Fréttablaðið - 14.08.2006, Síða 67
MÁNUDAGUR 14. ágúst 2006 27
Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Digital Ísland
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
Sex til 7
Þátturinn er sýndur alla virka daga á SkjáEinum milli 18 og 19
og endursýndur milli 7 og 8 alla virka morgna.
Guðrún og Felix eru byrjuð aftur eftir sumarfrí
Skjöldur Mio,
tískuráðgjafi
Ég taldi mig vita flest
allt um tísku og útlit
áður en ég fór í skólann.
En annað kom á daginn.
Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu,
textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um
útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég
er að gera.
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning
2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
Stundaskrá
The Academy of Colour and Style er alþjóðlegur
skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars
tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám
fá nemendur alþjóðlegt diplóma í útlitsráðgjöf
(fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi
og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn
með náminu. Kennsla fer fram í Iðnskólanum í
Reykjavík einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 INNRITUN ER HAFIN FYRIR HAUSTÖNN
Kristín, ráðgjafi
Ég hef mikin áhuga á að
starfa með fólki, veita
ráðgjöf varðandi fatnað,
liti og förðun sem hentar
hverjum og einum. Mér
finnst námið bæði lifandi
og skemmtilegt sem einnig hefur opnað margar
dyr til frekari náms á þessu sviði.
Birna,
verslunareigandi -
Stílistinn
Það hefur alltaf verður
draumur hjá mér að
stofna verslun með
fatnað. Námið gaf mér það sjálfstraust sem ég
þurfti til að fara út í reksturinn. Einnig nýti ég
námið til þess að ráðleggja viðskiptavinum mínum
hvaða snið og litir hentar þeim í val á fatnaði.
Fjölþjóðlegur hópur dugnaðar-
forka er nú í óða önn að reisa
myndarlegan skúlptúr við Nor-
ræna húsið í Reykjavík en þar
starfar danski myndlistarmaður-
inn Jörgen Hansen að verkinu
„Tilfærsla“ sem ná mun hámarki
sínu á Menningarnótt um næstu
helgi.
Listamaðurinn útskýrir að
gerð skúlptúrsins sé hluti af
verkinu en það hófst 4. ágúst
síðastliðinn og það hefur víst
gengið á ýmsu - íslenskt veðurfar
hefur til að mynda sett strik í
reikninginn en nú gengur verkið
glatt og skúlptúrinn er farinn að
taka á sig mynd.
Hansen útskýrir að verkið
fjalli um breytingar og þróun og
hafi sterka vísun til náttúrufars
og staðhátta á Íslandi. Hann
hefur gert hliðstæð verk í fjöl-
mörgum öðrum löndum en
dreymir um framkvæma gjörn-
ing sinn í öllum norrænu löndun-
um.
Gripurinn verður þriggja
metra hár og gerður úr átta tonn-
um af sérstökum leir sem Hans-
en útskýrir að sé hálf-danskur og
hálf-íslenskur. „Fólk getur komið
hingað og séð hvernig skúlptúr-
inn verður til, hvernig leirinn
breytir um lögum og verkið
stækkar dag frá degi. Þetta
verður sífellt æsilegra og á
ákveðnum tímapunkti kveikjum
við í honum. Þegar hitinn hefur
náð 1100 gráðum fjarlægjum við
einangrunina og þá glóir verkið
fyrir augum fólks,“ segir hann.
Áhugasamir eru eindregið
hvattir til þess að líta við í Vatns-
mýrinni og sjá hópinn að störfum
en einnig má fylgjast með verk-
inu og fræðast meira um þennan
óvenjulega listamann á heima-
síðunni hans, www.firingsculpt-
ures.com - khh
Logandi listabál
MYNDLISTARMAÐURINN JØRGEN HANSEN OG VINNUHÓPUR HANS Kveikja í þriggja metra
háum leirskúlptúr á Menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR