Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 7
Föstudagur 17. febrúar 1978 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulitrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöidsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Áskriftargjald kr. 1700 á mánuði. Blaðaprenth.f. Kj aramálin Samtök launafólks hafa haldið svonefndar for- mannaráðstefnur siðustu daga, þar sem rætt hef- ur verið um efnahagsfrumvarp rikisstjórnarinn- ar, sem Alþingi hefur haft til meðferðar að undanförnu. Á fundum þessum hefur komið fram mikil andstaða gegn tillögum rikisstjórnarinnar. Sú afstaða er skiljanleg, þvi að eðlilega vilja launamenn að löggjafinn hafi sem minnst af- skipti af kjarasamningum. Sá er vilji Alþingis einnig, þótt það hafi talið slika ihlutun nauðsyn- lega ekki sjaldnar en tuttugu og fimm sinnum á siðustu rúmlega tveimur áratugum. Allir þing- flokkar hafa átt hlutdeild að slikri ihlutun, þegar þeir hafa verið i rikisstjórn. íhlutun þessi hefur jafnan rakið rætur til þess, að viðkomandi þing- meirihluti hefur álitið hana óhjákvæmilega til að afstýra atvinnuleysi og versnandi lifskjörum,sem myndu hljótast af þvi. Frumvarp það sem rikisstjórnin hefur lagt fyr- ir Alþingi, er byggt á þessum meginrökum. Ljóst er, að hækki kaupgjald eins mikið og verða myndi að óbreyttum kjarasamningum, hefði það i för með sér stöðvun margra greina útflutningsfram- leiðslunnar, sem siðar myndi leiða af sér viðtæk- ari og viðtækari stöðvanir á öðrum sviðum. At- vinnuleysi myndi halda innreið sina. Þjóðartekj- ur myndu minnka. Þessu myndi fylgja miklu meiri kjaraskerðing en sú, sem nú er fyrirhuguð. Þess ber lika vel að gæta, að hér er ekki stefnt að kjaraskerðingu miðað við þann kaupmátt, sem launin höfðu á siðastliðnu ári, heldur er stefnt að þvi, að halda honum óbreyttum. Kjaraskerðing sú, sem felst i stjórnarfrumvarpinu, er fólgin i þvi, að hún kemur i veg fyrir fyrirhugaða kaup- máttaraukningu sem stefnt var að i kjara- samningunum. Helztu nágrannaþjóðir okkar sem byggja á traustari atvinnugrundvelli en við, eins og Norðmenn og Sviar, telja sér ekki fært að auka kaupmáttinn á. þessu ári, heldur álita hag- fræðingar þar, að frekar þurfi að draga úr honum en hið gagnstæða. Areiðanlega stöndum við ekki betur að vigi en þessar þjóðir. Eins og áður segir, eru mótmæli launþegasam- takanna skiljanleg. Þau vilja sem minnst afskipti Alþingis af kjarasamningum. Þau þurfa að gæta aðhalds i þessum efnum. Hins vegar yrði það hvorki launafólki né öðrum til góðs, ef þessum mótmælum væri fylgt eftir með verkföllum i einu eða öðru formi eins og þeir herskáustu ræða um. Hefði slik verkföll þær afleiðingar að kaupgjald hækkaði eins og kjarasamningarnir mæla nú fyr- ir um yrði útkoman stóraukin verðbólga, stöðvun atvinnufyrirtækja, mikið atvinnuleysi og versn- andi lifskjör. Allir myndu tapa á þessu, en laun- þegar þó sennilega mest. Launþegar væru sjálf- um sér verstir, ef þeir reyndu að brjóta niður vald Alþingis til að knýja slika stefnu fram. Launajöfnuður í efnahagstillögum rikisstjórnarinnar er gert ráð fyrir þvi, að verðbætur haldist að mestu á lægstu laun, en verði minni á þau sem meiri eru. Hér er stefnt að launajöfnuði, sem allt of mikið hefur vérið sniðgenginn i kjarasamningum. Spurningin er sú, hvort verðuppbætur á lægstu launin hefðu ekki alveg átt að haldast. Það hefði stuðlað að meiri launajöfnuði. * Hisaveldin þurfa að tryggja öryggi Israels MARGT bendir til þess, aö Washingtonför Sadats Egyptalandsforseta hafi boriö þann árangur, að stjórn Bandarikjanna hafi tekið upp einbeittari afstööu gagnvart ísrael en áöur. Þannig hefur Carter forseti lýst yfir þvi, að Bandarikjastjórn sé andvig auknu landnámi Israels- manna á vesturbakkanum svonefnda, en stjórn Begins hefur stefnt aö þvi, aö auka það. Þetta landnám Israels- manna mælist mjög illa fyrir meöal Araba, enda er stefnt að þvi meö þessu landnámi aö þrengja hlut þeirra. Fyrir Sadat væri næstum ógerlegt aö halda viðræðum viö 'lsraelsstjórn áfram, nema hún falli frá þessum fyrirætl- unum. Af hálfu Begins hefur mótmælum Bandarikjastjórn- ar gegn umræddu landnámi, veriö tekið illa og þó enn verr þeirri ákvöröun hennar, aö selja Egyptalandi og Saudi-Arabíu herflugvélar af nýrri gerð. Sú sala er likleg til þess, að dómi Israelsmanna að draga úr hernaöarlegum yfirburðum Israels, miöaö viö Arabarikin. Eins og nú standa sakir, er Israel taliö liklegt til aö hafa algera yfirburöi i loft- hernaði, ef til styrjaldar kæmi milli þess og Arabarikjanna. Sadat og Begin ENN er ekki séö, hvort stjórn Begins lætur undan þeim þrýstingi Bandarikja- stjórnar aö hætta viö landnám ísraelsmanna á vestur- bakkanum. Þaö eitt myndi þó ekki nægja til aö samningar gætu náöst milli tsraels og Egyptalands, þótt þaö væri spor i áttina og myndi styrkja stööu Sadats, þvi aö hann gæti eignað sér þaö, aö hafa fengiö þetta fram. En Sadat þarf aö fá meiri tilslakanir, ef sam- komulag á aö nást. Hann þarf aö fá þvi framgengt, aö tsraelsmenn láti af hendi landsvæðin, sem þeir hertóku 1967, og hann þarf aö fá viöur- kenndan sjálfsákvöröunarrétt ibúanna á þessum landsvæö- um. tsraelsstjórn hafnar enn báðum þessum skilmálum. Alveg sérstaklega hafnar hún þvi, að Arabar fái aö stofna sjálfstætt riki á vesturbakkan- um. Hins vegar mun hún aö- Hussein eins hafa látiö i þaö skina, aö hún kunni aö getafallizt á, aö vesturbakkinn veröi sam- einaður Jordaniu að nýju, en hanntilheyröi Jordaniu á árun- um 1948-1967. Þetta kom m.a. fram i viötali, sem Sadat átti i Vínarborg, þegar hann kom þangað ádögunum, viö Peres, leiötoga Verkamannaflokks- ins i tsrael. Eftir viöræður þeirra lét Peres svo ummælt, aö hann teldi höfuðnauðsyn á þvi, aö Hussein Jordaniukon- ungur yröi aöili aö viöræðum þeirra Begins og Sadats. Af hálfu Bandarikjamanna er einnig lögö áherzla á þetta. Hussein mun hins vegar ófús til þess aö taka þátt i slikum viðræöum, nema hann hafi tryggingu fyrir þvi fyrirfram, aö þær muni leiöa til árangurs, sem hann telji viöunanlegan. Sennilega á hann þá viö niöurstööu, sem ekki aðeins Egyptaland og Jórdania geti sætt sig viö, heldur einnig Sýrland, og svo hin hófsamari Arabariki, eins og t.d. Saudi-Arabia, Kuwait og Marokko, og helzt einnig Libanon og Túnis. SADAT hefur viöurkennt, einkum eftir viðræðurnar i Washington, aö erfitt sé fyrir tsraelsmenn aö láta herteknu landsvæöin af hendi, nema tsrael hafi áöur veriö tryggt nægilegt öryggi. Þá veröa Arabar aö sjálfsögöu, aö viöurkenna sjálfstæöi þess og landamæri þess. Viöræöurnar, sem nú fara fram aö tjalda- baki milli stjórna tsraels og Egyptalands aö frumkvæöi Bandarikjanna, snúast vafa- laust mjög um þetta atriöi. Skiiianlegt er, aö tsraelsmenn vilji ekki slaka til meöan þetta er ótryggt. Sennilegt þykir, aö varöandi þetta atriöi hafi Bandarikin samiö við Sovét- rikin, þvi aö tsrael mun leggja áherzlu á, aö bæöi risaveldin ábyrgist sjálfstæði þess og landamæri, ef úr friöar- samningum veröur. Bæöi þetta og mörg önnur atriöi valda þvi, aö ekki er rétt aö búastviö skjótum málalokum. Fyrir Bandarikin skiptir nú sennilega mestu máli aö fá nógan tima til aö geta annazt milligöngu aö tjaldabaki. I þvi sambandi gæti það orðiö þeim góöur áfangi, aö tsraelsstjórn lýsti yfir þvi, aö hún væri hætt viö landnámiö á vestur- bakkanum. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT og Sadat þurfa á Hussein að halda Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.