Tíminn - 17.03.1978, Side 3
Föstudagur 17. marz 1978
3
Séö inn eftir verksmiöjusal hinnar nvju verksmiöju. Bökurnarofninn til hægrier engin smásmíöi.
Kexverksminjan Holt:
Ný verksmiðja
*
Hlj ómplötusala
tífölduð á sex árum
HKI — Fyrsti samningafundur
okkar i.F.Í.H. með Félagi hljóm-
plötuframleiðenda er ákveðinn i
dag. 15 mánuðum eftir uppsögn
sex ára gamalla samninga. sagöi
Sverrir Garðarsson, formaður
Félags tslenzkra Hljómlistar-
manna i gærdag.
Gangur málsins er sá að i janú-
ar 1977 sendi F.i H. Islandsdeild
Alþjóðasambands hljómplötu-
framleiðenda bréf, þar sem
itrekuð var ályktun aðalfundar
félagsins um uppsögn samninga.
t október var sent annað bréf. þar
sem farið var fram á samninga-
viðræður. Þvi var ekki sinnt og
var þvi boðað til verkfalls frá 10.
marz. sem nú stendur yfir.
Sverrir sagði að þegar samn-
ingur þessi um greiðslur til hljóð-
færaleikara fyrir undirleik á
hljómplötum var gerður fyrir sex
árum, hafi hljómplötuútgáfa hér
verið smá i sniðum. Plötur seld-
ust þá i 1000 til 1500 eintökum og
hljóðfæraleikarar hafi þvi samið
um lágar greiðslur til að gera
þessa útgáfu mögulega.
Xúer þetta allt brevtt. Plötuút-
gáfa er orðin atvinnugrein og sal-
an nær tifölduð. bætti þvi F.t.H.
ékki nema sanngjarnt að hljóð-
færaleikarar nytu einhvers af
þessari fjölföldun. Við förum
fram á að greiðsla hækki um
u.þ.b. -helming. Hljóðfæraleikar-
ar fá greitt fyrir hverja upptöku,
en siðan ekki meir, þó að platan
veröi sigild og pressuð kannski i
1000 nýjum eintökum árlega i
fjölda ára.
Að lokum vildi Sverrir taka það
fram. að hljómpiötuútgáfan Ið-
unn hefði nú þegar skrifað undir
nýja samninga.
1
Holtagörðum
KSE— Um þessar mundir er
Samband tslenzkra Samvinnu-
félaga að hefja dreifingu á nýju
islenzku kexi, út nýrri kexverk-
smiðju Sambandsins. Þessi nýja
kexverksmiðja heitir Kexverk-
smiðjan Holt og er til húsa i
nýbyggingu sambandsins i Holta-
görðum.
Enn sem komið er framlei*
ir verksmiðjan aöeins 3 tegundir
af kexi. þ.e.a.s. Mjólkurkex, Van-
dlukex og Kornkex, en fvrir hug-
að er að i framtiðinni verði teg-
undum fjölgaö og þá verður einn-
ig lögð áherzla á vandaðri teg-
undir.
Verksmiðjan er til húsa i rúm-
góðum sal i Holtagörðum og er
allt hreinlæti og aðbúnaður til
fyrir myndar.
Til þess að koma starfseminni á
rekspöl var fenginn danskur sér-
fræðingur frá dönsku samvinnu-
hreyfingunni Georg Engstrup,
en hann hefur unnið i um 40 ár
sem kexverksmiðjustjóri i sinu
heimalandi. Engstrup var Sam-
bandinu til ráðgjafar um kaup og
uppsetningu á vélabúnaöi, en
hann er fenginn frá trlandi og er
hann keyptur notaður. Vélabún-
aðurinn samanstendur af geysi-
stórum bökunarofni, en hann er
56 metra langur og gerast bokun-
arofnar i Evrópu ekki lengri og
hrærivélum og færiböndum, auk
pökkunarvélar, en hún er frönsk
og mjög afkastamikil.
t.'stuttu máli er framleiðslu
þannig háttað að um 400 kg af
deigi eru hrærð i stórri hrærivél,
en úr hrærivelinni er deiginu lyft
upp og hvolft ofan i sjálfa bökun-
arvélina. Þar rennur það fyrst á
milli nokkurra valsa, sem jafna
ur þvi og gera það aö sléttri sam-
anhangandi lengju. Þessi lengja
fer siðan inn i serstaka vél, sem
heggur úr henni hráar kexkökur.
en það sem afgangs verður af
deiginu rennur til baka og er nvtt
aftur. Kökurnar renna siðan inn i
bakaraofninn.
1 gegnum bakaraofninn renna
kökurnar siðan á hægri ferð á
færibandi. Að þvi loknu koma þær
fullbakaöar út úr hinum endanum
á ofninn. og þá er þeim lyft upp á
færiband. þar setn þær leggjast á
hvolf og renna til baka eftir þvi,
sömuleiðis á hægri ferð. og kólna
þá á bakhliðinni. Þaðan fara þær
á annað færiband þar sem þeim
er aftur snúið við, og kólnar þá
hin hliðin en alls eru þessi færi-
bönd um 75 metrar á lengd. Af
færiböndunum koma kökurnar
siðan að pökkunarvélinni. Það er
eina stigið á framleiðslunni, sem
ekki er sjálfvirkt, allt frá þvi að
deigið er sett inn i vélina. Þar
taka starfsmenn verksmiðjunnar
við kexinu, raða þvi inn i pökkun-
arvélina, sem siðan vefur sell-
ofanbréfi utan um hvern pakka og
lokar honum. Þar með er fram-
leiðslunni lokiö og ekkert eftir
annað en að raða pökkunum er
kexið siðan sent út til verzlana.
Að sögn forráðamanna hjá
Sambandinu mun aðalmarkmiðið
með stofnun þessarar nýju verk-
smiðju. er það að keppa við inn-
flutt kex. auk þess sem að eðlileg
samkeppni mun skapast á milli
verksmiðja innanlands. Arlega
larahérá landi um 2000 tonn á
markað og þar af er helmingur
innflutt. Kexverksmiðjan Holt
mun framleiða um 400 tonn ár-
lega. en dagleg afköst verksmiöj-
unnar eru i kring um 2 tonn. Mjög
litið starfslið þarf yið verksmiöj-
una. en nú vinna þar 12 manns og
þar af vinna flestir við pökkun.
Stjórnandi verksmiðjunnar er
örnólfur Ornólfsson bakara-
meistari.
Eins og áður segir er unnið að
dreifingu kesinx i verzlanir um
þessar mundir en mjög hag-
kvæmt er fyrir Sambandið,
hversu góð dreifingarþjónusta
þess er góð og var áformað að
kexið yrði jafn vel komið á mark-
að um allt land i dag.
1 vélinni fremst á myndinni eru kexkörurnar þynntar niður i eðlilega stærö og eru þær um 39 stiga heitar
þegar þær eru mótaðar. Timamyndir Itobert.
Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs á æfingu. Timamynd G.E.
Nemendur Tónlistarskóla
Kópavogs i tónleikaferð til
Akureyrar
Akureyringar fá skemmtilega
heimsókn nú um helgina, en þá
munu 28 nemendur Tónlistar-
skóla Kópavogs halda tónleika i
Akurevrarkrikju Er þetta jafn-
framt i fyrsta sinn sem nemendur
skólans fara i tónleikaferð til
Akurevrar, en þeirhafa einu sinni
áður farið i tónleikaferð til Sel-
foss.
Hljómsveit Tónlistarskóla
Kópavogs varstofnuð árið 1970 og
var Fáll Gröndal fyrsti stjórnandi
hennar og allt til ársins 1976. en
þá tók Ingi B. Gröndal við stjórn
og hefur verið stjórnandi siðan.
Hljómsveitin kom fyrst fram
opinberlega áprQ 1973, og hafa
slikir tónleikar verið árlegur við-
burður i starfsemi hennar.
Meðal þeirra sem koma fram á
tónleikum Tón 1 is ta r sk ól a
Kópavogs i Akureyrarkirkju á
laugardag er Berglind Bjarna-
dóttir, en hún mun væntanlega
Ijúka einsöngsprófi i vor. Tónleik-
arnir hefjast kl. 17.
SST—.
Safna efni í
bók um ísland
IIEI — 1 kvöld er væntanlegur
hingað til lands 110 manna hópur
nemenda og kennara frá Lýðhá-
skólanum i Kungálv i Sviþjóð og
mun hann dvelja hér i 10 daga.
Fararstjóri er dr. Magnús Gisla-
son rektor skólans.
I vetur hefur skólinn haft ísland
sem aðalnámsefni fyrir nemend-
ur. Hafa þeir viðað að sér marg-
háttuðum fróðleik um land og
þjóð. Með dvöl sinni hér um pásk-
ana vill hópurinn enn auka við
þekkingu sina. Til þess mun hann
m.a. ferðast nokkuð t.d. til Vest-
mannaeyja, Akraness, Gullfoss
og Geysis. Þingvalla og Hvera-
gerðis.
Hugmyndin er að safna efni i
bok um tsland, sem námshóparn-
ir hafa viðað að sér vetrarlangt
og reka smiðshöggið a hana með
dvöl sinni hér á landi.
Mun þessi hópur frá Lýðháskól-
anum í Kungálv hafa bækistöð i
Miðbæjarskólanum i Reykjavik
yfir páskana. Nær 150 nemendur
frá is'.andi hafa stundað nám i
Kungalv og er þeim bent á að
hafa samband við hópinn i' Mið-
bæjarskólanum.
Innbrot í Fossvogsskóla —
70 þúsund krónum stolið
ESK — t gær var brotizt inn i
Fossvogsskóla og barnaheimili
þar igrenndinni. t Fossvogsskóla
vorubrotnar tvær hurðir og tvær
rúður og alls var stolið úr skólan-
um 70 þúsund krónum i pening-
um. Þegar haft var samband við
Njörð Snæhólm i gærkvöldi, sagði
hann að trúlega heföu þeir hjá
rannsóknarlögreglunni fundið
þann sem að innbrotinu stóð. þó
að hann hefði ekki viðurkennt
innbrotið ennþá.
Málefni islenzkra sérleyfis-
hafa á dagskrá i sænsku
timariti
Blaðinu hefur nýlega borizt i
hendur sænskt bilatimarit,
Svensk Omnibustidning, 2. tbl.
þessa árs, og er það að verulegu
leyti helgað málefnum sérleyfis-
hafa á íslandi.
Vandamá! sérleyfishafa hér á
landi eru rædd og þeim gerð góð
skil. Sagt er frá helztu fyrirtækj-
um, sem hér stunda langferða-
akstur, og einnig fljóta meö
nokkrar giðer sögur af gamal-
reyndum köppum sem hafa veriö
lengi í þessum „bransa", eins og
Guðmundi Jónassyni og ólafi
Ketilssyni. Fjölmargar Ijós-
myndir prýða greinarnar, sem
greinarhöfundur, Göran Werner,
hefur tekið.
—sst.