Fréttablaðið - 14.08.2006, Page 8

Fréttablaðið - 14.08.2006, Page 8
8 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Skráning og nánari upplýsingar á marathon.is. MARAÞON REYKJAVÍKUR GLITNIS 19. ÁGÚST -NÝJUNG- LATABÆJARMARAÞON FYRIR YNGSTU BÖRNIN, 1,5 KM MENNTAMÁL Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir löngu tímabært að lengja nám grunn- og leikskólakennara til samræmis við það sem gengur og gerist í Evrópu. Þar er lengd kenn- aranáms grunnskólakennara fjög- ur til fimm ár í stað þriggja hér. „Umræðan um lengingu kennara- náms er ekki ný af nálinni og árið 1988 voru samþykkt lög á Alþingi um lengingu náms- ins. Í kjölfarið var hafinn undirbúningur að nýrri kennsluskrá en nokkrum árum síðar var lenging námsins numin úr lögum.“ Ólafur segir ljóst að staða og virðing kennara haldist í hendur við menntun þeirra. Ólafur er ánægður með nýútkomna skýrslu OECD og segir hana draga fram mikilvægi menntamála. „Með skýrslunni er verið að hvetja okkur til að gera enn betur og hún styður ekki aðeins mikilvægi háskólamenntunar heldur einnig annarra skólastiga. Við sem vinn- um að menntamálum vitum að það er ekki aðalatriðið að fjölga kenn- urum heldur að auka gæði þeirra.“ En í kjölfar útkomu skýrslunnar benti menntamálaráðuneytið á að fjöldi nemenda á hvern kennara hafi lækkað frá árinu 1998. Frá haustinu 2007 verður boðið upp á fimm ára kennaranám til meistaragráðu við KHÍ og í könn- un sem gerð var meðal nemenda töldu sextíu prósent þeirra líklegt eða mjög líklegt að þeir myndu halda áfram í meistaranám. Ólafur segir að í kjölfar leng- ingar kennaranáms í Finnlandi hafi árangur nemenda batnað og sýna samanburðarrannsóknir nú að árangur þeirra í ýmsum náms- greinum, eins og stærðfræði og náttúrufræði, er framúrskarandi. Árangur íslenskra nemenda hefur hins vegar verið í meðallagi. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, telur líklegt að lenging náms grunn- skólakennara skili sér í hærri launum. Þessu til stuðnings nefnir hann menntun og launakjör menntaskólakennara, sem hafa lengra nám að baki og hærri laun en grunnskólakennarar. Eiríkur segir einsetningu skól- anna skýringu þess að nemendum á hvern kennara fækkaði á árabil- inu 1998 til 2005. „Fyrir þann tíma kenndi sami kennarinn jafnvel tveimur bekkjardeildum, sem þýddi að hver kennari skilaði meiri kennslu en nú og því reikn- uðust fleiri nemendur á hvern kennara.“ hugrun@frettabladid.is Rektor segir löngu tíma- bært að lengja kennaranám Ólafur Proppé, rektor KHÍ, segir löngu tímabært að lengja kennaranámið og segir skýrslu OECD draga fram mikil- vægi menntamála. Meirihluti nemenda við KHÍ hefur hug á því að taka meistaragráðu við skólann að ári. ÓLAFUR PROPPÉ SKÓLASTARF Í HRAFNAGILSSKÓLA Tímabært er að lengja nám grunn- og leikskólakennara hérlendis til samræmis við það sem gengur og gerist í Evrópu. DANMÖRK Danska varðskipið Vædderen, sem breytt hefur verið í vísindaleiðangursskip, lagði fyrir helgi upp frá Kaupmannahöfn í hnattsiglingarleiðangurinn Galathea 3. Í stað þess að sigla beinustu leið til Þórshafnar í Færeyjum, sem átti að verða fyrsti leggur ferðarinnar, kemur skipið við í slipp í Karlskrona í Suður-Svíþjóð, þar sem við prófanir í vikunni kom í ljós að endurnýja þyrfti pakkningu á einu skrúfudrifskafti skipsins. Frá þessu var greint á fréttavef Politiken. Þótt Vædderen hafi oft haft viðkomu í Reykjavíkurhöfn á liðn- um árum siglir það hjá garði að þessu sinni, fer beina leið frá Fær- eyjum að Grænlandsströndum. Leiðangrinum á að ljúka í apríl í vor. - aa Galathea-3-leiðangurinn: Vædderen lagður af stað VARÐSKIPIÐ VÆDDEREN Hélt fyrir helgi af stað í vísindaferð umhverfis jörðina. SUND Listamaðurinn og sundkapp- inn Benedikt Lafleur þurfti að hætta sundi í öðrum áfanga hring- sunds síns um Reykjavík í gær. Að sögn hans var myrkur og skyggni farið að hamla för hans og björgunarsveitarmenn gátu ekki tryggt öryggi hans lengur. Benedikt heldur til Englands til æfinga á þriðjudaginn fyrir þrek- sund þvert yfir Ermarsundið. „Sundin tvö í gær veittu mér ómetanlega reynslu og í raun nýja þekkingu sem mun reynast mér dýrmæt í Ermarsundinu. Ég fer því reynslunni ríkari og mun sátt- ari en áður út í slaginn við Ermar- sundið,“ segir hann. - sþs Hringsund um Reykjavík: Hætti sundinu vegna myrkurs EFNAHAGUR Sú staðreynd að tekju- dreifing er að minnka er ekki endi- lega merki um það að pottur sé brotinn í skattkerfi landsins, segir Sveinn Agnarsson, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun. Hann segir svokallaðan Gini- stuðul, sem notaður er til að bera saman ójöfnuð í tekjum, vandmeð- farinn. „Í sumum tilfellum getur skattkerfið verið byggt upp þannig að það eigi að hafa mikil áhrif á tekjudreifingu en tekjumismunur- inn samkvæmt Gini-stuðlinum getur samt verið að aukast,“ segir Sveinn. Hann segir það staðreynd að jaðarskattur á tekjuhæstu ein- staklinga landsins hafi hækkað undanfarin ár með afnámi hátekju- skattsins og lækkun skatthlutfalls. „Það er hins vegar ekki svo að eina ástæðan fyrir því að tekjustuðl- arnir eru að mæla aukinn ójöfnuð sé að skattkerfið hafi verið að breytast, heldur ekki síður hitt að tekjur manna hafa verið að vaxa svona gríðarlega.“ Sveinn segir að í hinu alþjóð- lega umhverfi sé orðið erfitt fyrir ríki að hafa skattheimtu á hreyf- anlega skattstofna ólíka því sem gerist annars staðar. Þetta eigi til dæmis við um fjármagnstekju- skatt. Þá skapist sú hætta að skatt- greiðendur færi sig til. - sh Hagfræðingur segir minni tekjudreifingu ekki endilega merki um gallað skattkerfi: Gini-stuðull vandmeðfarinn SVEINN AGNARSSON Sveinn segir að ríki vari sig á því að hafa skattheimtu af fjár- magnstekjum ólíka því sem gerist annars staðar. Á lyfjum í árekstri Tveir fólks- bílar lentu í árekstri á Bústaðavegi í fyrrakvöld. Ökumaður annars bílsins er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum einhvers konar lyfja. Bílstjórarnir voru báðir einir á ferð og þurfti annar þeirra að leita á slysadeild vegna eymsla. LÖGREGLUFRÉTTIR Seldi hass Mál manns á þrítugsaldri var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Hann var ákærður fyrir að hafa keypt 15 grömm af hassi og selt átta þeirra fyrir um sjö þúsund krónur. Hann er einnig ákærður fyrir vörslu á téðu hassi. DÓMSMÁL VEISTU SVARIÐ 1 Af hvaða tegund eru hinar nýju flugvélar Flugfélags Íslands? 2 Hvað bíða margir eftir að komast í hjartaþræðingu hjá Landspítal- anum? 3 Hvaða markvörð hefur enska liðið Manchester City keypt? SVÖRIN ERU Á BLS. 38 FLUGÖRYGGI Félag íslenskra flug- umferðarstjóra spyr flugmála- stjóra hvort flugumferðarstjóri sem telji sig tímabundið óhæfan til að sinna starfi sínu eigi samt að mæta til vinnu frekar en að til- kynna forföll. Þessi spurning kemur fram í bréfi sem félagið hefur sent Þorsteini Pálssyni flug- málastjóra. Einnig er Þorsteinn spurður að því hvort hann telji það ásættan- legt og jafnvel æskileg vinnu- brögð að stjórnendur íslenskra flugfélaga færu að fordæmi Flug- málastjórnar og þvinguðu flug- menn sína veika til að fljúga með farþega. Þar sé vísað til þess þegar veikur flugumferðarstjóri var lát- inn vinna við flugumferðarstjórn hinn 31. júlí síðastliðinn. Farið er fram á að flugmála- stjóri lýsi því yfir að flugumferðar- stjóri verði ekki aftur látinn mæta til vinnu telji hann sig óhæfan til að starfa vegna veikinda. Undir bréfið skrifa Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, og Stefán B. Mikaelsson ritari. „Ég hef fengið þetta bréf og er að undirbúa svar mitt við því,“ segir Þorsteinn. „Það verður sent Félagi flugumferðarstjóra á næstu dögum.“ Hann vildi ekki segja á hvaða veg svar hans yrði. - sþs Félag íslenskra flugumferðarstjóra sendir flugmálastjóra bréf: Krefjast svara um flugöryggi FLUGUMFERÐASTJÓRAR Félag íslenskra flugumferðarstjóra fer fram á að flugmálastjóri lýsi því yfir að flugumferðarstjóri verði ekki aftur látinn mæta til vinnu telji hann sig óhæfan til að starfa vegna veikinda.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.