Fréttablaðið - 14.08.2006, Síða 70
Með hverri vikunni styttist
í Casino Royale - nýjustu
James Bond myndina.
Sjaldan eða aldrei hefur
staðið jafn mikill styr um
valið á þeim sem fetar í
fótspor þeirra Sean Conn-
ery, George Lazenby, Roger
Moore, Timothy Dalton og
Pierce Brosnan en Daniel
Craig er hins vegar hvergi
banginn.
Leikarinn breski, sem vakti mikla
athygli fyrir leik sinn í kvikmynd-
unum Layer Cake og Munich, var í
viðtali við tímaritið Entertainment
Weekly og sendi þar hatursfull-
um andstæðingum sínum
tóninn. „Ef ég færi á netið
og skoðaði það sem er sagt
um mig myndi það gera mig
brjálaðan,“ sagði Craig í
samtali við blaðið en viður-
kenndi þó að hafa litið öðru
hvoru inná spjallsvæðin.
„Því miður,“ bætti
Craig við.
Nýlega var
sett á laggirnar
heimasíðan craig-
notbond.com þar
sem óvildar-
menn Craig
gátu ausið úr skálum reiði sinnar
með ákvörðun Broccoli-fjölskyld-
unnar, sem á einkaréttinn á James
Bond, að velja fyrsta ljóshærða
Bondinn. „Þeir hata mig og finnst
ég ekki rétti maðurinn í hlutverk-
ið. Fólk er ástríðufullt þegar
kemur að því hver eigi að leika
James Bond og ég get skilið það.
Hins vegar vildi ég óska þess að
ég yrði dæmdur af verkum
mínum,“ sagði Craig en miðað við
þau viðbrögð sem „trailer“ mynd-
arinnar hefur fengið þarf hann
ekkert að óttast enda hefur Bar-
bara Broccoli þegar fengið hann
til að leika í næstu James Bond
mynd.
Craig fann strax fyrir mikilli
utanaðkomandi pressu fyrir
atriðið þegar Bond segir til nafns
með hinni heimsfrægu línu.
„The name is Bond, James
Bond.“ Leikarinn segist
hafa bægt öllum spurning-
um frá um hvernig hann
ætlaði að gera þetta, ekki einu
sinni æft sig fyrir framan spegil.
„Ef ég hefði fengið einhverja
þráhyggju gagnvart þessu yrði
þessi setning bara eins og reipi í
kringum hálsinn á mér,“ sagði
Craig sem sagðist bara vilja
hespa þessu af og láta það vera
að klúðra setningunni.
Casino Royale er fyrsta bókin
sem Ian Fleming skrifaði um
þennan heimsfræga leyniþjón-
ustumann. Hún þykir nokkuð
ruddaleg og Bond langt frá því
sem kvikmyndahúsagestir þekkja
til persónunnar enda ákvað Craig
að horfa á allar James Bond -
myndirnar oftar en einu sinni en
skilja síðan allt eftir sem hinir
höfðu lagt til. „Mér finnst algjör-
lega ástæðulaust að gera þessa
mynd án þess að gera eitthvað
algjörlega nýtt,“ útskýrir Craig.
„Þessi mynd væri tímasóun ef
persóna Bond væri sú sama og
fyrir tæpri hálfri öld síðan.“ - fgg
Craig segist vera hataður
ENGINN ER BOND ÁN KVENNA Stúlkurnar sem ýmist leggja snöru fyrir
Bond eða vinna hjarta hans eru hluti af hinni sönnu formúlu fyrir
Bond-myndirnar. Hér er Craig ásamt þeim Evu Green og Caterinu
Munroe en auk þeirra leikur Ivana Milicevic stórt hlutverk í myndinni.
SÁ BESTI?
Margir eru þeirrar
skoðunar að Sony
og Broccoli-fjöl-
skyldan hafi gert
mistök með því að
ráða Pierce Brosnan
ekki aftur.
ER EKKI HRÆDDUR Daniel Craig hefur mátt þola háðsglósur frá þeim sem telja hann ekki henta í hlutverk James Bond. Hann ætlar sér að
sanna sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
TÓNLIST
[UMFJÖLLUN]
Það er Íslendingur í þessari
duglegu bresku sveit sem þeysist
þessa dagana heimshornanna á
milli að spila lög af þessari frum-
raun sinni. Þau ættu að vera
nýkomin frá Japan og mig grunar
að þangað hafi söngkonan Þórunn
Antónía aldrei komið áður. Þessi
hljómsveit var stofnuð í fyrra og
gaf út sína fyrstu smáskífu á eigin
vegum í Bretlandi í mars síðast-
liðnum við frábærar undirtektir.
Vegna velgengni hennar komust
þau á samning og þessi fyrsta
breiðskífa þeirra inniheldur öll
lögin af smáskífunni, auk fjögurra
laga sem höfðu ekki komið út
áður.
Þórunn er nú svo sem ekki í
neinu aðalhlutverki hérna eins og
hún var í hljómsveitinni The Lov-
ers. Hér raddar hún aðalsöngvara
og lagahöfund sveitarinnar og ég
held að hún spili líka með á hljóm-
borðið og klukkuspilið á tónleik-
um. Leikur svipaða rullu og stúlk-
an í Prefab Sprout gerði, ef
einhver man eftir þeirri popp-
sveit. Samlíkingar við þá sveit eru
heldur ekkert út úr kú, nema hvað
að þessi á það líka til að minna á
Sonic Youth, Sloan og Belle and
Sebastian.
Það verður bara að segjast eins
og er að það hvílir heilmikill gald-
ur yfir þessari sveit. Þetta er mjög
sætur hrærigrautur, þar sem
áhrifum úr ólíklegustu áttum er
blandað smekklega saman. Hér
mæta t.d. angar úr breskri þjóð-
lagatónlist, tilraunakenndu indí-
rokki á borð við My Bloody Val-
entine. Og öll hljóðvinnsla er til
fyrirmyndar. Ef þessi sveit nær að
framkalla þennan sama sjarma á
sviði er ekkert því til fyrirstöðu að
hún geti komið sér í svipaða stöðu
og sveitir á borð við The Beta
Band eða Super Furry Animals.
Stærsti munurinn á þessari sveit
og þeim er að Fields er með betri
lög. Svo draumkennd á köflum að
maður vaknar með þau á munnin-
um eftir góðan svefn.
Ég held að eini galli þessara
plötu sé hversu stutt hún er. Hér
eru einungis sjö lög sem rétt svo
slefa yfir 26 mínúturnar. Síðast
þegar ég vissi miðuðust breið-
skífumörkin við 21 mínútu, þannig
að þær gerast varla mikið styttri
en þessi. Það er því nokkuð hent-
ugt að hún þoli svona vel ítrekaða
hlustun því mig langar nær alltaf
að heyra meira þegar henni er
lokið. Birgir Örn Steinarsson
Vel sáinn akur
FIELDS
7 FROM THE VILLAGE
Niðurstaða: Þórunn Antónía og félagar henn-
ar í Fields geta verið stolt af frumraun sinni.
Afbragðs breiðskífa sem hefur þann eina galla
að vera allt of stutt.
Leikkonan Gwyneth Paltrow
hefur miklar áhyggjur af því að
losa sig við kílóin sem hún bætti
á sig þegar hún gekk með Moses
son sinn. Hún upplýsir þetta í
viðtali við Harper´s Bazaar „Það
er æðislegt að vera ólétt en eftir
barnburð þegar þú ert ennþá með
maga og aukakíló er ekki jafn
gaman,“ segir Gwyneth en eigin-
maður hennar er söngvarinn í
Coldplay, Chris Martin, og eiga
þau saman tvö börn sem bera
nöfnin Apple og Moses.
Gwyneth er 33 ára gömul og
segist sannfærð um að brjósta-
gjöf sé besta leiðin til að grennast
eftir barnsburð. Gwyneth var
jafnfram spurð hvort henni fynd-
ist hún hafa endurheimt sinn fyrri
þokka. „Nei, þú ættir að sjá app-
elsínuhúðina á lærunum á mér,“
svaraði hún í gríni.
Erfitt að grennast
GWYNETH PALTROW Henni finnst æðislegt
að vera ólétt en hatar aukakílóin sem fylgja
óléttu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MIAMI VICE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6
SILENT HILL kl. 10 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 4 og 8
STICK IT kl. 8 og 10.20
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6 og 8
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
STORMBREAKER kl. 6
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
SÍÐUSTU SÝNING
AR
H.J.MBL Ó.T. Rás 2