Fréttablaðið - 13.08.2006, Síða 84
SUNNUDAGUR 13. ágúst 2006 33
Skráning og upplýsingar:
Fákafeni 11 • www.poppskolinn.is • Sími 588 1111
María Björk
Skólastjóri/Kennari
Regína Ósk
Yfirkennari/Kennari
Hera Björk
Söngkona/Kennari
Jónsi
Söngvari/Kennari
Sara Dís
Söngkona/Kennari
Þóra
Söngkona/Kennari
Friðrik Ómar
Söngvari/Kennari
Björgvin Franz
Leikari/Kennari
HAUSTÖNNIN
ER AÐ HEFJAST
Á haustönn verður boðið uppá:
5 ára og eldri: Byrjenda- og framhaldsnámskeið
Unglingar: Byrjenda- og framhaldsnámskeið
Fullorðnir: Byrjenda- og framhaldsnámskeið.
Aldursskiptir hópar. Haldnir verða tónleikar á
námskeiðinu og nemendur fá upptöku með
söng sínum á geisladiski í lok námskeiðs.
Markmið söngkennslunnar er að þjálfa nemendur í túlkun,
raddbeitingu, sjálfsstyrkingu og framkomu. Skólinn leitast
við að veita nemendum sínum tækifæri til að koma fram
opinberlega, svo sem við hljóðritanir, framkomur í sjónvarpi
og á öðrum vettvangi.
Skólinn leitast við að hafa sérþjálfað starfslið sem eru
atvinnumenn hver á sínu sviði.
MARÍU BJARKAR
Söngskólinn er í leit að hæfileikaríku fólki
Sími: 588 1111, 575 1512 & 897 7922
E-mail: aria@islandia.is
Sessý
Söngkona/Kennari
Guðrún Árný
Söngkona/Kennari
Védís Hervör
Söngkona/Kennari
Erum að velja börn úr Söngskólanum
í verkefni sem verður unnið í samstarfi
við stóra aðila í tónlistarbransanum
sem kemur út fyrir jólin.
FÓTBOLTI Manchester City hefur
fundið nýjan markvörð en það er
sænski landsliðsmarkvörðurinn
Andreas Isaksson. Hann er 24 ára
og mun fá formleg félagaskipti
þegar búið er að ganga frá lausum
endum í sölu David James til Ports-
mouth. Hann á fimmtíu landsleiki
að baki en verður ekki með Svíþjóð
í vináttulandsleik gegn Þýskalandi
á miðvikudag þar sem hann er að
koma sér fyrir í Manchester.
„Ég er að taka skref upp á við,
fer úr frönsku deildinni og yfir í þá
ensku. Minn metnaður er að spila
fyrir eitthvað af bestu liðum Evr-
ópu í framtíðinni en eins og er þá er
ég ánægður með að vera kominn
hingað,“ sagði Isaksson, sem kemur
til City frá Rennes. - egm
Man. City fær sér markvörð:
Isaksson í stað
David James
SKREF UPP Isaksson er hávaxinn markvörð-
ur. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Pétur Marteinsson, Gunn-
ar Þór Gunnarsson og félagar í
Hammarby máttu þola heldur
neyðarlegt tap á heimavelli sínum
í gær er botnlið Örgryte kom í
heimsókn. Hammarby hefði getað
komist í fjögurra stiga forskot á
toppi sænsku deildarinnar en tap-
aði þess í stað leiknum í gær, 1-0.
Markið kom á 89. mínútu og léku
báðir Íslendingarnir allan leikinn
að vanda. - esá
Sænski boltinn:
Botnliðið vann
toppliðið
FÓTBOLTI Í dag verður háður fyrsti
stóri leikur ársins í enska boltan-
um er leikið verður um Samfélags-
skjöldinn þar sem Englandsmeist-
ararnir og bikarmeistarnir mætast
í leik sem markar upphafið á ensku
úrvalsdeildinni. Í ár verða það lið
Chelsea og Liverpool sem mætast
á Þúsaldarvellinum í Cardiff og
verður forvitnilegt að sjá hvernig
liðum knattspyrnustjórar liðanna
munu stilla upp, sér í lagi Jose
Mourinho, stjóri Chelsea.
Fjórir nýir leikmenn verða lík-
lega í hópi Chelsea, þeir Andriy
Shevchenko, Michael Ballack,
John Obi Mikel og Salomon Kalou.
Liverpool stillti upp sínu sterkasta
liði gegn Maccabi Haifa í vikunni
en Rafael Benitez og hans menn
unnu leikinn eftir að hafa lent
marki undir. Tveir nýir liðsmenn,
þeir Craig Bellamy og Mark
Gonzalez, skoruðu mörk þeirra
rauðklæddu.
Sem fyrr er enska pressan hug-
fangin af Mourinho og erjum hans
við aðra knattspyrnustjóra í
úrvalsdeildinni. Hann sagði á
föstudag að vel gæti verið að Ben-
itez líkaði ekki of vel við sig. En
Benitez svaraði að bragði. „Ég
ætla ekki að eyða mínum tíma í
einhverja leiki,“ sagði hann.
Mourinho sagði fyrir stuttu að
aðeins Manchester United eða Ars-
enal gæti ógnað stöðu Chelsea á
toppnum. Sagði hann að Liverpool
beitti „neikvæðum aðferðum“ í
sínum leikstíl.
En hann viðurkenndi þó á föstu-
dag að Liverpool væri erfitt lið að
sigra. „Þess vegna höfum við í 12
leikjum aðeins unnið sex, gert 2-3
jafntefli og tapað öðru eins.“
Skilaboð Benitez voru skýr.
„Stuðningsmenn okkar hafa meiri
áhuga á því sem er að gerast á vell-
inum en einhverju sem ég og Jose
erum að tala um fyrir leikinn.“
Nokkrir úr báðum liðum eiga
við meiðsli að stríða. Hjá Liver-
pool eru Robbie Fowler og Fabio
Aurelio tæpir og þeir Jose Cole og
Petr Cech verða ekki með Chelsea.
Þá er deilan um William Gallas enn
óleyst og Claude Makelele er enn í
fríi eftir HM í Þýskalandi.
- esá
MICHAEL BALLACK Gekk í vor til liðs við
Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY
Chelsea og Liverpool mætast í hinum árlega leik um Samfélagsskjöldinn í dag:
Frumraun Ballack og Shevchenko
FÓTBOLTI Fjölnir komst upp í þriðja
sæti 1. deildar karla í gær með því
að vinna Þór Akureyri 3-0 á úti-
velli. Öll mörkin komu í seinni
hálfleiknum en það voru Gunnar
Örn Jónsson, Ómar Hákonarson
og Pétur Georg Markan sem þau
skoruðu.
Hart er barist um annað sætið í
deildinni en það gefur sæti í
Landsbankadeildinni á næsta ári.
Framarar eru búnir að stinga af
en Fjölnismenn berjast við HK og
Þrótt um annað sætið. HK er í því
sem stendur með 25 stig en Þrótt-
ur og Fjölnir eru með 24 stig en
síðastnefnda liðið hefur leikið leik
meira en hin tvö. - egm
Hart barist í 1. deildinni:
Mikilvægur
sigur Fjölnis
FÓTBOLTI Stilian Petrov skoraði
annað mark meistaranna í Glas-
gow Celtic þegar þeir unnu 2-0
sigur á St Mirren í skosku úrvals-
deildinni í gær. Talað er um að
þetta hafi jafnvel verið hans síð-
asta mark fyrir Celtic en hann vill
komast í ensku úrvalsdeildina og
þar er hann meðal annars á óska-
lista Aston Villa. Stephen
McManus skoraði hitt mark Celtic
í gær með skalla eftir hornspyrnu
Shunsuke Nakamura. - egm
Skoska úrvalsdeildin:
Síðasta mark
Stilian Petrov?
Í ENSKA BOLTANN? Petrov gæti hafa skorað
sitt síðasta mark fyrir Celtic. GETTY