Fréttablaðið - 14.08.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 14.08.2006, Síða 4
4 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR ���������������������������������� ������������� ������� ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� �������� ������� ���� ������� �� ������������� �������������� �������������� �������������� ����������������� ������������ ������������� ����������� ����������� �������������� ����������� ��������������� �������������� �������������� ��������������� ���� ���� � �� ����� ����������������������� ��� ��� ������������� ����������������� ������ ������������������� ���� ������������������ ����������� ������ �� �������� �������������� ���� ���������� �� ������������������� �� ��������������� ����� � ����������� � ���� ���������������� ���������������� ����������������������� ��������� ��������� ������������� ������ ����������������� ������������ ��� ���� ����� �� ������������ ���������� ���������������� ������� ������ �� �� ������������� ����� ��� ���������������� �������� ����������������� ��������� ����������������������������� ������������������������ �� ������ �� ���������� ������� �� ��� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� � �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� � � � �� � �� � � � � � GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 11.8.2006 Bandaríkjadalur 70,77 71,11 Sterlingspund 134,22 134,88 Evra 90,40 90,90 Dönsk króna 12,115 12,185 Norsk króna 11,371 11,437 Sænsk króna 9,825 9,883 Japanskt jen 0,6099 0,6135 SDR 105,09 105,71 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 125,1323 Gengisvísitala krónunnar LÖGREGLUFRÉTT Ökumaður og far- þegar bíls reyndu að stinga lögreglu af á hlaupum í gær en tókst ekki. Eltingaleikurinn hófst þegar lög- regla mældi bíl þeirra á níutíu og níu kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er sextíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður virti ekki stöðvunarmerki lögreglu heldur gaf í og reyndi að stinga lögreglu af. Hann missti stjórn á bílnum og hafnaði á staur. Eltingaleiknum lauk ekki því bílstjóri og farþegar tóku til fótana. Lögreglan reyndist sneggri og náði fólkinu fljótlega. Ekki leikur grunur á að bílstjóri hafi verið ölvaður. - sþs Hlaupið undan lögreglunni: Eltu lögbrjóta uppi á hlaupum LÍFEYRISMÁL Þrettán hundurð og tuttugu einstaklingar fengu bréf frá Tryggingastofnun ríkisins í síðasta mánuði vegna ófullnægj- andi framtalsskila. Í bréfinu eru viðtakendur hvattir til að koma framtalsskilum sínum í fullnægjandi horf. Ófullnægjandi framtalsskil geta haft áhrif á greiðslur til líf- eyrisþega, til dæmis með þeim hætti að ofgreiðslur verði dregnar af framtíðargreiðslum eða inn- heimtar með öðrum hætti. Þetta er í þriðja skipti sem bótaþegar Tryggingastofnunar fá bréf þar sem þeir eru minntir á mikilvægi fullnægjandi framtals- skila. - hs 1.320 fengu bréf frá TR: Minntir á framtalsskil LÍBANON, AP Ríkisstjórn Ísraels samþykkti einróma í gær að gera hlé á hernaðaraðgerðum í Líba- non. Vopnahléið tók gildi klukkan fimm að íslenskum tíma í nótt. Tillagan um vopnahlé kemur í kjölfar ályktunar sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á laugardaginn. Þar var þess krafist að öllum hernaðarátökum Í Líbanon yrði hætt tafarlaust. Ríkisstjórn Líbanons og leiðtogi Hizbollah- samtakanna höfðu áður samþykkt að heiðra þetta vopnahlé. Eftir að átökum lýkur halda fimmtán þúsund líbanskir her- menn ásamt svipuðum fjölda af friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna til suðurhluta Líbanons til að framfylgja vopnahléinu. Líkurnar á að átök haldi áfram þrátt fyrir vopnahlé eru taldar miklar, en ísraelski herinn ætlar ekki að fara fyrr en líbanski herinn og friðargæsluliðar koma. Einnig hefur áframhaldandi sókn Ísraela inn í Líbanon gert það að verkum að margir Hizbollah-liðar eru fastir á bak við hernaðarlínu Ísraela. Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sagði þessa samþykkt um vopnahlé tryggja að „Hizbollah hætti að vera til sem ríki innan ríkis“. „Ísraelski herinn verður dreg- inn til baka þegar líbanski herinn og friðargæsluliðar koma,“ sagði utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi Livni. Hann sagði ákvörðun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna góða fyrir Ísrael og að hún myndi breyta leikreglum í Líbanon á áhrifaríkan hátt. Leiðtogi Hizbollah-samtakanna, Hassan Nasrallah, hafði áður sagt að hans menn héldu áfram að berj- ast á meðan ísraelskur her sé í Líbanon. Hizbollah skutu í gær yfir tvö hundruð eldflaugum á Norður- Ísrael með þeim afleiðingum að einn ísraelskur borgari dó. Sama dag skutu ísraelskar þotur á búðir Hizbollah í suðurhluta Beirút þar sem að minnsta kosti einn lést. Þoturnar skutu einnig á bensín- stöðvar í suðurhluta borgarinnar Tyre. Líbönsk yfirvöld herma að tólf hafi fundist látnir eftir árás- ina. salvar@frettabladid.is Ísraelar samþykkja að gera hlé á hernaðaraðgerðum Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í gær tillögu um hlé á hernaðaraðgerðum í Líbanon. Vopnahléið tók gildi klukkan fimm í nótt að íslenskum tíma. Þrátt fyrir vopnahlé er talið líklegt að átök í Líbanon haldi áfram á næstunni. Sprenging í strætisvagni Sprenging varð um borð í strætisvagni í borginni Tiraspol í Trans-Dniester, Moldóvu, á sunnudag, en þetta er önnur slík árás í tvo mánuði. Einn lést og sjö slösuð- ust. Stjórnvöld Móldóvu hafa ásakað sjálfstæðissinna í Trans-Dniester fyrir að gera svæðið að gósenlandi smyglara og glæpahópa. MÓLDÓVA BJÖRGUN Tveir Danir, sem björgunar- sveitir leituðu í fyrrakvöld og -nótt, fundust kaldir og hraktir en heilir á húfi um klukkan hálf fimm í gær- morgun. Mennirnir hringdu í Neyðarlínuna um klukkan hálf tíu í fyrrakvöld og sögðust vera í sjálf- heldu í klettum í Kistufelli í Austur- byggð. Þeir höfðu þá verið á göngu frá því klukkan þrjú síðdegis. Mennirnir voru í símasambandi á meðan á leitinni stóð en þoka var á svæðinu sem gerði þeim erfitt fyrir að lýsa staðháttum. Sex björgunarsveitir tóku þátt í leitinni og þyrla og leitarhundar voru á leið á svæðið þegar menn- irnir fundust. - sh Tveggja Dana leitað: Fundust kaldir í sjálfheldu HÁTÍÐ Hólahátíð var haldin á Hólum um helgina. Hátíðin er haldin árlega en í ár var því fagnað sér- staklega að níu hundruð ár eru síðan stofnað var til biskupsstóls og skóla á Hólum. Geir H. Haarde forsætisráð- herra afhenti Hóladómkirkju bækur úr safni séra Ragnar Fjalars Lárussonar að gjöf, en þær eru prentaðar í Hólaprenti. Ríkisstjórn- in ákvað að gefa kirkjunni bækurn- ar í tilefni af afmælinu. Íslenska ríkið gekk í síðustu viku frá kaup- um á safninu af Herdísi Helgadótt- ur, ekkju séra Ragnars Fjalars, en í því eru rit sem prentuð voru hér á landi frá upphafi prentlistar á Hólum til loka 18. aldar. Séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubisk- up á Hólum, tók við gjöfinni. „Við fengum bæði gott veður og margt fólk. Meðal dagskrárliða voru handverkshátíð, pílagrímagöngur, hlaup, kirkjusamkoma og útigrill,“ segir Málfríður Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar. „Síðan vorum við með fallega guðsþjónustu þar sem erlendir biskupar gengu í skrúðgöngu ásamt rektorum og fulltrúum erlendra háskóla. Heildaryfirbragðið á hátíð- inni fannst mér mjög fágað. Það voru margir sem komu en hvergi mátti koma auga örtröð eða læti.“ - sþs Haldið upp á níu hundruð ára afmæli biskupsstóls og skóla á Hólum: Hóladómkirkju veittar gjafir SKRÚÐGANGA Framkvæmdastjóri hátíðar- innar segir hana hafa heppnast mjög vel í alla staði. Fjölmennt hafi verið í góðu veðri en hvorki örtröð né læti. FRÉTTABLAÐIÐ/NFS RÚSTIR Í BEIRÚT Fimmtán þúsund líbanskir hermenn ásamt svipuðum fjölda friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna verða sendir til suðurhluta Líbanons á næstunni. Þeirra hlutverk er að framfylgja vopnahléinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.