Fréttablaðið - 14.08.2006, Síða 11
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
LI
3
36
98
0
8/
20
06
EKKI BORGA MEIRA!
Gömlu tryggingafélögin eru alltaf að kvarta yfir því
að viðskiptavinir þeirra borgi of lítið fyrir bílatryggingar.
Hjá Elísabetu borgar fólk minna
en samt er Elísabet hamingjusöm.
Á elisabet.is getur þú reiknað dæmið þitt.
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.
betri kjör á bílatryggingum og bílalánum
SJÓVÁ SJÓVÁ-STRAX VÍS VÖRÐUR TM
ÍSLANDSTRYGGING
Skyldutrygging 75.248 70.386 74.777 70.057 73.968 51.240 47.748*
Skyldutrygging+Kaskó 108.633 95.597 90.583 96.591 89.473 71.820
Upplýsingar um verð fengust af vefsíðum fyrirtækjanna og með tölvupósti frá þjónustufulltrúum þeirra þann 11.8. 2006.
*Ódýrasta skyldutryggingin án kaskótryggingar 47.748 kr. á ári.
um 50 þ. kr. sjálfsábyrgð
m/framrúðutryggingu
Rúmlega 36 þúsund króna verðmunur!
- 2002 árgerð - 990.000 kr. - 1800 vél -
MÁNUDAGUR 14. ágúst 2006 13
MENNING Ákveðið hefur verið að
sýna skipamódel Gríms Karlsson-
ar, skipstjóra og módelsmiðar frá
Reykjanesbæ, af hundrað ára
gömlum norskum síldveiðiskipum
víðs vegar um Noreg. Verkefnið
er fjármagnað af Glitni og ýmsum
aðilum í Noregi.
„Norðmenn eiga engin módel
af skipum frá upphafi úthafssigl-
inga þeirra um 1880,“ segir Árni
Johnsen, sem aðstoðaði við að
koma sýningunni á fót. „Þessi skip
komu síldarævintýrinu við Ísland
af stað. Norðmenn voru yfir sig
hrifnir af því að til væru módel af
skipum frá þessu tímabili og með
þessu kynna Íslendingar þennan
hluta af atvinnusögu sinni og
Norðmanna.“ - sgj
100 ára gömul síldveiðiskip:
Módel Gríms
sýnd í Noregi
VERKEFNINU FAGNAÐ Árni Johnsen, Inge
Halstensen, formaður norskra útvegs-
bænda, Grímur Karlsson og Frank Reite,
bankastjóri Glitnis í Noregi.
LEIKHÚS Endurbætur á Þjóðleik-
húsinu að utanverðu eru í fullum
gangi. Að sögn Tinnu Gunnlaugs-
dóttur þjóðleikhússtjóra er stefnt
að því að utanhússviðgerðum ljúki
næsta sumar og haust.
„Þetta er einn af þremur áföng-
um í viðgerðum á Þjóðleikhúsinu.
Fyrsta áfanganum, endurbótum á
áhorfendasvæðinu, er lokið. Annar
áfanginn eru þessar utanhússvið-
gerðir en þriðji áfanginn er endur-
nýjun á tækjabúnaði fyrir aftan
tjald og viðbygging til austurs.“
Hún segir leikárið hefjast 28.
ágúst og þá verði hlýtt og bjart í
húsinu þótt það væri helst til hrá-
slagalegt að utan. - sþs
Endurbætur á Þjóðleikhúsinu:
Annar áfangi í
fullum gangi
STILLANSAR Þjóðleikhússtjóri segir húsið
verða hlýtt og bjart að innan þegar nýtt
leikár hefjist í haust. Þó verði það heldur
hráslagalegt að utan.
BANDARÍKIN, AP Réttarhöld standa
ný yfir í máli bandaríska leyni-
þjónustumannsins David Passaro,
sem sakaður er um að hafa barið
afganskan fanga til dauða. Her-
maður sem var með honum í klef-
anum þegar atvikið átti sér stað
lýsti því í réttarsal að Passaro
hefði orðið bálreiður við fangann.
„Það var ljóst að fanginn yrði
enginn brunnur upplýsinga,“ sagði
hermaðurinn í vitnastúkunni, en
markmiðið með yfirheyrslu fang-
ans var að afla upplýsinga um
sprengjuvörpuárás á herbúðir
Bandaríkjahers í Afganistan.
Passaro gæti hlotið 40 ára fang-
elsisvist, verði hann sakfelldur. - sgj
Fyrrverandi CIA-maður:
Varð sótreiður
við fangann
PÓLLAND-ÞÝSKALAND, AP Jaroslaw
Kaczynski, forsætisráðherra Pól-
lands, lét svo um mælt á fimmtu-
dag að sýning sem opnuð var í
Berlín í síðustu viku um brott-
flæmingu Þjóðverja frá Austur-
Evrópu eftir síðari heimsstyrjöld
væri „mjög vond, mjög sorgleg“ og
hún ylli sér hugarangri.
Að sýningunni „Þvingaðar leið-
ir“ stendur Samband brottflæmdra
(Bund der Vertriebenen) í Þýska-
landi, en það eru hagsmunasamtök
Þjóðverja sem flæmdir voru á
brott frá heimkynnum sínum í
fyrrverandi austurhéruðum Þýska-
lands og fleiri svæðum í Austur-
Evrópu, í kjölfar ósigurs Þýska-
lands nasista í heimsstyrjöldinni
síðari. Stærsti hópur brottflæmdra
Þjóðverja bjó fyrir stríð í héruðum
sem nú eru hluti af Póllandi, en
landamæri þess voru færð alllangt
til vesturs eftir stríðið, samkvæmt
ákvörðun sigurveldanna.
Pólskir ráðamenn eru ósáttir
við sýninguna, þar sem þeir telja
hana bjóða þeirri hættu heim að
fjallað sé á of einhliða hátt um
þjáningar Þjóðverja af völdum
stríðsins. Aðstandendur sýningar-
innar segja slíkar áhyggjur
ástæðulausar og vonast til að hún
verði hluti af varanlegu safni um
þvingaða þjóðflutninga fyrr og
síðar. - aa MÓTMÆLI Þýskir vinstriróttæklingar mótmæla sýningunni í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sýning í Berlín um brottflæmingu Þjóðverja frá A-Evrópu eftir stríð:
Póllandsstjórn lýsir yfir áhyggjum
Skilorð fyrir dópvörslu Hálfþrítugur
maður hefur verið dæmdur í 45 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu á 300
grömmum af kannabisefnum. Ákæran
var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir helgi og þar sem játning lá fyrir var
málinu lokið með dómi.
DÓMSMÁL