Fréttablaðið - 13.08.2006, Page 17
að teikna nýtt 24 stúdíóíbúða hús,
sem vonandi verður farið í að reisa
strax á næsta ári þegar hægist um
byggingaframkvæmdir á Austur-
landi og iðnaðarmenn verða aftur
fáanlegir. Viðgerðir á öðrum
húsum fylgja síðan þar á eftir,“
segir Sigríður þegar hún er spurð
út í stöðuna á verkefninu. Hús-
næðið hefur verið lánað undir
ýmsa menningartengda starfsemi
eins og kvikmyndahátíð, ráðstefnur
og námskeiðahald, en það býður
upp á mikla möguleika. „Heilu
karlakórarnir gætu t.d. alveg hist
hérna og æft sig í salnum og gist á
gömlu heimavistinni,“ bendir Sig-
ríður á og segir að þau séu opin
fyrir samstarfi af ýmsum toga.
Sterkar taugar austur
Sigríður og Sigurjón hafa verið
búsett í Bandaríkjunum í 28 ár en
hafa alltaf haft sterkar taugar til
Austurlands. Sigurjón á ættir sínar
að rekja austur og því hafa þau
alltaf verið töluvert á Austurlandi.
Munurinn á Eiðum og L.A. er nokk-
uð stór en Sigríður segir að það
sé afar hressandi að dvelja fyrir
austan á sumrin, eins og hún hefur
gert undanfarin sumur. „Krakk-
arnir sem komu hingað fyrsta
sumarið eru að koma hingað í
þriðja skipti og ég get ekki annað
en játað að ég hlakka alltaf til þess
að hitta þau aftur og sjá hvernig
gengur hjá þeim,“ segir Sigríður
og það er greinilegt að henni er
farið að þykja mjög vænt um bæði
börnin og staðinn. „Í fyrstu var
ákveðnum börnum boðið að taka
þátt þessum í listanámskeiðum.
Við leituðum til kennara á Austur-
landi og báðum þá um hjálp við að
velja þessi börn. Við einbeittum
okkur aðallega að börnum með
sérþarfir eða sem voru í fámenn-
um árgöngum og þeim sem höfðu
sérlega gaman af listum. Í ár aug-
lýstum við hins vegar eftir þátt-
takendum og það komust færri að
en vildu.“
Smíða og skapa hina
ótrúlegustu hluti
Engin ákveðin dagskrá er í gangi á
listanámskeiðunum en hvert barn
fær að dvelja á Eiðum viku í senn.
Þau koma á morgnana og borða
þar í hádeginu en fara heim á
kvöldin. Krökkunum er í upphafi
kynnt aðstaðan, þeim er sýnt leik-
sviðið, píanóið og smíðaverkstæðið
og síðan er þeim hjálpað í gang
með það sem þau vilja gera. „Í
fyrra vorum við með hóp af krökk-
um úr unglingavinnunni. Í fyrstu
nenntu þau ekkert að gera og hugs-
uðu sér gott til glóðarinnar að geta
slappað af hérna í viku í stað þess
að vera að reyta arfa. En fyrr en
varði voru þau komin á fullt við að
búa til stuttmynd. Afraksturinn
varð frábær hryllingsmynd, „Oj á
Eiðum,“ sem myndbandaleigan
Videoflugan tók inn í hillurnar hjá
sér og íbúar Egilsstaða gátu svo
tekið á leigu. Auk þess sögðu mörg
þeirra í lok vikunnar að þau hefðu
ekkert vitað um listir áður en þau
komu en væru nú að hugsa um að
sækja um í Listaháskólanum.“ Sig-
ríður segir þetta ekki eina dæmið
um skemmtilega útkomu af nám-
skeiðunum. „Krakkarnir hafa sett
upp heilu leikritin á sviðinu hérna,
samið lög og smíðað hina ótrúleg-
ustu hluti. Ég er með afskaplega
góða samstarfsmenn sem hafa
bæði hugvit og verkvit til að hjálpa
krökkunum við að hrinda hug-
myndum sínum í framkvæmd.
Þetta eru frábærir listamenn sem
hafa verið að gera það gott í lista-
heiminum, hver á sínu sviði. „Í
ár leiðbeina myndlistarmennirnir
Daníel Karl Björnsson og Pétur
Örn Friðriksson krökkunum ásamt
tónlistarmanninum Páli Ívani
Pálssyni. „Í síðustu viku kom einn
krakkinn með mjög flókna teikn-
ingu af flugvél og hún var bara
gerð enda kunna strákarnir svo vel
á tækin á smíðaverkstæðinu og
eru þaulvanir að búa til hina ýmsu
hluti. Þau koma með hugmynd og
hún verður bara til. Það er afar
gott fyrir sjálfstraustið hjá krökk-
unum að sjá hugmyndir þeirra
verða að veruleika.“
Vann með klíkukrökkum
Sigríður hefur alltaf haft gaman af
börnum og list. Hún er menntaður
sérkennslukennari og vann lengi í
Heyrnaleysingjaskólanum. Fyrir
nokkrum árum síðan kláraði hún
svo klíníska sálfræði og vann á
klíník úti í Ameríku. „Þar vann ég
bæði með fullorðnu fólki og með
klíkukrökkum sem ég var að hjálpa
að komast út úr klíkum og halda
sínu striki eftir það,“ segir Sigríður
og bætir við að þótt hún sé ekki
sjálf listamanneskja þá hafi hún
alltaf haft mikinn áhuga á list og
ekki síst því að nýta hana í kennslu.
Námsgagnastofnun hefur líka
gefið út listatengt kennsluefni
eftir hana undir heitinu Ótrúlegu
ævintýrin, sem enn er notað við
kennslu.
„Ég hef unnið við ýmislegt um
dagana, allt frá því að vera flug-
freyja á sumrin, þar sem ég hef
þurft að díla við erfiða farþega,
upp í það að kenna börnum með
erfiðleika og hjálpa fólki í gegnum
sálfræðina. Mér hefur alltaf fund-
ist gaman af því að vinna með fólki
en ég enda einhvern veginn alltaf
með börn og unglinga, mér finnst
það mest spennandi.“
Flutningar til Danmerkur
Í haust taka við nýjir hlutir hjá Sig-
ríði og fjölskyldu hennar, því eftir
margra ára búsetu í Ameríku flytur
fjölskyldan til Kaupmannahafnar.
Sonur þeirra hjóna, Þórir, býr
þar ásamt tveggja ára syni sínum og
Sigríður segir að þau Sigurjón vilji
vera í meiri nálægð við barnabarnið.
Dóttirin Sigurborg, sem er ellefu
ára, verður einnig með í för og
byrjar í dönskum skóla í haust.
Breytingarnar henta vel fyrir
Sigríði, sem sér flutningana sem
gott tækifæri til að vera meira á
Eiðum, enda er nú boðið upp á beint
flug milli Egilsstaða og Kaup-
mannahafnar. Með meiri nálægð er
aldrei að vita nema hún komi að
námskeiðshaldi á staðnum yfir
vetrarmánuðina líka. En hvernig
henta flutningarnir Sigurjóni?
„Það á eftir að koma í ljós,“ segir
Sigríður og hlær. „Hann ferðast allt-
af mikið og hann er auðvitað enn að
vinna þarna úti en hann er líka mikið
að vinna í Evrópu og er með dreif-
ingarfyrirtæki í Danmörku. Þessar
myndir sem hann hefur verið að
gera eins og Zidane og Destricted
hafa líka meira og minna verið evr-
ópsk samvinna svo hann er ekkert
endilega fastur í Hollywood.“
Á smíðaverkstæðinu er að fæð-
ast skrímsli úr gamalli klósettsetu
og úti í skógi er risin mikil tjald-
borg. Slitin og snjáð rúmföt af
hótelinu blakta við hún þar sem
fánar og gamlar rúmfjalir gegna
hlutverki bryggju sem krakkarnir
hafa smíðað. Uppbyggingin á Eiðum
heldur áfram og Sigríður hugsar sér
stærri hluti hvað listanámskeiðin
varðar, því í framtíðinni vonast hún
til þess að börn og unglingar af öllu
landinu geti átt þess kost að koma
til Eiða og notið þess að sleppa
sköpunargleðinni lausri. ■
Á SMÍÐAVERKSTÆÐINU Aðstaðan á Eiðum er afar góð og hafa krakkarnir til dæmis fullan aðgang að gamla smíðaverkstæðinu, þar sem
ótrúlegustu hugmyndum er hrint í framkvæmd. Hér má sjá Sigríði ásamt kennurum sumarsins, þeim Daníel, Pétri og Páli, og brot af þeim
krökkum sem notið hafa þess að taka þátt í listnámskeiðunum.
„Það er svo gaman að sjá hvað krakkarnir hafa gott af dvölinni hérna.
Margir foreldrar hafa sagt að þeir sjái mikinn mun á krökkunum eftir
þessa viku hvað varðar sjálfstraust og frumkvæði og það er auðvitað afskap-
lega gaman að heyra.“
SIGRÍÐUR ÞÓRISDÓTTIR, SÁLFRÆÐINGUR OG SÉRKENNSLUKENNARI Á EIÐUM Í framtíðinni
vonar Sigríður að börn alls staðar af landinu geti átt þess kost að sækja listnámskeiðin á
Eiðum. „Það er afar gott fyrir sjálfstraustið hjá krökkunum að sjá hugmyndir þeirra verða að
veruleika,“ segir hún.
����������������������� ������������������������������ �����
�������������������������� ���
�����������
���������������
�� ��
���� � ��
��������������������
�
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
�
�
�
�
�
�
����������������������� ������������������������������ �����
���������������������� ��
����������������������������
������������� ������������
������������������������
����������������������� �������
�������������������������������
������������ ���������������
��������������
��� ������
������������
�� ������������������������
����������������������
���������������� �����������
������������������������
����������������������������
���������������������������
�������������� �����
������������������������
����������
������������
�������������������������� ���