Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.08.2006, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 14.08.2006, Qupperneq 22
[ ] Ráð gegn mosa MOSAVÖXTUR ER EITT AF ÞVÍ SEM SETUR LJÓTAN SVIP Á GRASFLATIR HÉR- LENDIS. Á VEF HÚSASMIÐJ- UNNAR ER TALIN UPP NOKKUR GAGNLEG RÁÐ UM HVERNIG LOSNA MEGI VIÐ HANN. Ef hávaxin tré eru til staðar er gott að grisja þau til að hleypa birtu að grasflötinni. Svo er hægt að fjarlægja mosann með sérstökum eyði og/eða tætara. Flötina má líka gata og setja 3-5 cm lag af sandi yfir til að þurrka hana, þar sem mosi þrífst best í rökum og jafnframt loftlausum jarð- vegi. Þá er tilvalið að bera áburðarkalk á grasflötina, mánaðarlega á sumrin en skammturinn er minnkaður í hvert skipti. Stundum er nauðsynlegt að leggja dren- rör í lóðina til að minnka rakann í jarðveginum. Hjónin Rögnvaldur Finnboga- son og Hulda Ingvarsdóttir hlutu á dögunum umhverfis- viðurkenningu bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir fallegan garð. Í umsögn bæjarstjórnar kemur fram að Rögnvaldur og Hulda hafi fengið viðurkenninguna fyrir snyrtilegan garð, einkum og sér í lagi skemmtilega klipptan trjá- gróður, en garðurinn er umvafinn trjám og blómum af ýmsum gerð- um og stærðum svo minnir helst á ævintýraveröld. Er þetta í þriðja sinn sem hjón- unum hlotnast viðurkenning af þessu tagi, þá fyrstu fengu þau árið 1991 og svo 1996, enda hafa þau lagt sig fram við að gera garð- inn eins fallegan og unnt er síðan þau fluttu í Garðaflöt 17 árið 1971. Rögnvaldur segir það ekki hafa gengið átakalaust fyrir sig að koma garðinum í núverandi horf. „Við gróðursettum ótrúlegt magn plantna í garðinum í upphafi, örugglega eitthvað um 180 stykki, og gættum þess að stúka garðinn til að hafa gott skjól,“ útskýrir hann. „Svo eyddum við nokkrum tíma í að færa plönturnar til að finna handa þeim hentug svæði.“ Að sögn Rögnvaldar er garður- inn nú gjörbreyttur frá því að hann hlaut fyrstu viðurkenninguna, svo ekki sé nú talað um frá þeim tíma sem þau Hulda tóku við húsinu. „Ég hef alla tíð hirt vel um garð- inn, gætt þess að garðflöturinn sé í góðu ástandi og allir kantar snyrti- lega skornir,“ segir hann. Hann segist líka alltaf hafa verið eins og montinn hani með garðinn burtséð frá öllum viðurkenningum, þótt hann sé bæjarstjórn auðvitað þakklátur fyrir að hafa sýnt þeim hjónunum þennan heiður. Aðspurður segist Rögnvaldur hafa verið áhugasamur um gróður og fallegt umhverfi frá fyrstu tíð. „Ætli ég sé bara ekki svona rómantískur í mér,“ segir hann og hlær. „Ég tel mig hafa þurft að hafa eitthvað fyrir stafni fyrir utan vinnu og garðstörfin urðu fyrir valinu. Þótt stundum sé erfitt að eiga við gróðurinn hef ég feng- ið heilmikla útrás í þessu. Það er alveg einstök upplifun að sjá gróður verða til.“ Með hliðsjón af þeim árangri sem Rögnvaldur hefur náð liggur beint við að spyrja hvort hann lumi á einhverjum góðum ráðum til að deila með lesendum í lokin. „Auðvitað er það undir hverjum og einum komið hvað hann vill verja miklum tíma í garðinum,“ svarar hann að bragði. „Reynslan hefur hins vegar kennt mér að garður verður ekki fallegur nema sá sem um hann hirðir hafi ein- lægan áhuga fyrir garðstörfum.“ roald@frettabladid.is Þessi fallegu bleiku og hvítu blóm eru einær og kallast hádegisblóm en þau opna sig ekki nema í sólarljósi. Þau geta staðið alveg fram á haust. Verðlaunagarður í Garðabæ Rögnvaldur fékk aðstoð við að klippa grenitrén í keilur. Fyrir framan þau hefur loðvíðir verið gróðursettur ásamt kylfurót- um, bláklukkum og morgunfrúm. Rögnvaldur og Hulda ákváðu að reisa gosbrunn á einu horninu til að skapa betri heildar- mynd, en hann hlóð Þröstur Hlöðversson. Rögnvaldi finnst róandi að sitja á bekk í garðin- um og hlusta á niðinn frá gosbrunninum. Til vinstri sjást fallega fjólublá blóm, sem hann segir svipa til blágresis. Hér sést svokallaður gljámispill, sem flokkast undir það að vera skriðplanta en Rögnvaldur kaus að reisa upp. Þess má geta að gljámispill er gjarnan notaður í skrautgarða hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Horft yfir ávöxt erfiðisins. Rögnvaldur hefur verið einkar duglegur við að koma garðinum í núrverandi mynd. Nú fer hver að verða síðastur til að dytta að húsinu fyrir haustið, svo sem að mála grindverkið, laga stéttina eða gera við þakið. Mosatætari. ���������������� �������������������� ��������������������������� ��������������������� ������������������������������ ������������������������� ������������������������ ������������������������ ����������������������� ���������������������� ���������������������� ��������������� ��������� www.svefn.is ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.