Tíminn - 17.03.1978, Blaðsíða 5
Föstudagur 17. marz 1978
5
„Jú. sjáðu til, maður sér þessi verk sin i allt öðru Ijósi, þegar þau eru
komin manna á meðal og mér finnst alveg nauðsynlegt aö verkin min
hleypi heimdraganum,” sagði Sigurjón ólafsson myndhöggvari, þegar
við litum inn á samsýningu hans og Þorvaldar Skúlasonar listmálara i
Bogasai Þjóðminjasafnsins i gær. Sigurjón sýnir þarna 17 verk, hiö
elzta frá 1974, en Þorvaldur sýnir 15 myndir frá „geometriska” tíma-
bili sinu, árunum 1952-1962.
Sýningin verður opin til 28. marz frá kl. 14-19. Myndin sýnir Sigurjón
og „Drauginn”. Ljósm. Timinn G.E.
Páskaferð
Utivistar
Páskaferð Útivistar verður á
Snæfellsnes. Lagt verður af stað á
skirdagsmorgun kl. 9,00, og kom-
ið aftur um kvöldið á annan i
páskum. Hér er þvi um fimm
daga ferð að ræða.
Gist verður i Félagsheimili
Staðarsveitar, stóru og glæsilegu
húsi að Lýsuhóli. Þar er mjög góð
eldunaraðstaða á rafmagnsvél-
um i stóru eldhúsi, með borðum
og bekkjum. Húsið er hitað upp
með jarðhita. A staðnum er sund-
laug. Gengið verður á Snæfells-
jökul og skoðaðar hinar fornu
hellaristur i Sönghelli. Komið
verður að Arnarstapa og gjárnar
og Gataklettur skoðaður. Þá
verður komið að Hellnum og hinn
fagri Baðstofuhellir skoðaður.
Gengin verður hin forna þjóðleið
milli Hellna og Stapa. Komið
verður að Bárðarlaug og Búðum.
Fram-Búðir veröa skoðaðar og
hinn sérstæöi gullsandur við
ströndina. Farin veröur hin forna
þjóöleið um Búðahraun að Búöa-
kletti, og gengið i hellinn. Gengið
verður á Svalþúfubjarg og þaðan
að Lóndröngum og Malarrifi. A
þeirri leið verða tindar rótar-
hnyðjur i fjörunni.
Ekið verður að Djúpalónssandi
og aflraunasteinarnir skoðaðir.
Þá verður farið i Dritvik og hin
stórfenglega Tröllakirkja skoðuð.
Komið verður að hinu forna
völdunarhúsi, sem er einstakt i
sinni röð, og Dritur og Bárðarskip
skoðað. Gengið verður um Blá-
feldarhraun og á Helgrindur með
útsýn yfir Breiöafjörð.
Alla dagana veröa gönguferðir
og ökuferðir við hvers manns
hæfi Ek'ið'verður fýrir Jökul og
komið að Hellissandi, Rifi, og
Olafsvik. 1 Rifi veröur steinninn,
sem Björn á Skarði var höggv-
inn á, skoðaður, en sagt er að þar
sé jafnan blóð i axarfarinu.
öll kvöld verða kvöldvökur með
söng, sögum, myndasýningum og
músik og dans. Farseðlar eru
seldir á skrifstofu Útivistar i
Lækjargötu 6. Þaulkunnugir far-
arstjórar verða með i ferðinni og
fara i allar ferðir, sem farnar
verða.
*
Islandsmeistaramóti i
fimleikum frestað
Stjórn F.S.l. hefur ákveðið að
islandsmeistaramóti i fimleikum
skuli frestað vegna ýmissa ófyr-
irsjáanlegra annmarka á þvi a
halda það dagana 18. og 19. marz.
Hefur þvi stjórnin ákveðið að
halda það laugardaginn 8. og
sunnudaginn 9. april 1978 i
iþróttahúsi Kennaraháskóla Is-
lands og hefst keppni kl. 15 báða
dagana. Fyrri daginn verður
keppt i skylduæfingum karla og
kvenna, en siðari daginn i frjáls-
um æfingum. Þátttökutilkynning-
ar berist til stjórnar F.S.l. i sið-
asta lagi laugardaginn 25. marz.
Dagana 4.-7. april verður dóm-
aranámskeið karla og kvenna.
Tveir norskir kennarar koma
hingað til lands og kenna á þessu
námskeiði. Kennsla fer fram i
iþróttahúsi Kennaraháskólans kl.
18.15-22.00.
Kennt verður samkvæmt
keppnisreglum Alþjóðafimleika-
sambandsins.
golfteppi
Úrval af Rya-teppum
Einlitum og munstruðum — Ensk úrvalsvara
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
BYGGINGARVÖRUR Teppadeild
SUÐURLANDSBRAUT 32 SÍMI 82033
ÆZ^fjölnotavagninn
ER MEIRI EN HANN SÝNIST!
Með aukabúnaði má nota hann sem almennan flutningavagn,
sem votheysvagn, sem baggavagn og sem mykjudreifara.
Sá bóndi, sem hugleiðir kaup á tækjum til ofangreindra nota,
þarf því ekki annað en kaupa JF-vagninn til að leysa sínar
þarfir. Vagnarnir eru á belgmiklum dekkjum og með drifbúnaðí
og færibandi í botni.
Áætlað verð frá kr. 560.000
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555