Tíminn - 17.02.1978, Síða 5

Tíminn - 17.02.1978, Síða 5
Föstudagur 17. febrúar 1978 [ i( (111[ n i n i URSLIT Reykjavíkurskákmótinu lýkur á sunnudag Fátt getur nú komið í veg fyrir sigur Larsens — á eftir að tefla við Smejkal og Margeir Nú eru aðeins eftir tvær um- ferðir á Reykjavikurskákmót- inu. Keppendur eiga fri i dag en 12: umferð verður tefld á laug- 'ardagog 13. og siðasta umferðin á sunnudag. Fari einhverjar skákir i bið úr siðustu umferð, teflast þær á mánudag og form- leg mótsslit verða að þeim lokn- um. Fátt virðist nú geta komið i veg fyrir sigur Larsens á þessu móti. Hann hefur unnið hverja skákina á fætur annarri og aö þvi er virðist, létt og fyrirhafn- arlitið. Þegar þetta er skrifað hefur hann aðeins tapað einni skák, skákinni gegn Friðrik Clafesyni sem frægt er orðið. Friðrik er raunar eini kepp- andinn á mótinu sem enn hefur ekki tapað skák, þegar langt er liðið á mótið. Larsen á nú eftir að tefla við þá Jan Smejkal og Margeir Pét- ursson og svona fyrirfram er fremur óliklegt, að Larsen fari hallur úr þeim viðskiptum. Smejkal hefur ekki staðið sig sérstaklega vel á mótinu, þótt enginn skyldi fortaka, að hann geti ekki velgt Larsen undir uggum, og hætt er við, að Mar- geiri takist ekki heldur að snúa á hann. Einir fjórir-fimm skákmenn koma i rennu á eftir Larsen, þar ámeðal Friðrik Olafsson, Miles Ellefta umferö Reykjavikur- skákmótsins var telfd I gær- kvöldi og urðu Urslit þessi: Polugaevsky — Larsen 1:0 Kuzmin — Friðrik jafntefli Browne —Guðmundur biðskák Jón L. — ögaard jafntefli Miles— Hort jafntefli Smejkal —Lombardy biðskák Margeir — Helgi biðskák Larsen er einn öflugasti mótaskákmaður, sem sögiir fara af nú, en þött hann hafi margsinnis verið með í áskorendaeinvigjum um réttinn til að skora á heimsmeistara, hefur honum ekk^tekizt að ná þvi marki að skora á heimsmeistara. Hann er nú efstur á Reykjavikurskákmótinu, hefur farið létt og áreynsluiitið i gegnum mótið og aðeins tapað einni skák til þessa. Timamynd: Róbert. Staðan Staðan að loknum ellefu um- ferðum á Reykjavíkurskákmót- inu er nokkuð óljós hjá 6 kepp- endum vegna biðskáka. Laus- lega er hún þannig: og Hort. Liklega leggja þeir allt i sölurnar til að hala inn vinn- inga i lokaumferðunum. Friðrik á eftír að tefla við Guðmund og Helga, en Miles á eftlr að tefla við ögaard og Browne, og Hort teflir við Polugaevsky og landa sinn Semjkal —SSt— Loksins. Lombardy vann Browne 1. Larsen 2. Browne 3. -5. Friðrik 3.-5. Hort 3.-5. Miles 6. Polugaevsky 7. Lombardy 8. Kuzmin 9. Guðmundur 10. Smejkal 11. ögaard 12. Helgi 13. Jón L. 14-Margeir 8 v 71/2 7 v. 7 v. 7 v. 61/2v. 6v. +biðsk. 51/2 v. 4v. + biðsk 3 1/2 v. + ein biðsk. 31/2 v. 3v. +einskák inni + ein biðsk. 3 v. 2 1/2 + biðsk. Ekki fór það svo að þeim Lombardy og Browne tækist ekki að ljúka maraþonskák sinni síðdegis i gær. Þá settust landarnir að taflinu I fjórða skipti og haföi ekki tekizt að leiða skákina til lykta, þótt leiknir heföu verið 112 leikir áður. Raunar var Lombardy með unnið taf 1 þegar skákin fór i bið á miðvikudag, en Browne vildi ekki gefast upp fyrr en 1 fulla hnefana Ekki urðu leikirn- ir margir i gær, aðeins fimm og gafst Browne þá upp, en hann haíöi riddara og aöeins eitt peð á móti riddara og þremur peö- um Lombardy og vonlausa stööu. Biðskák þeirra Larsens og Miles var einnig tefld i gær. Þegar hún fór i bið á miðviku- dagskvöld töldu margir, að Lar- sen væri með unnið tafl. Ekki reyndist vinningurinn þó Larsen auðsóttur og fór svo aö þeir sættust á jafntefli. —SSt— Ekkert tilboð í einvigið SSt — „Nei skeytið var ekki sent til FIDE fyrir hádegi. Halldór E. Sigurðsson samgöngumálaráð- herra og Póst- og simamálastjórn kváðu umhugsunartima of naum- an til að gefa samþykki sitt hug- myndinni um fjáröflunarleiðina, en það var forsenda þess, að hægt yrði að senda tilboðið i gær á til- skyldum tima til FIDE, sagði Einar S. Einarsson, forseti SSI i samtali við Timann siðdegis i gær. I fyrrinótt sat stjórn Skáksam- bandsins á fundi til að ræða nánar hugmyndina um tilboð i einvigið og fjáröflunarleið, sem verið hefur að mótast undanfarna daga. „Hugmyndin um hvernig standa mætti straum af kostnaði við einvigið var i megindráttum á þá leið, að Póst- og simamála- stofnunin gæfi út frimerkjaröð, sem yrði gefin út i takmörkuðu upplagi, og hefði serian komið til með að kosta 1500 krónur”, sagði Einar. „Þannig reiknaðist okkur til, að allt upplagið myndi færa Pósti og sima um 750 milljónir króna. Kostnaður við sjálft einvigið tald- istokkur vera um 100 milljónir og verðlaun um 120 milljónir”, sagði Einar ennfremur. — „En sem sé, við fórum of seint af stað, og úr þvi sem komið er, er tómt mál að tala um, að einvigið verði haldið hér”, sagði Einar S. Einarsson, ÞJOÐ HATIÐARSJ OÐUR auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum 1978 Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361. 30. september 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem nú- verandi kynslóð hefur tekið I arf. a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs. b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráöstöfunarfé hverju sinni I samræmi við megintilgang hans, og komi þar einn- ig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er I liðurn a) og b). Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótar- framlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.” Stefnt er að fyrstu úthlutun á fyrri hluta þessa árs. Umsóknarfrestur er til 20. aprfl 1978. Umsóknarreyðublöð liggja frammi-i afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar- stræti 10, ReyJtjavik. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Hafliöason, i sima (91) 20500. Þjóðhátíðarsjóður Vetrarvörur Shell! Sterkt vopn í baráttunni við Vétur konung Startgas fsvari fyrir blöndunga Sætaáklæði í flesta bíla Rakaþerrir Gluggahreinsiefni Frostlögsmælir Rafgeymar flestar gerðir Ljóskastarar í bíla/ Tjöruhreinsiefni íseyðir fyrir rúðusprautur Lásaolía, hindrar ísingu i bílaskrám Silikon á þéttilistana fsbræðir fyrir bílrúður njóskóflur, 2 gerðir Hleðslutæki, 4 og 7 amper Geymasambönd Startkaplar Dráttartóg Fjölmargar gerðir af gúmmímottum íssköfur, margar gerðir Dekkbroddar, skyndikeðjur, 3 gerðir Fást á bensínstöðvum Sheil Olíufélagið Skeljungur hf Shell Smávörudeild Sími 81722

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.