Fréttablaðið - 13.08.2006, Page 89
13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR38
Hvað er að frétta? Það er nú eiginlega bara mest
lítið. Ég er að fara að byrja í Söngskólanum í haust
og er örugglega bara að fara að spila í vetur. Núna
er ég farin að hlakka mikið til að byrja í skólanum
og er komin með alveg nóg af sumarvinnunni.
Augnlitur: Ég er með blá augu.
Starf: Ég er að vinna á Jómfrúnni í sumar og er svo
bara söngvari.
Fjölskylduhagir: Fjölskyldan mín, eða einn hluti
af henni, var að flytja til Ísafjarðar sem eru dálítil
viðbrigði. Annars er ég bara að leigja með tveimur
vinum mínum, Gretti og Darra, sem gengur bara
ágætlega.
Hvaðan ertu? Ég er nú eiginlega alveg íslensk og
bara úr Reykjavík. Ég fæddist samt í Danmörku og
bjó þar alveg í sjö ár.
Ertu hjátrúarfull? Nei, ég myndi ekki segja það.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Það eru svo margir.
Ætli ég hafi ekki mest gaman að breskum gaman-
þáttum, eins og Fawlty Towers og Absolutely
Fabulous. Svo er Friends alltaf klassískt.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst alltaf gott að fá
lasagna með fersku salati.
Fallegasti staður: Ætli það sé ekki bara náttúran á
Íslandi og sveitin. Ég hef ekki komið það víða að
eitthvað sé búið að slá það út.
iPod eða geislaspilari: iPod.
Hvað er skemmtilegast? Vera í góðra vina hópi.
Hvað er leiðinlegast? Að lenda á öllum rauðum
ljósum í Reykjavík.
Helsti veikleiki: Súkkulaði.
Helsti kostur: Að vera dugleg og brosmild.
Helsta afrek: Ætli það sé ekki bara söngurinn.
Mestu vonbrigðin: Örugglega þegar ég tapaði
í einhverri söngvakeppni þegar ég var yngri. Ég
held að það hafi verið í fyrsta sinn sem ég tók
þátt í framhaldsskólasöngkeppninni og fékk ekki
verðlaun.
Hver er draumurinn? Bara að hlaupa
maraþon. Reyndar er ég ekki byrjuð
að æfa fyrir það, heldur bara rétt að
byrja að koma mér í form. En það er
aldrei að vita nema maður taki þetta
maraþon.
Hver er fyndastur/fyndnust?
Það eru svo margir grínarar.
Ætli það sé ekki bara Robin
Williams.
Hvað fer mest í taugarnar
á þér? Yfirborðsmennska.
Uppáhaldsbókin: Það er nú
alltaf að breytast. Síðast
las ég Brooklyn Follies eftir
Paul Auster, hún var ágæt.
Hvað er mikilvægast?
Það er góð heilsa, engin
spurning.
HIN HLIÐIN HRUND ÓSK ÁRNADÓTTIR SÖNGKONA
Leiðinlegt að lenda á rauðum ljósum
26.4.1985
Þú sendir SMS skeytið
BT FBT á númerið 1900.
Þú færð spurningu og þú svarar með því að senda
SMS skeytið BT A, B eða C á númerið 1900.
Þú gætir unnið!
SMSLEIKUR
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
Fullt af aukavinningum!
PANASONIC Myndvélar • GSM símar • PSP tölvur • SONY stafrænar myndavélar •
Medion borðatölvur • PS2 tölvur • DENVER DVD spilarar • Gjafabréf á Tónlist.is •
SONY MP3 spilarar • iPod • Fullt af af Pepsi, DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleira
Aðalvinningur C.
Dregin út 18.ágúst
32” MEDION LCD TV
Aðalvinningur A.
Dregin út 8.sept.
FujitsuSimens fartölva Aðalvinningur B.Dregin út 31.ágúst
MEDION tölva +
19” flatskjár
HRÓSIÐ
... fær Arnar Steinn Þorsteinsson
sem lauk BA-prófi í kínversku frá
þarlendum háskóla og fann
ástina í kaupbæti.
Sigurgeir Sigmundsson, gítarleik-
ari hinnar velþekktu rokkhljóm-
sveitar Start, hefur samið tónlist
við heimildarkvikmyndina Ekkert
mál sem segir sögu hins eina og
sanna Jóns Páls Sigmarssonar.
Sigurgeir var heima á hækjum
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum, því hann varð fyrir því óláni
að slíta hásinina fyrir mánuði síðan
þegar hann var að reyna að koma
geitungi fyrir kattarnef. „Ég og
Hjalti Úrsus, sem gerir myndina
ásamt Steingrími Þórðarsyni,
þekkjumst frá fornu fari og hann
bað mig um lag sem ég samdi í
minningu annars manns,“ útskýrir
Sigurgeir þegar hann er spurður
hvernig þetta hafi komið til. „Ég
vildi nú ekki gefa það frá mér en
bauðst til að setja mig í nýjar stell-
ingar og reyna aftur,“ bætir Sigur-
geir við og úr varð lagið Ekkert
mál, sem þegar er komið í spilun á
öllum betri útvarpsstöðvum lands-
ins.
Sigurgeir á heiðurinn af mest
allri tónlistinni sem heyrist í mynd-
inni en auk hennar heyrast vinsæl
lög frá níunda áratugnum þegar
Jón Páll var upp á sitt besta og hirti
hvern titilinn á fætur öðrum. „Þetta
er dramatísk tónlist með fiðlum í
hinni íslensku fimmund,“ útskýrir
Sigurgeir en þetta er í fyrsta skipti
sem hann reynir sig við slíka teg-
und tónlistar.
Sigurgeir segist hafa séð Jón Pál
fyrir sér sem lítinn strák sem óx og
óx og varð loks að trölli. „Jón Páll
var alveg ótrúlegur persónuleiki,“
segir Sigurgeir. „Hann var mikill og
góður maður og það hreinlega geisl-
aði af honum góðvildin,“ bætir hann
við en myndin verður frumsýnd
með viðhöfn í Smárabíói 7. sept-
ember að viðstöddum mörgum af
fremstu kraftajötnum heims, sem
flestir máttu lúta í lægra haldi fyrir
hinum íslenska víkingi.
Tónlist í minningu Jóns Páls
SIGURGEIR SIGMUNDSSON Semur tónlistina við heimildarkvikmyndina Ekkert mál sem
segir sögu Jóns Páls Sigmarssonar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Öllum að óvörum virðast deilur vera sprottnar upp í kringum alheimsfeg-
urðardrottninguna Unni Birnu Vilhjálms-
dóttur. Fréttablaðið sagði frá því fyrir
helgi að bloggsíðu hennar, unnurbirna.
blog.is, hefði verið lokað tímabundið. Allt
var það satt og rétt en samsæriskenning-
ar eru á lofti um ástæður lokunarinnar.
Sjálf sagði Unnur Birna á föstudag að
„óviðráðanlegar aðstæður“ hefðu verið
fyrir lokuninni, að allar færslur hennar
hefðu farið í rugl og mikil vinna hefði
farið í að lagfæra þær. Þeir sem til þekkja
í bloggheimum segja þessa skýringu vart
geta staðist.
Í netheimum ganga samsæriskenningarn-ar grimmt manna á milli. Flestir virðast
telja að einhver ummæli Unnar Birnu hafi
farið fyrir brjóstið á forsvarsmönnum Miss
World, sem virðast þá hafa íslenskumæl-
andi bandamenn á sínum snærum. Og
þeirri sögu fylgir að Unnur hafi þurft að
fara yfir allar færslur sínar og laga áður en
henni var leyft að byrja aftur að blogga.
Fréttablaðinu barst eftirfarandi
klausa af síðunni og var
hún sögð líkleg til að hafa
valdið deilum, þótt ekki sé
lagður á það dómur hér:
„Þegar keppnin var búin
og ljósmyndarar höfðu
lokið sér af var það dinner
til heiðurs „Miss World“
og nýkrýndri Miss Brazil
Mundo hjá pólska ræðis-
manninum í Brasilíu.
Hann bauð okkur til sín
þar sem eins og flestir
vita fer Miss World 2006
fram í Póllandi. Maturinn
þarna var reyndar ekki
upp á marga fiska
og desertinn leit út
nákvæmlega eins og ég
ímynda mér astraltertu-
gubb!“ - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tökur á kvikmyndinni Journey 3-D eru nú
hálfnaðar en eins og mörg-
um ætti að vera kunnugt
leikur Anita Briem aðalhlut-
verkið á móti stórleikar-
anum Brendan Fraser.
Að sögn Anitu ganga
tökurnar vel fyrir sig
og engin stóráföll
hafa átt sér stað
á tökustað.
Myndavélarnar
sem eru not-
aðar við gerð
myndarinnar
eru ákaflegar nýstárlegar og hafa aldrei
áður komið við sögu í kvikmyndagerð.
Kvikmyndatímaritið Empire var síðan
með ítarlega úttekt á frumsýningum
næsta árs og spáir það myndinni mikilli
velgengni, enda sé hér um frumkvöðla-
starf að ræða. Þá er einnig að finna
umfjöllun um kvikmyndina Flags of Our
Fathers sem frumsýnd verður þar vestra
í október. Þar er því spáð að myndin
komi sterklega til greina fyrir næstu
Óskarsverðlaun, en eins og svo margir
vita var Sandvík á Reykjanesi breytt í
japanska strönd. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins eru einhverjar þreifingar
um að fá hóp erlendra stjarna hingað til
lands í kringum frumsýningu myndar-
innar, en ekkert hefur fengið stað-
fest í þeim efnum. Hefð
er fyrir því í Hollywood
að stórstjörnur láti sjá
sig á þeim stöðum
þar sem tökur hafi
farið fram og því
skyldi enginn láta sér
bregða þótt tilkynnt yrði
um komu þeirra Clint
Eastwood og Ryan
Phillippe til Íslands
um jólin. - fgg
Bókaútgáfan Penguin hefur keypt
útgáfuréttinn á Avoid Us, enskri
útgáfu myndasögubókarinnar Forð-
ist okkur, eftir Hugleik Dagsson
myndlistarmann. Penguin er eitt
virtasta útgáfufyrirtæki heims og
Hugleikur er hæstánægður með
úgáfusamninginn, enda fáheyrt að
Penguin beri víurnar í íslenska höf-
unda.
„Þetta er rosalega fínt og er ekk-
ert smáræði. Þeir ætla að gefa bók-
ina út í Bretlandi strax í haust og
eru svo að tala um að gefa hana út í
fleiri enskumælandi löndum,
Bandaríkjunum, Suður-Afríku,
Ástralíu og Nýja-Sjálandi,“ segir
Hugleikur, sem hefur gælt við hug-
myndina um að koma kaldhæðnum
örmyndasögum sínum á framfæri
erlendis frá því hann vann að gerð
fyrstu bókarinnar Elskið okkur árið
2002.
„Mig langaði alltaf til þess að
koma einhverju af þessu til útlanda
og sá svo sem ekkert því til fyrir-
stöðu, enda er þetta ekkert endilega
lókal húmor.“
Hugleikur sá upphaflega um
útgáfu bóka sinna, heftaði þær og
límdi saman og seldi þær svo meðal
annars á götum Reykjavíkur, þar til
JPV-Útgáfa tók hann upp á sína
arma.
„Enska þýðingin sem við gáfum
út hafði aðeins verið fáanleg í bóka-
búðum hérna í fjóra daga þegar
Penguin falaðist eftir réttinum,“
segir Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri JPV. „Alex Clarke,
útgáfustjóri hjá Penguin, fékk bók-
ina hjá Breta sem keypti eintak og
tók með sér heim. Hann segir Avoid
Us vera algerlega ómótstæðilega og
skemmtilegustu bók sem hann hafi
lesið lengi. Bókin kemur út í Bret-
landi í haust í vandaðri innbundinni
útgáfu undir merki Michael Joseph,
sem er eitt af útgáfunöfnum
Penguin.“
Egill bætir því við að bókin verði
svo markaðssett víðar í framhald-
inu, enda hafi Penguin jafnframt
óskað eftir þýðingarrétti bókarinn-
ar um allan heim.“ Þetta lofar mjög
góðu þar sem söludeild þeirra á
erlendum réttindum er með þeim
sterkustu í veröldinni.“
Það liggur því beint við að spyrja
Hugleik hvort hann sé að verða ríkur
á myndasögum sínum? „Það verður
bara gaman ef maður fær peninga
fyrir þetta en ég segi nú bara alltaf
„show me the money“ og ætla ekki
að hoppa hæð mína fyrr en þeir eru
komnir og ég er orðinn ríkur.“ Hann
bætir því við að vissulega sé það
spennandi að sjá fram á að bókinni
verði dreift heimshorna á milli enda
hafi hann leyft sér að dreyma um
það. „Mig hefur alltaf langað til að ná
einhverjum heimsyfirráðum en ég
verð samt alltaf hálf hissa þegar
bókunum er vel tekið. Og þó, þegar
fyrsta bókin sem kom út gekk vel
varð ég fyrst hissa en fannst þetta
svo sjálfsagt mjög fljótlega. Nú
snýst þetta bara um heimsyfirráð
eða þunglyndi.“ thorarinn@frettabladid.is
HUGLEIKUR DAGSSON: GERIR SAMNING VIÐ ÚTGÁFURISANN PENGUIN
Heimsyfirráð eða þunglyndi
HUGLEIKUR DAGSSON Er hæstánægður með útgáfusamninginn við Penguin og stefnir á heims-
yfirráð. Hann er að leggja lokahönd á myndasöguna Eineygði kötturinn Kisi og hnakkarnir sem
mun koma út í haust um svipað leyti og Avoid Us fer á markað í Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL