Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 12
13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR12
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir
í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.
is eða hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1908 Þeir Sigurður Sumarliða-
son bóndi og Hans Reck
jarðfræðingur ganga á
Herðubreið, í fyrsta skipti
að því er talið.
1919 Veðhlaupahesturinn Man
o‘ War tapar í fyrsta og eina
skiptið á ferlinum.
1942 Bambi kemur fram á sjón-
arsviðið.
1961 Þýska lýðveldið lokar
landamærunum á milli
Austur- og Vestur-Berlínar
til þess að koma í veg fyrir
að íbúar Austur-Þýskalands
flýðu til vesturs.
1987 Kringlan opnar í Reykjavík
og um fjörutíu þúsund
manns heimsækja hana
fyrsta daginn.
1997 South Park hefur göngu
sína í sjónvarpi.
ALFRED HITCHCOCK (1899-1980)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Góð mynd er þegar
kostnaðurinn af bíómiðan-
um, kvöldmatnum og
barnapíunni er þess virði.“
Alfred Hitchcock var enskur
kvikmyndaleikstjóri.
Leiksýningin Fullkomið búðkaup, sem
hefur átt mikilla vinsælda að fagna hér
á landi undanfarið, skartar nýrri leik-
konu í einu aðalhlutverkanna. Ekki lét
leikstjórinn undan þrýstingi og bætti
við persónu, heldur hefur Edda Björg
Eyjólfsdóttir tekið við hlutverki Est-
herar Talíu Casey í sýningunni.
„Já, hún Esther ákvað að fjölga sér,“
segir Edda Björg hlæjandi þegar blaða-
maður innir hana eftir því hvernig
standi á leikkonuskiptunum. „Hún á að
eiga í október og er komin með mynd-
arlega kúlu og það er ómögulegt að
hafa brúðina ólétta.“
Edda hóf að undirbúa sig fyrir hlut-
verkið fyrir nokkrum vikum og segir
hún undirbúninginn hafa verið með
afar hefðbundnu sniði. „Ég fékk hand-
ritið og las það, svo fékk ég upptökur
af sýningunni á myndbandi og hef
reynt að púsla þessu saman,“ segir
leikkonan og hlær að spurningunni.
„Þetta er orðin svo smurð sýning og
tímasetningarnar eru svo góðar að ég
hef sem betur fer fengið að æfa svolít-
ið með þeim undanfarna daga svo að
ég geti fallið vel inn í leik liðsins,“
segir Edda og hlær og vísar til tals
þegar nýjir leikmenn eru keyptir til
knattspyrnuliða.
„Mér er ekki ætlað að rugga bátn-
um, heldur á ég fyrst og fremst að taka
við kyndlinum. Það hefði óneitanlega
verið gaman af fá að vera með eitthvað
vesen, en það var ekki í boði,“ segir
Edda Björg og hlær prakkaralega.
Edda Björg segir það afar krefjandi
verkefni að taka við af Esther Talíu,
hún hafi staðið sig vel og verið stór
hluti af sýningunni. Hún segir að sam-
starfsmenn sínir hafi verið duglegir að
minna hana á hvaða leikkona var þarna
á undan henni. „Þau eru alltaf að segja
mér að vera hérna og þarna og segja
svo í gríni: Esther gerði þetta alltaf
svona,“ segir Edda Björg og vill meina
að þetta sé allt gert í gríni.
Greinilegt er að mikil tilhlökkun er
hjá leikkonunni fyrir þessu verkefni,
en þetta er í fyrsta sinn sem Edda
kemur inn í leiksýningu með þessum
hætti. „Þetta verður örugglega rosa-
lega gaman. Ég get ekki beðið eftir að
leika farsann fyrir framan fólk, því að
farsinn er eiginlega bara leiðinlegur
án áhorfenda, hann er ekkert fyndinn
fyrr en áhorfendurnir mæta,“ segir
Edda Björg. „Þá dettur maður líka í
stuð og þá kemur örugglega smá brag-
ur á hana frá mér vonandi. Með nýju
fólki koma náttúrlega alltaf nýjar
áherslur.“ aegir@frettabladid.is
EDDA BJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR: TEKUR VIÐ NÝJU HLUTVERKI
Farsinn er eiginlega
leiðinlegur án áhorfenda
EDDA BJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR Tekur við hlutverki Estherar Talíu Casey í Fullkomnu brúðkaupi en sýningar á verkinu hefjast að nýju í Austurbæ í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ástkær dóttir okkar og systir
Rósa Björg Guðmundsdóttir
matreiðslumaður, Vallarási 1, Reykjavík,
lést af slysförum mánudaginn 7. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
15. ágúst kl. 15.00.
Ína Dóra Jónsdóttir Guðmundur Jónasson
Margrét B. Guðmundsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Gunnar Ívarsson
fyrrverandi verslunarstjóri og fulltrúi
skattstjóra, Skarphéðinsgötu 4, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans aðfaranótt
fimmtudagsins 10. ágúst.
Guðrún Guðlaug Sigurgeirsdóttir
Sigurgeir A. Jónsson Þóra Hafsteinsdóttir
Sonja B. Jónsdóttir Guðmundur Kristjánsson
Ívar Jónsson Lilja Mósesdóttir
Fannar Jónsson Elísabet S. Auðunsdóttir
Jón Þór Sigurgeirsson
Guðrún Iðunn Sigurgeirsdóttir Einar Bjarni Sigurðsson
Birkir Kristján Guðmundsson, Jón Reginbaldur Ívarsson,
Hrafnhildur Fannarsdóttir, Fannar Gunnsteinsson,
Óskar Þór Einarsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
Guðrún Sigurðardóttir
menntaskólakennari,
andaðist á kvennadeild Landspítalans þann 11.ágúst.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Bryndís Björnsdóttir
Jónas Páll Björnsson Soumia Islami
Sofia Sóley Jónasdóttir
Elías Andri Jónasson
Sigrún Erla Sigurðardóttir Páll Ásmundsson
Svanhildur Ása Sigurðardóttir Björn Björnsson
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Harðar Valdimarssonar
Nestúni 17, Hellu.
Sérstakar þakkir færum við Þóri Kolbeinssyni lækni,
starfsfólki Lundar, MND teyminu á Borgarspítalanum
fyrir góða umönnun og hlýju.
Jórunn Erla Bjarnadóttir
Bjarni R. Harðarson Inga Guðmundsdóttir
Guðrún B. Harðardóttir Sigurður Héðinn Harðarson
Hafdís E. Harðardóttir Alan Jónsson
Logi Harðarson Fjóla Lárusdóttir
afabörn og langafabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Veldi Azteka var í mið- og suðurhluta
Mexíkó á fimmtándu og sextándu öld.
Það er lítið vitað um uppruna Azteka
en margt bendir til þess að þeir hafi
verið veiðimenn og safnarar áður
en þeir settust að í suðrinu. Það er
einnig mögulegt að þjóðflokkur þeirra
hafi orðið til vegna fólksflutninga frá
norðrinu til suðurs.
Þeir settust að við Texcoco vatn á
fjórtándu öld og byggðu borgina Tenochtitlán, sem
átti eftir að verða höfuðborg þeirra.
Veldi Azteka byggðist á öflugu landbúnaðarkerfi,
þar sem allt land var nýtt og afraksturinn varð rík og
fjölmenn þjóð.
Á fyrri hluta fimmtándu aldar mynduðu Aztekar
bandalag við nágranna sína í Texcoco og Tlacopan
og urðu voldugastir í miðhluta Mexíkó. Með verslun
og landvinningum jukust völd Azteka til muna og
árið 1519 réðu þeir yfir fjögur til fimm
hundruð smáríkjum. Aztekar voru orðn-
ir um hálf milljón og var Tenochtitlán
miðstöð veldis þeirra. Íbúar borgarinnar
voru um 140 þúsund þegar mest lét og
var hún mjög þéttbyggð.
Árið 1519 stöðvaðist uppbygging
Azteka þegar spænskir landkönnuðir
komu til Mexíkó, en þá er talið að Azt-
ekar hafi verið um fimm til sex milljónir
talsins. Herforingi Spánverja, Hernán Cortés, tók
keisara Azteka höndum og eftirmönnum hans gekk
illa að ráða við her Spánverjanna. Árið 1521 náðu
Spánverjar Tenochtitlán á sitt vald eftir langt umsátur
og þar með var þetta mikla veldi fallið. Hungursneyð
og sjúkdómar sem Spánverjar báru með sér urðu
Aztekum að falli.
Á rústum Tenochtitlán var byggð Mexíkóborg sem
er höfuðborg Mexíkó í dag.
ÞETTA GERÐIST 13. ÁGÚST 1521
Veldi Azteka fellur