Fréttablaðið - 13.08.2006, Page 6

Fréttablaðið - 13.08.2006, Page 6
6 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR Bókið og staðfestið strax á ferðaskrifstofunni, Hesthálsi 10, s. 587 6000, info@vesttravel.is www.vesttravel.is www.trex.is HAUSTFERÐIRNAR TIL ST. JOHN’S Á NÝFUNDNALANDI HAFA SLEGIÐ RÆKILEGA Í GEGN Brottfarir 2006: 28. - 31. okt. (lau. - þri.), 31. okt. - 4. nóv. (þri. - lau.) og 4. - 8. nóv. (lau. - mið.) Áhugaverðar og ljúfar borgar- og verslunarferðir fyrir einstaklinga jafnt sem hópa. Aðeins 3 - 3,5 klst. beint flug og gist á glæsilegum hótelum. Verð með sköttum frá kr. 57.300 m.v. tvo í herbergi á Holiday Inn. Komið með til Kanada! Ó ! · 8 8 7 4 ATVINNA Í júlímánuði voru 45.902 atvinnuleysisdagar skráðir á Íslandi, sem jafngildir því að 2.184 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mán- uðinum. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði samkvæmt áætlun Efnahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytis í júlí er 161.383 og því jafngilda þessar tölur 1,4 pró- senta atvinnuleysi. Meðalfjöldi atvinnulausra var 7,6 prósentum hærri í júlí, eða að meðaltali 155 fleiri en í júní. Samanborið við júlí í fyrra eru 951 færri atvinnulausir nú, sem er fækkun um þrjátíu prósent. - sdg Atvinnuleysi eykst: Atvinnuleysi í júlí 1,4 prósent SJÁVARÚTVEGUR Reiknað er með að kolmunnaveiðar hefjist á ný um miðjan ágúst en veiðum var hætt um miðjan júlí að sögn Guðbergs Rúnarssonar, verkefnisstjóra hjá Samtökum fiskvinnslustöðva. „Verð á mjöli og lýsi er mjög hátt núna og því fer kolmunni mest- megnis í slíka vinnslu frekar en flökun. Sama á við um síldina. Eitthvað er til af frystri síld frá fyrra ári og því huga menn nú frekar að vinnslu í mjöl og lýsi.“ Rúmlega 311.500 tonnum af kolmunna hefur verið landað hér- lendis á vertíðinni. Landanir úr íslenskum skipum nema tæplega 272 þúsund tonnum, en aflaheim- ild fyrir árið 2006 er 352.601 sam- kvæmt Fiskistofu. Eftirstöðvar útgefins kolmunnakvóta eru því rúmlega 80.600 tonn. Tæplega fjörutíu þúsund tonnum af kol- munna hefur verið landað úr erlendum skipum frá áramótum. Rúmlega 34.400 tonnum af síld úr norsk-íslenska síldarstofnin- um hefur verið landað á vertíð- inni. Heildarkvóti árið 2006 er 153.818 tonn, samkvæmt tilskip- un frá sjávarútvegsráðuneytinu. Rúmlega 32.600 tonnum hefur verið landað úr íslenskum skip- um á vertíðinni og rúmlega 1.800 tonnum úr erlendum skipum. - sdg Móttaka fiskimjölsverksmiðja á kolmunna og síld á vertíðinni: Hátt verð fyrir mjöl og lýsi GUÐBERGUR RÚNARSSON Verkefnisstjóri hjá Samtökum fiskvinnslustöðva segir síld og kolmunna aðallega fara í vinnslu á mjöli og lýsi vegna þess hve hátt verð fáist fyrir það í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Engin sjúkraflug- vél verður staðsett á Ísafirði næsta vetur. Sjúkraflugi verður héðan í frá stýrt frá Akureyri og mun nýleg sérhönnuð sjúkraflug- vél sjá um allt Norðurland. Þessi nýja skipan mála átti upphaflega að taka gildi um síð- ustu áramót, en ákveðið var að fresta breytingunni þar sem gera þurfti endurbætur á Þingeyrar- flugvelli til að bæta skilyrði til aðflugs og næturflugs. Þeim endurbótum er nú lokið og því verður engin flugvél á Ísafirði á tímabilinu 1. október til 30. apríl, eins og hefur verið undanfarin ár. „Ég tel nauðsynlegt að hafa sjúkraflugvél hérna á Ísafirði,“ segir Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri á Ísafirði. „Það er bara ekki komin reynsla á að aðflug og næturflug geti gengið upp á Þing- eyrarflugvelli og það þarf tíma til að sannreyna að það gangi. Það eru mjög ströng aðflugs- skilyrði á Ísa- fjarðarflugvelli og hann getur orðið frekar varasamur.“ Bæjarstjórn Ísafjarðar gaf þrjú skilyrði fyrir því að geta samþykkt þessa nýju tilhögun á sjúkraflugi á Vestfjörðum. Í fyrsta lagi yrðu aðflugsskilyrði á Ísafirði eða Þingeyri að vera eins fullkomin og tæknilega séð er mögulegt og þarf að vera hægt að fljúga næturflug. Í öðru lagi þyrfti sjúkraflugvélin að upp- fylla allar kröfur heilbrigðis- starfsfólks. Í þriðja lagi þyrfti að efla starfsemi sjúkrahússins á Ísafirði og þá sérstaklega bráða- þjónustuna. Dagný Brynjólfsdóttir, deildar- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, segir að flugvélin sé af afar full- kominni gerð og ef meiri hjálp vanti sé hægt að nota almennar farþegaflugvélar eins og gert hefur verið hingað til. „Þjónustan mun batna og viðbragðstíminn styttast. Með flugvélunum frá Akureyri geta farið læknar sem fylgja sjúklingnum alla leið, í stað þess að fjarlægja þurfi lækna úr byggðunum sem sjúklingarnir eru sóttir í,“ segir Dagný. „Ég mundi telja að sjúkrahús- ið væri í stakk búið til að taka á móti verstu tilfellum,“ segir Þor- steinn Jóhannesson, yfirlæknir á sjúkrahúsinu á Ísafirði. „Þessar breytingar á sjúkrafluginu voru gerðar í fullu samráði við okkur og ef heilbrigðisráðuneytið stend- ur við sinn hluta samningsins þurfum við ekki að kippa okkur upp við þetta.“ steindor@frettabladid.is Engin sjúkraflugvél á Ísafirði í vetur Allt sjúkraflug á Norðurlandi verður gert út frá Akureyri næsta vetur. Engin reynsla komin á aðflug og næturflug á Þingeyrarflugvöll, segir bæjarstjórinn á Ísafirði. Yfirlæknir segist sáttur, uppfylli heilbrigðisyfirvöld öll skilyrði. HALLDÓR HALLDÓRSSON SJÚKRAFLUG Flugvellir í nágrenni Ísafjarðar duga ekki enn í aðflug og næturflug, að sögn bæjarstjóra. Myndin er tekin á Eskifirði. DANMÖRK Nýja danska fríblaðinu 24timer, sem stefnt er gegn vænt- anlegri danskri útgáfu Frétta- blaðsins, Nyhedsavisen, verður ekki dreift óumbeðið til áskrif- enda Politiken og Jótlandspósts- ins, blaðanna sem standa að útgáfu 24timer, þegar það hefur göngu sína 17. ágúst. Frá þessu er greint á fréttavef Politiken. Stjórn móðurfyrirtækisins, JP/ Politikens Hus, ákvað þetta til að fyrirbyggja að fólk sem þegar fær dagblað heim til sín „finnist það vera að drukkna í pappír“. Eftir Tøger Seidenfaden, rit- stjóra Politiken, er haft: „Hið nýja fríblað samsteypunnar er einnig Politiken í hag, þar sem það ver auglýsingahagsmuni okkar gegn íslensku árásinni.“ Útgáfufélag Berlingske Tid- ende mun ákveða á þriðjudag hvort það „taki þátt í þessu blóð- uga stríði“, eins og Arne Ullum, ritstjóri Berlingske, er á fréttavef Extra Bladet sagður hafa orðað það í innanhússtölvupósti í gær, föstudag. Slíku fríblaði væri aðeins ætlað „að reka Íslending- ana aftur út í Atlantshafið, hugs- anlega áður en þeir ná fótfestu á danskri foldu“. - aa BÚAST TIL VARNAR Stærstu áskriftardag- blöðin í Danmörku undirbúa fríblaðaút- gáfu. NORDICPHTOTOS/AFP Danir undirbúa fríblöð til að bregðast við útgáfu Nyhedsavisen: Verjast „íslensku árásinni“ KJÖRKASSINN Mun formannskosning efla Framsóknarflokkinn? Já 58% Nei 42% SPURNING DAGSINS Í DAG Fagnaðir þú á Gay pride hátíðinni? Segðu skoðun þína á visir.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.