Fréttablaðið - 13.08.2006, Qupperneq 77
13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR26
OPIÐ:
Í DAG 12.00 - 18.30
Á MORGUN 13.00 - 19.00
ÞRIÐJUDAG 14.00 - 20.00
ÞRI. 15.00 - 21.00
Glitnir efnir til opinnar tveggja þrepa samkeppni
um hönnun höfuðstöðva bankans og um tillögu að
deiliskipulagi á tæplega 6 hektara lóð fyrir Glitni og
samrýmanlega atvinnustarfsemi. Samkeppnin fer fram
í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og samkvæmt
samkeppnisreglum þess.
Allir sem greiða skráningargjald að fjárhæð EUR 100 hafa
rétt til þátttöku á fyrra þrepi samkeppninnar og skulu þeir
leggja fram tillögur sínar til lausnar verkefnisins. Á síðara
þrepi samkeppninnar verða 4–6 aðilar valdir til að þróa
áfram tillögur sínar. Nafnleynd verður ekki rofin fyrr en
lokið verður við að dæma bæði þrep keppninnar. Stefnt er
að því að sá aðili (hópur) sem vinnur samkeppnina starfi
áfram í nánu samstarfi við verkkaupa og hlutdeildarfélag
hans að hönnun höfuðstöðva Glitnis og skipulagningu
svæðisins.
VERKEFNIÐ
Verkefnið felur annars vegar í sér gerð deiliskipulags
á Kirkjusandsreitnum og hins vegar tillögur að nýjum
höfuðstöðvum Glitnis. Gert er ráð fyrir að uppbyggingin
verði áfangaskipt sem greint verður nánar frá í
samkeppnisgögnum. Lóðin er alls 5,7 hektarar að
stærð. Meginhluti lóðarinnar verði skrifstofubyggingar
með nýtingarhlutfalli allt að 1,9 eða liðlega 90 þúsund
fermetrar, þar af eru núverandi höfuðstöðvar um 7
þúsund fermetrar. Í samráði við Reykjavíkurborg verða
að minnsta kosti 8.500 fermetrar af lóðinni skipulagðir
fyrir lágreista íbúðabyggð með nýtingarhlutfalli 0,7. Við
gerð skipulagstillagna er gert ráð fyrir að stærsti hluti
bílastæða nýbygginga sé ekki sýnilegur. Aðkoma að
deiliskipulagsreitnum verður frá Borgartúni og Kirkjusandi.
Gert er ráð fyrir að nýjar höfuðstöðvar Glitnis verði að fullu
teknar í notkun árið 2009.
UM NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR GLITNIS
OG DEILISKIPULAG KIRKJUSANDSREITSINS
OPIN SAMKEPPNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
TÍMAÁÆTLUN
Verkkaupi gerir ráð fyrir eftirfarandi dagsetningum:
• Samkeppnisgögn fyrir fyrra þrep afhent frá og með 15. ágúst 2006
• Lok fyrirspurnartíma 3. október 2006
• Skil tillagna á fyrra þrepi 24. október 2006
• Niðurstaða dómnefndar vegna fyrra þreps og samkeppnisgögn fyrir síðara þrep
afhent 14. nóvember 2006
• Skil tillagna á síðara þrepi í 2. viku janúarmánaðar 2007
• Niðurstaða dómnefndar vegna síðara þreps er áætluð síðari hluta febrúar 2007
• Hönnun hefst í mars 2007
• Framkvæmdum lokið 2009
Samkeppnislýsingin verður aðgengileg á vef Arkitektafélags Íslands, www.ai.is, frá og með
15. ágúst 2006. Þar geta keppendur skráð sig til þátttöku og sent fyrirspurnir til trúnaðarmanns.
Listasafn Reykjavíkur býður til
listamannaspjalls í Hafnarhúsinu
kl. 15 í dag þar sem Halldór Björn
Guðmundsson listfræðingur og
Eggert Pétursson listmálari munu
spjalla um margrómuð málverk
Eggerts af íslenskri flóru.
Eggert Pétursson er meðal
listamanna sem eiga verk á sýn-
ingunni Carnegie Art Award 2006
sem stendur yfir í Hafnarhúsinu
til 20. ágúst. Eggert er annar
Íslendingurinn til að hljóta verð-
laun frá Carnegie Art Award
sjóðnum en hann hafnaði í öðru
sæti.
Á undanförnum árum hafa olíu-
málverk Eggerts af blómum og
plöntum úr íslenska jurtaríkinu
vakið gríðarlega athygli, en Egg-
ert hefur einstaka hæfileika til að
laða fram nákvæma eftirmynd af
hinni fjölbreyttu, litríku og smá-
gerðu flóru landsins. Eggert er
einnig víðþekktur fyrir fínlegar
teikningar og litmyndir af blóm-
um og jurtum í bókinni Íslensk
flóra.
Carnegie listaverðlaunin eru
ein stærstu myndlistarverðlaun
heims en þeim er ætlað að styðja
við framúrskarandi listamenn á
Norðurlöndunum. Á sýningunni í
Hafnarhúsinu má sjá tæplega
fimmtíu verk eftir 21 listamenn
en auk Eggerts eiga íslensku lista-
mennirnir Finnbogi Pétursson,
Jón Óskar og Steingrímur Eyfjörð
verk á sýningunni.
Blóm og olía Eggerts
Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleik-
ari og Kristjana Helgadóttir þver-
flautuleikari koma fram á stofutón-
leikum á Gljúfrasteini í dag í
óvæntum forföllum Unu Svein-
bjarnardóttur fiðluleikara. Þær
stöllur léku á Gljúfrasteini um
verslunarmannahelgina og var þá
húsfyllir.
Gunnhildur og Kristjana hófu
samstarf sitt þegar þær stunduðu
báðar nám í Tónlistarháskólanum í
Amsterdam. Þær hafa stundað nám
og störf á tónlistarsviðinu víða um
heim og leika í ýmsum hópum sem
starfa bæði hér á landi og erlendis.
Saman leika þær bæði í Tríó Artis,
sem árlega kemur fram á nýárstón-
leikum í Mosfellskirkju, og í tón-
listahópnum „adapter“ sem hefur
sérhæft sig í flutningi samtímatón-
listar og hefur frumflutt fjölda tón-
verka.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.
Í stofunni í dag
FLAUTA OG HARPA Á GLJÚFRASTEINI
Kristjana Helgadóttir og Gunnhildur Einars-
dóttir halda aðra stofutónleika.
LISTAMANNASPJALL Í HAFNARHÚSI Eggert Pétursson listmálari ræðir um blómin og listina við Halldór Björn Guðmundsson listfræðing.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI