Fréttablaðið - 14.08.2006, Side 6
6 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
����������������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
LAUNAMÁL Byggingafyrirtækið Sól-
eyjabyggð ehf. hefur rift samningi
sínum við erlendar starfsmanna-
leigur sakir þess að þær fóru ekki
að íslenskum lögum og kjarasamn-
ingum við afgreiðslu launa til
tveggja litháískra starfsmanna sem
unnu fyrir Sóleyjabyggð. Fyrir-
tækið hefur gert nýja launasamn-
inga við erlenda starfsmenn fyrir-
tækisins.
Sóleyjabyggð greiddi starfs-
mannaleigunum 290 þúsund krónur
á mánuði vegna hvors starfsmanns-
ins, en leigurnar gáfu einungis upp
tuttugu þúsund á mánuði á hvern
starfsmann, en skráðu aðrar greiðsl-
ur sem dagpeninga. Félagsdómur
úrskurðaði að Sóleyjabyggð yrði
ekki sektuð vegna málsins. -sgj
Fyrirtækið Sóleyjabyggð:
Semja á ný við
erlent starfsfólk
FRAMKVÆMDIR Ný stúka á Laugar-
dalsvelli verður vígð á morgun á
leik karlalandsliða Íslendinga og
Spánverja í knattspyrnu.
Framkvæmdir hafa staðið yfir
við völlinn þorra ársins en á morg-
un verður setið í nýrri stúku í
fyrsta sinn. Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, segir unnið að því
hörðum höndum að gera sætin til-
búin fyrir leikinn á morgun. „Við
vissum alltaf að framkvæmdin
myndi ekki klárast fyrr en í lok
þessa árs. Það sem við stefndum
að var að hafa sætin tilbúin fyrir
þennan Spánarleik og það er verið
að berjast í því núna að klára það.“
Eggert segir að líklega verði lokið
við að gera sætin tilbúin í kvöld.
Framkvæmdin felur í sér að
gamla stúkan hefur verið stækkuð
til norðurs og suðurs og sætum á
vellinum þannig fjölgað í tíu þús-
und, auk þess sem verið er að reisa
fræðslumiðstöð vestan gömlu
stúkunnar. „Við vonumst til að
stúkan verði alveg tilbúin fyrir
leik við Danmörku í Evrópukeppn-
inni 6. september, sem er fyrsti
leikur í alvöru keppni með þessari
nýju stúku,“ segir Eggert. Miða-
sala á leikinn gegn Spánverjum
gengur vel og í gær voru minna en
þúsund miðar óseldir í sæti, af um
tíu þúsundum, auk þess sem boðið
er upp á miða í stæði. - sh
Sæti nýrrar stúku á Laugardalsvelli verða tilbúin fyrir leikinn gegn Spánverjum:
Nýja stúkan verður vígð á morgun
SÆTIN FEST Með nýju stúkunni fjölgar sætum á vellinum í tíu þúsund. Búist er við að
stúkan verði endanlega tilbúin í byrjun september. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
STJÓRNSÝSLA Undirskriftasöfnun
hefur verið hrundið af stað að
frumkvæði starfsfólks leikskóla
gegn ákvörðun meirihluta í borgar-
stjórn Reykjavíkur um að kljúfa
menntaráð í tvennt og stofna sér-
stakt leikskólaráð.
Stjórn fyrstu
deildar Félags
leikskólakennara
stendur að baki
undirskriftar-
söfnuninni. Sig-
ríður Marteins-
dóttir, formaður
deildarinnar, seg-
ist ekki hafa nein-
ar tölur um fjölda
undirskrifta enn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar í
menntaráði vilja að áformum um
klofningu menntaráðs verði
frestað um að minnsta kosti ár svo
hægt sé að fá frekari reynslu á þá
nýju skipan sem sameinað mennta-
ráð borgarinnar er, að sögn Stef-
áns Jóns Hafstein, borgarfulltrúa
Samfylkingar.
„Tillaga þess efnis var lögð
fram á fundi í júní og var þá
frestað af meirihlutanum. Síðan
hefur hún ekkert verið rædd,“
segir Stefán. „Málið kemur til ann-
arrar umræðu í borgarráði á
fimmtudaginn og þá býst ég fast-
lega við því að fulltrúar Samfylk-
ingar muni endurflytja tillöguna
sem við fluttum í menntaráði.“
Opinn fundur verður haldinn í
Ráðhúsinu á þriðjudag þar sem
fulltrúar flokkanna sitja fyrir
svörum um þetta mál. - sdg / sþs
Meirihluti borgarráðs vill skipta menntaráði í tvennt og stofna sérstakt leikskólaráð:
Undirskriftasöfnun hafin
LEIKSKÓLI Opinn fundur verður haldinn í Ráðhúsinu á þriðjudag þar sem fulltrúar flokk-
anna sitja fyrir svörum varðandi fyrirhugaða klofningu menntaráðs.
FJÁRMÁL Neytendasamtökunum
berast reglulega kvartanir vegna
yfirdráttargjalda banka á Íslandi.
Gjöldin, sem nefnast FIT-gjöld,
leggjast ofan á debetkortafærslu
ef ekki var innistæða fyrir henni.
Fari eigandi
reiknings eina til
fimm þúsund
krónur umfram
heimild á debet-
reikningi sínum
þarf hann að
borga 750 krónur
í refsigjald.
Kostnaðurinn fer
hækkandi eftir
því sem fjárhæðin umfram heim-
ild hækkar en gjaldskrár bank-
anna eru nánast eins hvað varðar
FIT-gjöld.
„Bankarnir hafa komist upp
með þetta en þetta er ekkert annað
en okur,“ segir Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna. „Oft á tíðum er verið að fara
óverulega fram yfir, neytendum
er gert að borga vexti og svo
kemur þetta refsigjald sem er
gjörsamlega út úr öllu korti að
okkar mati. Mér finnst afskaplega
léttvægt þegar maður fær svör í
þá veru að þetta sé til að kenna
neytendum að haga sér betur. Ég
held að það geri þetta enginn að
gamni sínu.“
Hann segir Neytendasamtökin
hafa fengið fleiri kvartanir um
þetta áður en nú. „Ætli almenning-
ur sé ekki farinn að líta á þetta
sem eitthvað hundsbit sem hann
verður að sætta sig við.“
„Þetta er refsigjald fyrir það
að draga reikninga án heimildar,
sem er í sjálfu sér flokkað eins og
fjárdráttur. Þetta er sama aðgerð-
in og að draga sér fé sem maður á
ekki. Því eru þessi viðurlög sett
hjá bankanum,“ segir Einar
Georgsson hjá viðskiptabanka-
sviði KB banka.
Engar reglur gilda um gjald-
skrár bankanna varðandi þessi
gjöld, aðrar en þær sem þeir setja
sjálfir. Einnig gefa bankarnir ekki
upp heildartekjur þeirra vegna
FIT-gjalda.
Fulltrúar frá Fjármálaeftirlit-
inu og Neytendastofu segja hvor-
uga stofnunina hafa kannað þessi
gjöld sérstaklega en berist kvart-
anir séu þær teknar til greina.
Breskir bankar hafa verið í
þarlendum fréttum undanfarið
vegna ásakana um ólögleg yfir-
dráttargjöld. Samkvæmt blaðinu
The Sunday Times hafa fjölmarg-
ir krafist þess að bankarnir endur-
greiði þeim þau yfirdráttargjöld
sem þeir hafi greitt undanfarin ár.
Forsvarsmenn banka hafi brugðið
á það ráð að semja við einstakl-
inga í stað þess að láta reyna á
málið fyrir rétti.
salvar@frettabladid.is
Segir bankana okra
á viðskiptavinum
Neytendasamtökin fá reglulega kvartanir vegna yfirdráttargjalda bankanna.
Formaður samtakanna kallar gjöldin hreint okur. Engar reglur gilda um hversu
mikið bankar mega rukka þá sem fara umfram heimild á debetreikningi.
JÓHANNES
GUNNARSSON
AFGREIÐSLA Fari viðskiptavinur eina til fimm þúsund krónur umfram heimild á debetkorti
borgar hann 750 krónur í refsigjald. Formaður Neytendasamtakanna segir gjaldið algjör-
lega út úr öllu korti.
PEKING, AP Dánartala þeirra sem
létust eftir að fellibylurinn Saomai
skall á Kína á fimmtudag hækkaði
á sunnudag upp í 134 og er 163
saknað. Sum fórnarlambanna lét-
ust þegar skýli sem þau höfðu leit-
að í hrundu.
Strandborgin Wenzhou varð
verst úti í fellibylnum þar sem að
minnsta kosti 81 lést. Fimmtíu þús-
und hús eyðilögðust og þúsund
fiskibátar sukku í óveðrinu. Hafa
hjálparstarfsmenn dreift hjálpar-
gögnum til þúsunda fólks í strand-
svæðunum Zhejiang og Fujian.
Fellibylurinn Saomai er öflugasti
bylur sem skollið hefur á Kína í
meira en fimma áratugi. - rsg
Fellibylurinn Saomai:
Dánartala
hækkar
SAOMAI Öldruð kona í bænum Tuoxi í Suð-
austur-Kína horfir á leifar af húsi sínu.
HEILBRIGÐISMÁL Nýjar alnæmis-
rannsóknir leiddu í ljós að lyfja-
blanda með fjórum HIV-lyfjum er
engu betri en þriggja lyfja blanda
sem er algengasta meðferð við
sjúkdómnum. Þrátt fyrir að rann-
sóknirnar auki ekki batavonir hafa
niðurstöðurnar vakið ánægju bæði
talsmanna sjúklinga og heilbrigðis-
stofnana, en kostnaður við að bæta
fjórða lyfinu í lyfjablöndu alnæmis-
sjúklinga myndi hækka kostnað
við lyfjagjöfina umtalsvert.
Rannsóknin sýndi að blanda
fjögurra lyfja, þar sem lyfinu Aba-
cavir var bætt við, var ekki betri
en blanda þriggja lyfja við að
minnka magn veirunnar í blóði
sjúklinga og jók ekki fjölda
CD4-fruma sem berjast við sýk-
ingar. „Þetta staðfestir styrkleika
meðferðarinnar sem tíðkast í
dag,“ sagði dr. Dan Kuritzkes, einn
aðstandanna rannsóknarinnar.
Fjallað verður um rannsóknina í
Journal of the American Medical
Association sem út kemur á mið-
vikudag. - rsg
Rannsóknir á alnæmi:
Ný lyfjablanda
skilar engu
UMFERÐ Undirritaður hefur verið
samningur milli Umferðarstofu og
fjögurra grunnskóla um eflingu
umferðarfræðslu í grunnskólum
landsins.
Grundaskóli á Akranesi mun
stýra verkefninu en einn skóli úr
hverjum landsfjórðungi mun síðan
sjá um að miðla upplýsingum til
annarra skóla á sínu svæði. Náið
samstarf verður á milli skólanna
fjögurra um gerð fræðsluefnis og
skipulagningu verkefnisins. Með
þessari samvinnu er stefnt að því
að efla til muna umferðarfræðslu
til ungmenna. - öhö
Umferðarstofa:
Efld fræðsla í
grunnskólum
STEFÁN JÓN
HAFSTEIN
KJÖRKASSINN
Fagnaðir þú á Gay pride
hátíðinni?
Já 23%
Nei 77%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að lengja kennaranám?
Segðu skoðun þína á visir.is