Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 13

Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 13
SUNNUDAGUR 13. ágúst 2006 13 Hólahátíð var haldin nú um helgina en hún er liður í níu hundruð ára afmæli biskupsstóls og skólahalds að Hólum í Hjaltadal. Dagskráin í dag hefst klukkan níu um morg- uninn við Auðunarstofu með morgunbæn, þar sem Geir H. Haarde forsætisráðherra flytur ávarp. Klukkan tvö hefst síðan hátíðarguðsþjónusta þar sem Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup mun predika og meðal þeirra sem þjóna fyrir alt- ari er séra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffiveitingar og hátíðarsamkoma hefst klukkan hálf fimm um eftirmiðdaginn. Saga Hóla er löng og merkileg en talið er að þar hafi byggð hafist á elleftu öld á landnám- sjörðinni Hofi, sem er nokkru fyrir framan Hóla. Á Hofi byggði Hjalti Þórðarson og heitir dalur- inn Hjaltadalur eftir honum. Á Hólum reis kirkja strax um miðja elleftu öld og um 1100 gaf Ill- ugi Bjarnason, eigandi Hóla, jörð- ina til biskupsseturs. Fyrsti biskup- inn á Hólum var Jón Ögmundsson helgi, sem tók biskupsvígslu þar árið 1106. Fram til ársins 1802 sátu 36 bisk- upar á Hólum, en meðal þeirra voru Guðmundur Arason góði og Jón Arason. Árið 1910 var vígslubiskups- embætti stofnað en fyrsti vígslu- biskupinn kom þangað árið 1986, en Jón Aðalsteinn Baldvinsson hefur setið þar frá árinu 2003. Hólahátíð lýkur í dag HÓLAR Í HJALTADAL Eiga níu hundruð ára afmæli um þessar mundir. AFMÆLI Páll Bergþórsson veðurfræðingur er 83 ára. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir er 54 ára. Einar Ágúst Víðisson er 33 ára. Norskir dagar hófust á laugardag- inn síðastliðinn á Seyðisfirði og standa til 26. ágúst. Dagarnir eru nú haldnir í tíunda sinn en þeir eru alltaf haldnir um miðjan ágúst í tilefni af afmælidegi Otto Wathne sem fæddist 13. ágúst og er venju- lega nefndur faðir Seyðisfjarðar. Dagskrá daganna verður óvenju vegleg í ár þar sem þeir fléttast saman við hundrað ára afmæli sæsímans. Í gær fór setning daganna fram en klukkan eitt í dag verður lagð- ur blómsveigur að minnisvarða Otto Wathne honum til heiðurs. Á meðal viðburða eru tónleikar, upp- lestur, götupartí, norsk kvik- myndahátíð og listasýningar. Norskur blær yfir Seyðisfirði SEYÐISFJÖRÐUR Norskir dagar hófust í gær og standa í tvær vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/SMK BRASILÍA Portúgalski forsætisráðherrann Jose Socrates talar við börn í grunnskóla í Rio de Janeiro í heimsókn sinni til Brasilíu á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.