Fréttablaðið - 14.08.2006, Side 18

Fréttablaðið - 14.08.2006, Side 18
 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR18 hagur heimilanna 795 KR. 939 KR. 19 97 20 01 20 06 505 KR. Þú sendir SMS skeytið BT FBT á númerið 1900. Þú færð spurningu og þú svarar með því að senda SMS skeytið BT A, B eða C á númerið 1900. Þú gætir unnið! SMSLEIKUR *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu. Fullt af aukavinningum! PANASONIC Myndvélar • GSM símar • PSP tölvur • SONY stafrænar myndavélar • Medion borðatölvur • PS2 tölvur • DENVER DVD spilarar • Gjafabréf á Tónlist.is • SONY MP3 spilarar • iPod • Fullt af af Pepsi, DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleira Aðalvinningur C. Dregin út 18.ágúst 32” MEDION LCD TV Aðalvinningur A. Dregin út 8.sept. FujitsuSimens fartölva Aðalvinningur B.Dregin út 31.ágúst MEDION tölva + 19” flatskjár Mörgum vex í augum að kaupa sér íhluti eða uppfærslur á heimils- eða fartölvum sínum, sakir þess hve margt stendur þeim til boða. Það er tímafrekt að flakka á milli verslananna og bera saman verð, gæði og kraft búnaðarins. Fljótlegast er að skoða heimasíður helstu tölvufyrirtækjanna, en á þeim má nær undantekningalaust finna skýrar verðskrár og yfirlit yfir eiginleika búnaðarins. Þá er auðvelt að gera samanburð, panta svo vöruna á netinu eða fara í búðina ef maður hefur fleiri spurningar. ■ Verslun og þjónusta Verð á tölvuvörum má auðveldlega kanna Fartölva MSI M645-2 Fyrirtækin Og Vodafone og Hive hafa bæði auglýst að þau bjóði upp á ókeypis sím- töl milli heimasíma, kaupi viðskiptavinurinn annars konar þjónustu frá fyrirtækinu. Hive býður upp á þessa þjónustu kaupi viðskiptavinurinn einnig ADSL-tengingu frá fyrirtækinu, en sú ódýrasta kostar 3.990 krónur á mánuði. Og Vodafone býður upp á ókeypis símtöl milli heimasíma ef viðskiptavinurinn kaupir ADSL-tengingu og er með skráðan GSM-síma í áskrift hjá fyrirtækinu, en sá pakki kostar í ódýrasta tilfelli 4.640 krón- ur. Auk þess taka bæði fyrirtækin mánaðargjald upp á 1.390 krónur fyrir heimasíma. Því er varla hægt að segja að fyrirtækin bjóði upp á ókeypis símtöl milli heimasíma, það er einfaldlega rukkað á annan hátt fyrir þau. ■ Verslun og þjónusta Varla ókeypis að hringja milli heimasíma Haustið er tími borgarferð- anna og þetta árið bjóða ferðaskrifstofur upp á fjölda helgarferða á spennandi áfangastaði. Borgir Austur- Evrópu virðast vera vinsæl- astar í dag. Í ár verða ferðir til Zagreb, Ljubljana, Varsjár, Búdapest, Prag, Krakár, Tallinn og Vilníus í beinu leiguflugi. Hægt er að fá þriggja daga ferðir til þessara borga frá fjörutíu þúsundum miðað við mann í tvíbýli en eftir gæðum gistingar og landi hækkar verðið. Fyrir þá sem vilja heldur gamlar perlur Vestur-Evrópu er einnig boðið upp á hefðbundnar helgarferðir til staða á borð við Róm og Kaup- mannahöfn, auk borga í Bandaríkj- unum. Úrval Útsýn býður upp á fjölda borgarferða til gamalla og nýrra áfangastaða. „Það sem er nýtt er ferð til Zagreb í Króatíu og til Lúx- emborgar í aðventuferð í nóvem- ber. Einnig erum við með ferðir til Varsjár í september,“ segir Guð- rún Sigurgeirsdóttir framleiðslu- stjóri. Einnig eru ferðir til Dublin, Edinborgar, Madríd og Barcelona, auk Ljubljana, höfuðborgar Sló- veníu. Hjá Plúsferðum er einnig boðið upp á ferðir til Zagreb, Lúxem- borgar og Varsjár og hefur selst vel í þær. „Þetta er tíminn, þegar kemur fram yfir verslunarmanna- helgi vill fólk fara í borgarferð. Íslendingar eru mjög nýjunga- gjarnir og vilja prófa eitthvað nýtt,“ segir Laufey Jóhannsdóttir, sölustjóri Plúsferða. Að auki er boðið upp á ferðir til Dublin, Madrídar og Rómar. Þetta árið eru Heimsferðir með borgarferðir til Barcelona, Prag, Budapest, Krakár í Póllandi og Ljubljana, en Heimsferðir bættu við aukaferð til Ljubljana vegna mikillar eftirspurnar. Terra Nova hefur ekki boðið upp á borgarferð- ir áður en nú er ferðaskrifstofan með ferðir á nýjar slóðir. „Við verð- um með ferðir til Tallinn í Eistlandi og Vilníus í Litháen í október og nóvember en það eru ofboðslega fallegar borgir. Einnig verður ein ferð til Sofiu í Búlgaríu,“ segir Bjarni Ingólfsson, markaðsstjóri Terra Nova. Icelandair er með borgarferðir á flesta áfangastaði í Bandaríkjun- um og Evrópu. Síðustu ár hafa verslunarferðir til Minneapolis verið mjög vinsælar á haustin. Expresss ferðir, dótturfyrirtæki Iceland Express, býður upp á borgarferðir til áfangastaða Ice- land Express, það er að segja Lond- on, Kaupmannahafnar og Berlín, í haust. Ferðaskrifstofan býður upp á flug og gistingu en getur einnig skipulagt tónleikaferðir og aðrar menningarferðir eftir óskum fólks. „Svo voru julefrukost-ferðir til Kaupmannahafnar mjög vinsælar í fyrra, þær munu verða í nóvem- ber og desember og við setjum það í sölu innan skammas. Þetta er helgarferð þar sem fólk fer eitt kvöld á veitingastað í julefrukost- kvöldverð,“ segir Bragi Hinrik Magnússon sölustjóri. „Svo munum við bjóða upp á hversdagsferðir svokallaðar en þá er farið í miðri viku, t.d. á þriðjudegi til fimmtu- dags á um þrjátíu þúsund með öllu,“ segir Bragi. Hægt verður að bóka ferðirnar á Expressferdir.is. Mikið úrval borgarferða Ferðaskrifstofa Borg Verð Fjöldi gistinátta Úrval Útsýn Zagreb 61.240 3 Úrval Útsýn Ljubljana 65.460 3 Plúsferðir Zagreb 59.640 3 Plúsferðir Varsjá 45.640 3 Plúsferðir Madríd 58.500 3 Heimsferðir Kraká 37.930 3 Heimsferðir Ljubljana 54.990 4 Terra Nova Tallinn 36.734 3 Terra Nova Sofia 59.826 5 Icelandair New York 63.700 3 Icelandair Minneapolis 49.900 3 Icelandair París 39.900 2 BORGARFERÐIR Höfuðborg Slóveníu, Ljubljana, er vinsæll áfangastaður í haust en Heimsferðir og Úrval Útsýn eru með beint leiguflug til borgarinnar. Fréttablaðið fór á stúfana á dögunum og lét kanna verð á þremur algengum en ólíkum vörum í heimsborgunum London, Kaupmannahöfn og Reykjavík. London 672 kr. 1.662.000 kr. 94 kr. Kaupmannahöfn 969 kr. 2.960.000 kr. 113 kr. Reykjavík 800 kr. 2.520.000 kr. 120 kr. VERÐ Í ÞREMUR BORGUM Öll verð eru með virðisaukaskatti og miðast við gengi gjaldmiðla þegar þau voru könnuð. ■ Að þessu sinni var kannað verð á bíómiða, nýrri Volkswagen bjöllu og stóru Snickers-súkkulaði. Verðþróun > Verðþróun á kílói af ýsu árin 1997 til 2006 Heimild: Hagstofa Íslands VERÐDÆMI Verð á mann í tvíbýli, flug, gisting og flugvallarskattar. Gæði hótela eru mismunandi. „Það er engin sérstök regla á því hvað ég fæ mér á mánudögum eða öðrum dögum en eitt er alveg á hreinu. Ég er ekki grænmet- isæta,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, betur þekktur sem Óli Palli á Rás tvö. „Ég fer ekki á grænmetisveitingahús og elda ekki grænmetis- rétti. Fyrir það fyrsta finnst mér þessi matur svo ljótur. Þetta er bara ógirnilegt. Það getur verið að ég sé svona seinþroska og taki mig til á fimmtudagsaldri og helli mér í þetta. Maður veit jú auðvitað að þetta er voða hollt og auðvitað reynir maður að borða grænmeti með öðru,“ segir Óli Palli. Hann viðurkennir að hafa verið matvandur þegar hann var lítil. „Þegar ég var strákur borð- aði ég eiginlega bara kjöt, þurrt kjöt.“ En þegar Óli vill elda einhverja hollustu verður fiskur oft fyrir valinu. „Ég er mjög hrifinn af laxi og yfirleitt öllum fiski. Ég mæli með soðnum laxi með smjöri og kartöflum, tómötum og gúrku. Það var stundum boðið upp á þetta heima og mér finnst þetta alltaf afskaplega gott,“ segir Ólafur Páll. Innihald: lax eða silungur kartöflur smjörklípa tómatar ein gúrka Ólafur Páll steikir fiskinn, sýður kartöflurnar og hefur smjör með. „Svo má líka nota silung. Ég sker bara gúrkurnar og tómatana og hef með, er ekkert að sulla þessu saman. Þetta er alveg stórkostlegur matur og kalt vatn er punkturinn yfir i-ið,“ segir Óli Palli. MATUR Á MÁNUDEGI: ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON Á RÁS TVÖ Fiskur í stað grænmetisrétta

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.