Tíminn - 17.03.1978, Page 1
I METRATALI
LANDVÉLAR HF.
Smiöjuvegi 66.Sími:766(X)
Vestmanna-
eyjar:
Mál-
ið er
leyst
HEI — Málið er leyst á far-
sælan hátt, Rafveita Vest-
mannaeyja er búin að
greiða sínar skuldir, svo
ekki þarf að koma til lok-
unar sagði Kistján Jóns-
son, rafveitustjóri RARIK
i gær.
Eins og sagt var frá í
blaðinu i fyrradag átti að
loka fyrir rafmagn til Eyja
í gærdag hef ðu skuldir ekki
verið greiddar fyrir þann
tíma.
Garðar Sigurjónsson,
rafveitustjóri Vestmanna-
eyja, sagði að frystihúsin
hefðu staðið skil á sínum
skuldum til Rafveitunnar í
Eyjum. Þar með hefði hún
getað greitt Rafmagns-
veitum ríkisins og hnútirnn
var leystur.
Fjaran hefur ávallt haft mikið aödráttarafl fyrir menn unga sem
aldna. Þeir kannast við það sem notað hafa hana sem leikvang i
æsku, hve margvislega möguleika hún hefur upp á að bjóða, og vfst
er að þau eru ófá rannsóknarverkefnin, sem hið fjölbreytta lifriki
fjörunnar hefur fyrir forvitin barnsaugu og smáar hendur. Það má
tina skeljar og kuðunga og kannski spriklandi marflær undan stein-
um i fjöruborðinu eða þá bara elta ölduna, auk annars, sem þar má
finna sér til dundurs. Og liklega hafa þeir ekki látið sér ieiöast þess-
ir hressilegu strákpattar, sem Hóbert hitti við leik niðri i fjöru um
daginn, þvi eftir svipnum að dæma skemmta þeir sér konunglega.
Verðlagsnefnd kærð
— fyrir lækkun á verzlunarálagningu
ESE — Verslunarráð islands, Kaupmannasamtök islands og Félag
islenzkra stórkaupmanna hafa kært verðlagsnefnd fyrirmeint brot á
lögúm um verðlagsmál nr. 54 frá 1960, en þau lög kveða á um starfsemi
nefndarinnar. Jafnframt er þess krafizt af hálfu fyrrgreindra samtaka
að siðasta tilkynning Verðlagsnefndar um lækkun verzlunarálagningar
verði dæmd dauð eða ómerk.
Jafnframt segir I tilkynningu
frá þessum samtökum að þau geti
ekki fyrr en dæmt verður i þessu
máli hjá Verðlagsdómi, sagt til
um hvort að seljendur vöru eigi
að fara eftir hinum nýju véfengdu
ákvæðum, eða eldri tilkynningu
um hámarksálagningu nr, 33 frá
24 nóvember 1977,
Með þessari tilkynningu skora
fyrrgreind samtök á vöruseljend-
ur að halda fast við ákvæðin um
hámarksálagninguna og fara
þess á leit við þá að þeir tilkynni
tafarlaust allar tilraunir verð-
lagsyfirvalda til að lækka
álagninguna. Einnig er farið
fram á það við verðlagsdóm, að
hann taki ekki fyrir mál sem
verðlagsstjóri kunni hugsanlega
að visa þangað, vegna meintra
brota á hinum véfengdu verðlags-
ávkæðum, fyrr en dæmt hefi verið
um það hvor lögin skuli gilda.
Vegna þessa máls sneri Timinn
sér til fulltrúa Verzlunarráðs
Islands og fulltrúa verðlagsstjóra
og bað þá að segja álit sitt á þessu
máli
Þorvarður Eliasson fram.-
kvæmdastjóri Verzlunarráðs
Islands hafði það að segja um
þetta mál að það væri til komið
vegna þess að fulltrúar Verzlun-
arráðs Islands, Kaupmannasam-
taka Islands og Félags Stórkaup-
manna teldu að þau nýju
álagningarákvæði sem gilda ættu
samkvæmt ákvörðun Verðlags-
nefndar, væru ólögleg.Fyrst og
fremst væru, þau ólögleg vegna
þess að enginn rökstuðningur
hefði verið færður fyrir þvi af
hálfu Verðlagsnefndar, að lækka
þyrfti verzlunarálagninguna, en
þann rökstuðning þyrfti fram að
færa lögum samkvæmt. Engin
könnun hefði verið gerð af hálfu
Verðlagsnefndar á stöðu fyrir-
tækja áður en álagningin hefði
verið lækkuð, en i nóvember s.l.,
hefði það verið álit verðlagsstjóra
og meirihluta Verðlagsnefndar,
þegar álagningin var hækkuð um
10% að sú álagning sem þá hefði
gilt væri sú lægsta sem möguleg
væri. Þorvarður Eliasson sagði
ennfremur að fyrrgreind samtök
mótmæltu harðlega á hvern hátt
viðskiptaráðumeytið heföi haft
áhrif á þessi mál og töldu afskipti
viðskiptaráðherra af þessu máli
brjóta i bága við lög. Rikisstjórn-
in hefði getað farið löglega leið til
þessaðlækka verzlunarálagning-
una, t.d. með frumvarpi þess efn-
is á Alþingi, en það hefði ekki ver-
ið gert.
Hjá fulltrúa verðlagsstjóra
Kristjáni Andréssyni, fengust
þær upplýsingar að sá háttur sem
hafður hefði verið á i sam-
bandi við verzlunarálagningu,
vegna gengisfellingar, hefði
verið tekinn upp eftir 1960, þvi
að óeðlilegt hefði verið talið
að kaupmenn fengju að nota
sömu álagningu eftir gengisfell-
ingar og þeir hefðu notað fyrir
þær. Þeirri reglu hefði verið fylgt
frá 1960 að kaupmenn hefðu feng-
ið að taka 30% af hækkun inn i
verð til að byrja með, en þegar
launahækkanir hefðu komið til
hjá þeim sem unnið hefðu hjá
kaupmönnum en þegar launa-
hækkanir hefðu komið til hjá
þeim sem unnið hefðu hjá kaup-
mönnum, hefðu kaupmenn fengið
að nota fulla álagningu. Þessi
regla sem nefnd hefur verið 30%
reglan hefði verið eins og áður
segir i gildi frá 1960 og hefði henni
einnig verið beitt nú. Aðeins einu
sinni áður, þ.e.a.s. 1961 hefði not-
kun þessarar reglu verið kærð
þar til nú, þrátt fyrir að henni hafi
oft verið beitt áður.
Ingvar Gislason um
verksmiðjuna á Þórshöfn:
Grófar missagnir
í greinargerð
Stefáns Jónssonar
KEJ — I gær var útbýtt á Al-
þingi frumvarpi til laga um
kaup rikisins á södarverksmiðj-
unni á Þórshöfn. Flutningsmaö-
ur frumvarps þessa er Stefán
Jónsson og segir hann m.a. i
greinargerð með frumvarpinu
að þingmenn stjórnarflokkanna
i Norðurlandskjördæmi eystra
hafi ekki „treyst sér tii” að
verða við áskorun forsvars-
manna Þórshafnar um að flytja
á þingi frumvarpþess efnis að
Sildarverksmiðjur ríkisins
kaupi sildarverksmiðjuna á
Þórshöfn og komi henni i starf-
hæft ástand sem loðnubræðslu.
Ingvar Gislason alþingismað-
ur sagði i tilefni af þessu i sam-
tali við Timann að i ummælum
Stefáns fælust grófar missagnir
og ósannindi. Það er ósatt, sagði
Ingvar, að þingmenn kjör-
dæmisins hafi neitað að flytja
frumvarpið á þingi. Þetta mál
var til meðferðar hjá þing-
mannahópnum þegar Stefán
Jónsson klauf sig þar út og f lutti
málið á eigin spýtur, i sýndar-
mennskuskyni, vil ég segja,
sagði Ingvar Gislason ennfrem-
ur.
Ingvar Gislason.
Þá sagði Ingvar að atvinnu-
mál Þórshafnar hafi hvilt á
herðum stjórnarþingmanna um
langt skeið og hefðu þeir unnið
ötullega að lausn fjárhagsvand-
mála staðarins. Við berum eng-
an kinnroða fyrir afskipti okkar
af þessum málum, sagði Ingvar
og kvaðst ekki mundu trúa að
Framhald á bls. 19.
Ef nahagsmálaályktunin er á 6. síðu