Fréttablaðið - 14.08.2006, Page 69
MÁNUDAGUR 14. ágúst 2006 29
Tímaritið Vanity hefur fengið
einkarétt á að birta fyrstu mynd-
irnar af Suri Cruise, fyrsta barni
Tom Cruise og Katie Holmes. Suri
fæddist 18. apríl og hefur Penelope
Cruz lýst henni sem gullfallegu
kornabarni. Engar myndir hafa
birst af stúlkubarninu og því ljóst
að þetta er mikill happafengur fyrir
tímaritið ef satt reynist.
Fréttavefur CNN greinir frá því
að ljósmyndarinn Anne Leibovitz
muni taka myndirnar og að þær
komi fyrir almennningssjónir með
haustinu. Talsmaður ljósmynda-
stofu Leibovitz sagðist hins vegar
ekkert kannast við þessa mynda-
töku og talsmaður Cruise vildi ekki
láta neitt hafa eftir sér.
Suri Cruise hefur verið lýst sem
eftirsóttasta kornabarni heims um
þessar mundir enda er líkt og jörð-
in hafi gleypt þau Tom Cruise og
Katie Holmes eftir að barnið fædd-
ist. Fréttavefur CNN gengur jafn-
vel svo langt að líkja Suri við furðu-
fuglinn Howards Hughes sem var
alltaf í öllum helstu slúðurdálkum
blaðanna án þess að til væri af
honum mynd.
Varla var til sá fjölmiðill sem
ekki fjallaði um ástarsamband
Cruise og Holmes enda komu þau
fram í þætti Opruh Winfrey þar
sem Cruise hoppaði á sófanum um
leið og hann sagðist dýrka Holmes.
Hann bað síðan sinnar heittelskuðu
í París og fengu fjölmiðlar að fylgj-
ast með þessu öllu saman í beinni
útsendingu. Margir töldu að sam-
bandið væri einungis hluti af mark-
aðsherferð Cruise en á þessum
tíma var hann að kynna Mission:
Impossible 3 og Holmes lék stórt
hlutverk í Batman Begins. Mission:
Impossible fékk þó ekki þá aðsókn
sem reiknað hafði verið með og
Katie Holmes var tilkynnt að þjón-
ustu hennar væri ekki lengur óskað
í Batman-flokknum.
Angelina Jolie og Brad Pitt hafa
leyft myndatökur af Shiloh dóttur
sinni og seldu einkaréttinn fyrir
nokkra tugi milljóna sem síðan
voru gefnar til styrktar góðs mál-
efnis. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum
bíða því spenntir eftir að frétta
hversu mikið Vanity Fair greiddi
fyrir einkaréttinn en það er talið
nema nokkrum tugum milljóna. - fgg
Vanity Fair fékk einkaréttinn á Suri Cruise
CRUISE OG HOLMES Líkt og jörðin hafi gleypt hjónakornin eftir að Suri Cruise kom í
heiminn. CNN greindi frá því fyrir helgi að Vanity Fair hefði fengið einkaréttinn á myndum
af barninu.
Britney Spears og eiginmaðurinn
Kevin Federline ætla að endurnýja
hjúskaparheit sín. Eftir að hafa
þurft að ganga í gegnum alls kyns
sögusagnir um að hjónabandið gangi
illa vilja þau sýna hvað þeim finnst.
Britney og Kevin ætla að ganga
aftur upp að altarinu í október eftir
að annað barn þeirra kemur í heim-
inn. „Britney vill sýna heiminum að
hún er hamingjusamlega gift,“ sagði
vinur hjónanna. Ekki eru nema tæp
tvö ár síðan Britney og Kevin gengu
í hjónaband.
Endurnýja
heitin
BRITNEY OG KEVIN Hamingjusamlega gift.
Snillingurinn Jessica Simpson
íhugar nú að leika í endurgerð af
kvikmyndinni Working Girl. Jess-
ica er mjög áfjáð um að ná sér í
aðalhlutverk í kvikmynd og líst að
sögn vel á hlutverk Tess McGill,
hlutverkið sem skilaði Mel-
anie Griffith Óskars-
tilnefningu árið 1988.
„Þetta er bara eitt af
þeim hlutverkum sem
Jessica er að skoða um
þessar mundir,“ sagði
afar sannfærandi tals-
maður söng- og leik-
konunnar.
Reynir við
Óskarinn
JESSICA SIMPSON
Christina Aguilera segist vera heit
fyrir Halle Berry, enda laðist hún
að konum og elski að horfa á nakta
líkama þeirra. Frægt varð þegar
Aguilera smellti blautum kossi á
Madonnu á MTV-hátíð árið 2003
og nú viðurkennir hún fúslega hug
sinn til kvenna. „Stundum finnst
mér naktar konur flottari en karl-
menn. Halle Berry er til dæmis
gullfalleg. Ég segi samt hvorki já
eða nei,“ sagði Aguilera.
Heit fyrir
Halle Berry
CHRISTINA Finnst naktir kvenlíkamar oft
flottari en karlmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES