliöiö og sjúkra- bifreiö simi 11100. fiafnarfjöröur: Lögreglan simi 51166, slökkviliö simi 51100, sjúkrabifreiö simi 51100. Heilsugæzla Slvsavaröstofan: Simi 81200,' eftir skiptiboröslokun 81212. Sjúkrabifreiö: Reykjavík og Kópavogur, simi 11100, Hafnarfjöröur, simi 51100. Hafnarfjöröur — Garöabær: Nætur- og helgidagagæzia: Upplýsingar á Slökkvistöö- inni, simi 51100. Læknar: Reykjavlk — Kópavogur. Dagvakt: Kl. 08:00-17:00 mánud.-föstudags, ef ekki næst i heimilislækni, simi 11510. Kvöld- nætur- og helgi- dagavarzla apóteka i Reykja- vik vikuna 10. til 16 febr. er i Apóteki Austurbæjar og Lyfjabúð Breiðholts. Það apö- tek sem fyrr er nefnt, annast eitt vörzlu á sunnudögum, helgidögum og almennum fri- dögum. “Hafnarbúðir. Heimsóknartími kl. 14-17 og 19-20. Heimsóknartimar á Landa- kotsspitala: Mánudaga til föstud. kl. 18.30 til 19.30. Laugardag og sunnudag kl. 15 'til 16. Barnadeild alla 'daga frá kl. 15 til 17. Kópavogs Apótek er opiö öll kvöld til kl. 7 nema laugar- daga er opið kl. 9-12 og sunnu- ,daga er lokaö. Bilanatilkynningar Rafmagn: i Reykjavik og Kópavogi í sima 18230. 1 Hafnarfirði i sima 51336. Hitaveitubilanir: kvörtunum verðúr veitt móttaka i sim- svaraþjónustu borgarstarfs- manna 27311. Vatnsveitubilanir simi 86577. . Simabilanir simi 05. Bflanavakt borgarstofnana. Simi 27311 svarar alla virka daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Félagslíf ] Kvikmyndasýning i MÍR-saln- um á laugardag Spánarmyndin Grenada eftir Roman Karmen verður sýnd kl. 15.00 á laugardag. — Allir velkomnir. Mæörafélagið heldur skemmtifund að Hallveigar- stöðum laugardaginn 18. febrúar kl. 8. Matur, góð skemmtiatriði. Félagskonur fjölmenniö og takið meö ykkur gesti. Systrafélagiö Alfa heldur fataúthlutun mánudaginn 20. febrúar að Ingólfsstræti 19 kl. 2 til 4. Kvenfélag Breiðholts. Aðal- fundur Kvenfélags Breiðholts verður haldinn miðvikudaginn 22. feb. kl. 20.30 i a.nddyri Breiðholtsskóla. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Onnur mál. Fjölmennið. Stjórnin. iþróttaféiagiö Fylkir heldur aðalfund 28. feb. k.l. 8 i Félagsheimili Fylkis. Laga- breytingar. önnur mál. Laugard. 18/2. Arshátiö Útivistar verður i Skiðaskálanum Hveradölum á laugardagskvöld. Matur og skemmtiatriði. Brottför kl. 18 frá B.S.I. Þátttaka tilkynnist á skrifstofuna Lækjarg. 6, simi 14606. Sunnud. 19/2. ki. 13 Selvatn og viðar, létt göngu- ferð eða skiðaferð um Mið- dalsheiði. Fararst. Einar og Kristján. Verð 1000 kr. fritt f. börn m-fullorðnum. Farið frá B.S.l. benzinsölu. Otivist Mæörafélagskonur. Af óvið- aráðanlegur ástæðum verður skemmtifundurinn, sem verða átti 25. febr. færöur til laugar- dagsins 18. febr. — Stjórnin. Aðalfundur Feröafélags tslands Verður haldinn þriðjudaginn 21. febr. kl. 20.30 i Súlnasal Hótel Sögu. Venjuleg aðal- fundarstörf. Félagsskirteini 1977 þarf að sýna við innganginn. Stjórn Ferðafélags tslands 18.-19. febrúarkl. 07 Þórsmörk Hin árlega vetrarferð i Þórs- mörk verður um næstu helgi. Farið verður kl. 07 laugardag og komið til baka á sunnu- dagskvöld. Farnar verða gönguferðir um Mörkina og komið að Seljalandsfossi á heimleið. Fararstjóri: Þor- steinn Bjarnar. Nánari upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni öldugötu 3. Ferðafélag tslands Kirkjan Hallgrimskirkja: Um föstuna fara fram kvöldbænir og lest- ur passiusálma kl. 6,15 siðd. mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga. Séra Frank M. Halldórsson. Sigiingar Jökulfell losar á Akureyri. Fer þaðan til Sauðárkróks og Húnaflóahafna. Disarfell fór 14 þ.m. frá Norðfirði til Helsinki og Ventspils. Helgafell fór i gær frá Djúpa- vogi til Svendborgar. Mælifell er i Wismar. Fer þaðan til Reykjavikur. Skaftafell fór 134>.m. frá Halifax til Reykjavikur. Hvassafell fór i gær frá Rotterdam til Hull og Reykjavikur. Stapafell er i oliuflutningum á Austfjarða- höfnúm. Litlafell fór i morgun frá Reykjavik til Eyjafjarða- hafna. Paal fór i gær frá Lar- vik til Reykjavikur. Arnað heilla Þorsteinn Hansson, Lindar- holti 4 Ólafsvik, verður 60 ára laugardaginn 18. febrúar. Hann tekur á móti gestum á heimili sinu að kvöldi af- mælisdagsins. Minningarkort MINNINGARSPJÖLD Félags einstæöra foreldra fást I Bóka- búð Blöndals, Vesturveri, I skrifstofunni Traðarkotssundi, 6, hjá Jóhönnu s. 14017, Ingi- björgu s. 27441, Steindóri s. 30996 I Bókabúö Olivers i Hafnarfiröi og hjá stjórnar- meðlimum FEF á Isafirði og Siglufirði krossgáta dagsins 2708. Lárétt 1) Viðbót. 6) Boröa. 7) Tigna. 9) Vatn. 11) 51. 12) Eins. 13) Æða. 15) Æði. 16) Lik. 18) Mál- ið. Lóörétt 1) Land. 2) Afsvar. 3) Röö. 4) Sár. 5) Nesið. 8) Fljótið. 10) Skelfing. 14) Elska. 15) Reik. 17) Spil. Ráðning á gátu No. 2707 Lárétt 1) Galdrar. 6) Ara. 7) Alt. 9) Kös. 11) UÚ. 12) Ra. 13) Tif. 15) Agn 16) Rám. 18) Rjóöara. Lóörett 1) Grautur. 2) Lát. 3) Dr. 4) Rak. 5) Rósanna. 8) Lúi. 10) örg. 14) Fró. 15) Ama. 17) Áð. Athugasemd frá Peter Rasmussen Grein um dönsku á tslandi sem birt var i Tímanum 14. febrúar var samin á dönsku og birtist upphaflega I timaritinu Vi i Norden. Vegna þess að inntak greinarinnar hefur viða brenglazt gróflega i þýðingu þannig að hún getur virzt móðgun við tslendinga og sér- staklega hina duglegu og sam- vizkusömu stétt dönskukenn- ara skal tekið fram, að hún hefur ekki verið birtiTimanum fyrir tilstilli höfundar og höf- undur ekki haft minnstu af- skipti af islenzkri gerð hennar. Tímínn er peningar | j AuglýsicT : i i Timanum i r I David Graham Phillips: 142 SÚSANNA LENOX G JónHelgason — Ég heit Ida Driscoll, sagði hún og brosti, svo að skein I hvitar tennurnar — svo til einustu prýði hennar. Hún var lítil, þykk um axlirnar, en mjaðmarýr. Rauðjarpt háriö var vel greitt, og karlmaður myndi ekki hafa veitt þvi athygli, hve þunnt það var. Karlmaður myndi ekki heidur hafa tekið eftir þvi, að önnur hvita, ávala öxlin var að minnsta kosti tveimur þumlungum lægri en hin. Hörundsblærinn var fallegur, andlitsfallið óregluiegt og greindarlegt, en augun hýrleg. — Ég heiti... —Súsanna hikaði, — Lorna Sackville. — Ertu nýkomin? spurði Ida Driscoll. — Það er ekki nema einn klukkutimi siðan. Ég á ekkert nema einn tannbursta, greiðu, svamp og sápustykki. Ég keypti það á leiðinni hingað. — Þú hefur tapað farangrinum — eða hvað? sagði Ida og skemmti sér vel. — Nei, sagði Súsanna. — Ég er aö byrja á nýjan leik. — Ég get lánað þér náttkjói. — O-o, ég bjargast við þetta. Hvað er bezt við höfuðverk. Ég er al- veg að sálast. — Timbruð? — Já. — Bíddu. Ida flýttisér inn i herbergi sitt og kom aftur með flösku, sem hún blandaöi úr inni i blaðklefanum. — Eftir hálftima eða svo verður þú orðin alveg eins og þú átt aö þér. Drottinn minn dýri, hvað þú ert vel sett — hefur baðherbergi út af fyrir þig! Súsanna yppti öxlum og hló. Ida hristi höfuðið, alvarleg I bragði. — Þú ættir að fara sparlega með peninga þína. Það geri ég. — Seinna —ef til vill. En núna verð ég að gera það, sem mig lang- ar til. Ida virtist skilja, hvað hún var að fara. Hún hélt áfram: — Ég vann i tizkubúð. En I þessari borg er ekki hægt að snúa sér við, nema maöur sé með fuiiar hendur fjár eða eigi einhvern að. Ég var orðin þreytt á þvi að þræia fyrir fimm dölum á viku og geta aldrei hugsað hærra en að fá tiu, I mesta lagi fimmtán. Svo sagði ég upp starfinu og kvaddi fóikið mitt i Harlem og fór hingað. Þegar ég er búin að aura saman, stofna ég eitthvert fyrirtæki sjálf. Það verð- ur liklega ekki fyrr en eftir nokkur ár — þó kannski fyrr, ef ég rekst á réttan mann. — Ég ætla að verða ieikkona. — Hættu við það! hrópaði Ida. — Þú hefur ekki neitt upp úr þvi. Súsanna vildi leiða talið að öðru og bauð þvi Idu að borða með sér kvöldmat. — Hvaða vit er I þvi að fleygja frá sér peningum I þessum veit- ingahúsum? sagði Ida. —Komdu heldur hérna yfir til min og borð- um þar. Ég malia alltaf eitthvaö handa mér sjálf, ef kunningjarnir bjóða mér ekki að borða með sér. Ég get búið til rifjasteik handa okkur, og svo velgi ég grænar baunir, og tekökur keypti ég I gær, Ijómandi góðar”. Súsanna þekktist boð hennar og hét að endurgjaida henni þegar hún hefði komið sér betur fyrir I nýja heimkynninu. Kiukkan var að verða sex, svo aö þær ákváðu aö borða klukkan sjö. Þá gat Súsanna verið búin að hafa fataskipti, Höfuðverkurinn var horfinn. Þegar Ida var farin, afklæddi hún sig, fyllti stóra baðkeriö af eins heitu vatni og hún þoidi viö I. Hún renndi sér ofurhægt niður i karið og teygði úr sér. Svo stóð hún upp og þvoöi sér rækilegar heldur en hún hafði nokkurn tima áður gert á ævinni. Hvað eftir annað nuddaði hún um sig sápu, burstaði sig og strauk og lagöist niður i vatnið. Þegar hún var oröin nokkurn veginn eins hrein og á varð kosið, hleypti hún vatninu úr kerinu og fyllti það aftur með ennþá heitara vatni. 1 það lagðist hún og naut þess, hve vatnið var heitt og llkami hennar hreinn. Hún lokaöi augunum, dásamieg værð kom yfir hana og sef- aði taugar hennar. Svo sofnaði hún. Hún vaknaði við það, að Ida kom inn eftir að hafa bariö og kallað árangurslaust. Súsanna opnaði augun hægt og starði á Idu með mjúku, dreymandi brosi. — Þú skilur það ekki. Ég held, að mér hafi aldrei liðið eins vel og ég hafi aldrci verið eins hamingjusöm á ævi minni. — Það var leitt, að ég ónáðaði þig, sagði Ida. — En nú er maturinn ,,Ég er að reyna að eyðileggja i mér matarlystina, það á að vera saltfiskur hjá okkur I kvöldmat- inn.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.