Fréttablaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 24
 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR Í FLESTUM TILFELLUM ÞARF AÐ FELA RUSLATUNNUR AF ÞEIRRI EINFÖLDU ÁSTÆÐU AÐ ÞÆR ERU FULLAR AF RUSLI. ÞÆR ÞURFA HINS VEGAR EKKI AÐ VERA NEITT RUSL SJÁLFAR. Hægt er að fá mjög fallegar ruslatunnur sem ekki þarf að fela inni í skáp eða undir borði. Þær geta jafnvel verið litsterkar og kallað á athygli. Það er algjör óþarfi að einskorða sig við plastdraslið sem fyllir allar skrifstofur því góð hönnun og gæða eiga alltaf vel við. Í Ormsson fást ruslatunnur frá Brabantia en á þeim bænum er mikið lagt upp úr stílhreinni hönnun í bland við notagildi. Föturnar eru úr stáli sem bæði er hægt að fá matt og glansandi. Ekki skemmir að um þessar mundir er 20 prósenta afsláttur af öllum vörum frá Brabantia. Viljir þú lífga upp á umhverfið með skærum litum eru ruslatunnarnar í Húsgagnahöllinni svarið. Þær fást í tveimur stærðum en þær minni kosta 2.480 krónur en risinn er á 16.990 krónur. Mikið úrval af ruslatunnum er að finna í Byggt og Búið. Föturnar eru í öllum stærðum og gerðum og kosta þær á bilinu 2.499 til 22.500 krónur og þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. - tg Skrautsteypa kostar það sama og venjulegar hellur en sparar erfiði síðar meir. Skrautsteypa hefur verið til í yfir 40 ár. Við fyrstu sýn líkist hún venjulegum hellum en þegar betur er að gáð sést að um er að ræða heilsteypta og styrkta plötu sem er stimpluð eða mynstruð. Þannig fæst sama útlit og ef um hellur væri að ræða, án vandræð- anna sem geta skapast við arfa og annan gróður sem treður sér upp á milli. „Settur er litur í steypuna, til að lita hana í mismunandi blæ- brigðum, og hún stimpluð með gúmmímottum til að búa til munst- ur. Með því að þrífa hana og lakka annað hvert ár er hægt að halda henni eins og nýrri,“ segir Daði Hafþórsson, verslunarstjóri Mest á Malarhöfða. „Þetta er í sjálfu sér ekki nýtt á Íslandi, byrjaði fyrir svona tuttugu árum,“ segir Daði. „Lagn- ing steypunnar er háð veðri og þeir sem byrjuðu með þetta hafa kannski gefist upp vegna þess. Við erum búin að vera með skraut- steypu í rúm fimm ár en það er gríðarlega mikið um þetta í Bandaríkjunum og reyndar Evr- ópu líka.“ Þar sem skrautsteypa er heil- steypt plata er miklu einfaldara að þrífa hana en hellur. Hún er auk þess járnbundin og lita- og munsturmöguleikarnir eru nán- ast óendanlegir. Fyrir utan stöðl- uð mynstur er jafnvel hægt að fá sitt eigið mynstur í steypuna. „Ef fólk er með hugmynd og veit hvað það vill er það útfært í samvinnu við verktaka.“ Daði segir skrautsteypu vera gríðarlega vinsæla og notkun hennar hafi færst mjög í aukana síðustu þrjú til fjögur ár. Fólk sé orðið þreytt á gróðrinum sem vex á milli venjulegra hella og skraut- steypa kosti í raun það sama. „Það þarf að jarðvegsskipta eins og fyrir hellur. Efniskostnaðurinn er mjög svipaður og vinnukostnað- urinn sá sami og ef fenginn væri verktaki við hellulögnina,“ segir Daði. Sé undirbúningur góður er hægt að leggja steypuna á dag- stund. Hún þornar svo og einni viku síðar er hún þrifin og lökkuð. einareli@frettabladid.is Skrautsteypa sparar arfatínslu Daði með sýnishorn af skrautsteypunni í baksýn. Hægt er að fá hana í öllum hugsanlegum litum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Skrautsteypa mynstursteypa steypstöðin flísar Allt í rusli alls staðar Reykjavíkurborg er búin að setja upp nýjar ruslatunnur í hjarta borgarinnar. Þær eru mun fallegri en grænu blikkdoll- urnar hangandi utan á ljósastaurum. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA Þessar tunnur eru hrein listaverk. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR Byggt og Búið býður margar tegundir tunna. FRÉTTABLAÐ- IÐ/HRÖNN Orms- son selur ekki bara rafmagns- tæki. Lægri kyndi- kostnaður ÍSLENSK HÚS ERU VENJULEGA YFIR KJÖRHITA. Á vefsíðunni orkusetur.is má finna fjölbreyttan fróðleik sem lítur að orkumálum. Til dæmis eru þar gagnleg sparnaðarráð fyrir almenna orkunotendur, svo sem varðandi húskyndingu. Algengur hiti í húsum hér á landi er 23-25°C, en rannsóknir sýna að 20°C innihiti er kjörhiti með tilliti til loftgæða. Hafa ber í huga að hitakostnaður hækkar um 7% ef hiti er hækkaður um eina gráðu. Í svefnherbergjum má jafnvel lækka hitann allt niður í 18°C og í geymslum og öðrum herbergjum sem ekki eru notuð að staðaldri mætti hann jafnvel vera 15°C. Hitakerfi lagt í gólf. Samkvæmt grein á orkusetur.is má spara 7% hitakostn- aðar með því að viðhalda kjörhita í húsum hérlendis. EKKERT GERVIGRAS! NÝTT OG BETRA GRAS... WWW.GRAS.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.