Fréttablaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 68
14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR28
Núna stendur yfir hin mikla tísku-
vika í Kaupmannahöfn og Íslend-
ingar streyma þangað, bæði fata-
hönnuðir og kaupendur frá
tískuvöruverslunum landsins. Hin
norræna umboðsskrifstofa Salka
Agency stóð fyrir tískusýningu á
föstudaginn þar sem íslensku
merkin Elm, Dead, Indriði og
Steinunn sýndu meðal annarra
norræna merkja fatalínur fyrir
sumarið 2007.
Salka Agency er með fjöldann
allan af merkjum á sínum snær-
um og henni stjórnar Sigrún
Guðný Markúsardóttir sem lengi
hefur verið viðloðin tískubrans-
ann hér heima. Umboðskrifstofan
Salka sérhæfir sig í nýjum og
spennandi fatamerkjum frá
Norðurlöndunum en mikil gróska
er í hinum skandinavíska tísku-
heimi um þessar mundir. Plötu-
snúðurinn íslenski Hermigervill
lék undir á sýningunni og af
myndunum að dæma vakti
íslenska hönnunin mikla athygli
gesta. alfrun@frettabladid.is
Íslensk hönnun á tískuviku í Kaupmannahöfn
FYLGST MEÐ AF ÁHUGA Gestir voru vel með
á nótunum og skoðuðu flíkurnar frá ELM af
miklum áhuga.
FRÁBÆR Flottur kjóll úr smiðju Steinunnar
fyrir næsta sumar.
ÁNÆGÐIR Íslensku hönnuðirnir Steinunn
og Indriði, sem hannar klæðaskerasniðinn
herrafatnað undir eigin nafni, voru glöð
í lok sýningar enda uppskáru þau mikið
lófaklapp.
HRESSAR OG KÁTAR Lísbet og Matthildur eiga heiðurinn að ELM Design sem vakið hefur
mikla athygli hérlendis og erlendis fyrir skemmtileg snið og fallegan klæðnað.
HVÍTUR Flottur sumarkjóll frá ELM Design.GLÆSILEGT Ljóst pils og svört slá yfir herð-
arnar er fallegt hjá Steinunni.
PLÖTUSNÚÐURINN Hermigervill þeytti skífum eins og honum einum er lagið í sýningunni,
Hér er hann ásamt Báru.
HAUSKÚPUR Dead sýndi fatalínu sína og gestirnir voru hrifnir af hauskúpu- og rokkarafílingnum í fötunum frá Dead. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Disney-fyrirtækið er hætt við að bjóða öðrum
kvikmyndafyrirtækjum nýjustu kvikmynd
Mel Gibson, Apocalypto. Eins og greint var
frá í Fréttablaðinu stefndi allt í að fyrirtækið
myndi gefa frá sér myndina eftir að Gibson
var handtekinn fyrir ölvunarakstur og lét í
kjölfarið hafa eftir sér niðrandi ummæli um
gyðinga. „Það er ekki rétt að hið „fjölskyldu-
væna“ fyrirtæki ætlaði sér að selja rétt sinn á
Apocalypto vegna ummæla leikarans um gyð-
inga,“ sagði talsmaður Disney-fyrirtækisins.
Stuðningur Disney við Gibson kemur mörg-
um á óvart því ekki er langt síðan sjónvarps-
stöð afþreyingarveldisins, ABC, hætti við að
taka þátt í gerð sjónvarpsþátta um helför gyð-
inga sem Gibson hefur haft á prjónunum í
mörg ár.
Það virðist því loks vera farið að sjást til
sólar hjá Gibson eftir að fjöldi áhrifamikilla
aðila innan bandaríska kvikmyndageirans
hafði nánast tekið hann af lífi í fjölmiðlum
vegna ummælanna enda gyðingahatur ákaf-
lega viðkæmt mál í Bandaríkjunum. Gibson
leikur ekki sjálfur í myndinni og er reiknað
með því að hann muni ekki ganga fram fyrir
skjöldu þegar kemur að kynningum á mynd-
inni.
Apocalypto fjallar um Maya-menningar-
veldið og skartar lítt þekktum leikurum í aðal-
hlutverkum. Allir leikarar tala hið forna mál
Yucatec og hefur Gibson sagt hana fjalla um
samfélagið og það sem haldi því saman.
Disney dreifir nýjustu kvikmynd Mel Gibson
SÁTTUR Disney-fyrirtækið hefur vísað þeim frétt-
um á bug að það ætli sér ekki að dreifa mynd
Mel Gibson, Apocalypto.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES