Fréttablaðið - 14.08.2006, Page 16
12 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR „Það hefur því miður borið á því að ágreiningur í þingflokknum hefur ratað á torg fjölmiðla. Þetta tel ég vera hluta af vanda flokksins og þessu verður að linna.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segist með framboði
sínu til formanns Framsóknarflokksins vera að bjóða flokks-
mönnum upp á kynslóðaskipti í formennsku flokksins. Hún
segist jafnframt hafa beðið með að tilkynna um framboð sitt
til að skapa ró um val fulltrúa á flokksþingið.
Kominn tími á kynslóðaskipti
Um næstu helgi mun á níunda
hundrað fulltrúa á flokksþingi
Framsóknarflokksins kjósa sér
nýja forystu til næstu fimm ára.
Ljóst er að í fyrsta sinn í sögu
flokksins verður kjörið milli
tveggja eða fleiri frambjóðenda til
allra æðstu embætta flokksins. Nú
þegar eru tveir frambjóðendur
komnir fram til embætta ritara og
varaformanns og þrír gefa kost á
sér til formennsku.
Beið eftir fulltrúavalinu
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráð-
herra og ritari Framsóknarflokks-
ins, tilkynnti um framboð sitt til for-
manns á fimmtudag og hún segir
ýmsar ástæður liggja að baki þeirri
ákvörðun sinni. „Það var ekki auð-
velt fyrir mig að gera það upp við
mig að gefa kost á mér, meðal ann-
ars vegna þess að ég tel að það sé
mjög mikið ábyrgðarhlutverk að
taka að sér formennsku í stjórn-
málaflokki og þá ekki bara fyrir við-
komandi einstakling heldur líka
fyrir fjölskyldu hans og nánustu
aðstandendur.“
Hún segist hafa beðið með það að
ásettu ráði að tilkynna um framboð
sitt og óttast ekki að hafa gert það of
seint. „Ég er búin að starfa svo lengi
í flokknum og hef unnið með öllum
stofnunum hans þannig að flokks-
menn þekkja mig og vita fyrir hvað
ég stend. Ég vildi íhuga vandlega
hvað væri flokknum fyrir bestu
þannig að ég tók mér góðan tíma til
að ræða við mitt fólk. Svo vildi ég
líka gefa flokksmönnum tækifæri
til að velja fulltrúana á flokksþingið
í ró og næði, það hefur verið tals-
verður óróleiki í flokknum í sumar
og til að slá á þann óróleika ákvað ég
að bíða með að tilkynna um ákvörð-
un mína þangað til valið á fulltúun-
um hefði farið fram.“
Kynslóðaskipti æskileg
Siv tekur undir það að brotthvarf
Halldórs Ásgrímssonar úr forystu
Framsóknarflokksins marki tíma-
mót í sögu flokksins, en sér það um
leið sem tækifæri til breytinga. „Við
það að Halldór fer frá eftir langan
og farsælan stjórnmálaferil skapast
algjörlega ný staða innan flokksins
og niðurstaða mín byggist meðal
annars á því að ég tel æskilegt að nú
verði kynslóðaskipti í formennsk-
unni. Ég tel að minnsta kosti eðlilegt
að gefa flokksmönnum kost á slíkum
kynslóðaskiptum.“
Í þessu sambandi vill Siv þó
benda á að hún hafi sextán ára
reynslu í stjórnmálum, í sveitar-
stjórn og sem alþingismaður og ráð-
herra og búi því að mikilli reynslu.
„Þessi tími hefur veitt mér dýr-
mæta sýn inn í þjóðlífið, stjórnmála-
lífið og lífið sjálft almennt, þannig
að ég er algjörlega reiðubúin að
taka að mér það ábyrgðarhlutverk
að veita Framsóknarflokknum for-
ystu. Mitt mat er að það sé nauðsyn-
legt fyrir flokkinn að fara gegnum
lýðræðislega fomannskosningu og
ég vil gefa flokknum tækifæri á að
nýta krafta mína til að leiða flokk-
inn ef hann vill. Ef hann vill það
ekki styð ég þá forystu sem kosin
verður og held mínum störfum
áfram sem heilbrigðisráðherra út
þetta kjörtímabil, býð mig svo aftur
fram til þings og tekst á við kosn-
ingabáráttuna næsta vor með mínu
fólki.“
Ágreiningur borinn á torg
Ef tekið er mið af því fylgi sem
Framsóknarflokkurinn mælist með
í könnunum þessar vikurnar og
undanfarin misseri er ljóst að nýs
formanns flokksins bíður vanda-
samt verkefni. Að mati Sivjar eru
ýmsar ástæður fyrir því að fylgi
flokksins er ekki meira en kannan-
ir sýna. „Í fyrsta lagi hefur okkur
ekki tekist eins vel og ég hefði vilj-
að að útskýra hvað við höfum stað-
ið að góðum málum fyrir samfélag-
ið og við þurfum að gera betur í
þeim efnum. Við þurfum líka að
efla okkur í því að skýra grunngildi
Framsóknarflokksins fyrir fólki,
þann félagslega jöfnuð sem við
stöndum fyrir með ábyrgð einstakl-
ingsins og frelsi hans til athafna.
Að við viljum halda áfram að
byggja hér upp velferðarsamfélag
þar sem fólk nýtur öryggis ef það
veikist, missir atvinnu eða á við
félagslegan vanda að stríða.“
Þriðja skýring Sivjar á því að
fylgi við Framsóknarflokkinn hefur
dalað snertir þingflokkinn. „Það
hefur því miður borið á því innan
okkar raða í þingflokknum þegar við
höfum ekki verið sammála um hlut-
ina, að þessi ágreiningur hefur
stundum ratað á torg fjölmiðla. Þetta
tel ég vera hluta af vanda flokksins
og þessu verður að linna að mínu
mati. Og ég hef enga trú á öðru en að
svo verði, því ef við þéttum ekki rað-
irnar að þessu leyti verður erfiðar
fyrir okkur að sækja fram. Fylgi
flokksins er mun lægra en við vilj-
um sjá það, þannig að það er mjög
brýnt að flokkurinn styrki sig svo að
hann hafi áfram afl til áhrifa.“
Ekki kosning milli fylkinga
Margir gera því skóna að framboðin
til forystustarfa í flokknum beri það
með sér að tvær fylkingar séu að
takast á þar sem annars vegar séu
Jón Sigurðsson, Jónína Bjartmarz
og Birkir Jón Jónsson og hins vegar
Siv, Guðni Ágústsson og Haukur
Logi Karlsson. Siv tekur ekki undir
þetta og segist ekki í bandalagi við
einn né neinn og óttast heldur ekki
að kosningarnar muni draga dilk á
eftir sér innan flokksins. „Ég er
þess fullviss að hvernig sem þetta
fer munum við kjósa harðsnúna,
duglega og öfluga forystusveit. Fari
svo að ég fái umboð flokksmanna til
að gegna stöðu formanns mun ég
leggja kapp á að reyna að efla flokk-
inn og leiða hann fram til sigurs.
Fari hins vegar svo að mér verði
ekki falið þetta verkefni mun ég
samt styðja þá forystu sem verður
kjörin.“
Hún segir jafnframt að sér finn-
ist ólíklegt að hún verði hluti af
þeirri forystu en vill samt ekki úti-
loka neitt í því sambandi. „Ég mun
taka því sem að höndum ber. Það
eru í raun allir í kjöri á flokksþing-
inu til þeirra embætta sem kosið er
um. En ég er ekki að bjóða mig fram
til embættis varaformanns og ekki
til embættis ritara, ég er að bjóða
mig fram til formennsku.“
Leynileg kosning
Aðspurð segir Siv að sér finnist
tæpast viðeigandi að einstaka þing-
menn flokksins séu að tjá sig opin-
berlega um hvernig þeir vilja sjá
val flokksmanna á flokksþinginu.
„Mér finnst það óæskilegt og þing-
menn eiga ekki að gefa upp línur í
þessum efnum, þetta á að vera val
þingfulltrúa sjálfra. Þetta er leyni-
leg kosning og því verður sérhver
flokksmaður á þinginu að gera það
upp við hug sinn og hjarta sem ein-
staklingur hvað það er sem hann
telur best fyrir flokkinn. Viljum við
kynslóðaskipti eða ekki, viljum við
þessa samsetningu á forystu eða
hina. Ég veit að þetta val verður
erfitt, það eru öflugir einstaklingar
í framboði til allra embætta og það
er algjörlega ný staða innan flokks-
ins að kosið sé um öll æðstu emb-
ætti hans.“
Hún segist þó ekki verða vör við
annað en að fólk sé mjög þakklátt
fyrir að fá að kjósa. „Fólk vill kjósa,
það vill fá að leggja sitt lóð á vogar-
skálarnar og hafa bein áhrif á það
hvernig forystusveit flokksins
verður skipuð til framtíðar, og ég
skynja mikla bjartsýni og tilhlökk-
un meðal flokksmanna“ segir Siv
Friðleifsdóttir.
FRÉTTAVIÐTAL
SIGURÐUR ÞÓR SALVARSSON
ssal@frettabladid.is
R
V
62
12
A
Á tilboði í ágúst 2006Öflugar gólfþvottavélar
frá TASKI
499.836 kr.
TASKI Swingo 750 B
Lítil og nett, en þó afkastamikil vél.
Raunhæf afköst 750m2/klst
738.807 kr.
TASKI Swingo 1250 B
Hentar meðalstórum
fyrirtækjum og stofnunum.
Raunhæf afköst 1250m2/klst
414.943 kr.
TASKI Swingo 450
Einstakleg lipur vél sem hentar
vel þar sem er þröngt.
Raunhæf afköst 450m2/klst
Gleðilegar ræstingar
– og farsælan vinnudag!
TASKI 750 B og 1250 B bjóðast
einnig á rekstarleigu.
Hafðu samband við rágjafa
RV og kynntu þér málið.