Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 54

Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 54
ATVINNA 34 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR Sælgætis og videohöllin Garðatorgi Óskum eftir að ráða fólk fullt starf. Umsóknareyðublöð á staðnum. Einnig hægt að hringja í sima 565 6677. Söluturninn Svarti svanurinn Óskar eftir starfsfólki á dagvaktir og einnig starfsfólki í aukavinnu. Upplýsingar í síma 551 6040 eða 897 6966. Sælgætis og videohöllin Garðatorgi Óskum eftir að ráða fólk í kvöld- og helgarvinnu. Umsóknareyðublöð á staðnum. Einnig hægt að hringja í sima 565 6677. Öflugt fyrirtæki í forystuhlutverki Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. er framsækið og leiðandi fyrirtæki á sviði drykkjarvöru. Markmið fyrirtækisins er að vera besta markaðs- og sölufyrirtæki landsins. Hlutverk Ölgerðarinnar er að bjóða upp á heildar- lausnir á drykkjarvörumarkaði með hágæða vöru og þjónustu. Fyrirtækið er eitt elsta fyriræki landsins með sterka gæðaímynd og hefur m.a. unnið Íslensku ánægjuvogina 5 ár í röð. Á meðal vörumerkja má nefna Appelsín og Malt, Pepsi, Pepsi Max, Kristal, Smirnoff, Rosemount, Penfolds, Masi, Cato Negro, Grand Marnier, Gordons, Egils Gull, Egils Lite, Tuborg, Frissi Fríski, Doritos, Lays og Gatorade. Ölgerðin leggur ennfremur mikla áherslu á öfluga vöruþróun. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 starfsmenn með víðtæka þekkingu, menntun og reynslu sem sameiginlega hafa skapað metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfssvið: • Afstemming og bókun á uppgjöri • Greiðslur til lánadrottna • Innheimta á kröfum erlendra viðskiptavina • Uppgjör á sjóði • Svörun símtala frá viðskiptavinum og lánardrottnum Menntunar- og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun • Reynsla af sambærilegu starfi skilyrði • Þekking á bókhaldi mikill kostur • Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund Áhugasamir sendi greinagóða umsókn um menntun, reynslu og fyrri störf til Ölgerðarinnar 7-11 merkta Egils-gjaldkeri eða á netfangið ee@egils.is fyrir 21. ágúst n.k. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Imma Jónsdóttir, fjárreiðustjóri í síma 580-9099. Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. óskar eftir að ráða til sín gjaldkera Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. · Grjóthálsi 7-11 · 110 Reykjavík · sími 580 9000 · www.egils.is ������������������� ������������������������������������������ �������������������������������� ����������� ������������������������ ����������� Sjúkraflutningamenn sinna jafnt venjubundn- um akstri með sjúklinga sem og bráðatilfellum. Flestum eru sjúkrabílar á fleygiferð með blikkandi ljós og sírenur áminning um hversu viðkvæm mann- skepnan er í raun og veru. Þetta er þó hluti af starfi Lárusar St. Björnssonar og félaga hans í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Ég byrjaði 1998 í slökkviliðinu á Reykjavíkur- flugvelli, var sumarstarfs- maður í Hafnarfirði 1995 og 1996 og hafði lengi haft áhuga,“ segir Lárus um til- urð þess að hann gerðist slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamaður. „Við sameiningu slökkviliðanna árið 2000 byrjuðum við svo í sjúkra- flutningum líka. Starfið er mjög fjölbreytt og maður hittir fullt af skemmtilegu fólki. Versti hluti þess er samt þegar börn eiga í hlut.“ Slökkviliðsmenn á vakt eru allir skráðir á slökkvibíl og aðra hvora vakt eru þeir líka skráðir á fyrsta sjúkra- bíl, þann bíl sem er fyrstur út úr húsi hverju sinni. „Hver stöð getur mannað tvo sjúkrabíla á hverri vakt. Þeir eru mikið á ferðinni og sjúkraflutningar hafa auk- ist á undanförnum árum. Að miklu leyti erum við að flytja sjúklinga á milli stofn- ana, í rannsóknir og þess háttar. Svo eru bráðatilfelli; veikindi og slys. Ef það kviknar í erum við skráðir á dælubíla líka og þurfum kannski að fara í reykköfun eða vera bílstjórar á dælu- bílunum,“ segir Lárus og það er ljóst að miklar kröf- ur eru gerðar til þeirra sem gefa sig í þetta mikilvæga starf. „Inntökuskilyrði er að hafa iðnmenntun eða sam- bærilega menntun og gott líkamlegt atgervi. Umsækj- endur eru látnir þreyta inntökupróf þar sem þeir hlaupa, ganga, synda, gangast undir almennt þekkingarpróf og fleira. Ef fólk kemst inn tekur við þriggja vikna grunnnám- skeið og þá getur maður verið annar maður á sjúkrabíl. Þremur árum seinna er hægt að taka sex vikna námskeið og verða fyrsti maður. Svo geta menn náð sér í meiri menntun til að verða bráða- tæknar sem á ensku eru kallaðir paramedics.“ Lárus, sem er líka í björg- unarsveit, segir flesta ráða við starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns. „Sumir hætta þó, hafa ekki taugar í þetta, en langflestir ráða við þetta. Það veljast samt svipaðar manngerðir í þetta, fólk sem hefur áhuga á að aðstoða aðra,“ segir Lárus að lokum. einareli@frettabladid.is Verst þegar börn eiga í hlut Lárus segir það besta við sjúkraflutninga vera hvað hann hitti margt skemmtilegt fólk í gegnum starfið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Lárus segir að í starfið veljist fólk sem hafi áhuga á að aðstoða aðra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.