Fréttablaðið - 14.08.2006, Page 2

Fréttablaðið - 14.08.2006, Page 2
2 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR Máttarstólpi Menningarnætur Menningarnótt 19. ágúst Tvö tónleikasvið! Öll dagskráin á www.landsbanki.is ALÞINGI Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Alþingishúsinu um klukkan tíu í gærmorgun eftir að boð bárust um reyk í húsinu. Um bilun í mótorstýringu var að ræða og hafði reykur komið úr henni og sett brunavarnarkerfi hússins af stað. Að sögn slökkvi- liðs var lítil hætta á ferðum, en öryggisvörður í þinghúsinu hafði þegar slegið út rafmagni á mótor- inn þegar slökkvilið kom á vett- vang. Kallað hafði verið eftir bílum úr Hafnarfirði en þeim var snúið við þegar ljóst varð að ekki væri hætta á ferðum. - öhö Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: Reykur í Alþingishúsinu VIÐ ALÞINGI Í GÆR Allt tiltækt lið var kallað á vettvang en lítil hætta reyndist vera á ferðum. FRÉTTABLAÐIÐ/NFS SPES Hjólreiðakapparnir þrír sem hafa hjólað kringum Ísland til að kynna starfsemi Spes-samtakanna luku ferð sinni í gær. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri tók á móti þeim við athöfn á Ingólfs- torgi. Af því tilefni tilkynnti Vil- hjálmur um rausnarlega gjöf til samtakanna. Allt fé sem Spes aflar rennur til að byggja barnaþorp fyrir for- eldralaus börn í Tógó í Vestur- Afríku. Drengirnir, Dagbjartur Ingvarsson, Gísli Hvanndal Jak- obsson og Guðjón Heiðar Valgarðs- son lögðu af stað hjólandi eftir hringveginum þann 18. júlí. - sþs Hjóluðu hringinn fyrir Spes: Luku hringferð á Ingólfstorgi MÓTTAKA Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri tók á móti hjólreiðaköppunum á Ingólfstorgi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FLUGSAMGÖNGUR Þriðjungi áætlunar- flugs frá Heathrow-flugvelli í Lond- on var aflýst á sunnudag vegna öngþveitis við öryggisleit. Hertar öryggiskröfur sem komið var á á fimmtudag, þegar upp komst um áætlun hryðjuverka- manna um að sprengja allt að tíu farþegaþotur í loft upp, eru enn í gildi í Bretlandi, en öryggisreglum á flugvöllum í Bandaríkjunum var breytt lítillega á sunnudag. Farþeg- ar í Bandaríkjunum mega nú hafa með sér fjórar únsur, rúm hundrað grömm, af lausasölulyfi í vökva- formi en verða að fara úr skónum í öryggisleit og láta skanna þá. John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur viðurkennt að nauðsynlegt sé að slaka á öryggis- kröfum, en fjöldi fólks hefur misst af flugi sínu vegna tafa við leit. „Núverandi fyrirkomulag er tíma- bundið,“ sagði Reid í gær. British Airways þurfti að aflýsa þrjátíu prósentum áætlunarflugs frá Heathrow á sunnudag, þar af um 100 flugum til Evrópu. Einnig var öllu innanlandsflugi fyrirtækis- ins frá Gatwick aflýst í gær. Rekstraraðili Heathrow hefur verið gagnrýndur fyrir að ráða ekki við nýjar kröfur. Forráðamenn Ryanair óskuðu eftir því við bresk yfirvöld að lögreglu- og herlið aðstoðaði við leit á flugvöllum. - rsg Hertar öryggiskröfur vegna hryðjuverkahættu valda töfum á flugvöllum: Hryðjuverkaógn lamar flug í London ÖNGÞVEITI Á HEATHROW Vegna tafa við öryggisleit hafa sumar flugvélar farið á loft án meirihluta farþega. LÖGREGLA Maður var fluttur á slysadeild í fyrrinótt með lausar framtennur eftir slagsmál í mið- borginni. Talsvert var um ölvun í miðbænum og þurfti lögreglan að hafa afskipti af nokkrum. Lögreglan var kölluð að Ingólfs- stræti eftir að maður fékk glas í höfuðið. Kastarinn var þó ágætis félagi fórnarlambsins og vildu þeir sem minnst gera úr málinu þegar lögreglu bar að. Þá var afar ölvaður maður fluttur á slysadeild eftir að hafa dottið á kant við Hallgrímskirkju og skorist bæði á enni og auga. - sh Ölvun í miðbænum í fyrrinótt: Lausar tennur eftir slagsmál SLYS Juan Gabriel Rios Kristjáns- son, hálfþrítugur efnafræðinemi, slasaðist á báðum höndum á sýn- ingu í tilefni Gleðigöngu samkyn- hneigðra á laugardaginn. Juan Gabriel tók þátt í einu atriðanna á sviðinu á Ingólfs- torgi, sýndi þar fimleika og stóð meðal annars á höndum. Undir- lagið á sviðinu var hins vegar svo hart að ekki vildi betur til en svo að hann slasaðist á báðum hönd- um og ber hann nú gifs á þeim báðum. „Ég veit ekki hvort ég er hand- leggsbrotinn í sjálfu sér,“ segir Juan Gabriel. „Þeir gátu ekki séð það á þessu stigi og svo ég væri ekki að gera mér meiri skaða var ég settur í gifs á báðum, ef ég skyldi vera brotinn.“ Juan Gabriel segir sviðsgólfið hafa verið hart. „Það er auðvitað miklu harðara en venjulegt keppnisgólf. Ég átti von á því að það væri hart en svo lenti ég mjög illa í miðri sýningu í ofanálag.“ Juan Gabriel hrökklaðist þó ekki sárþjáður af sviðinu eftir óhappið. „Nei nei, ég kláraði sýn- inguna. Svo fór ég bara á slysa- varðstofuna þegar sýningunni lauk,“ segir Juan Gabriel og gerir lítið úr meiðslunum. „Ég held að ég sé nú ekkert stórslasaður.“ - sh Juan Gabriel kláraði sýningu sína á Ingólfstorgi eftir að hann slasaðist á höndum: Í gifsi á báðum eftir Gay pride GAY PRIDE Hýrt var yfir mannskapnum á Ingólfstorgi á Laugardaginn þar sem hver lista- maðurinn á fætur öðrum tróð upp við mikinn fögnuð. HEILBRIGÐSMÁL Þrjú hundruð og níutíu manns bíða eftir þjónustu næringarsviðs á Reykjalundi, að sögn Hjördísar Jónsdóttur lækningaforstjóra. „Nýr ráðningasamningur við heilbrigðisráðuneytið mun fela í sér aukið fjármagn til sviðsins og í kjölfarið má búast við að biðlist- arnir styttist.“ Þeir 390 sem bíða teljast allir vera með lífshættulega offitu og hluti þess hóps hefur áhuga á að komast í offituaðgerð á Landspítalanum. Hjördís segir að eftir að byrjað var að gera offituaðgerðir á Land- spítalanum fyrir tveimur árum hafi fleiri sótt um að komast að á Reykjalundi en forsenda þess að komast í aðgerðina er að léttast um ákveðin kílóafjölda. Meðalbiðtími á næringarsviði Reykjalundar er tíu mánuðir. Þá bíða tæplega 300 manns eftir innlögn á gigtarsviðið á Reykja- lundi en Hjördís telur að hluti þeirra sem bíði hafi leitað sér með- ferðar annars staðar eins og til dæmis á Heilsuhælið í Hveragerði. Um 200 manns bíða eftir innlögn á verkjasviði en þar bíður fólk eftir að komast að í endurhæfingu eftir slys. Hjördís segir hluta þessa fólks óstarfhæft vegna verkja og að með- ferð geti verið forsenda þess að það komist út á vinnumarkaðinn. Alls bíða 110 manns eftir að komast að á geðsviði Reykjalundar en þar kemur fólk gjarnan í kjölfar innlagnar á geðdeild LSH til að fá frekari stuðning. Hjördís segir beiðnir inn á hinar ýmsu deildir Reykjalundar í nokkru jafnvægi og að reynt sé að for- gangsraða biðlistum hvers sviðs eftir þröfum. Hjördís segir mikilvægt að efla starfsemi sumra sviða á Reykja- lundi og nefnir sem dæmi tauga- svið en þar kemur fólk sem hlotið hefur taugaskaða í kjölfar sjúk- dóma eða slysa. „Þetta er hópur sem þarf að sinna betur en oft er hægt að bæta skaðann sem fólk hefur orðið fyrir með réttri endur- hæfingu.“ Hjördís segir mikilvægt að Reykjalundur sé í góðum samskipt- um við heilsugæslustöðvar um allt land og segir að hlutverk stofnun- arinnar eigi meðal annars að felast í miðlun upplýsinga. „Með þessu fyrirkomulagi er ekki nauðsynlegt að stækka Reykjalund heldur gegn- ir hann þá hlutverki sérfræðikjarna sem er í góðum tengslum við aðrar heilbrigðisstofnanir.“ hugrun@frettabladid.is Tæplega 400 manns lífshættulega feitir Alls bíða nú um þúsund manns þjónustu fjögurra sviða á Reykjalundi. Lengstur er biðlistinn á næringarsvið en þar bíða 390 manns og er biðtíminn tíu mánuð- ir. Aukið fjármagn heilbrigðisráðuneytisins mun stytta biðtímann. OFFITUAÐGERÐ Á LANDSPÍTALANUM Eftir að byrjað var að gera offituaðgerðir á Landspítal- anum fyrir tveimur árum hafa fleiri sótt um að komast að á Reykjalundi. SPURNING DAGSINS Sigurgeir, var þetta ekkert mál? „Fyrst var það auðvitað mikið mál, en svo þegar hugmyndin var komin var þetta ekkert mál.“ Sigurgeir Sigmundsson, gítarleikari hljóm- sveitarinnar Strax, var fenginn til að semja tónlistina fyrir kvikmyndina Ekkert mál, um kraftajötuninn Jón Pál Sigmarsson. Eitt lagið, sem ber einmitt nafnið Ekkert mál, er þegar komið í útvarpsspilun. LÖGREGLA Umferðarslys varð í Hval- fjarðargöngunum laust eftir klukk- an fimm síðdegis í gær. Engin slys urðu á fólki en umferð gekk afar hægt í gegnum göngin á tíma. Tvennt var í fólksbíl sem var ekið utan í vegg í göngunum norðan- verðum. Ekki er vitað hvað olli slys- inu. Fólkið var flutt til Reykjavíkur á slysadeild en ekkert reyndist ama að því. Göngunum var ekki lokað en umferð var stjórnað þannig að bílum á leið í suður og norður var hleypt í gegn til skiptis. Opnað var í báðar áttir skömmu eftir klukkan sjö í gærkvöldi. - sh Tvennt slapp ómeitt úr slysi: Óhapp í Hval- fjarðargöngum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.