Fréttablaðið - 14.08.2006, Síða 74
14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR34
GOLF Sveitakeppni Golfsambands
Íslands lauk í gær eftir spennandi
keppnisdag. Í karlaflokki varði
sveit golfklúbbsins Kjalar úr
Mosfellsbæ titil sinn en kvenna-
sveit Keilis úr Hafnarfirði báru
sigur úr býtum gegn kvennaliði
Kjalar í úrslitaviðureigninni.
Keppnin hjá konunum var afar
spennandi en bráðabana þurfti til
að skera úr um sigurvegara.
Keiliskonunur unnu fjórmenn-
ingsviðureignina en báðar tví-
menningsviðureignirnar fóru í
bráðabana. Þar áttust við annars
vegar Ólöf María Jónsdóttir og
Nína Björk Geirsdóttir og hins
vegar Tinna Jóhannsdóttir og
Helga Rut Svanbergsdóttir.
Úrslitin réðust svo á 2. holu bráða-
banans hjá Ólöfu og Nínu þar sem
sú fyrrnefnda tryggði sigurinn
með löngu pútti. Ekki þurfti að fá
niðurstöðu úr hinni viðureigninni
þar sem Keilir var þegar kominn
með tvo vinninga.
Sveit Kjalar vann sveit GS í
úrslitaviðureigninni en þeir Heið-
ar Davíð Bragason, Sigurpáll Geir
Sveinsson og Magnús Lárusson
unnu allir sínar viðureignir fyrir
hönd GKj og dugði það klúbbnum
til sigurs. Það reyndist sigur
Sigurpáls Geirs sem gerði gæfu-
muninn en hann vann Örn Ævar
Hjartarson 3/2.
Golfklúbbur Vestmannaeyja
fagnaði sigri í 2. deild karla.
- esá
Sveitakeppni GSÍ lauk í gær með sigri kvennaliðs GK og karlaliðs GKj:
Mosfellingar vörðu titilinn í karlaflokki
FÓTBOLTI „Þessi sigur gefur leik-
mönnum vonandi aukið sjálfs-
traust nú þegar deildarkeppnin er
að fara að byrja. Það er alltaf erf-
itt að spila á móti liði sem er eitt af
þeim bestu í heiminum en mínir
menn unnu sína vinnu vel í þess-
um leik. Á lokamínútunni voru
ennþá allir að leggja sig fram af
fullum krafti,“ sagði Rafael
Benítez, knattspyrnustjóri Liver-
pool, eftir að liðið vann hinn svo-
kallaða Samfélagsskjöld með því
að leggja Englandsmeistara Chel-
sea að velli 2-1 á Þúsaldarleik-
vanginum í Cardiff.
Leikurinn um þennan skjöld
markar upphaf hvers keppnis-
tímabils á Englandi en þar mætast
deildarmeistararnir og bikar-
meistararnir frá síðasta leiktíma-
bili. Benítez leyfði sér að geyma
nokkra lykimenn á bekknum, þar á
meðal fyrirliðann Steven Gerrard.
Þrátt fyrir það vann Liverpool
leikinn en úrslitin verða að teljast
sanngjörn. „Þetta sýnir það bara
hve sterkan leikmannahóp ég er
með í höndunum. Við lékum vel í
báðum hálfleikjum og ég er ánægð-
ur þó alltaf sé hægt að gera aðeins
betur í nokkrum atriðum,“ sagði
Benítez.
Norðmaðurinn John Arne Riise
skoraði fyrsta mark leiksins í gær
eftir frábært einstaklingsframtak.
Hann lék upp allan völlinn og skaut
knettinum í netið af um 25 metra
færi framhjá Carlo Cudicini sem
stóð í marki Chelsea í gær vegna
meiðsla Petr Cech. Michael Ball-
ack lauk leik um miðjan fyrri hálf-
leik vegna meiðsla en fram að því
hafði hann lítið sést í leiknum.
Mark Gonzalez var líflegur í liði
Liverpool og var óheppinn að ná
ekki að skora áður en Chelsea jafn-
aði.
Úkraínumaðurinn Andriy Shev-
chenko var skeinuhættur í fremstu
víglínu hjá Chelsea og náði að
jafna metin á 43. mínútu, hann
fékk frábæra sendingu frá Frank
Lampard og kláraði færið snilldar-
lega. Snemma í seinni hálfleik átti
hann skalla sem Reina í marki
Liverpool varði naumlega. Þá tók
Benítez til sinna ráða og setti Gerr-
ard og Xabi Alonso inn sem vara-
menn og svo stuttu seinna kom
Craig Bellamy. Sá síðastnefndi
lagði síðan upp sigurmarkið sem
Peter Crouch skoraði með skalla
tíu mínútum fyrir leikslok.
„Ég er í fótboltanum til að ná
árangri og að sjálfsögðu er farið út
í alla leiki með það að markmiði að
sigra. Fólk talar um að þessi leikur
skipti ekki máli en ef maður horfir
á stuðningsmennina og leikmenn-
ina á vellinum sér maður að það er
bara ekki rétt,“ sagði Crouch, sem
sleppti því að taka hinn sívinsæla
vélmennadans þegar hann skoraði
sigurmarkið í leiknum.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
sagði að sigur Liverpool hefði
verið sanngjarn. „Ef ég lít á þenn-
an leik sem æfingaleik er ég mjög
ánægður. Þarna fengum við leik
gegn liði sem er í mun betra
ástandi en við. Ef ég lít á þennan
leik sem keppni um titil er ég mjög
ósáttur. Þeir eru komnir lengra í
sínum undirbúningi og voru betri
á vellinum, það er ekki flókið,“
sagði Mourinho, sem vonast til að
meiðsli Ballack séu ekki alvarleg.
„Nú þegar eru Cech, Joe Cole og
Claude Makelele á meiðslalistan-
um svo við megum ekki við mikið
fleirum á hann.“
elvargeir@frettabladid.is
Crouch tryggði Liverpool skjöldinn
Liverpool vann Chelsea 2-1 í hinum árlega leik milli Englandsmeistaranna og bikarmeistaranna þar í landi.
Sigurinn var sanngjarn en Peter Crouch skoraði sigurmarkið með skalla þegar tíu mínútur voru eftir.
SHEVCHENKO Andriy Shevchenko átti
góðan leik í gær og skoraði gott mark fyrir
Chelsea. NORDICPHOTOS/GETTY
MARKASKORARARNIR Hér eru þeir Peter Crouch og John Arne Riise að fagna sigrinum gegn Chelsea en þeir skoruðu mörk Liverpool í
leiknum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Úrvalsdeild Norðurland-
anna, Royal League, er sögð hanga
á bláþræði eftir aðeins tvö keppn-
istímabil. Síðustu tvo vetur hafa
fjögur lið frá Danmörku, Noregi
og Svíþjóð keppt yfir vetrartím-
ann og í bæði skiptin hefur FC
Köbenhavn staðið uppi sem sigur-
vegari.
Aðsókn á leiki hefur hins vegar
verið ótrúlega léleg og dæmi þess
að einungis nokkrir tugir áhorf-
enda hafi mætt á leiki í deildinni.
Sjónvarpsáhorf hefur einnig verið
vel undir væntingum.
„Fyrsta tímabilið var slæmt en
annað var hreint skelfilegt,“ sagði
Manfred Aronson, framkvæmda-
stjóri Kanal 5 í Svíþjóð sem á sjón-
varpsréttinn að keppninni. - esá
Royal League:
Sögð hanga
á bláþræði
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þorvalds-
son var ekki í leikmannahópi
Hannover 96 sem spilaði sinn
fyrsta leik á nýju tímabili í þýsku
úrvalsdeildinni í gær. Liðið tók á
móti Werder Bremen á heimavelli
og tapaði, 4-2. Gunnar Heiðar
fylgdist með sínum mönnum og
sagði við Fréttablaðið að þjálfari
liðsins hefði ákveðið að hvíla hann
þar sem hann hefur nýverið náð
sér af meiðslum.
„Ég er að komast á skrið aftur í
fótboltanum en hann sagði mér
einnig að ég gæti leikið 90 mínút-
ur í landsleiknum ef því væri að
skipta,“ sagði Gunnar Heiðar.
„Þannig að ég verð alveg klár í
landsleikinn.“ - esá
Gunnar Heiðar:
Verð klár í
landsleikinn
GUNNAR HEIÐAR Verður klár í landsleikinn.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Veig-
ar Páll Gunnarsson skoraði sitt 12.
mark í norsku úrvalsdeildinni í
gær er hann tryggði sínum mönn-
um 3-2 sigur á Lyn í gær. Lyn
komst 2-0 yfir í leiknum en Stabæk
jafnaði metin fyrir hálfleik og
Veigar Páll skoraði eina mark síð-
ari hálfleiksins, með glæsilegum
skalla eftir horn. Veigar meiddist
á hálsi á æfingu í síðustu viku og
var óttast að hann gæti ekki spilað
leikinn. Indriði Sigurðsson og
Stefán Gíslason léku báðir allan
leikinn fyrir Lyn.
Birkir Bjarnason kom inn á
sem varamður í lið Viking sem
tapaði 3-1 fyrir Start á útivelli.
Árni Gautur Arason lék allan leik-
inn fyrir Vålerenga, sem vann 2-1
sigur á toppliði Brann, en Kristján
Örn Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir síðarnefnda liðið. Ólafur Örn
Bjarnason fór af velli í síðari hálf-
leik. - esá
Norski boltinn:
Veigar tryggði
Stabæk sigur
VEIGAR PÁLL Tryggði sínum mönnum sigur
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SCANPIX
FÓTBOLTI Lífróður Helga Vals Dan-
íelssonar og félaga í Öster þyngd-
ist til muna í sænsku úrvalsdeild-
inni í gær eftir að liðið tapaði fyrir
Halmstad á útivelli, 1-0. Helgi
Valur lék allan leikinn. Liðið er
sem fyrr í næstneðsta sæti deild-
arinnar og er fimm stigum frá lið-
inu í fjórða neðsta sæti.
Emil Hallfreðsson kom inn á
sem varamaður í liði Malmö sem
gerði 1-1 jafntefli við Elfsborg en
Kári Árnason sat á varamanna-
bekk Djurgården sem gerði 1-1
jafntefli við Helsingborg. - esá
Sænski boltinn:
Erfitt hjá Öster
FÓTBOLTI HK vann góðan 2-0 útisig-
ur á KA í 1. deild karla í gær fyrir
norðan og er liðið komið í ansi
góða stöðu í deildinni þar sem Vík-
ingur Ólafsvík vann Þrótt í Laugar-
dalnum í dramatískum leik. Fjór-
ar umferðir eru eftir og eru
HK-ingar í öðru sæti en fjögur
stig eru niður í þriðja sætið þar
sem Fjölnir og Þróttur sitja. Fram-
arar eru langefstir í deildinni en
tvö efstu liðin spila í Landsbanka-
deildinni á næsta ári.
Ólafur Júlíusson kom HK yfir í
gær með marki úr vítaspyrnu og
nokkrum mínútum síðar bætti Jón
Þorgrímur Stefánsson við marki.
Á sama tíma vann Víkingur Ólafs-
vík mikilvægan 2-1 sigur á Þrótti
en sigurmarkið skoraði Tryggvi
Hafsteinsson þegar fjórar mínút-
ur voru komnar yfir venjulegan
leiktíma. Halldór Hilmisson hafði
komið Þrótti yfir á fyrstu mínútu
leiksins en Slavisa Mitic jafnaði.
„Þetta er mjög súrt, við fengum
nóg af færum til að vera búnir að
gera út um þetta. Marga lykilmenn
vantar vegna meiðsla og leikbanna
og við virðumst bara ekki hafa
burði til að leysa þetta án þeirra.
Þá voru menn að fá spjöld í þessum
leik og verða í banni í næsta leik
gegn Fram svo horfurnar eru ekki
bjartar. HK-ingar eru komnir í fín
mál og þetta er í þeirra höndum,“
sagði Atli Eðvaldsson, þjálfari
Þróttar, eftir leikinn.
Með sigrinum í gær opnuðu
Víkingar botnbaráttuna upp á gátt
en þetta var aðeins annar sigur
þeirra í sumar. Liðið er enn í
neðsta sætinu en það er nú komið
með ellefu stig, sem er aðeins einu
stigi minna en Þór Akureyri og
Haukar hafa. - egm
Víkingur Ólafsvík skoraði sigurmarkið gegn Þrótti í viðbótartíma í Laugardal:
HK-ingar komnir í lykilstöðu í 1. deildinni
HARKA Leikmenn Víkings Ólafsvík létu finna fyrir sér í gær og náðu mikilvægum stigum í
baráttunni fyrir lífi sínu í 1. deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TENNIS Arnar Sigurðsson varð í gær
Íslandsmeistari í tennis tíunda árið
í röð. Hann bar sigurorð af Raj
Bonifacius í úrslitaleik í tveimur
settum, 6-3 og 6-1. Í kvennaflokki
varði Íris Staup Íslandsmeistara-
titil sinn en hún sigraði Sigurlaugu
Sigurðardóttur í úrslitum 6-1 og 6-
1. Íris og Rakel Pétursdóttir urðu
Íslandsmeistarar í tvíliðaleik
kvenna en þær sigruðu Söndru Dís
Kristjánsdóttur og Guðrúnu Ósk-
arsdóttur 6-1 og 6-3. Í karlaflokki
urðu Arnar og Raj Íslandsmeistar-
ar í tvíliðaleik án þess að keppa þar
sem Andri Jónsson og Jón Axel
Jónsson neyddust til að gefa leik-
inn vegna meiðsla. - egm
Íslandsmótið í tennis:
Arnar og Íris
vörðu titlana
DJURGÅRDEN Lék í Royal League í vetur.