Fréttablaðið - 14.08.2006, Side 61
MÁNUDAGUR 14. ágúst 2006 21
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
Theódór Elmar Bjarnason, atvinnumaður í knattspyrnu, segir frá Glasgow í
nýjum haust- og vetrarbæklingi Icelandair, Mín borg. Við bjóðum úrval pakka-
ferða, helgarferða til 19 áfangastaða austan hafs og vestan, golfferða og
sérferða. Kynnið ykkur málið og takið síðan ákvörðun. Ævintýrin liggja í loftinu.
FLUG OG GISTING Í 2 NÆTUR FRÁ 29.900 KR.
„ÞAÐ ER ALLTAF GAMAN
AÐ KÍKJA Á ASHTON LANE,
EINA FRÆGUSTU
PÖBBAGÖTU EVRÓPU“
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
37
1
5
0
6
/2
0
0
6
+ Bókaðu á www.icelandair.is
G
LA
S
G
O
W
MÍN
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting á Jurys Inn Hotel*** í tvíbýli í 2 nætur, morgunverður og þjónustugjald.
Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna greiðslu upp í flugfargjald með áætlunarflugi Icelandair. Þetta flug gefur 3.000 - 7.600 Vildarpunkta.
Í stuttu máli er svarið við ofan-
greindri spurningu: Ekki eins og
gert er hér á Íslandi. Fram á það
var ljóslega sýnt á málþingi sem
Bændasamtökin og fleiri héldu
nýlega. Einn framsögumanna, dr.
Charles Arntzen, lýsti í fyrirlestri
sínum hvernig rækta bæri erfða-
breyttar lyfjaplöntur. Í verkefni
því sem hann vinnur að í Banda-
ríkjunum (BNA) eru lyfjaprótein
ræktuð í tóbaksplöntum - afurð
sem hvorki er notuð til manneldis
né fóðrunar búfjár. Með því er
sneitt hjá mengun matvæla eða
fóðurs fyrir slysni. Lyfjaplöntur
hans eru ræktaðar innandyra í
stórum gróðurhúsum þannig að
engir plöntuhlutar geti sloppið út í
umhverfið. Til frekara öryggis
eru gróðurhúsin, sem notuð eru til
ræktunar á eb-tóbaksplöntunum,
og verksmiðjan, sem vinnur úr
þeim lyfjaprótein, samliggjandi
byggingar. Ræktun og uppskera
er á höndum sérþjálfaðra tækni-
manna alklæddum varnarflíkum.
Erfðabreyttar lyfjaplöntur í Bret-
landi
Erfðabreyttar lyfjaplöntur eru
ekki ræktaðar utandyra í Bret-
landi, en í undirbúningi er verk-
efni þar sem framleiða á eb-lyfja-
prótein úr tóbaksplöntum í
loftþéttum há-öryggis gróðurhús-
um (sn. Unigro húsum) sem hvert
um sig kostar tæpar 5 milljónir
króna. Húsin eru byggð úr tveggja
laga plasti og skaðist annað lagið
flæðir formaldehýð um allt húsið
og kemur með því í veg fyrir að
það sem í því er sleppi útfyrir.
Prófessor Julian Ma sem verkinu
stýrir viðurkennir nauðsyn þess
að rækta eb-lyfjaplöntur í lokuðu
rými vegna þess að hver einasti
hluti slíkra plantna getur valdið
mengun umhverfisins.
Hvernig eru lyfjaplöntur ræktaðar
á Íslandi?
Umhverfisstofnun hefur veitt fyr-
irtækinu ORF Líftækni leyfi til
ræktunar á erfðabreyttu lyfja-
byggi á allt að 30 ha lands í eigu
ríkisins í Gunnarsholti. Ólíklegt er
að sambærileg leyfi verði veitt
annars staðar í heiminum þar sem
í þeim er ekki tekið fram hvort þau
taki til tilrauna eða markaðssetn-
ingar - en rétt er að taka fram að
30 ha er nóg land til framleiðslu
fyrir markað. Lyfjabyggið er rækt-
að hér utandyra þar sem veðrátta,
farfuglar, búfé og mannleg umsvif
geta stuðlað að dreifingu eb-frjó-
korna, fræs og plöntuleyfa út í
umhverfið. Byggplantan, sem
notuð er við ræktun á eb-lyfjaprót-
einunum, er notuð hérlendis í hefð-
bundinni og lífrænni ræktun til
framleiðslu á fóðri og matvælum.
Ráðgjafarnefnd um erfða-
breyttar lífverur og Náttúrufræði-
stofnun (umsagnaraðilar um leyf-
isveitingar) hafa sýnt hvaða
augum þau líta hugsanlega áhættu
af þessum plöntum. Í grein í Morg-
unblaðinu 7. ágúst 2005 eftir
Snorra Baldursson, varaformann
nefndarinnar og aðstoðarforstjóra
Náttúrufræðistofnunar, benti
hann á að ef eb-byggplöntur sleppi
út í umhverfið muni eftirlitsmenn
„sjá“ þær, en þær sem framhjá
þeim fari muni almenningur finna
og uppræta. Slík glæfraviðhorf til
eftirlits með eb-lyfjaplöntum
hljóta að vekja landsmönnum ugg,
og benda til þess að eftirlitsstofn-
anir okkar séu gersamlega úr takt
við aðrar þjóðir og hirði ekki um
þá ábyrgð sem þær bera á vernd-
un heilsu okkar og umhverfis.
Merkjum eb-matvæli - Stjórnum
ræktun eb-lyfjaplantna
Merkja ætti erfðabreytt matvæli
sem hér eru á markaði, eins og
gert er í Evrópu, og gert væri ef
stjórnvöld lögfestu gerðir ESB.
Þess í stað leyfist innflytjendum
að fylla verslanir okkar með eb-
matvælum, innfluttum og ómerkt-
um frá BNA. Þótt þar sé enn ekki
skyldugt að merkja slíkar vörur
kann það að breytast, en stofnun
um matvælaöryggi (CFS) hefur nú
kært Matvæla- og lyfjaeftirlitið
(FDA) fyrir að láta ekki merkja
eb-matvæli og skort á reglum um
tilraunir með ræktun eb-lyfja-
plantna. Vegna vaxandi andstöðu
neytenda gegn eb-matvælum leita
nú stærstu framleiðendur og dreif-
ingaraðilar á mjólk í BNA að hrá-
efni framleiddu er án eb-efna.
Tími er kominn til að íslensk
yfirvöld setji reglur um eb-lífver-
ur í samræmi við bestu starfs-
hætti; fylgi Evrópu og komi á
skyldumerkingum eb-matvæla; og
geri kröfu um að eb-lyfjaplöntur
séu ræktaðar innandyra og í teg-
undum sem ekki eru notaðar til
matjurta- og fóðurframleiðslu. Það
er sú lágmarks vernd sem þjóðin,
landið, ímynd þess og útflutningur
til framtíðar eiga tilkall til.
Er ræktun erfðabreyttra lyfjaplantna án áhættu?
UMRÆÐAN
LYFJAPLÖNTUR
SANDRA B. JÓNSDÓTTIR
RÁÐGJAFI
Fyrir 4 árum var eldri borgurum
boðið í kaffi í Ráðherrabústaðnum
og ríkisstjórnin tilkynnti þar, að
grunnlífeyrir eldri borgara yrði
hækkaður um 640 krónur á mán-
uði! Tekjutrygging skyldi einnig
hækkuð í áföngum um alls rúmar
5000 krónur hjá þeim,sem hennar
nutu. Þetta þóttu smánarsamningar
og forustumenn eldri borgara sáu
eftir að hafa samþykkt þá.
Nú, 4 árum síðar, er leikurinn
endurtekinn. Landssambandi eldri
borgara er á ný boðið í kaffi í Ráð-
herrabústaðnum til þess að undir-
rita yfirlýsingu ásamt ríkisstjórn-
inni um málefni eldri borgara. Nú
er grunnlífeyrir aldraðra hækkað-
ur um 1258 krónur á mánuði frá 1.
júlí á þessu ári og tekjutrygging
frá sama hækkuð hjá 400 eldri
borgurum, þ.e. þeim, sem aðeins
njóta bóta almannatrygginga. Það
er mikið meira haft við núna en
fyrir 4 árum.
Fjórir ráðherrar mæta í Ráð-
herrabústaðnum til þess að undir-
rita ásamt fulltrúum LEB yfirlýs-
ingu um málefni aldraðra. Það er
mikill lúðrablástur. Forsíða
Morgunblaðsins er lögð undir
málið svo og Kastljós Sjónvarps-
ins. Þó er hér ekki um samning að
ræða milli ríkisstjórnar og LEB
heldur yfirlýsingu þessara aðila.
Ríkisstjórnin lofaði ýmsum
aðgerðum næstu árin, allt næsta
kjörtímabil. Mikið liggur við. Það
eru að koma kosningar alveg eins
og fyrir 4 árum, þegar boðið var í
kaffi.
En er hér um það miklar
umbætur að ræða, að þær kalli á
mikinn lúðrablástur, mikla við-
höfn. Svarið er: Nei. Þorri eldri
borgara fær í dag litlar sem engar
kjarabætur. Aðeins 400 ellilífeyr-
isþegar fá sæmilegar uppbætur.
Þetta er mikil sviðsetning. Þetta
er allt áróður.
Hefur ríkisstjórnin aðeins
áhuga á málefnum eldri borgara á
fjögurra ára fresti? Eiga stjórn-
völd ekki að vinna að úrbótum í
þessum málaflokki allt kjörtíma-
bilið? Auðvitað. Kjósendur sjá í
gegnum svona áróðursleiki Það
hefði ekkert gerst í þessum málum
nú, ef Alþýðusamband Íslands
hefði ekki samið við atvinnurek-
endur um nokkrar kjarabætur frá
1.júlí. En ekki var stórhugur rík-
isstjórnarinnar það mikill, að eldri
borgarar fengju jafnmiklar kjara-
bætur og launafólk en þó er það
áskilið í lögum, að kjör eldri borg-
ara eigi að taka mið af kjörum
launafólks. Nei eldri borgarar
fengu aðeins brot af því, sem
launafólk fékk og aðeins lítill hluti
aldraðra eða 400 manns fékk
svipaðar kjarabætur og launafólk.
Eldri borgarar eiga áfram að
þurfa að berjast fyrir hverri
krónu,sem þeir eiga rétt á sam-
kvæmt lögum og stjórnarskrá.
Eldri borgurum boðið í kaffi í Ráðherrabústaðnum!
UMRÆÐAN
ELDRI BORGARAR
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR