Tíminn - 12.03.1978, Qupperneq 17
Sunnudagur 12. marz 1978
17
legir öryggi landsins verða fyrir
stöðugum ágangi og hótunum
frá lögreglunni. Bannfæringum
er beitt og fjöldi manns hefur
verið dæmdur til innilokunar i
geðveikrahælum. Aðbúnaður i
fangelsum er illur, lélegt fæði og
menn látnir þræla myrkranna á
milli. Og enginn skyldi láta sér
detta i hug að kynþáttamis-
muninum sé gleymt þó komið sé
inn fyrir fangelsismúra þvi
svartir fangar fá mun verri
meðferð er þeir hvitu.
Grimmd lögreglunnar hefur
verið við brugðið og hafa
sjónarvottar að götuóeirðum
borið vitni um það. En stjórnin
ber allt slikt til baka og refsar
þeim er hafa látið slikar
skoðanir i ljós. Þannig var t.d.
um fimmtán svarta blaða-
menn sem skrifuðu um
óeirðirnar i Soweto árið 1976
þegar lögreglumenn réðust á
hóp stúdenta sem var að mót-
mæla afrikönsku sem opinberu
máli i skólum,þeim var haldið í
fangelsi án dóms og lag i fjóra
mánuði.
Flestir leiðtogar blökku-
manna hafa verið hnepptir i
fangelsi- og þeim refsað
harðlega. Nokkrir sitja i lifs-
tiðarfangelsi, aðrir hafa verið
bannfærðir og enn aðrir
drepnir. Einn þeirra siðast-
nefndu var Steve Biko sem lézt i
varðhaldi eftir að hafa verið
pyntaður við yfirheyrsiur. En
frá þvi i marz 1976 til nóvember
1977 hafa að minnsta kosti sex-
tán pólitiskir fangar látizt sem
voru i vörzlu lögreglunnar.
Stjórnvöld hafa oft hvorki getað
né hirt um að gefa fullnægjandi
skýringuáhvernigdauða þeirra
bar að höndum og hafa visað til
heimahúsamja ásökunum um
slæma meðferð á föngum og
skort á mannréttindum.
Það eru ófá fórnarlömbin i
Suður-Afriku af völdum að-
skilnaðarstefnunnar einsog sést
af þvi sem að framan greinir.
Og hvaða áhrif það mun hafa
fyrir þau,að Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa lýst þetta ár,ár baráttu
gegn aðskilnaðarstefnu,á eftir
að koma i ljós. En það hlýtur að
vera krafa hvers réttlætisunn-
andi manns að baráttunni gegn
aðskilnaði og misrétti kynþátta
sé ætið haldið uppi, hvort sem
um er að ræða gegn apartheid
stefnunni i Suður-Afriku eða
kynþáttastefnu eins og hún
tiðkast i öðrum löndum viða um
heim.
og starfa. Að ferðast út fyrir
þessi svæði varðar við lög og
ennfremur ef fólk ber ekki á sér
þessi vegabréf. Þetta tryggir
það að allir þeir svertingjar sem
búa á hvitum svæðum og eru
uppistaðan i efnahagslifinu þar,
eru álitnir ibúar um stundar-
sakir jafnvel þótt þeir hafi verið
fæddir þar og njóta þeir þvi
engra réttinda á þessum svæð-
um og geta átt yfir höfði sér að
vera sendir fyrirvaralaust heim
i þjóðlönd sin.
Núna nýlega voru gerðar
breytingar á þessum lögum og
miðuðu þær að þvi að herða enn
á ákvæðum varðandi búsetu
svertingja.
Frá þvi hvitir menn fóru fyrst
að sölsa undir sig landsvæði og
völd i Suður-Afriku hefur verið
um að ræða andstöðu kynþátt-
anna er fyrir voru i landinu. 1
fyrstu var aðeins um að ræða
aðskilda baráttu einstakra kyn-
þátta. Um sameiginlega skipu-
lagða baráttu þvert ofan i öll
ættflokkabönd var ekki að ræða
fyrrená 20. öldinni og fékk hún
þá fyrst svip þjóðernisbaráttu.
Á siðustu árum hefur þetta
aukizt, fjöldafylgi fer vaxandi
og þær raddir verða æ háværari
sem krefjast réttlætis. Hefur
þetta leitt til heiftarlegra átaka
milli blökkumanna og hvitra
lögreglu- og hermanna.
En vald stjórnvalda til að
brjóta á bak aftur hvers kyns
pólitiska andstöðu ér ótak-
markað. Agrundvelli lagasinna
hefur hún sjálfskipuð völd til að
banna pólitiska flokka og hreyf-
ingar. Bannað er að halda
fundi á almannafæri. Stjórn-
in hefur völd til að taka fyr-
ir alla ósækilega útgáfustarf-
semi og ritskoðun er i fullu gildi.
Fólk er handtekið og varpað i
fangelsi án dóms og laga. Lög-
reglunni er heimilt að setja það i
einangrun og halda þvi i gæzlu-
varðhaldi um ótakmarkaðan
tima. Pyndingar á pólitiskum
föngum tiðkast með samþykki
yfirvalda. ófáir hafa látizt af
völdum pyndinga við yfir-
heyrslur hjá öryggislögregl-
unni. Þeir sem taldir eru hættu-
Leit gerð á svörtum borgurum I Suður-Afriku.
Blökkumenn eru aö rlsa upp gegn kúgurum sinum.
Nýkomnar
BOC
logskurðar-
vélar
þ! ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 sími 38640
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir október, nóvember og desem-
ber 1977 og nýálagðan söluskatt frá fyrri
tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full.
skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir
sem vilja komast hjá stöðvun, verða að
gera full skil nú þegar til tollstjóraskrif-
stofunnar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
7. mars 1978.
Sigurjón Sigurðsson.
★ Athugið ★
Tiskupermanent-klippingar og
blástur (Litanir og hárskol).
Nýkomnir hinir vinsælu
minaiasteinar, mei
sérstökum lit fyrir
hvern mánui
Ath. Fást
aðeins hjá Y/ \WkMV/skjótum
okkur \ &t í eyru
o ■
sársaukalausan
hátt
Sendum
póstkröfu'
um land
allt
MUNIÐ
SNYRTIHORNIÐ
Hárgreiðslus tofan
LOKKUR
Strandgötu 1-3 (Skiphól)
Hefnarf irði, sími 51388.